Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
21
Nýjar bækur
■ Klukkan Kassíópeira og húsið
í dalnum heitir nýútkomin bamabók
eftir Þórunni Sigurðardóttur. Bókin
er byggð á leikriti sem flutt var í
Ríkisútvarpinu í haust og fjallar um
böm sem fara að grafast fyrir um
gamalt lejmdarmál og komast þá að
óvæntum sannleika. „Þegar farið er
að grafla í fortíðinni kemur ýmislegt
spennandi í ljós ög aðalpersónan,
Halla, uppgötvar höfuðborgina, þar
sem kapphlaupið við tímann er alls-
ráðandi,“ segir í kynningu útgefanda.
Klukkan kassíópeia og húsið í dalnum
er fyrsta bamabók Þórannar.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 140 blaðsiður, prentuð í
Prentsmiðjunni Odda hf. Katrín
Sigurðardóttir myndskreytti bók-
ina. Verð 1.390 krónur.
■ Galdur steinsins eftir Heiði
Baldursdóttur er ný bama- og ungl-
mgabók. Heiður fékk á sínum tíma
Islensku bamabókaverðlaunin. í
kynningu útgefanda segir: „1 galdri
steinsins segir frá tveimur óh'kum
stúlkum á ólíkum tímum sem tengj-
ast gegnum töfrastein. Gunnhildur
lifir í nútímanum. Hún á við veikindi
að striða og á erfítt með að taka þátt
í leikjum annarra krakka. Með hjálp
töfrasteinsins sem frænka hennar
gefur henni einn góðan veðurdag, sér
hún inn í ævintýraheim þar sem önn-
ur stúlka, Hildur, leggur upp í erfíða
ævintýraferð. Hún leitar að týndum
konugssyni og lendir í ólíklegustu
raunum svo líf hennar liggur við.“
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Um prentvinnslu bókarinnar sá
prentstofa G. Ben en hún er 152
bls. að iengd. Bókin kostar 1.490
krónur.
Þórey Friðbjörnsdóttir
Sparibaukurinn GEORG,
jólagjöf sem vex og vex!
ALDREIAFTUR
Afar, ömmur, pabbar og mömmur, frændur og frænkur,
systur, bræður og vinir! Sparibaukurinn Georg er skemmtileg
jólagjöf. Hann gerir sparnaöinn spennandi, því til mikils er að
vinna fyrir börn sem standa sig vel, bæði góðir vextir og
margskonar verðlaun s.s. litabók, plakat og bolur. Georg og
félagar eru í íslandsbanka.
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Höfundur: Þórey Friðbjörnsdótt-
ir.
Hönnun kápu: Helgi Sig. Hug-
verkasmiðja.
Prentvinnsla: Borgarprent hf.
Útgefandi: Klettaútgáfan hf.
Það er erfitt að vera ungur. Erf-
itt að draga skil milli draums og
veruleika, erfiðast samt að kynnast
sjálfum sér. Þetta fá systkinin Þor-
steinn, Bergþóra og Jóhann að
reyna.
Þorsteinn er í menntaskóla, helj-
arinnar karl, átti Skóda, og trylli-
tækið dró að sér nýja félaga. Þar
var Tryggvi foringi. Villtur, og bauð
heimi byrginn. Hann dreif því félag-
ana með sér í æ öfgafyllri dans.
Þeir stigu með, Þorsteinn með sem-
ingi þó, lafhræddur við uppátæki
foringjans. Svo allt í einu er Tryggvi
állur. Þá rennur upp fyrir nánustu
vinum, að þeir höfðu ekki þekkt
angistaróp sárþjáðrar sálar, höfðu
aldrei leitt hug að, hver kvikan
var, sem ærslin og borubrattinn
huldu. „Gréstu barn í faðmi/ síðan
einn/ ... og aldrei aftur.“/
Bergþóra þekkti „ógeðslega sæt-
an“ strák. Yfir sig ástfangin skraut-
ritaði hún nafn hans, síðu eftir síðu,
í glósubækur. Dásamlegur draum-
ur. Hún vildi ekki deila honum með
öðrum, og þá flögrar haninn burt.
Jóhann, rauðkollur, kynnist æ
betur, hvers hann er megnugur,
ekki aðeins trommusláttur, heldur
líka söngur í hljóðnema, ýttu honum
á stjörnuhimin.
Vissulega eru margir fleiri á sviði
þessarar sögu, en eftirvæntingunni
að kynnast þeim vil ég ekki ræna
lesandann.
Þetta er bráðskemmtileg saga,
skrifuð af mikilli fimi. Málið fagurt
og tært. Oft minnti sagan mig á
angurvært ljóð, trega þess sem ann
og hefir misst, en ann enn. Hún
er hveijum unglingi holl lesning,
viðvörun: Ekki er allt sem sýnist!
Hvenær þekkir maður mann að
innstu fylgsnum? Höfundur gerir
efninu meistaraleg skil, svo vel, að
mig munar í að fá meira að heyra.
Allur frágangur til fyrirmyndar.
Hafi þeir er að unnu þökk fyrir.
Nýjar bækur
Út er komin bókin Endilöng
nóttin eftir Julio Cortázar í þýð-
ingu Jóns Halls Stefánssonar.
í kynningu útgefanda segir:
„Undir grímu hversdagsleikans
dylst hið óvænta, ótal andlit sem
við sjáum ekki nema stirðnað yfir-
borðið gliðni eitt andartak; sem oft-
ast er nóg því þegar heimsmynd
brotnar verður hún ekki límd aftur
saman. Slík andartök, þegar hvers-
dagsleikinn verður ófyrirsjáanlegur
eða annarlegur, eru efniviður
flestra smásagna Argentínumanns-
ins Julio Cortászar (1914-1984).“
Þetta safn hefur að geyma marg-
ar af frægustu sögum Cortázar sem
oft valdi sér Parísarborg að sögu-
sviði.
Útgefandi er Bjartur. Bókin
er prentuð hjá PAV, Snæbjörn
Arngrímsson gerði kápu. Bókin
er 197 síður og kostar 2.480
krónur.
Skiótvirkur stíflueyðir
stíflum
Eyðir
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra e.n vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 677878-fax 677022
Tilbúinn
stíflu
eyðir