Morgunblaðið - 30.09.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 30.09.1993, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1993 félk í fréttum STJÖRNUR Nastassja vill fá 25 milljónir dollara Nú þegar slitnað hefur upp úr sambúð leikkonunnar Nast- assju Kinski og tónlistarmannsins Quincy Jones hefur Nastassja farið fram á að Quincy greiði henni 25 milljónir dollara (1,8 milljarða ísl. kr.) í framfærslueyri vegna eins árs dóttur þeirra, Kenya. Sögur herma að eftir að þeim fæddist dóttirin hafi rifrildi heyrst sífellt oftar á heimilinu, sem endaði með því að Nastassja yfirgaf Quincy. Hann var ekki lengi að finna sér aðra unga konu, Emmie, og brá sér ásamt henni til St. Tropez. 28 ára aldursmunur er á Nastassju og Qu- incy og þó svo að ekki hafi enn kom- ið í ljós hversu gömul Emmie er má leiða að því líkur að aldursmunurinn sé svipaður. Quincy á fjögur hjónabönd að baki og sjö börn, en Nastassja eitt hjóna- band og þrjú börn. Hluti þátttakendanna í Miss World University-keppninni. Unnur Guðný Gunnarsdóttir sem keppti fyrir íslands hönd er á miðri mynd- inni. Ungfrú Pólland sem vann í keppninni er önnur frá hægri í miðröð. Quincy Jones var ekki lengi að finna annan kvenmann í stað Nast- assju. Hér er hann ásamt nýju vinkonunni Emmie (t.v.). Þykir hún minna mjög á Nastassju í útliti. ★ * 0 •ÍVz>RANV>' PUBLINAR5TEMMNINC OC BINCO FYRiR ELDRI BORGARA FÖSTUDAGSKVÖLD Samvinnuferðir-Landsýn (y&' Ferðakynninq. DUBLIN í máli og myndum. Fyrirhuguð ferð Lanassambands eldri borgara með Samvinnuferðum Landsýn til Dublinar á írlandi. BINGÓ. 2 ferðavinningar til Dublin, kvöldverðir á HóteíSögu o.fl. l'rsk tónlist. Jónas Þórir og Jónas Dagbjartsson leika Ijúfa írska tónlist. ^ é LITIRÓFIKD) kynnir litgreiningu og silkislæður. Hljómsveitin SAGA KLASS ásamt söngvurunum Berqlindi Björk og Reyni Guðmu leika gömlu dansana fram eftir nóttu. Húsið opnar kl 19.00 Miðaverð 600 kr. Upplýsingar í söludeild Hótel Sögu , sími 29900. - lofar góðu! SAMKEPPNI Eins og að ganga ínn í Dallasþátt Unnur Guðný Gunnarsdóttir hlaut titilinn ungfrú Evrópa í keppninni Miss World University, sem fram fór í Kóreu 18. septem- ber sl., þar sem þátttakendur voru um eitt hundrað. Sú sem reyndist sigursælust var stúlka frá Póllandi og var hún krýnd af Heiðrúnu Önnu Björnsdóttur, sem vann í keppninni í fyrra. Yngsti þátttakandinn Unnur, sem varð 18 ára 25. sept- ember var yngsti þátttakandinn, en stúlkurnar voru yfirleitt á aldrinum 19-24 ára. Hún hóf nám á ijölmiðla- braut í Fjölbrautaskólanum í Breið- holti en ákvað um áramót að taka sér frí frá námi og vinnur nú hjá Framtíðarsýn. Aðspurð hvernig staðið hefði á því að hún var valin í keppnina sagðist hún hafa starfað í Módel- samtökunum undanfarin fjögur ár. „Henný Hermannsdóttir sem er umboðsmaður keppninnar á Islandi bauð mér að taka þátt. Fram til þessa hefur fargjald og uppihald verið 'greitt af þeim sem halda keppnina, en svo bárust þær fréttir að þeir ætluðu bara að greiða uppi- haldið að þessu sinni. Það er dýrt að fljúga til Kóreu, svo ég hugsaði Frank Sinatra syngnr enn Oft getur verið erfitt fyrir fólk sem stendur framarlega í tón- listar- eða skemmtibransanum að átta sig á því hvenær tími sé kom- inn til að hætta. Þannig lýsti Tina Turner því yfir fyrir nokkru, að hún vonaðist til að einhver benti henni á hvenær hennar tími væri kominn, því ekki vildi hún standa sem gam- alt skar á sviðinu. Nú finnst mörg- um hins vegar tími til kominn fyrir Minnisleysis er farið að gæta hjá söngvaranum. Ekki undarlegt, þar sem hann er orðinn 77 ára. COSPER Herdís! Ég held hann sé þyrstur núna! i#1 piKrgS itMsifófr " Metsölublad a CO hverjum degi! Unnur kemur hér frá því að taka við viðurkenningarskjali. með mér að ekkert yrði úr ferð- inni. Síðar tókst mér að fá Ingólf Guðbrandsson til að kosta ferðina," sagði Unnur. Fínu fötin og greiðslurnar Unnur dvaldist í Kóreu í hálfan mánuð við undirbúning og segir að sá tími hafi verið mjög skemmtileg- ur. Hún minnist þess með brosi þegar hún mætti í fyrsta skipti nið- ur í morgunmat. „Eg fór ein niður og var klædd í gallabuxur og bol. Þegar ég kom inn í salinn var til- finningin eins og að ganga inn í Dallasþátt. Stelpurnar voru allar í fínum fötum með greiðsluna í lagi. Mér leið ekkert sérstaklega vel, fékk mér bara eitt djúsglas, dreif mig aftur upp og klæddi mig í önn- ur föt.“ Unnur fékk „bunka af tilboðum um að taka þátt í öðrum fegurðar- samkeppnum út um allan heim,“ eins og hún orðaði það. „Til dæmis fékk ég boð um þátttöku í Miss International, sem fram fer á Sri Lanka 9. október næstkomandi, líka í keppni sem Donald Trump heldur og nefnist Calendar Girl og mér finnst mjög spennandi. Auk þess var dómari úr Hawaii Tropical- keppninni sem bauð okkur Heið- rúnu Önnu að taka þátt þar. Það allt mjög óákveðið hvort ég taki þátt í einhveijum keppnum, en það verður örugglega ekki á næstunni," sagði Unnur. SKEMMTUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.