Morgunblaðið - 14.12.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
Gunnar Bender.
Guðmundur Guðjónsson.
Nýjar bækur
Stangaveiðiárbókin
ÚT ER komin bókin Stangaveið-
in 1993 eftir blaðamennina,
Guðmund Guðjónsson og Gunn-
ar Bender. Þetta er eins og
nafnið gefur til kynna árbók,
en hún hefur komið út síðan
1988.
í texta aftan
stendur m.a.: „Stangaveiðiárbókin
kemur nú út i sjötta sinn og er
það mál manna sem þekkja til að
þá fyrst séu árbækur einhvers virði
er þær hafa komið út um árabil.
Þó árin séu aðeins sex er gildi
útgáfunnar löngu farið að segja
til síh. Efnisatriðin eru hin sömu
og áður. Tölur, veiðisögur, allar
helstu fréttir og hræringar fram
að 10. október. Silungsveiðin og á
annað hundrað myndir af veiðial-
þýðunni. Höfundar og útgefendur
eru einnig hinir sömu. Við biðjum
bókarkápu veiðimenn að njóta og sjáumst á
bökkum vatnanna á nýju ári.“
Selkórinn - aðventutónleikar
Tónlist
Ragnar Björnsson
Ekki er ýkja langt síðan byijað
var að fagna jólum með samkom-
um í kirkjum fyrsta sunnudag í
jólaföstu með tónlist og fyrirlestri
eða hugleiðingu og gjarnan var
fenginn til þess einhver sem
þekktari var fyrir annað en kirkju-
sókn. Þetta ágæta fyrirkomulag
hefur breyst í hreina tónleika og
þá ekki lengur bundið sunnudeg-
inum fyrsta í aðventu og kirkjan
ekki lengur ein um tónleikahaldið,
hljóðfæraleikarar eru með að-
ventutónleika og jafnvel karlakór-
arnir eru komnir af stað. Sjálf-
sagt er þetta „allt af hinu góða“
eins og vinsælt er að segja, a.m.k.
fá margir ástæðu og tækifæri ti!
að láta í sér heyra og áheyrendur
allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfí, sem einnig er vinsælt í
dag. Kannski er ekki rétt að skrifa
opinbera listgagnrýni á marga
þessa tónleika, stundum lítill
æfíngaundirbúningur og oft að
verkefnin geta tæplega talist kon-
sert-verkefni. Svo var og um stór-
an hluta verkefnavals Selkórsins,
sálmalög í útsendingum sem
sungin eru í jólamessum hér
heima og erlendis. Hins vegar
má syngja þessa sálma misjafn-
lega vel eða misjafnlega illa. Kór-
inn virðist búa yfir nokkuð góðum
efniviði sem hægt er að slípa en
töluvert virðist á vanta enn. Því
miður var svo til enginn munur á
meðferð laganna í fyrri hlutanum,
þau voru svo til undantekninga-
laust sungin mezzo-forte og mót-
un, eða túlkun, á hveiju lagi fyrir
sig gat undirritaður ekki fundið.
Taktslag stjórnandans, Jóns Karls
Einarssonar, er yfirleitt greinilegt
en það þarf meira til. Stjórnand-
inn þarf að skapa hyeiju lagi
andlit sköpunarhæfni stjórnand-
ans. Þrátt iýrir góð augnablik og
velheppnaðan og viðkvæman tríó-
þátt var mótetta Bachs, Jesu,
meini Freude, of stór biti að
kyngja. Þar vantaði raddtækni og
sterkari hrynkennd til að allt héld-
ist vel á floti. Sem fyrr segir, er
kannski óréttlátt að vera með
gagnrýni á tónleika sem þessa,
sem hugsanlega eru drifnir upp á
stuttum tíma og til þess gerðir
að fólk finni angan jólanna. En
svo vitnað sé í bæjarstjórann á
Seltjarnarnesi, þá stendur nú allt
til bóta og peningarnir fara í „að
bæta mannlífið", því ekki fara
þeir í nýbyggingar, þar sem lóðir
eru uppurnar á Nesinu og leik-
hús, sjúkrahús og fleira er auð-
velt að sækja til Reykjavíkur,
hver væri því svo vitlaus að krossa
við sameiningu. Gallinn er bara
sá að peningar eru ekki örugg
leið til betri listsköpunar.
Hraun og hugmyndafræði
ísafold gefur hana út í þriðja
skipti á sex ára ferli ritsins.
Bókin er 151 bls. Bókin kostar
2.850 krónur.
Myndlist
Sögur eftir Börk
Gunnarsson
Komið er út smásagnasafn
eftir Börk Gunnarsson, 23 ára
Garðbæing sem stundar nám í
heimspeki við Háskóla íslands.
í safninu sem nefnist X eru
fimm sögur: Sjálfvirkinn, Aðeins
þögnin segir satt, Líf, Það rennur
og Gamansemi guðanna.
Höfundurinn hefur áður birt Ijóð
og sögur í blöðum og tímaritum,
en smásagnasafnið er fýrsta bók
hans.
Útgefandi er Ragnan. Mynd
á kápu er eftir Guðnýju Rósu
og ljósmynd eftir Karl Pétur
Jónsson. Umbrot og setning er
verk Skarphéðins Gunnarsson-
ar. Prentsmíði prentaði. Bókin
kostar 1.954 krónur.
Börkur Gunnarsson
Bragi Ásgeirsson
í Listaskála alþýðu kynnir Hall-
dór Ásgeirsson 13 ný myndverk
sem flest tengjast hrauni og um-
mótun þess við logsuðu, og stendur
sýningin til 19. desember. Halldór
virðist öðru fremur hafa fengist við
að vinna með eld og logsuðutæki á
undanförnum árum og urðu menn
greinilega varir við það á síðustu
sýningu hans í Nýlistasafninu. Þar
sýndi hann stóra sviðna trédrumba
og sótug klæði og voru vinnubrögð-
in mjög frábrugðin öllu því sem frá
honum hafði komið til þess tíma.
En ekki hélt hann áfram í trédrumb-
unum heldur beindist nú athygli
hans að formunum hraunsins og
ummyndun þeirra ásamt tilraunum
með léttari efni.
íslenzkir listamenn hafa eðlilega
látið hraunið hafa áhrif á sig og
má einkum nefna Kjarval, sem
málaði það, og Jóhann Eyfells, sem
að vissu marki vann á svipuðum
nótum og Halldór, þótt myndsýn
þeirra sé um margt frábrugðin. En
báðir ráðast þeir á hið áþreifanlega
hraun og ummynda það með eldi,
en Jóhann hefur líka hoggið í það
og ruðst inn í kjama þess með
ýmsu móti. Halldór tekur hins veg-
ar hraunmola og logsýður, þar til
hluti yfírborðsins er orðinn sléttur
og gljáandi, og nær með því sterk-
um og sérkennilegum andstæðum,
auk þess sem frá sumum liggja fín-
gerðir þræðir út í loftið og hafa
svip af efnislegri mýkt og léttleika,
sem hraunið sjálft hefur ekki til að
bera. Áhrifín eru óvænt, en geta
allt eins virkað sem hreinar og bein-
ar tilraunir og rannsóknir á efni-
sinnihaldi hraunmolans. Ekki síst
fýrir þá sök að hann setur þá iðu-
lega undir gagnsætt harðplast, eins
og gert er á tilraunastofum og
steinasöfnum. Og það gerir samlík-
inguna enn raunhæfari að ein hil-
lusamstæðan úr slíku plasti er þak-
in hvers konar glerdóti er minnir á
rannsóknarstofu.
Sýningunni er mjög vel fyrir
komið og það eykur áhrifín til muna
að hlaðinn hefur verið veggur úr
vikursteinum á milli salanna („Við
hraunmúrinn") en á hann hefur
listamaðurinn logsoðið stóran hring
og inní í honum eru svo smærri
hringir og virkar gjörningurinn sem
rýmisleg dýpt og eilífðarferli á ann-
ars flötum og fastmótuðum grunni.
Halldór hefur svo einnig unnið
hugmyndir sínar á pappír, en mik-
ill fjöldi smáteikninga er á sýning-
unni. Minnir það á fyrri tilhneigingu
hans við að vinna úr frumstæðum
og sjálfsprottnum táknmyndum en
hefur þó meiri skírskotun til hins
jarðbundna og sköpunarkrafts nátt-
úrunnar. Táknin vinna vel með
hraunmolunum og styrkja megin-
HANKOOK
\m\RDEKKI\
á lága verðinu
Frábær vetrardekk - Einstakt verð
Verðsýnishorn stgr. Verðsýnishorn stgr.
145R12 KR. 3540 KR.3186 185R14 KR.5680 KR.5112
155R12 KR.3770 KR.3393 175/70R14 KR.5100 KR.4590
135R13 KR.3540 KR.3186 185/70R14 KR. 5440 KR.4896
145R13 KR.3660 KR.3294 195/70R14 KR. 6280 KR.5652
155R13 KR.3980 KR.3582 205/75R14 KR.7580 KR.6822
165R13 KR.4100 KR.3690 175/65R14 KR.5550 KR.4995
175/70R13 KR.4440 KR.3990 185/60R14 KR.5980 KR.5382
185/70R13 KR.4880 KR.4392 165R15 KR.4770 KR.4293
175R14 KR.4980 KR.4482 185/65R15 KR.6420 KR.5778
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 - sími 683080
Sendum gegn póstkröfu.
Halldór Ásgeirsson
hugmyndina að baki sköpunarferl-
isins, en formrænn krafturinn í
hverri mynd fyrir sig er ekki tiltak-
anlega mikill.
Á heildina litið er þetta án efa
áhrifaríkasta framtak Halldórs Ás-
geirssonar til þessa.
- ■» ♦ ♦
Nýjar bækur
■ Út er komin bókin Sjö, níu,
þrettán — hjátrú íslendinga í
daglega lífinu. Ritstjóri er Símon
Jón Jóhannsson. Um er að ræða
bók um margvíslega hjátrú lands-
manna fyrr og nú. Á bókakápu
segir að bókin sé í senn fræðandi
og skemmtileg og að hún höfði jafnt
til ungra sem aldinna íslendinga.
Meðal efnisflokka má nefna ástir
og brúðkaup, meðgöngu og fæð-
ingu, íþróttir og leikhús, stiga og
spegla, salt og svarta ketti, að því
ógleymdu að banka undir borð og
fara með töfraþuluna „Sjö, níu,
þrettán!"
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er rikulega myndskreytt,
bæði með ljósmyndum úr ýmsum
áttum og teikningum eftir Gísla
J. Ástþórsson og fleiri. Hún er
269 blaðsíður að lengd, prentuð
í prentsmiðju Árna Valdemars-
sonar. Bókin kostar 2.980 krón-
&
|
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!