Morgunblaðið - 30.09.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993
Leikfimi á
meðgöngu
á myndbandi
LEIKFIMI fyrir þungaðar kon-
ur nefnist myndband sem Geir
Hólmarsson hefur gefið út. Eins
og nafn bandsins gefur til
kynna, er þarna á ferðinni
kennsla í leikfimiæfingum fyrir
barnshafandi konur.
Esther Sigurðardóttir sjúkra-
þjálfari og Edda Jóna Jónasdóttir
ljósmóðir unnu að gerð mynd-
bandsins ásamt framleiðanda
þess, Geir Hólmarssyni. Að sögn
hans er spólan 110 mínútur að
lengd með tveimur leikfimiþáttum
fyrir þungaðar konur. Kenndar eru
æfingingar fyrir konur með bak-
og mjaðmagrindarvandamál, auk
þess sem fjallað er um stellingar
við bijóstagjöf og vinnustellingar.
Spólan kostar tæpar 3.000
UPPSKRIFTIN
krónur og segir Geir Hólmarsson
að ein af ástæðum fyrir gerð
myndbandsins hafí verið að mæta
þörfum kvenna sem búa á lands-
byggðini og hafa ekki aðgang að
meðgönguleikfími. Einnig hafí
hann verið ósáttur við það efni sem
konum stóð til boða varðandi leik-
fími á meðgöngu. ■
VERÐLÆKKUN!
Afinœliskynning á
Ömmukleinum
Ömmukleinur
- gott íslenskt kaffibrauð!
^Jfrtí*tíng*r í 40 ití jJS,
Bakarí Friðriks Haraldssonar sf.
Kársnesbraut 96, Kópavogi sími 91-41301
Saltfiskréttur að
hætti Jóakims í Lissabon
SALTFISKRÉTTIR geta verið hið mesta sæl-
gæti. Portúgalar og Spánveijar hafa löngum
haft orð á sér fyrir leikni í að matreiða salt-
fisk. Þegar ég var í Lissabon og dvaldi á Hótel
Altis fékk ég saltfiskrétt í Grillinu þar og mér
fannst ástæða til að biðja kokkinn að gefa mér
uppskriftina í nestið.
Það var auðsótt mál og Jóakim kokkur bað fyr-
ir kveðjur og vonaði að mönnum líkaði rétturinn.
Það et' afar einfalt að búa hann til og nú hef ég
tvívegis haft saltfisk að hætti Jóakims á borðum
við góðar undirtektir.
hólft kíló beinlaus saltfiskur
1 laukur
3-4 tómatar
hólf græn paprika
3 hvítlauksrif
5-7 msk. ólífurolía
rifinn ostur
2-3 sneiðar skinka
Soðnum saltfískbitum raðað í eldfast mót. Paprikan skor-
in smátt, svo og laukur, hvítlaukur og tómatar. Ólífuol-
ían sett yfir en má nota smjör ef menn vilja. Einnig-
Morgunblaðið/JK
má hafa meiri hvítlauk. Látið í 220 gr heitan ofn í um
20 mínútur. Síðan er rifinn ostur og skinkan sett efst
og bakað í 10 mínútur til viðbótar við eilítið hærri hita.
Með fiskinum má nota hrísgtjón eða kartöflur og
Jóakim stakk upp á að mætti skera þær niður og baka
þær með í sama formi. Nýtt gróft brauð borið með.
Þessi uppskrift dugar fyrir þijá. Efni í réttinn kostar
liðlega 600 krónur. ■
Níu varalitir kosta álíka
mikið og einn frá þekktu tískuhúsi
AUGNHÁRALITUR, andlitsfarði
og varalitur sem keypt er í versl-
uninni Allt í Breiðholti, kostar
tæplega 800 krónur og er þó
miðað við að keyptur sé dýrasti
augnháralitur í búðinni, með
næringu og keratíni. í verðkönn-
un Daglegs lífs í síðustu viku kom
fram að algengt er að sami
„snyrtivörupakki" frá þekktu
tiskuhúsunum kosti í kringum
4.000 krónum, þó vitaskuld sé
verðið misjafnt.
Snyrtivörurnar eru breskar frá
fyrirtækjunum Caroll og Gailery.
Blaðamenn á Daglegu lífí ákváðu
að prófa þessar vörur í nokkra daga
til að bera saman við snyrtivörur í
snyrtiveskjum okkar. Umbúðir um
ódýru snyrtivörurnai' eru ekki jafn
glæsilegar og traustvekjandi og
utan af Christian Dior, YSL, Chanel
og Clinique, svo dæmi séu nefnd.
Varalitur frá Gallery kostaði 179
krónur. Hann þakti varirnar jafn
vel og YSL-varalitur sem fannst í
einu snyrtiveskinu, auk þess sem
hann hélst vel á. Hins vegar var
lykt af honum sem ekki þótti sér-
Iega góð. Þess má geta að YSL-
varaliturinn hafði verið keyptur á
1.700 krónur skömmu áður. Verð-
munur er því kringum 1.500 kr.
Andlftsfarðlnnn ekkl
sambærilegur
Andlitsfarði frá Caroll lenti í sam-
anburði við farða frá Christian Dior.
Sá fyrrnenfdi kostar 249 krónur og
sá síðarnefndi rúmlega 2.200 krón-
ur í fríhöfninni. Ekki þótti Caroll-
farðinn sambærilegur, því hann er
þykkari og jafnast ekki jafn auð-
veldlega út og farðinn frá Cristian
Dior. Aftur á móti erti hann ekki
húðina og með lagni varð áferðin
jöfn. -
Naglalakk frá Caroll var borið
Morgunblaðið/RAX
Ódýrar snyrtivörur. Þær eru ekki að öllu leyti sambærilegar við
vörur þekktra tískuhúsa, en gott er að vita af valkostinum.
saman við Christian Dior-lakk.
Þægilegt var að bera báðar tegund-
ir, en Dior-lakkið hélst lengur án
þess að flagna. Glas af Christian
Dior-naglalakki* kostaði í kringum
1.500 krónur, en glas af Caroll-lakk-
inu 199 krónur. Um 1.300 krónu
verðmunur gæti því hugsanlega
haft áhrif næst þegar keypt verður
naglalakk.
Sambærilegir augnskuggar
Augnskuggar frá Caroll voru
prófaðir en þeir eru til í ýmsum lit-
um. Til prufu voru notaðir 2 litir í
nokkra daga og var auðvelt að bera
þá á auk þess sem þeir héldust prýði-
lega á augnlokunum. Ekki var áber-
andi munur á þeim og Christian
Dior-skuggum sem notaðir voru til
samanburðar. Tveiv litir í öskju
kosta 199 krónur, en 12 litir í öskju
kosta 449 krónur.
Varablýantar frá Gallery eru til
í mörgum litatónum. Þeir kosta 169
krónur og reyndust prýðilega. Hið
f ^ íslenskt ®
vjKEiinicti
vildir þú vera án þessi
ISLENSKIR BÆNDUR
sama er að segja um augnabrúna-
blýanta sem kosta 125 krónur og
augnlínublýanta sem eru á sama
verði. Púður frá Gallery þótti sam-
bærilegt við aðrar tegundir.
Leitin að hinu ódýra
Vigdís Stefánsdóttir eigandi
verslunarinnar sagði í samtali við
Daglegt líf að henni þætti líklegt
að verðmunurinn fælist í hagstæð-
um innkaupum. Auk þess væri ekki
mikill kostnaður í umbúðum og
háum ijárhæðum ekki eytt í auglýs-
ingar. „í innkaupaferðum í útlönd-
um leitum við að ódýrum en fram-
bærilegum vörum og lítum ekki við
öðru. Til að finna þær notum við
bæði handbækur og fæturna, aðal-
lega þó fæturna." Þó þessar vörur
séu ekki að öllu leyti sambærilegar
við snyrtivörur frá stóru tískuhúsun-
um, verðui1 því ekki neitað að það
er góð tilfinning að vita af þessum
valkosti í þeirri sparnaðartíð sem
nú stendur yfir. ■
BT
Ný tísku-
fataverslun
á Grensásveg
NÝ tískufataverslun hefur verið
opnuð á Grensávegi. Verslunin sel-
ur bæði kven- og karlmannsföt og
einnig snyrtivörur. Að sögn eiganda
verslunarinnar seíur verslunin há-
tískufatnað frá París og eru fötin
komin í búðir á sama tíma hérlend-
is og í París. Eigendur verslunarinn-
ar eru Olafur Bjarnason og Kol-
beinn Pétursson. ■