Morgunblaðið - 30.09.1993, Page 10

Morgunblaðið - 30.09.1993, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993 Páll Reynisson Páll Reynisson: „Hestur - einn á ferð.“ Páll Reynisson: „Nótt - Snæfellsnes.“ 1990. 1992. Myndlist Eiríkur Þorláksson Ljósmyndin hefur stöðugt verið að styrkjast undanfarin ár sem blómlegur meiður myndlistarinn- ar. Því til vitnis má nefna að ljós- myndir ýmissa þeirra meistara sem störfuðu á fyrri hluta aldar- innar, t.d. Man Ray og Imogen Cunningham, hafa farið á sífellt hærra verði á uppboðum erlendis upp á síðkastið. Hér á landi hef- ur íjöldi ljósmyndasýninga einnig aukist undanfarin ár og hafa þær beint sjónum manna í auknum . mæli að þessari listgrein og þeim möguleikum, sem hún býður upp á. Þetta kemur upp í hugann þegar skoðuð er ljósmyndasýning Páls Reynissonar í Listasafni ASI við Grensásveg. Þar eru nýjustu tilbrigði tækninnar hins vegar ekki í aðalhlutverki, heldur er tekist á við myndefnið með mark- vissum, tímafrekum vinnubrögð- um, sem hafa einkennt Ijósmynd- ina sem Iistgrein alla tíð; aðall sýningarinnar er fyrst og síðast sú nákvæmni og þolinmæði, sem sýningargesturinn finnur strax, að liggur að baki. Páll Reynisson staðfestir þetta í einfaldri en fagmannlegri sýn- ingarskrá. Þar kemur fram að nú er áratugur síðan hann hélt sína fyrstu einkasýningu á Kjarv- alsstöðum; þessi sýning er árang- ur þriggja til fjögurra ára undir- búningsvinnu. Á sama tíma hefur Páll unnið sem kvikmyndatöku- maður hjá Sjónvarpinu, þar sem hann hefur átt þátt í gerð ótölu- legs fjölda innlendra sjónvarps- þátta í gegnum árin. En ljósmyndin er ólík hreyfí- myndinni þrátt fyrir skyldleik- ann, því þar er frysting augna- bliksins algjör; ljós, skuggar, form og litir eru þar fest fyrir eilífðina. Því mætti ætla erfitt fyrir listamann að hlaupa milli þessara miðla, en af sýningunni að dæmá virðist Páli takast það með ágætum. Hér sýnir hann alls 65 myndverk, sem ýmist eru unnin í lit eða svart/hvítt; í nokkrum hluta verkanna er myndin samsett úr ímyndum sem eru teknar af tveimur eða fleiri filmum og þannig búinn til nýr myndheimur. Myndbygging Páls í verkunum er afar hnitmiðuð og markvisst samspil heildar og hluta sett fram í hveiju tilviki. Myndskurðurinn ræður þar mestu; þannig eru myndirnar hér í mörgum tilvikum skornar út úr stærri mynd, til að hin einstöku atriði fái sem best notið sín. Sem dæmi um vel heppnaðar myndir af því tagi má nefna „Kaðlar - ísafirði" (nr. 6), þar sem trosnaðir, sjódregnir vafningarnir bera með sér styrk og þéttleika efnisins, og „Strá í vatni“ (nr. 40), þar sem lífið sprettur fram, þó það sé aðeins í formi fáeinna veiklulegra stráa. En stundum er það þó sterkur heildarsvipur augnabliksins sem ræður öllu, líkt og í „Nótt - Snæ- fellsnes" (nr. 58). Samsettu verkin lýsa sömu natni við myndbygginguna. I borgarmyndunum frá New York er sjónarhornið ætið upp á við og lýsir þannig smæð mannsins innan um þá háreistu kassa stáls og glers, sem einkenna stórborg- ina; inn í þetta umhverfi setur Páll hins vegar tré og fugla, líkt og til að minna áhorfendur á að lífið í öllum sínum óreglulegu formum er undirstaða þess, sem þarna getur að líta. Aðrar samsetningar koma jafnvel meira á óvart, enda velur listamaðurinn sér þar íslensk náttúrfyrirbæri og setur í ný samhengi; einkum gildir þetta um notkun hans á ólíkum birtu- skilum himins og hafs. Sú sam- setning sem vekur þó mesta at- hygli er „Snæfellsjökull + tré“ (nr. 17), þar sem kræklótt hríslan skyggir á veldi jökulsins; það er líklegt að þessi gáskafulla mynd veki misjafna hrifningu manna, vegna virðuleika fjallsins. I nokkrum tilvikum hefur Páll gert bæði litmyndir og svart/hvítar ljósmyndir út frá sama myndefninu, eins og t.d. í myndum nr. 3 og 36, sem báðar heita „Stuðlaberg - Vesturdalur"; annað slíkt par mynda er frá Jökulsárlóni. Hér gefst áhorfand- anum gott tækifæri til að bera saman ólíkar vinnuaðferðir jafnt sem eigin viðbrögð; hvort heillar meira, blæbrigði biitunnar eða mynstur og áferð myndefnisins? Einangrun myndefnisins er einn- ig mikilvægt viðfangefni lista- mannsins, og þar kemst hann einna næst hinni fullkomnu mynd, sem.leitin stendur að; eitt besta dæmið um þetta er „Hestur - einn á ferð“ (nr. 53), sem dreg- ur áhorfendur að sér aftur og aftur. Við stækkun nokkurra svart/ hvítra mynda, sem flestar sýna gömul og úr sér gengin hey- vinnslutæki, hefur listamaðurinn notað tæknina á nýstárlegan hátt til að mýkja andstæðurnar; með því að setja ákveðinn ljós- myndafilter á stækkarann sjálfan hefur hann náð fram afar sér- stæðri áferð á myndirnar, eins og í „Rakstrarvél" (nr. 22). Þann- ig er áferðin ákveðin í úrvinnsl- unni, en ekki ljósmynduninni sjálfri. Það er ekki hægt að ljúka umsögn um þessa sýningu án þess að bera lof á frágang henn- ar- og uppsetningu. Hver ljós- mynd er römmuð inn af svörtum pappa, sem er þó hvítur þar sem hann er skorinn í kringum mynd- ina; þannig verður til skýr innri rammi, sem markar myndskurð- inn afar vel og þar með myndina í heild. Svartur pappinn gefur myndinni síðan virkari bákgrunn en gæti nokkurn tíma tekist með hvítu kartoni, þar sem hlutleysið er of mikið. Páll hefur þannig lagt áherslu á að leysa hvert einasta smáat- riði, allt frá myndatöku til þess tíma að myndin kemur fyrir sjón- ir sýningargesta. Þetta hefur tek- ist vonum framar, eins og góð aðsókn að sýningunni getur von- andi borið vitni um. Ljósmyndasýning Páls Reynis- sonar í Listasafni ASÍ við Grens- ásveg stendur til sunnudagsins 3. október og er rétt að hvetja fólk til að láta hana ekki fram hjá sér fara. DREGIÐ VERÐUR 8. OKTÓBER MIÐAVERÐ AÐEINS KR. 600 Happdrætti Hjartaverndar 1995 1. vinningur: Mitsubishi Lancer með aldrifi. Verð kr. 1.600.000.- 2. vinningur: Mitsubishi Colt 1600. Verð kr. 1.300.000.- 20 skattfrjalsir vinningar að verðmœti kr. 9.000,000,= 10 „Út í heim"- vinningar með Flugleiðum, hver á kr. 140.000.- Greiðslukortaþjónusta Þú getur greitt heimsenda miðann þinn með greiðslukorti! Sími 813947 (E) HwSP HJARTAVERND - í þína þágu I 1 HEKLA Laugavegi 170 - 174 • Sími 69 55 ÁRATUGA RANNSÓKNIR OG FORVARNIR í ÞÍNA ÞÁGU HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.