Morgunblaðið - 14.12.1993, Side 12

Morgunblaðið - 14.12.1993, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Um Jónas Bókmenntir Skafti Þ. Halldórsson Matthías Johannessen: Um Jónas. Bókmenntafélagið Hringskuggar 1993. Fá skáld 19. aldar hafa fengið aðra eins hlutdeild í eilífðinni og skáldið Jónas Hallgrímsson. Hver kynslóð, mér liggur við að segja hver ljóðaunnandi, á sér sinn Jónas. Skáldin yrkja til hans og fræðimenn skrifa um hann. Hann er listaskáldið góða „sem ekki getur dáið eins og annað fólk“ (107), en þannig kemst Matthías Johannessen að orði um hann í nýrri bók sinni, Um Jónas. Bók Matthíasar er ekki beinlínis yfirlitsrit yfir kveðskap og ævi Jón- asar heldur miklu fremur túlkun á heild. Jónas í hafi tímans. Efni henn- ar er að hluta til byggt á fyrirlestrum sem Matthías flutti í Háskóla íslands veturinn 1991-1992 en hér bætir hann við, heldur á sömu braut og gefur okkur sína sýn á Jónas og samtíð hans. Sú sýn er að nokkru leyti nýstárleg. Jónas Matthíasar er fyrst og fremst trúarskáld. „Hann var í eðli sínu og upplagi mesta trúarskáld sem ísland hefur alið“ (105), segir Matt- hías og lætur ekki þar við sitja. Hann hafnar þeim skoðunum að Jón- as hafí aðhyllst hugmyndir deista eins og m.a. Helgi Pjeturss taldi, hvað þá verið hallur undir algyðistrú eins og Halldór Laxness hélt fram í Alþýðubókinni. Þvert á móti er Matt- hías sannfærður um að Jónas hafí trúað á persónulegan guð. Hann leggi áherslu á sköpunarguðfræðina í samræmi við Lúther og trúi á for- sjón guðs og afskipti hans af lífínu og veröldinni. Hann sé alfaðir í þeirri merkingu, „miðþyngdarstaður trúar- innar, skapari og stjórnandi" (137). Matthías kallar til sögunnar danska guðfræðinginn J.P. Mynster (1775-1854), sem var fulltrúi fyrir mildan rétttrúnað með rætur í bibl- íufræðum. Rit Mynsters Hugleiðing- ar um höfuðatriði kristinnar trúar gáfu þeir Jónas og Konráð Gíslason út 1839. Matthías tengir þessa út- gáfu ekki einungis trúarsannfæringu Jónas Hallgrímsson Jónasar heldur leitast við að sýna fram á tengsl hugmynda Mynsters og seinustu kvæða listaskáldsins, einkum kvæðið Alsnjóa sem mörgum hefur þótt ráðgáta. Bendir hann bæði á hugmyndatengsl og orðalags- líkingar. Þannig sé orðalagið í Alsnjóa „einstaklingur; vertu nú hraustur" augljós skírskotun til hug- leiðinga Mynsters og sýni ásamt öðru „að Alsnjóa er kristið kvæði, sprottið úr kristnum hugleiðingum og vísar þá að sjálfsögðu til Krists sem er hjartavörðurinn" (135). Heildarsýn Matthíasar á ljóðaheim Jónasar er víðfeðmari en nemur því að Jónas sé einvörðungu trúarskáld. Fjallað er um önnur rit hans, s.s. náttúrufræðirit og ritdóminn fræga um Tristransrímur. Jafnframt leitast Matthías við að varpa ljósi á áhrifa- valda í hópi forveranna og í samtím- anum. Hann telur Jónas verða fyrir milliliðalausum áhrifum af þýskri rómantík eins og raunar ljóðaþýðing- ar hans og önnur rit bera vott um. Enn fremur beinir Matthías sjónum sínum að áhrifum Jónasar á skáld síðari tíma. Vinnubrögð Matthíasar sýnast mér standast fræðilegar kröfur. Hann setur fram tilgátur og rökstyð- ur sitt mál ekki síst með hluttækri rannsókn textans, tínir til fjölda at- riða máli sínu til stuðnings og er sannast sagna býsna sannfærandi. Hann nálgast Jónas víðast út frá heimspekilegu og trúfræðilegu sjón- arhorni en einnig beitir hann mikið samanburðarrannsóknum þar sem texti Jónasar er borinn saman við texta annarra. Þótt vinnubrögð Matthíasar séu fræðileg nálgast hann þó Jónas frem- ur sem skáld en fræðimaður. Það er skáldið fremur en fræðimaðurinn sem þannig skoðar næmum augum orðanotkun Jónasar, hvernig hann hliðrar til orðum, hvernig eitt orð breytir heild, hvemig lýsingarorð eru búin til, hvernig skáld vinnur fremur en hvernig ljóðið er í endanlegu formi. Framsetning efnisins er oft skáldleg og hún einkennist af ríkri hneigð sem sjaldgæf er í fræðiritum. Gott dæmi um þessa hneigð er ástar- játning Matthíasar til ídealismans sem hann telur raunar hafa endur- fæðst nú á síðari hluta 20. aldar í nýrri heimsmynd ýmissa vísinda- manna skammtaaflsfræðinnar sem haldi því fram „að vitund mannsins taki virkan þátt í að skapa efnisheim- inn“ (42). Slík skoðun er vitaskuld ekki allra nú á tímum en gæti verið í góðu samræmi við rómantíska lífs- sýn Jónasar. Hnökrar á þessu riti eru fáir og léttvægir. Tilvísanir eru í texta og oft lauslegar og ekki er farið eftir allra ströngustu kröfum hvað þær varðar né fylgir heimildaskrá sem að ósekju hefði- mátt bæta við þetta rit. Svo víða er komið við. Sem fyrr getur tekur Matthías gnótt dæma máli sínu til stuðnings og ekki er laust við að mér finnist um ofgnótt að ræða á stöku stað. Mikilvægast er þó að sýn Matthí- asar á Jónas og kveðskap hans bæt- ir við heildarmyndina sem við höfum af listaskáldinu góða. Hún er sann- færandi og umfram allt í senn fræði- leg og skáldleg. Geisladiskur með leik Martials Nardeau flautuleikara kominn út Íslendíngar halda fast í hefðir en reyna allt nýtt Æft fyrir Jólabarokk Morgunblaðið/Sverrir TÍU manna hópur tónlistarmanna kemur fram á Jólabarokki í Laugarneskirkju á fimmtudag og leika allir á upprunaleg hljóðfæri. Á myndinni er hluti hópsins, frá vinstri: Snorri Örn Snorrason, Camilla Söderberg, Elín Guðmundsdóttir, Martial Nardeau og Sesselja Olöf Óskarsdóttir. JÓLABAROKK er yfirskrift tónleika, sem haldnir verða í Laugarneskirkju á fimmtudag, 16. desember. Á tónleikunum leika tíu listamenn barokkverk á upprunaleg hljóðfæri. Upphaf- lega hleyptu þær Guðrún Sigríð- ur Birgisdóttir og Elín Guð- mundsdóttir Jólabarokki af stokkunum fyrir fjórum árum og hafa tónleikamir unnið sér fastan sess í tónlistarlífi aðvent- unnar. Hópur listmanna hefur tekið þátt í þessum árlegu tón- leikum og einn þeirra er Martial Nardeau, flautuleikari. Hann hefur í nógu að snúast þessa dagana, því fyrir utan undirbún- ing tónleikanna var að koma út geisladiskur þar sem hann leik- ur verk sex íslenskra tónskálda. Martial er tekinn tali á heimili hans og Guðrúnar S. Birgisdóttur í sl. viku, þegar stund gafst milli stríða. Hann byrjar á að ræða um tónleikana, sem skiljanlega eru honum ofarlega í huga, nú þegar lokaæfíngar standa yfír. „Við ætl- um að flytja fjögur barokkverk að þessu sinni, bæði frönsk og þýsk, eftir Telemann, Couperin, J. Christian Bach og Loeillet," segir hann. „Þessi 18. aldar verk hafa ekki verið flutt hér áður. Þau eru mjög ólík innbyrðis. Tvö þeirra eru kammerverk, kvintett og sextett, en hin tvö fyrir einleikara.“ Martial segir að hópurinn kapp- kosti að leika á upprunaleg hljóð- færi, til dæmis tréflautur í stað silfurflauta. „í verki Loeillets er til dæmis leikið á Flauto di Voce, sem mætti þýða sem „raddar- flautu“. Það eru stórar blokkflaut- ur, sem sjaldan heyrist í. En við viljum reyna að ná upprunalegum blæbrigðum tónlistarinnar. Þetta eru þau hljóðfæri, sem tónskáldin höfðu í huga þegar verkin voru samin.“ Martial bendir á að í Evrópu sé mikil barokk-vakning. „Núna er upprunalegra heimilda leitað, farið á bókasöfn og leitað að nótum og kennslubókum frá barokktíman- um. Farið er yfír þessar heimildir og skoðuð sú gagnrýni, sem tón- listin fékk, bréfaskriftir tónskáld- anna og fleira. í raun er þetta sagnfræði, sem veitir okkur innsýn í heim barokksins. Þetta hefur leitt til þess að tónlistarfólk hefur leit- ast við að skila tónlistinni frá sér sem upprunalegastri og því leikið á hljóðfæri þessa tíma. Þetta kost- ar auðvitað mikla vinnu og í raun endurmenntun hljóðfæraleikar- anna. Hér á landi kemur þessi þróun fólki ekki á óvart, því ís- lenskir áheyréndur fylgjast vel méð útgáfu á tónlist erlendis. Þar eru stórar messur eftir Hándel og Bach komnar út á plötum með leik á upprunaleg hljóðfæri.“ Kynnir íslensk verk Martial hefur verið búsettur hér á landi í tíu ár og er svo mikill íslendingur í sér að þegar hann heldur tónleika í útlöndum, sem hann gerir á hverju ári, kappkostar hann að kynna íslenska tónlist. „Mér finnst nauðsynlegt að fara til útlanda, því hér er ekki hægt að margendurtaka sömu tónleik- ana,“ segir hann. „Þú spilar pró- grammið einu sinni og svo þarftu að æfa nýtt. Úti er hins vegar hægt að láta prógrammið þróast áfram með því að leika það á tón- leikum. Þá er líka gaman að spila fyrir annað fólk en íslenska áhorf- endur, því hér eru oft sömu gest- irnir á öllum tónleikum. Ég spila alltaf íslenska tónlist á öllum tón- leikum erlendis og henni hefur verið vel tekið. Ég get tekið Tóna- mínútur Atla Heimis sem dæmi. Það verk lék ég í París og því var mjög vel tekið. Verkið er sérstakt, því það skiptist í tuttugu og eina tónamínútu og hver mínúta hefur sinn blæ og sitt heiti, til dæmis Fuglatónar, Fiskatónar, Regntón- ar og Snjótónar. Það er mjög gam- an að flytja verkið, því áhorfendur sitja og fylgjast mjög vel með í efnisskránni, svo epgin tónamínút- an fari nú fram hjá þeim.“ Nútímatónlist og eldri perlur Tónamínútur Atla Heimis Sveinssonar eru einmitt eitt þeirra verka, sem er að finna á nýút- komnum geisladiski með leik Mart- ials. Undirleik á píanó í fjórum verkum annast Örn Magnússon, en íslensk tónverkamiðstöð gefur diskinn út í samvinnu við Ríkisút- varpið og með stuðningi frá ýms- um aðilum, til dæmis lista- og menningarráði Kópavogs, Búnað- arbanka og íslandsbanka. í upplýs- ingum með geisladisknum ritar Martial sjálfur um verkin sem hann flytur. Um fyrsta verkið, Fjögur íslensk þjóðlög eftir Árna Björns- son, segir hann m.a. að um alþýð- legar tónsmíðar sé að ræða og innblásturinn sé sóttur í hvers- dagslífið. Annað verkið er „Við stokkinn" eftir Mist Þorkelsdóttur og segir Martial að hann hafi far- ið þess að leit við tónskáldið að hún semdi verk fyrir einleiksflautu. „Við stokkinn" hafi hún samið í tilefni af fæðingu sonar síns. Verk- ið sé fullt af fegurð og hug- kvæmni og sveiji sig í ætt við „Children’s Comer" og „Kindersz- enen“. Atli Ingólfsson er þriðja tón- skáldið sem á verk á geisladiskn- um. Hans verk^eru tvö, „Berging" fyrir einleiksflautu og „Þrjár andr- ár“ fyrir flautu og píanó. „Berg- ing“ var prófverkefni höfundar frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. „Verkið hefur haldið krafti sínum og frumleika og sérhver flutningur þess er ný reynsla,“ segir Martial. „í „Þremum andrám" sýnir hann allt aðra hlið, léttleika og blíðu.“ Fjórða tónskáldið er Atli Heimir Sveinsson og á hann tvö verk á disknum. Annað er að sjálfsögðu „Tuttugur og ein tónamínúta". „Á fyrsta fundi okkar í París árið 1980 sýndi hann mér handrit af verkinu,“ segir Martial. „Hugsið ykkur! Hér var komið skáldverk sem lýsir öllum heiminum á tutt- ugu og einni mínútu með einleiks- flautu. Stórhugur tónskáldsins hefur fært okkur eina af meiri háttar partítum flautunnar í dag. I næsta verki, intermezzo úr „Dim- malimm“, grípur Atli andartak og færir okkur inn í draumheima. Við vatnið grætur kóngsdóttirin Dim- malimm svaninn sinn, sem er dá- inn. Þetta verk hefur verið gefið út á nótum sérstaklega, enda með vinsælustu verkum tónskáldsins." Kjartan Ólafsson á verkið „Calculus", sem er fyrsta tölvu- samda verk höfundar. „Tónskáldið gefur tölvunni hráefni í verk sitt, tónhæð, styrkleika, hryn, kontra- punkt o.s.frv. í minnstu smáatrið- um. Tölvan vinnur úr þessu og skilar loks heillandi og óafturkall- anlegum söng,“ segir Martial um þetta verk. Lokaverkið á geisladisknum er „Grænn snjór“ Jónasar Tómasson- ar, sem hann samdi að beiðni Martials. „Jónas ferðast með okkur til upprunans," segir Martial. „ís- land jökla og óteljandi eyja, fjarða og síbreytilegrar litadýrðar fjall- anna er honum endalaus upp- spretta tónlistar." Hef ekki skrifað besta verkið Martial Nardeau hefur sjálfur fengist við að semja tónlist og því er hann spurður hvers vegna ekki sé að finna verk eftir hann á diskn- um. Hann hugsar sig lengi um og svarar svo: „Ég hef vissulega skrif- að mikið fyrir flautu, en ég hef ekki skrifað besta verkið enn. Mér fannst mín tónlist hfeldur ekki eiga heima á þessum disk. Þetta eru fjölbreytt verk og mér finnst gam- an að spila svo ólík og margbreyti- leg verk. íslendingar eru líka fram- sæknir og vilja reyna allt nýtt, hvort heldur í tæknibúnaði eða tónlist. En þeir sætta sig ekki ein- göngu við það, því þeir vilja halda í hefðir. Á íslandi fínnur þú það allra nýjasta á gömlum grunni. Þess vegna er geisladiskurinn líka þannig upp byggður, að auk nútí- matónlistarinnar er þar að finna ljúfar perlur, fulltrúa gamla Is- lands. Ég hafði mjög gaman af að vinna þennan disk og vil nota tækifærið til að koma á framfæri bestu þökkum til allra þeirra sem hjálpuðu mér.“ Þegar hér er komið sögu er ungur sonur Martials, Jóhann, orð- inn afar óþolinmóður, enda stendur til að baka piparkökur. Hann sér hins vegar fram á að ekki verði hafíst handa við baksturinn fyrr en viðtalinu lýkur. Hann gengur því ákveðinn að blaðamanninum og tilkynnir: „Pabbi er algjör snill- ingur á flautuna sína.“ Það er greinilega ekki meira um málið að segja. RSv

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.