Morgunblaðið - 25.11.1993, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1993
+
Maðurinn minn og faðir okkar,
SIGURÐUR PÁLL SAMÚELSSON,
Stigahlið 22,
lést 23. nóvember.
Þórunn Jónsdóttir
og börn.
t
Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir,
SIGURÐUR ELÍASSON,
Þinghólsbraut 33,
Kópavogi,
lést í Borgarspítalanum 23. nóvember.
Börn og tengdabörn.
+
EIRÍKUR STEFÁNSSON
kennari frá Skógum,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 22. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórný Þórarinsdóttir, Svava Fells,
Haraldur Hauksson, Sigrún Kristjánsdóttir,
Eirfkur Hauksson, Helga G. Steingrímsdóttir,
Laufey Hauksdóttir,
Haukur Hauksson, Lára Gísladóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HARALDUR GUÐJÓNSSON,
lést í sjúkrahúsi í Svíþjóð 23. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hertha Haag Guðjónsson,
Dóra Lydia Haraldsdóttir, Árni Arinbjarnarson,
Páll Haraldsson,
Haraldur Haraldsson
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
HÖRÐURTRYGGVASON
frá Svartárkoti
i Bárðardal,
andaðist í Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík, föstudaginn
19. nóvember.
Útförin verður gerð frá Lundarbrekkukirkju laugardaginn 27. nóv-
ember kl. 14.00.
Guðrún Benediktsdóttir,
Haukur Harðarson, Sigrún Steinsdóttir,
Tryggvi Harðarson, Elfn Baldvinsdóttir,
Steinunn Harðardóttir, Daníel Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
TÓMAS GUÐMUNDSSON,
lllugagötu 1,
Vestmannaeyjum,
sem lést 15. nóvember, verður jarð-
sunginn frá Landakirkju laugardaginn
27. nóvember kl. 14.00.
Erna Þorsteinsdóttir,
Gunnar Ólafur Eiríksson, Guðríður Hilmarsdóttir,
Gísli Guðni Sveinsson,
Guðmundur Þórarinn Tómasson, Rebekka Björgvinsdóttir,
Lilja Þorsteina Tómasdóttir, Grétar Miller,
Ásdís Steinunn Tómasdóttir
og barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir, afi og langafi,
HJÁLMAR KRISTINN HELGASON,
Hofsvallagötu 17,
Reykjavík,
sem lést í Borgarspítalanum þann
22. nóvember, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 26. nóvem-
ber kl. 10.30.
Eli'n Sumarliðadóttir,
Guðbjörg Hjálmarsdóttir, Baldur Aðalsteinsson,
Helgi Hjálmarsson, Sesselja G. Pálsdóttir,
Auður Hjálmarsdóttir, Rúnar Eiriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning
Sigfús Sveinsson
Fæddur 24. apríl 1907
Dáinn 18. nóvember 1993
Það var að morgni föstudagsins
19. nóvember sl. sem mér barst sú
harmafregn, að móðurbróðir minn,
Sigfús Sveinsson, hefði kvöldið áður
fengið heilablóðfall og látist. Ósjálf-
rátt kom upp í hugann: Af hverju
hann? Hann, sem alltaf var svo
hress og lífsglaður. Hanri, sem ein-
mitt hafði af sinni alkunnu gest-
risni tekið á móti gestum þá um
daginn og verið að sýna þeim mynd-
ir, þegar hann leið útaf. Hvers
vegna hann? Þetta er einmitt sú
spurning, sem okkur er ekki ætlað
að fá svar við hérna megin grafar.
Því Drottinn gaf og Drottinn tók,
lofað veri nafn hans. Okkur er ekki
gefið að skilja ráðsályktanir Guðs,
en hans er valdið, mátturinn og
dýrðin og honum megum við
treysta, jafnvel á skilnaðarstund-
inni, þegar nánir ættingjar eru burt-
kallaðir. En Jesús Kristur sagði:
„Ég er upprisan og lífið“ og í trú
og trausti til hans megum við vænta
nýs og betra lífs með honum á
himnum.
Sigfús Sveinsson fæddist í Sel-
koti undir Eyjafjöllum 24. apríl
1907. Hann var yngsta barn for-
eldra sinna, hjónanna Önnu Tómas-
dóttur, sem var af Selkotsætt, og
Sveins Jónssonar frá Lambafelli,
en hann var af Heiðarselsætt á
Síðu. Eldri systkini Sigfúsar voru:
Guðrún, húsfreyja í Skarðshlíð, d.
1983, Guðjón, útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum og síðar í Reykja-
vík, d. 1968, Hjörleifur, útgerðar-
maður í Vestmannaeyjum, nú vist-
maður í Hraunbúðum, Tómas Stef-
án, útgerðarmaður í Vestmannaeyj-
um, d. 1988, og Gróa, húsfreyja í
Selkoti, nú vistmaður í Hraunbúð-
um.
Þegar Sigfús var 14 ára missti
hann föður sinn. Það segir sig sjálft,
að á þessum tímum hefur það mun-
að miklu fyrir móður með sex börn,
þegar börnin gátu farið að afla
tekna fyrir heimilið og þar lét Sig-
fús ekki sitt eftir liggja, þegar að
honum kom. Á þeim árum var lítið
annað fyrir efnalitla unglinga að
gera en að leita í sjávarplássin,
þegar sem einhverrar lífsbjargar
var von. Sigfús fetaði því í fótspor
eldri bræðra sinna og fór í verið til
Vestmannaeyja, þar sem hann ílent-
ist eftir það. Fyrstu vertíðirnar reri
hann á bát með frænda sínum, Ólafi
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RÓSHILDUR HÁVARÐSDÓTTIR,
Hörgslandi á Síðu,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 23. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn
27. nóvember kl. 13.30.
Jakob Bjarnason,
dætur, tengdasynir, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn og faðir,
JÓN ÓLAFSSON
fyrrv. deildarstjóri
hjá ríkisendurskoðun,
andaðist á heimili sínu 19. nóvember sl.
Útför hans verður gerð frá Lágafellskirkju laugardaginn 27. nóvem-
ber kl. 10.30.
Marfa Brynjólfsdóttir,
Guðmundur Jónsson.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HALLDÓRBÁRÐARSON,
áðurtil heimilis
á Sólvöllum 5, Húsavík,
verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju
laugardaginn 27. nóvember kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er
bent á Björgunarsveitina Garðar.
Brynjar Halldórsson, Ólöf Hallgrímsdóttir,
Bárður Halldórsson, Jóhanna M. Kristjánsdóttir,
Sigurður Halldórsson, Laila Valgeirsdóttir,
Lissý Halldórsdóttir,
Halldór Halldórsson, Birna Sigbjörnsdóttir,
Sigurbjörg Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartkær móðir okkar,
GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Sjónarhóli,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði, föstudaginn 26. nóvember
kl. 13.30.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem
vilja minnast hinnar látnu, er bent á
Fríkirkjuna eða líknarfélög.
Bára Björnsdóttir,
Bragi V. Björnsson,
Jón Boði Björnsson,
Birgir Björnsson,
Guðlaug B. Björnsdóttir
og fjölskyldur.
Vigfússyni frá Rauðafelli, sem
kenndur var við Gíslholt í Vest-
mannaeyjum. Síðar reri hann á út-
vegi annars frænda síne, Jóns ólafs-
sonar á Hólmi, og var þá vélstjóri
á bát með Karli Guðmundssyni í
Reykholti. Eftir að Sigfús hætti sjó-
mennsku og fór í land vann hann.
í fjölda ára hjá Einari Sigurðssyni
í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja.
Það, hversu sjaldan Sigfús skipti
um vinnustað, lýsir mjög vel trú-
mennsku hans við vinnuveitendur
sína, en ekki síður hinu, hversu
mikils trausts hann naut hjá þeim.
Hinn 10. október 1935 urðu
þáttaskil í lífi Sigfúsar, en þá steig
hann það gæfuspor að ganga að
eiga frændkonu mína, Guðrúnu
Gissurardóttur frá Drangshlíð undir
Eyjafjöllum. Hún var dóttir hjón-
anna Guðfmnu ísleifsdóttur frá
Kanastöðum í Landeyjum og Giss-
urar Jónssonar, hreppstjóra frá
Eystri-Skógum, og lifir hún mann
sinn. Eftir brúðkaupið fluttust ungu
hjónin til Vestmannaeyja, þar sem
þau áttu heimili allt til ársins 1973,
er jarðeldar brutust út á Heimaey.
Á þeim tímamótum fluttust þau í
ERFIDRYKKJUR
frá kr. 850-
ími620200
P E R L A N
Eríklnkkjur
Glæsileg kidfi-
hlaðlx)rð lídlegir
Síilir og mjög
góð þjóiiustíL
Dpplýsingar
ísíma22322
FLUGLEIDIR
LEGSTEINAR
Dæmi 35.000 51.000
um afslátlaiverð -3.500 - 5.100
31.500 45.900
Flutningskostnaður Innltallnn.
Stuttur afgrelðslufrestur.
Fálð myndalistann okkar.
MM
S'rniMN
720 Borgarfirði eystra, sími 97-29977.