Morgunblaðið - 25.11.1993, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 25.11.1993, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1993 Ákváðu við afhjúpun minnisvarða að gefa út bók Ljóð og lista- verk í Ljóðbliki KRISTJANA Emilía Guðmundsdóttir, systir hennar Rósa Guðmunds- dóttir framkvæmdastjóri Ásprents og Grímur Marinó Steindórsson hittust þegar minnisvarði um landpóstana var afhjúpaður á Stað í Hrútafirði síðastliðið vor og ákváðu þá í sameiningu að gefa út bók. Kristjana las við það tækifæri ljóð sitt um landpóstana, en minnisvarðinn er eftir Grím Marinó. Bókin er nú nýlega komin út og heitir Ljóðblik, í henni eru ljóð eftir Kristjönu og hefur Grímur gert myndir við nokkur ljóðanna sem prýða bókina. Nokkur listaverka hans eru og verða til sýnis og sölu í húsakynnum Ásprents við Glerár- götu á Akureyri. Kristjana gaf út ljóðabók fyrir 10 árum og sagði hún að kominn hefði verið tími til að gefa út aðra bók. Grímur lét í ljós áhuga á að gera myndir við ljóðin þegar þau hittust á Stað á liðnu vori og hefur afrakstur samvinnu þeirra þriggja nú litið dagsins ljós. „Myndirnar urðu til við það að lesa ljóðin, þau eru unnin undir áhrifum þeirra,“ sagði Grímur. Margrét Káradóttir hannaði bókina. Kristjana er frá Dröngum á Skógarströnd á Snæfellsnesi, en er búsett í Kópavogi þar sem hún starfar sem bókbindari og bóka- vörður hjá Bókasafni Kópavogs. Grímur hefur einnig búið í Kópa- vogi síðustu áratugi, en hann er fæddur í Vestmannaeyjum og hefur stundað myndlist frá unga aldri. Hann nýtir sér tilfallandi efni hveiju sinni, málma, gijót, við, pappír og striga við listsköpun sína. Jurassic Park að koma út En það er fleira á döfinni hjá Ásprenti því í vikunni kemur út bókin Jurassic Park í þýðingur Stef- áns Þórs Sæmundssonar. Rósa sagði það hafa kostað mikla bar- áttu að ná útgáfuréttinum á bók- inni á íslandi, en hún hafi verið ákveðin í að ná honum og lét því þýða bókina áður en hún var form- lega búin að fá útgáfuréttinn. Þeg- ar það svo gekk í gegn var hafist handa af fullum krafti við að prenta bókina, en í henni eru litmyndir.- „Við erum viss um að þessi bók fær góðar viðtökur hér á landi,“ sagði Rósa. Morgunblaðið/Rúnar Þór Samvinnuverkefni Morgunblaðið/Rúnar Þór Við barinn ÞAÐ er verið að innrétta bar í gömlu kaupfélagsbúðinni í Höfða- hlíð, reyndar í þeim tilgangi að sýna þar leikritið Bar-par. Ingvar Björnsson ljósamaður og Viðar Eggertsson leikhússtjóri brugðu á leik við barinn sem þeir Þráinn Karlsson leikari og Erlingur Vil- hjálmsson smiður standa við. Margir kvefaðir FJÖLDI fólks leitaði til Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri í liðnum mánuði, en kvefpest, lungnabólga og magakveisa þjökuðu óvenju marga. í skýrslu um smitsjúkdóma frá Heilsugæslustöðinni kemur fram að tæplega 100 manns leituðu til læknis vegna magakveisu í októb- ermánuði og einnig er áberandi að margir komu á stöðina vegna umgangspesta af ýmsu tagi. Nefna má að alls kom 721 maður til læknis vegna kvefs og háls- bólgu, 42 vegna lungnabólgu og 58 leituðu læknis vegna streptó- kokkahálsbólgu að því er fram kemur í umræddri skýrslu. Leikfélag Akureyrar sýnir Bar-par í gamalli kaupfélagsbúð Búð verður breytt í bar GAMLA kaupfélagsbúðin við Höfðahlíð 1 er óðum að breytast í bar, reyndar gefst fólki ekki kostur á að seljast þar inn og fá sér drykk; það er verið að breyta búðinni í leikhús. Þarna á að frum- sýna í janúarlok leikritið Bar-par eftir Jim Cartwright, höfund Strætis sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári. „Okkur langaði til að gefa fólki tækifæri á að komast í annars kon- ar leikhús en vant er, en það hefur mjög verið að ryðja sér til rúms að undanförnu, “ segir Viðar Egg- ertsson leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyri. í leikritinu er sagt frá kvöldstund í lífi hjóna sem reka bar og gestum þeirra. Máttarstólparnir í leikaraliði Leikfélags Akureyrar, þau Sunna Borg og Þráinn Karlsson, fara með öll hlutverkin í sýningunni, þau leika hjónin auk þess að fara með hlutverk allra gestanna sem rekast inn á barinn þeirra. Mikil vinna framundan Æfingar á verkinu byija eftir helgi, en framundan er mikil vinna við breytingar á húsnæðinu sem verið er að innrétta sem krá. Gert er ráð fyrir að um 75 áhorfendur komist fyrir á hverri sýningu. Guðrún Bachmann íslenskaði verkið, Hávar Siguijónsson annast leikstjórn og Helga Stefánsdóttir gerir leikmynd og búninga, en þau starfa nú í fyrsta skipti hjá Leikfé- lagi Akureyrar. Grímseyingar fá at- vinnu við fiskverkun SKÁLDIÐ, listamaðurinn og útgefandinn með afrakstur samvinnu sinnar, bókina Ljóðblik. Rósa Guðmundsdóttir og systir hennar, Krist- jana Emilía, ásamt Grími Marinó Steindórssyni á góðri stund í prent- smiðjunni Ásprenti. Grímsey. VINNA er hafin í fiskverkun Jóns Ásbjörnssonar í Grímsey en hún er til húsa hjá Sigurbirni Verslið viö fagmann. DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI SfMI (96)22360 N or ðurlandsmót skólalúðrasveita NORÐURLANDSMÓT skóla- lúðrasveita hefst í KA-húsinu Vörður með ræðu- námskeið VÖRÐUR, Félag ungra sjálfstæð- ismanna á Akureyri, heldur ræðu- námskeið næstkomandi laugar- dag, 27. nóvember, kl. 11 í að- stöðu sjálfstæðisfélaganna í Kaupangi. Leiðbeinandi á námskeiðinu verð- ur Gísli Blöndal sem hefur margra ára reynslu í ræðumennsku. Allt ungt sjálfstæðisfólk á Akureyri, Dalvík, Húsavík og víðar getur sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Ræðunámskeiðið hefst kl. 11 og lýkur því um kl. 17, en nánari upp- lýsingar er að fá hjá Ólafi Rafni Olafssyni varaformanni Varðar. (Frétfatilkynning) á Akureyri á morgun, föstu- daginn 26. nóvember, og stendur það yfir til sunnu- dagsins 28. nóvember. A þessu móti koma fram skóla- lúðrasveitir víðs vegar af Norðurlandi. Haldnar verða kvöldvökur þar sem þátttak- endur skemmta sér og öðrum og öllum þátttakendum verð- ur boðið í leikhús. Myndaðar verða fjórar lúðra- sveitir með þátttakendum úr öllum skólum, sveit I, sveit II, sveit III og loks úrvalssveit sem nefnist Skólalúðrasveit Norðurlands en hana skipa þeir nemendur sem lengst er komnir í námi. Mótinu lýkur með tónleikum í KA-húsinu sunnudaginn 28. nóv- ember kl. 14. Það er Tónlistarskólinn á Akur- eyri og Foreldrafélag blásaradeild- ar TA sem standa fyrir Norður- landsmótinu að þessu sinni. (Fréttatilkynning) ARABIA Hreinlætistæki 18% staðgreiðsluafsláttur hf. Fiskur hefur ekki verið unn- inn í eynni lengi. Þegar hefur eitthvað verið ráðið af starfsfólki og hefur heimafólk fengið vinnu við fiskverkunina, en í langan tíma hefur ekki verið unninn fiskur í eynni. Allur fiskur hefur verið fluttur til Hríseyjar til vinnslu fram til þessa. 16 tonn á einum degi Brúnin á mönnum hér léttist mjög eftir að fiskverkunin hófst og andrúmsloftið er gott þessa dagana enda fólk ánægt með fram- takið. Bátar hafa verið að afla vel í vikunni, á þriðjudag og miðvikudag var einkar góð ufsaveiði í net á miðunum úti fyrir eynni. Þetta var vænn og góður ufsi, en botninn datt úr veiðunum í gær, fimmtu- dag. Á meðan á aflahrotunni stóð fékk einn bátur hér 16 tonn á ein- um degi í tvær trossur og höfðu sjómenn á orði að ekki hefði stað- ið til að klára allan kvótann á ein- Morgunblaðið/Hólmfriður Fiskverkun hafin BYRJAÐ er að verka fisk hjá fiskverkun Jóns Ásbjörnssonar í Gríms- ey og eru heimamenn ánægðir með framtakið enda hefur fiskur ekki verið verkaður í eynni um alllangt. skeið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.