Morgunblaðið - 30.09.1993, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 30.09.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993 3í hvort á móti öðru í baðstofunni því þá rákust hnjákollar saman. Litlar slægjur þýddu að aðeins var hægt að hafa fátt fé og matur því af skornum skammti. Líka var þá lítið um ull og fatnaður þess vegna í lágmarki. Við nútímafólk getum séð ef við skoðum minjar í Beruvík hvernig reynt hefur verið að bæta úr þessu með meiri ræktun. Örlitlir blettir, hraunbollar eða sund, hafa verið varin með garði til að auka heyfeng um nokkur föng. Þessar litlu bú- jarðir í Beruvík voru setnar af fjöl- skyldum sem ekki héldu vinnufólk. Þetta voru hjón með börnin sín. Búskaparhættirnir þörfnuðust margra vinnandi handa. Hin eigin- lega framleiðsla hvers og eins var svo lítil umfram það sem viðkom- andi þurfti til sín. Hver manneskja mátti því taka til hendi ungir sem aldnir. Sjálfan sig var ekki hægt að spara. Úr þessum jarðvegi koma Karvel Ögmundsson sem er níræður í dag. Hann fæddist að Hellu í Beruvík 30. september 1903, sonur hjón- anna Sólveigar Guðmundsdóttur frá Purkey og Ögmundar Andréssonar frá Einarslóni. Þau bjuggu þarna með barnahópinn sinn sem stækk- aði ört. Þau urðu fyrir þeim ósköp- um að bærinn brann ofan af fjöl- skyldunni sem slapp út á nærklæð- unum eða öllu heldur á hluta nær- klæðanna. Þá voru börnin sjö á lífi en tvö höfðu áður látist úr barna- veiki. Þarna missti flölskyldan allt sem hún átti nema bústofninn, hann slapp. Eins og nærri má geta urðu næstu ár ákaflega erfið þessari stóru ijölskyldu. Það leiddi til þess að þegar Karvel var níu ára fór hann í fóstur til Eggerts móður- bróður síns í Bakkabæ á Hellis- sandi en hann bjó þar með Ingi- björgu Pétursdóttur frá Malarrifi. Hjá þeim var hann til fjórtán ára aldurs. Þá tóku þeir sig til hann og vinur hans, Sigurður Sveinn Sig- urjónsson og keyptu sér lítinn opinn bát. Á þessum bát gátu þeir róið og lagt aflann á sinn eigin reikn- ing. Nærri má geta hvort ungir menn hafi ekki verið sælir og stolt- ir með innleggið úr fyrstu róðrun- um. Nú var skammt atburða á milli og fímmtán ára var Karvel fyrst formaður á haustskipi. Nítján ára verður hann formaður á vetrar- skipi. Svo tekur hvað við af öðru. Hann er á skútum, útilegubátum, lærir siglingarfræði og fær skip- stjórnarréttindi og er alltaf að róa frá Sandi milli úthalda. Svo koma vélar í áraskipin og þar með urðu þau erfiðari til setningar. Þá varð að reyna hafnargerð. Sú tilraun var gerð í Krossavík sem er rétt utan við Sand. Þar var búin til svolítil hafnarkví en bátarnir settir upp á kant meðan hægt var. Þróunin leiddi til þess að þeir stækkuðu og þá var reynt að leggja þeim við múrningar utan við hafnarkvína. Staðhættir voru mjög erfiðir þarna í Krossavík enda fór svo að Karvel missti þar bát sem hann átti. Bátur- inn sem hét Höfrungur molnaði nið- ur þar í múrningunni og veiðar- færi, belgi o.fl. rak til hafs. Þetta var mikið tjón og allt ótryggt nema vélin í bátnum. Þegar þetta gerðist var Karvel tæplega þrítugur, kvæntur maður með þrjú ung börn og það fjórða á leiðinni. Hinn 14. apríl 1928 höfðu þau gengið í hjónaband Karvel og Anna Margrét Olgeirsdóttir. Hún var dóttir hjónanna Maríu Guðmunds- dóttur frá Stóru-Hellu á Sandi og Olgeirs Oliverssonar frá Gröf í Grundarfirði. Missi bátsins tók Kar- vel með æðruleysi eins og öðru. Hann sá að framtíð vélbátaútgerðar yrði erfið þarna í hafnleysinu. Þetta var um vor 1933. Um haustið voru börnin orðin fjögur og þá tók Ijöl- skyldan sig upp og fluttist suður í Njarðvík. Þar bjuggu þau fyrst í Narfakoti í Innri-Njarðvík en 1937 fluttust þau í íbúðarhúsið Bjarg í Ytri-Njarðvík. Börnunum fjöigaði. Þau urðu sjö í þessari röð: Ölga María, Guðlaug Svanfríður, Líneik Þórunn, Ester, Ögmundur, Sólveig og Eggert. Tvö úr hópnum eru nú látin, Eggert sem drukknaði 3. maí 1962 og Ester sem lést 15. maí 1989. Anna Margrét, kona Karvels lést 26. apríl 1959 aðeins 55 ára gömul. Hún hafði þá í átta ár glímt af ótrúlegum dugn- aði og æðruleysi við afleiðingar heilablóðfalls og náð allgóðum bata er sjúkdómurinn gerði aðra atlögu. Samband þeirra hjóna hafði verið mjög náið og hún alltaf hollur ráð- gjafi. Miklum umsvifum fylgir mik- ill gestagangur. Þeirra heimili stóð opið stórum hópi fólks víða að sem enn í dag minnist reglusemi og myndarskapar húsmóðurinnar. Víkjum nú aftur að umsvifum Karvels. Bræður hans Einar, Þórar- inn, Daníel, Karl og Jóhannes flutt- ust suður um svipað leyti og sett- ust að í Njarðvíkum. Þetta var sam- hentur hópur. Þeir Karvel og Þórar- inn komu upp stórveldi í fiskverk- un. Þeir byggðu frystihús, söltunar- hús fyrir fisk ðg annað fyrir síld, verkuðu skreið og þurrkuðu saltfisk í þar til gerðu húsi með rafhituðum blæstri. Hjá þeim var sett upp færi- band við síldarsöltunarkassana, lík- lega það fyrsta á landinu. Einar bróðir þeirra sá um vélarnar í frysti- húsinu, Daníel var skipstjóri og meðeigandi í einum bátnum því að bæði gerðu þeir út sjálfir og voru með báta í viðskiptum. Þessi mikli atvinnurekstur var landsþekktur og skaffaði fjölda manns vinnu alls staðar að af landinu. Það var svo 3. maí 1962 að báð- ir synir Þórarins, Einar og Sævar, ásamt Eggerti, syni Karvels, drukknuðu af trillunni Maríu. Þeir höfðu landað fiski úti í Garði og lögðu þaðan í vaxandi norðanveðri áleiðis inn í Njarðvík. Þeir komu ekki fram. Trillan fannst marandi í kafi en hún var mannlaus. Þetta var mikið áfall og Þórarinn náði sér aldrei síðan. Tveim árum áður höfðu þeir missti Daníel bróður sinn úr krabbameini. Um þetta leyti hægist um öll atvinnuumsvif en um félags- málin gegndi öðru. Það hafði verið svo að fljótlega eftir að Karvel fluttist til Njarðvík- ur hlóðust á hann félags- og trúnað- arstörf bæði fyrir hans eigið frum- kvæði og annarra. Hann var í hreppsnefnd Keflavíkur frá ★ DcROPniNT, TIME HECOROER CO. Stimpilklukkur fyrir nútíð og framtíð OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 ■ 105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ - NAMSTÆKNI Viltu margfalda afköst í starfi og námi um alla framtíð? Viltu lesa meira af góðum bókum? Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju? Skráðu þig þá strax á næsta hraðlestrarnámskeið sem laust pláss er á, en það hefst miðvikudaginn 6. október nk. Næsta námstækninámskeið sem laust pláss er á , hefst 23. október. Skráning alla daga í síma 641091.____ HRAÐLESTRARSKOLINN ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! 1938-42 og oddviti Njarðvíkur- hrepps í tuttugu ár frá 1942, for- maður Útvegsbændafélags Kefla- víkur í átján ár og formaður Olíu- samlags Keflavíkur og nágrennis í þijátíu ár. Hann var einn af stofn- endum Vinnuveitendafélags Suður- nesja og formaðut' þess í tíu ár, einn af stofnendum barnastúkunnar Sumargjafar og gæslumaður henn- ar í fimmtán ár, einn af stofnendum Ungmennafélags Njarðvíkur og í fyrstu stjórn þess og einn af stofn- endum Rotaryklúbbs Keflavíkur. Hann var formaður Sjálfstæðisfé- lags Keflavíkur og síðar einn af stofnendum og formaður Sjálfstæð- isfélagsins Njarðvíkings og er nú heiðursfélagi þess. Karvel var einn af stofnendum Samvinnutrygginga og stjórnar- maður frá upphafi og einn af stofn- endum Olíufélagsins hf. og hefur verið í stjórn þess fram á þennan dag. Karvel hefur gegnt mörgum öðrum stjórnunar- og trúnaðar- störfum um dagana. Þetta er mik- ill bálkur og sýnir það traust sem samferðamenn hafa borið til hans. Árið 1963 hóf Karvel sambúð með Þórunni Maggý Guðmunds- dóttur og eignuðust þau soninn Eggert. Þórunn átti fyrir fimm börn á æskuskeiði. Þau Karvel bjuggu saman í ijórtán ár en þá skildu leið- ir. Það var svo 1969 að hann hóf að rita ævisögu sína og það urðu þijár merkilegar bækur, Sjómanns- ævi, 1., 2. og 3. bindi. Þessar bæk- ur eru heimildir um aldarfar, sjó- sókn, veðurfræði, fiskimið, sam- ferðarmenn og margt fleira. Eitt er þó alveg sérstakt. Það eru frá- sagnir af sjóslysinu í Krossavík og í því sambandi þegar gengið var frá líkum þeirra sem fórust. Einnig frá- sögnin af því þegar hann gekk frá líki föður síns sem drukknað hafði í Hólmkelsá en rak síðar inn með Ólafsvík. Báðar þessar frásagnir eru einstæðai' og mjög þroskandi aflestrar. Þessar bækur vitna líka um jákvæða afstöðu höfundarins til lífsins og samferðarmanna. Engan sem þekkti Karvel undr- aði þó hann skrifaði frambærilegar bækur. Hann er nefnilega sögumað- ur sem hefur stundað það af íþrótt. Hann var uppalinn við sagna- skemmtan og hefur ailt sitt líf náð til hlustenda á hvaða aldri sem þeir hafa verið. Sem dæmi um það minn- ist ég þess að fyrir fáum árum fór Karvel í nokkra barnaskóla og sagði frá sjóróðrum á opnum árabátum og lífsbaráttu fyrri tíma. Þar hreif hann unga hlustendur sem iifðu sig inn í frásögnina. Það fór líka svo þegar Karvel tók þátt í samkeppni á vegum Námsgagnastofnunar að þar kom út bókin Refir. Hún er bráðskemmtileg, enda veit ég*um börn sem lesa bókina aftur og aft- ur. Að auki er bókin full af þekk- ingu á lifnaðarháttum refsins og hefur þess vegna mikið náttúru- fræðilegt gildi. Þá er höfundur líka málsvari refsins og þeir voru fáir til skamms tíma. Þá er enn frá því að segja að Karvel skrifaði bók um seli og hún er væntanleg bráðlega. Ég vil ekki segja neitt um efni bók- arinnar en er viss uin að bæði börn og fullorðnir muni njóta hennar í ríkum mæli. Hvernig er svo maðurinn sem svo lengi hefur lifað og starfað? Hallast hann ekki fram á staf sinn og telur nóg komið? Satt að segja fer því fjarri. Hann á kannske staf ein- hvers staðar inni í skáp, en sé svo ætlar Karvel líklega að nota prikið þegar hann verður gamall. Hann hefur alla tíð verið öðrum stoð og stytta og hafi það breyst, hefur það skeð núna síðustu daga. Hann er eins og fleiri af hans kynslóð ákaflega minnisgóður. Það var hér um árið að hann var að riija upp fyrir sér Grettisljóð séra Matthíasar. Hann hafði læit þetta einhvern tíma um tíu ára aldur. Ég seildist upp í skáp og fletti upp í ljóðunum. Viti menn, hann vék til einstaka smáorði en hvergi þannig að meining breyttist. Áður hef ég getið um jákvæða afstöðu hans til lífsins. Hér er frá- sögn til marks um það. Hann var með slæmsku í lungum fyrir tveim- ur árum eða svo. Fundum okkar bar ekki saman í nokkrar vikur en við ræddum saman í síma. Þegar ég vék talinu að heilsu hans, hafði hún alltaf lagast talsvert frá því við ræddum saman síðast og stund- um bara mikið. Svona liðu vikurn- ar. Þá fór ég að hugsa um allar þessar stöðugu framfarir og leggja saman eftir því sem ég gat. Niður- staðan varð sú að fáir myndu heilsu—- betri um þær mundir. Karvel hefur - aldrei sparað sjálfan sig hvorki fyrr né síðar og trúlega er þar m.a. að finna skýringu á hans góðu heilsu, líkamlegi'i og andiegri. Nú fer ég að slá botninn í. Af- mælisbarninu óska ég alls góðs í framtíðinni og bið forlagadísir að launa vel farsælan lífsferil. í dag ætla Njarðvíkingar að bjóða heið- ursborgara sínum í kaffi og gleðj- ast með honum á þessum merkis- degi. Við sem erum álengdar kom- um líka og hlökkum til. Sjálfur hlakka ég enn meira til samfunda með honum í framtíðinni. Ég trúi líka að lengi enn muni vinir hans leita á hans fund eftir stuðningi og* uppörvun í mörgum vanda. Af reynslu veit ég líka að ef hann seg- ir: „Við skulum sjá,“ stendur enginn einn með vandræði sín. Það er tilhlökkunarefni að sjá þig í dag, Karvel, í fylkingu afkom- enda. Slíkar stundir hljóta að vera þær sælustu í lífi hverrar mann- eskju. Sigurður Pálsson. I J.L. húsinu Leikfimi: Fyrir byrjendur og iþróttafólk, eldri borgara, ófrískar konur og konur með barn á brjósti Topp-timar fyrir þá sem uilja grennast Þolfimi. Funk Brennslutimar. vaxtamótun Kuennatimar. Pallatímar. Þrekhringur. Kraftganga. Hlaupahópur. J L húsið, Hringbraut 121 simi: 91- 624561

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.