Morgunblaðið - 25.11.1993, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1993
IÞROTTIR UNGLINGA / KARATE
Helgi Magnús Valdimarsson frá Akranesi og Erlingur Guðleifsson frá
Þórshamri eigast við í 13 - 16 ára flokki í kumite. Erlingur sem er hægra
megin hafði betur og varð þriðji í kumite og sigurvegari í kata.
Ég hef alltaf
haft áhuga á
bardagaíþróttum
- segir Benedikt Þórtólf ára gamall úr
Haukum á sínu fyrstu íslandsmóti
„ÉG hef alltaf haft áhuga á
bardagaíþróttum en fékk aldrei
leyfi til að stunda þær. Mamma
og pabbi voru hrædd um að
ég yrði eins og unglingarnir í
miðbænum, oft í slagsmálum,"
sagði Benedikt Þór Sigurðs-
son, tólf ára gamall úr Haukum
sem var meðal keppenda á ís-
landsmótinu í Shotokan-kar-
ate.
Benedikt var að tuskast á við
félaga sinn Rúnar. Þór Óm-
arsson sem er ári yngri á milli í
hléum á mótinu. Benedikt er í
Öldutúnsskóla og Rúnar í Set-
bergsskóla og báðir æfa með
Haukum. „Stefnan hjá mér er ein-
faldlega að verða góður í þessari
íþrótt,“ sagði Rúnar sem fór að
stunda karate vegna þess að hann
vildi prófa eitthvað nýtt, eins og
hann segir sjálfur.
Benedikt segist hafa áhuga að
reyna aðrar íþróttir eins og aikido
og ni-njitsu auk þess sem hann
hefur fullan hug á að ná langt í
karate. „Ég stefni að því að verða
ÚRSLIT
„sensei og ná einhveiju ,,dani“ í
svarta beltinu. Það ætti að taka
mig fimm ár en eitthvað skemmri
tíma ef að ég næ að stökkva yfir
belti,“ segir Benedikt sem æft
hefur karate í eitt ár og stefnir á
að ná rauða beltinu á næstunni.
Með græna beltið
Þeir Ari Sverrisson, Örn Ingi
Agústsson og Eiríkur Kristjánsson
leggja allir stund á karate með
Haukum og að þeirra sögn æfa
um 40 - 50 unglingar hjá félag-
inu. „Við erum búnir að æfa í eitt
til tvö ár og stefnan er að sjálf-
sögðu sett á að ná svarta beltinu,
“ sögðu þeir.
Karate skiptist í tvo megin-
flokka, kata og kumite. í kata
gera menn ákveðnar æfingar sem
einna helst líkjast því að keppand-
inn sé í viðureign við ósýnilegan
andstæðing. í kumite keppa hins
vegar tveir á móti hvor öðrum og
reyna að koma lagi á andstæðing-
inn sem gefur honum stig.
„Kata byggist meira á tækni
og einbeitningu," sagði Ari og
Eiríkur sagði að hættan væri mun
meiri á meiðslum í kumite, það
gæti samt verið mun verra.“
Mestur áhugi hjá
unglingum frá Þórs-
hamri og Haukum
meistari i yngsta aldursflokknum í
kata annað árið í röð en gullverð-
laun fyrir Kata í eldri flokkunum
fóru til Þórshamars. Erlingur
Tryggvason skilaði bestum æfing-
um í flokki 10 -12 ára og nafni
hans Guðleifsson í flokki 13-16 ára.
Keppt var í tveimur flokkum í
kumite. Örn Ingi Ágústsson úr
Haukum sigraði í flokki 10-12 ára
og Ólafur Nilsen úr Breiðablik í
flokki 13-16 ára. Þórshamar hafði
nokkra yfirburði í hópkata og
hreppti þijú efstu sætin í unglinga-
flokki.
Fann veika punktinn
„Hann fann veika punktinn í
vörninni hjá mér en ég var ekki
með nógu góða vörn fyrir kjálkan-
um, sagði Akurnesingurinn Helgi
Magnús Valdimarsson eftir að hafa
beðið lægri hlut fyrir Erlingi Guð-
leifssyni úr Þórshamri í glímunni
um bronsið í kumite í flokki 13-16
ára.
Helgi var einn fárra keppenda frá
Akranesi á mótinu en hann sagði
að áhuginn hefði minnkað á karate
og færri væri við æfingar heldur en
í fyrra.
„Við höfum aldrei mæst áður en
við sáum til hvors annars fyrr á
mótinu. Mér tókst að sjá fram á
veikleikann hjá honum með gabb-
hreyfingum, með því að þykjast
ætla að sækja og sjá hvernig hann
bar sig í vörninni,“ sagði Erlingur
sem skoraði tvívegis „vasari."
ÚRSLIT
Úrslit í unglingaflokkum á Islandsmótinu í
Shotokan karate sem fram fór í Víðistaða-
skóla í Hafnarfirði.
Kata 13 - 16 ára
1. Erlingur Guðleifsson, Þórshamri..44.8
2. Hrafn Ásgeirsson, Akranesi......44.3
3. Michael Madsen, Akranesi........43.9
Kata 10 - 12 ára
1. ErlingurTryggvason, Þórshamri....40,8
2. Jónas P. Ólafsson, UBK..........40.4
3. Hrafnkell Sigríðardóttir, Þórshamri ..39.6
4. Ari Tómasson, Þórshamri.........39.2
5. EiríkurGauti Kristjánss., Haukum....39.1
6. Sveinn Sigurðarson, Þórshamri...38.0
■31 keppandi tók þátt í þessum aldurs-
flokki.
KaUi 9 ára og yngri:
1. Sigdís Vega, Haukum..............40.8
2. Lára Knstjánsdóttir, Þórshamri..39.7
3. BirgirÖrn Hauksson, Haukum......39.2
4. Viktor Siguijónsson, Haukum.....39.0
5. Jón Þór Halldórsson, Haukum.....38.2
6. ÓlafurTorfi Yngvason, Þórshamri ....18.0
Hópkata unglinga
1. B-lið Þórshamars
2. C-lið Þórshamars
3. E-lið Þórshamars
Kumite 13 - 16 ára
1. Ólafur Nilsen..............Breiðablik
2. Michael Madsen..............Akranesi
3. Erlingur Guðleifsson.......Þórshamri
Kumite 10-12 ára
1. Örn Ingi Ágústsson.............Haukum
2. Þorvaldur Yngvason.........Þórshamri
3. Ari Tómasson...............Þórshamri
ÍSLANDSMÓTIÐ íShotokan
karate var haldið í íþróttahúsi
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
þann 13. nóvembersl. Shotok-
an er vinsælasti stíllinn í heim-
inum í þessari íþrótt en íþrótt-
in nýtur vaxandi fylgis meðal
unglinga jafnt sem fullorðinna.
Keppt var í þremur aldursflokk-
um unglinga á mótinu og það
voru unglingar frá Haukum og Þórs-
hamri sem börðust um gullið í flest-
um flokkum enda virðist mestur
áhuginn vera hjá þessum félögum.
Sigdís Vega úr Haukum, varð
Morgunblaðið/Frosti
Benedikt og Rúnar Þór bregða á leik og Benedikt hefur greinilega betur í
þessari viðureign.
Morgunblaðið/Frosti
Ari Sverrisson, Öm Ingi Ágústsson og Eiríkur Kristjánsson eru allir með
grænt belti í karate.
Úrslit í einstökum leikjum f unglingaflokk-
um í landskeppni íslands og Færeyja í borð-
tennis. Islensku keppendurnir eru taldir á
undan.
U-14 ára
Markús Amason sigraði Ian D. Jacobsen
31:14 og 24:22.
Ingi H. Heimisson sigraði Brian Hansen
21:12 og 21:15.
Lilja Jóhannesdóttir sigraði Kirstin Han-
sen 21:5 og 22:20.
Ingólfur Jóhannesson/Ingi H. sigruðu
Jan D./Brian 21:6, 19:21 og 21:9.
Lilja/Markús sigruðu Ian/Kirsten 21:13
og 21:17.
Ingi Heimisson tapaði fyrir lan Jacobsen
21:10, 15:21 og 19:21.
Markús Árnason sigraði Brian Hansen
21:14 og 22:20.
U-16 ára
Ólafur Eggertsson sigraði Hans Árna
Davidsen 21:9 og 21:9.
Bjöm Jónsson sigraði Ólav Olsen 21:12
og 21:9.
' Eva Jósteinsdóttir sigraði Elinborgu
Nygaard 21:14 og 21:10.
Sigurður Jónsson/Jón Ingi Árnason sigr-
uðu Hans/Ólav 21:10 og 21:13.
Jón Ingi/Eva sigraðu Ólav/Elinborgu
21:13 og 21:14.
Björn Jónsson sigraði Hans Árna Davids-
en 21:10 og 21:9.
Ólafur Eggertsson sigraði Ólav Olsen
21:10 og 21:13.
BORÐTENNIS
■ ■
Oruggir sigrar
gegn Færeyingum
ÍSLENSKU ungiingalandsliðin í
borðtennis unnu létta sigra á
Færeyjum þegar liðin mættust
sl. mánudag í Laugardalshöll.
Islenska landsliðið skipað spilurum
yngri en fjórtán ára sigraði fær-
eyska jafnaldra sína 6:1. Leiknir
voru fimm einliðaleikir, einn
tvenndarleikur og einn tvíliðaleikur.
í U-14 ára liðinu léku þeir Ingi
Hrannar Heimisson og Ingólfur
Jóhannesson sem báðir leika með
HSÞ auk þeirra Markúsar Árnason-
ar og Lilju Jóhannesdóttur úr Vík-
ingi.
Islenska liðið sigraði með fullu
húsi í U-16 ára flokknum. íslenska
liðið í þeim aldursflokki var ein-
göngu skipað leikmönnum úr borð-
tennisdeild Víkings en þeir eru
Björn Brynjar Jónsson, Jón Ingi
Árnason, Ólafur Eggertsson, Sig-
urður Jónsson og Eva Jósteinsdótt-
ur.
Aðeins þrír færeyskir spilarar
voru í hvoru liði og hefur liðsmunur-
inn áreiðanlega átt sinn þátt í ör-
uggum sigri íslenska liðsins enda
hafa þjóðirnar verið svipaðar að
getu undanfarin ár og skemmst er
að minnast sigurs Færeyinga á
landanum á síðasta ári þegar leikið
var í Færeyjum.