Morgunblaðið - 25.11.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1993
11
Stóri Dvergur: Margrét Guðmundsdóttir, Litli Dvergur: Stefán Jóns-
son, Dreitill skógardvergur: Jón St. Kristjánsson.
Þjóðleikhúsið
Skilaboðaskj óðan
Ævintýri með söngvum i Þjóðleikhúsinu
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir Skilaboðaskjóðuna, nýtt íslenskt ævin-
týraleikrit með söngvum fyrir börn á öllum aldri, fimmtudaginn 25.
nóvember næstkomandi. Höfundur Skilaboðaskjóðunnar er Þorvald-
ur Þorsteinsson og byggir hann verkið á sögupersónum í verðlauna-
barnabók sinni með sama nafni. Þorvaldur hefur einnig samið söng-
textana í sýningunni, en Jóhann G. Jóhannsson samdi tónlistina og
er hljómsveitarstjóri. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir og er
Skilaboðaskjóðan fyrsta leikstjóraverkefni hennar í Þjóðleikhúsinu.
Leikmynd og búninga gerir Karl Aspelund, Astrós Gunnarsdóttir
semur dansa og lýsingu annast Ásmundur Karlsson. í sýningunni
eru óvenju margir leikarar sem leika nú fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu.
í Skilaboðaskjóðunni fáum við
að kynnast persónum sem búa í
Ævintýraskóginum, mannfólki,
dvergum, ævintýrapersónum, ill-
þýði og tröllum. Þar býr til dæmis
Maddamamma saumakona, sem
leikin er af Margréti Pétursdóttur.
Hún saumar fljótt og fallega hvað-
eina sem skógarbúa vanhagar um,
en Putti sonur hennar, sem Harpa
Arnardóttjr leikur, er mikill draum-
óraputti og þráir það heitast að
lenda í alvöru ævintýri. Og Putti
lætur sér ekki nægja að dreyma;
hann laumast út í skóg að nætur-
lagi til þess að leita að ævintýri og
honum verður svo sannarlega að
ósk sinni. Það er fjöldi persóna sem
kemur við þessa sögu. Þarna eru
t.a.m. dvergarnir úrræðagóðu:
Dreitill skógardvergur og besti vin-
ur Putta sem Jón Stefán Kristjáns-
son leikur, Stóridvergur sem Mar-
grét Guðmundsdóttir leikur, Snigill
njósnadvergur sem Erling Jóhann-
esson leikur, Skemill uppfinninga-
dvergur sem Björn Ingi Hilmarsson
ieikur, og Litlidvergur sem Stefán
Jónsson leikur. Loks eru þarna
Nornin, Úlfurinn og Vonda stjúpan,
sem Felix Bergsson, Hinrik Ólafs-
son og Jóhanna Jónas leika. Mjall-
hvít, Rauðhetta og systkinin Hans
og Gréta koma einnig við þessa
sögu.
Þeir leikarar sem nú þreyta frum-
raun sína í Þjóðleikhúsinu eru Jón
Stefán Kristjánsson, Björn Ingi
Hilmarsson, Felix Bergsson, Hinrik
Ólafsson, Jóhanna Jónas, Sóley El-
íasdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir.
Þorvaldur Þorsteinsson er
myndlistarmaður og rithöfundur.
Sagan um Skilaboðaskjóðuna kom
fyrst út árið 1986 myndskreytt af
höfundi. Þorvaldur er ennfremur
kunnur fyrir örleikrit sem mörg
hver hafa verið flutt í útvarpi í svo-
nefndu Vasaleikhúsi.
Frumsýningin á Skilaboðaskjóð-'
unni er 25. nóvember kl. 20 og er
opin öllum. Miðaverð er það sama
og á aðrar barnasýningar. Önnur
sýning verður sunnudaginn 28. nóv-
ember kl. 14. Sýningar eru á Stóra
sviði Þjóðleikhússins.
Rómeó og Ingibjörg
________Leiklist_____________
Guðbrandur Gíslason
Halaleikhópurinn
Rómeó og Ingibjörg.
Höfundur: Þorsteinn Guð-
mundsson
Leikstjóri: Edda V. Guðmunds-
dóttir
í aðalhlutverkum: Kolbrún
Dögg Kristjánsdóttir, Ingólfur
Birgisson, Sigurður Björnsson
og á sinn hátt, í þessari sýn-
ingu, allir.
Maður gengur að norðanverðu
inn í Sjálfsbjargarhúsið, fram hjá
sjálfrennihurðum og skilveggjum
úr gleri og eftir þröngum gangi
sem er lýstur upp af flúorljósum
sem liggja langsum eftir loftinu í
ógleijuðum skermum og inn í
dumbrauðan dimman salinn og
sest við enda gangsins og horfir á
sviðið sem er suðurendi salarins,
gólfið bert en borð og stólar í einu
horninu og á borðinu pappaglös
og inn tínast leikendur, sumir halt-
ir, sumir haltir og málhaltir, sumir
með visna hönd, einn blindur, aðr-
ir ekki ferðafærir öðruvísi en í
huganum og um rödd sína og þau
leika sér í leikritinu að leikriti til
að lifa í gegn um eins og við öll
leitum að einhveiju til að lifa í
gegn um og finna Rómeó og Júlíu,
nei Rómeó og Ingibjörgu, sem er
þó engu minni Júlía en Júlía, því
hvað sagði ekki Rómeó: „Ástin,
sem þó er sjónlaus sögð með
réttu,/ratar í blindni beint að að
marki settu!“
Manni dettur í hug „Sex persón-
ur leita höfundar" eftir Luigi Pir-
andello eða tónverk eftir Atla
Heimi Sveinsson, þar sem í upp-
hafi tónkviðunnar ein tónrödd af
annarri ræskir sig og slæst í för
með hinum, og víst eru formlegar
hliðstæður hér til staðar með verki
Pirandellos og sumpart einnig efn-
islegar: tjáningarþörfin er sterk
þó að sumir efist um það brúk sem
megi hafa af henni, og hún tekur
á sig spaugilegar myndir. En þar
lýkur samanburðinum, því Hala-
leikhópurinn er hvorki á höttunum
eftir tilgangsleysi né tilvistar-
kreppu heldur upplyftingu og ást-
inni sem Shakespeare sagði að
væri „... reykur frá ekkans glóð;
hún er sem bjarmi skær/ í augnak-
asti, sé hún hrein og tær“. Og
ástin stígur einmitt út úr leikriti
skáldjöfursins og inn í leikrit Hala-
leikhópsins þar sem hún býr um
sig í barmi blindrar konu og þess
sem ekki má ferðast öðruvísi en í
huganum og um rödd sína. Og
eins og segir í forljóðinu að Rómeó
og Júlíu, þá er þetta „sú ást sem
átti leið um hyldjúp höf/af hörm-
ungum...“ og því ljómar hún skýr
í endurskini um þetta svið.
Það er óvanalegt að sjá (Rómeó
sem haltrar og er stirt um tungu-
tak, hvað þá Júlíu sem fálmar í
blindni eftir vanga ástvinar síns.
Slík er einhæfni (bíó)reynslunnar
að manni verður tamt að tengja
ástina við líkamshreysti og ofur-
fagurt skinn. Inntak hennar út-
vatnast, hverfist í roðið. En Hala-
leikhópurinn þekkir framandleik-
ann sem felst í slíkri reynslu og
nauðsyn þess að upphefja hann og
í upphafi leikritsins utan um leik-
ritið gantast leikendur hvejrir við
aðra yfir því sem þeim var ekki
gefið, eða því sem var svo grimmd-
arlega frá þeim tekið. Þjáningin
er móðir skopsins. Mér þótti vænt
um skopið. Það var á köflum grág-
lettnislega fyndið og það ruddi mér
leiðina aftur að inntakinu, en auk
þess var það ágæt andstæða við
upphafinn ástartexta Shakespear-
es. Sá texti var oftar en ekki bráð-
vei fluttur af aðalleikurunum, og
grípandi. Yfirbragð þessarar sýn-
ingar var afslappað og eðlilegt, og
kemur þar eflaust til, auk leikstjór-
ans, Eddu V. Guðmundsdóttur,
nærvera þess ágæta leikhús-
manns, Guðmundur Magnússonar,
í hlutverki leikstjórans.
Svo leið leikritið og frásögn þess
og túlkun leikaranna náði þeim
tökum á athygli minni og tilfinn-
ingum að mér fannst ég léttast í
sætinu. Það heitir að vera upp
numinn.
Þegar lófatakið hafði hljóðnað
stóð ég upp, strekkti á stirðum lim-
um, gekk fijáls undir flúorljós-
unum þröngan ganginn út í víðáttu
næturinnar norður af Sjálfsbjörgu
og skildi að þau þarna inni í rauð-
um sai höfðu fært mig á vit listar-
innar með leik sínum og þannig
leyst úr fjötrum holdsins um stund.
(Tilvitnanir í Rómeó og Júlíu eru
sóttar í þýðingu Helga Hálfdanar-
sonar, William Shakespeare, Leik-
rit I. Heimskringla 1956)
Svartálfadans og
Atta einsöngslög
ÍSAFOLD hefur gefið út tvær
nótnabækur, átta einsöngslög og
Svartálfadans, eftir Jón Asgeirs-
son.
Svartálfadans er safn tíu söng-
verka, sem samin eru við kvæði úr
samnefndri ljóðabók eftir Stefán
Hörð Grímsson. Fjögur laganna
hafa verið flutt opinberlega en sex
þeirra koma nú fyrir almennings-
sjónir í fyrsta sinn. Lögin við kvæð-
in eru Þegar undir skörðum mána,
Steinninn, Skammdegisvísa, Nú er
garðstígurinn þögull, Stríð, Vetrar-
dagur, Eirlitir dagar, Halló litli villi-
kötturinn minn, Kvöldvísur við sum-
armál og Svartálfadans.
Átta einsöngslög eru samin á
tímabilinu 1947 til 58 við kvæði
STEINAR WAAGE
eftir Kristján Jónsson fjallaskáld,
Stein Steinarr, Einar Benediktsson,
Örn Arnar, Braga Magnússon, Jón-
as Hallgrímsson og Þorstein Valdi-
marsson. Flest laganna hafa verið
flutt opinberlega og fyrir eitt lag-
anna, Occidente Sole, við kvæði
eftir Jónas Hallgrímsson, hlaut Jón
önnur verðlaun í samkeppni Ríkis-
útvarpsins 1958.
Átta einsöngslög eru 22 bls. í
A4 broti og Svartálfadans er 43
bls. í jafn stóru broti. Nótnaritun
og texti ljóðanna er unninn undir
prentun af höfundinum með Finale
nótnaforritinu en kápumynd teikn-
aði Þorgeir Jónsson.
Jón Ásgeirsson.
Rithöfundasambandið
Bókmenntavaka í Ráðhúsinu
RITHÖFUNDASAMBAND ís-
lands efnir til bókmenntavöku í
Ráðhúsi Reykjavíkur dagana
25.-27. þessa mánaðar. Á bók-
menntavökunni verða flutt er-
indi og lesið úr nýjum bókum.
Bókmenntavakan hefst
fimmtudagskvöldið 25. nóv. kl.
20.30 og þá munu Pétur Gunnars-
son rithöfundur og Kolbrún Berg-
þórsdóttir gagnrýnandi flytja fyrir-
lestra um gagnrýni, Illugi Jökuls-
son, Steinunn Sigurðardóttir,
Njörður P. Njarðvík og Guðrún
Guðlaugsdóttir lesa úr nýútkomn-
um skáldsögum.
Einnig les Kristján Franklín
Magnús úr verkum Hannesar Pét-
urssonar og Gyrðis Elíassonar og
Kristín Ómarsdóttir úr nýrri ljóða-
bók sinni.
Föstudaginn 26. nóv. hefst
bókmenntavakan kl. 20.30 með
fyrirlestri Silju Aðalsteinsdóttur
um barnabókmenntir. Vésteinn
Valgarðsson mun einnig fjalla um
barnabókmenntir.
Að loknum fyrirlestrum lesa eft-
irfarandi höfundar úr nýjum bók-
um: Guðmundur Ólafsson, Andrés
Indriðason og Guðrún Helgadóttir.
Ingólfur Margeirsson flytur
fyrirlestur um ævisögur og ævi-
sagnaritun og því næst lesa höf-
undar úr nýjum bókum: Jóhanna
Kristjónsdóttir, Baldur Gunnars-
son, Elísabet Jökulsdóttir og Þor-
steinn Gylfason.
Laugardaginn 27. nóv. hefst
bókmenntavakan kl. 14.30 með
fyrirlestri Aðalsteins Ásbergs Sig-
urðssonar um barnabókmenntir og
Halldóra Jónsdóttir ræðir um
barna- og unglingabækur frá sjón-
armiði lesanda.
Næst lesa höfundar úr nýjum
bókum: Elías Snæland og Vilborg
Davíðsdóttir og Kristín Steinsdótt-
ir les úr bók eftir Heiði Baldurs-
dóttur.
Torfi Túliníus flytur erindi um
mótunaráhrif bókmennta. Birgir
Sigurðsson les úr nýrri skáldsögu
sinni, Vigdís Grímsdóttir les úr
nýrri ljóðabók Sigurðar Pálssonar
og Guðlaugur Arason úr nýrri
skáldsögu sinni.
Sama dag flytja Gísli Sigurðsson
og Soffía Auður Birgisdóttir fyrir-
lestra um íslenskar nútímabók-
menntir.
Þá lesa fleiri höfundar úr nýjum
bókum: Einar Már Guðmundsson,
Álfrún Gunnlaugsdóttir og Krist-
ján. Jóhann Jónsson.
Bókmenntavöku lýkur síðan á
lokaorðum Sigurðar A. Magnús-
sonar.
Bókmenntavöku Rithöfunda-
sambands Islands er ætlað að vekja
athygli á mótmælum gegn bóka-
skatti. Það er von þeirra sem að
vökunni standa að dagana 25.-27.
nóv. nk. gefist lesendum og höf-
undum tækifæri til að hittast og
skiptast á skoðunum, auk þess sem
fólki gefst kostur á að hlusta á
rithöfunda lesa úr nýjum verkum.
SKÓVERSLUN N
Kuldaskór
Stærðir: 28-46
Litur: Svartur
Sóli: Grófur göngusóli
Verð frá
2.495,-
1 PÓSTSENDU'M SAMDÆGURS ■ 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTURH
Tökum vifí notuðum skóm III hanöa bágslötidum
Domus Medica, Kringlunni, Toppskórinn
Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12, Veltusundi,
sími 18519 sími 689212 sími 21212