Morgunblaðið - 14.12.1993, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.12.1993, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Nýmjólk fyrir smábörn og undanrenna fyrir fullorðna eftir Ingu Þórsdóttur ogAuðiPerlu Svansdóttur Skýrslur frá Norðurlöndum og Bandaríkjunum benda til þess að rekja megi hluta af svokölluðum vanþrifum smábama til of lítillar fituneyslu þeirra. Vanþrif er ís- lenskt heiti yfir lélegan eða of lít- inn vöxt sem sést á of lítilli þyngdaraukningu og greinast þau oft fyrst í ungbamaeftirliti heilsu- gæslustöðvanna. Mörgum fínnst þetta skjóta skökku við þar sem fullorðnum í þessum sömu löndum er ráðlagt að draga úr fituneyslu til þess að minnka líkur á algeng- um sjúkdómum. En það er óhrakin niðurstaða fjölda rannsókna til margra ára. Engar rannsóknir benda til þess gagnstæða að full- orðnir Vesturlandabúar þurfi ekki að minnka heildarfituneyslu sína og þá sérstaklega neyslu á dýra- fitu. En hvað smábömin varðar er því einfaldlega þannig farið að vegná smæðar líkamans hentar þeim orkuþéttara og þar með fitu- ríkara mataræði en fullorðnum. Orku- og fituþörf barna Orkuþörf bama er hlutfallslega meiri en fullorðinna. Vaxtarhraði mannsins er mestur þegar hann er nýfæddur og minnkar síðan smátt og smátt fram á unglings- eða fullorðinsár, oft með svolitlum vaxtarkipp á gelgjuskeiði. Böm þurfa meira af orku eða fleiri hita- einingar á hvert kíló líkamsþyngd- ar sinnar en einstaklingur sem er hættur að vaxa eða vex miklu hægar. Smáböm eru þess vegna mjög viðkvæm fyrir ónógri nær- ingu og þar með ónógri orku. Magamál smábama er lítið miðað við þessa miklu orkuþörf, mörg ‘þeirra verða hreinlega södd af til- tölulega litlu eða geta ekki látið í sig nema takmarkað rúmmál. Þeirri orku sem smábamið þarfn- ast þarf að koma fyrir í matnum sem kemst fyrir í litlum maga. Það er því oftast nauðsynlegt að matar- æði smábama sé orkuþétt og það þýðir í raun svolítið fituríkari mált- íðir en það sem talið er hollt fyrir fullorðna. Fita er orkuþéttasta næringarefnið. Eitt gramm af fitu veitir um það bil níu hitaeiningar en grammið af kolvetnum og pró- teinum minna en helmingi minna eða um fjórar hitaeiningar. Sá munur sem er nauðsynlegur á fitu- innihaldi matar barna og fullorð- inna næst auðveldlega með vali mjólkurafurða - nýmjólk fyrir böm og fítuminni mjólk fyrir full- orðna. Einhveijir spyija þá sjálf- sagt, en hvað með litlu feitu mat- hákana - þurfa þeir líka mat sem er fituríkari en matur fullorðinna? í stuttu máli má segja að fullfeitar mjólkurafurðir em nauðsynlegar næstum öllum bömum að minnsta kosti fram að eins árs aldri og sumum töluvert lengur. í nýlegu dönsku riti um matar- æði smábama var bent á að svolít- ill fituforði á líkama þeirra er í raun eðlilegur og æskilegur. Börn á fyrsta ári eiga að vera „búttuð“ samkvæmt þessum frændum okk- ar. Það er meðal annars talið auð- velda þeim að mæta sýkingum. Margir foreldrar kannast við tíð veikindi bama á öðru aldursári. Hár hiti, kvef, eyrnabólga og bamasjúkdómar eru algengir kvill- ar meðal smábama eins og til dæmis þeirra sem eru nýbyijuð í pössun eftir barnsburðarleyfi mömmu eða pabba. I þessu basli hafa mörg böm lélega matarlyst - og það er sérstaklega þá sem svo- lítill fituforði er af hinu góða. Sumir óttast að feit smábörn verði feitir fullorðnir einstaklingar. Þessi skoðun varð algeng eftir 1970 í kjölfar svokallaðrar fítu- frumukenningar. Samkvæmt þeirri kenningu var grunnur að offitu síðar á lífsleiðinni lagður á fyrsta aldursárinu með fjölgun fitufmmn- anna. Rannsóknir hafa hins vegar sýnt að engin fylgni er milli þess að hafa verið feitt smábarn og þjást af offitu á fullorðinsárum. Feita skólabarnið virðist hins vegar vera í meiri hættu að verða of þungt seinna á lífsleiðinni, en skólaböm sem ekki em of feit. Lítil fita og lélegnr vöxtur Ekki er hægt að segja til um með neinni vissu hversu tíð van- þrif af völdum fitulítils fæðis era meðal íslenskra smábama. Svo virðist sem vandinn hérlendis sé minni en meðal bæði Dana og Svía; örfá böm á ári; sem þó er auðvitað örfáum börnum of mikið. Talið er að skilgreina megi of litla fituneyslu meðal um það bil fimm hundmð danskra bama árlega en færri tilfelli teljast í Svíþjóð þótt þessi vandi hafí þar fengið mikla umfjöllun í fagritum og fjölmiðlum. Hér má benda á að þessi munur á tíðni í löndunum tveimur er alls ekki endurspeglun á neyslu full- orðna fólksins, þar sem Danir borða töluvert meiri fitu en Svíar. Inga Þórsdóttir Auður Perla Svansdóttir „Fullorðnir þurfa að minnka neyslu á dýrafitu en smábörnum henta fituríkar mjólkurvörur.“ Þeir sem fjallað hafa um litla fitu- neyslu barna telja oftast ástæðuna fyrir vandanum vera misskilning foreldra sem felst í því að yfirfæra ráðleggingar til fullorðinna um minnkaða fituneyslu yfír á smá- börnin. Hér er því sennilega sjaldan um vanrækslu að ræða, heldur ein- faldan misskilning og stundum öfgar varðandi túlkun á hollu líf- emi. Greint hefur verið frá sænsk- um foreldrum sem hafa talið að trefjaríkt jurtafæði væri það besta fyrir alla, jafnvel börn, en slíkt mataræði verður auðveldlega or- kulítið. Bandarískar kannanir á næringu bama sem vaxa ekki nægilega benda þó til ákveðins sinnuleysis meðal foreldra. Al- gengt sé að matur smábarna sé í senn fitulítill og sykurríkur; lélegar máltíðir. Fjölbreytni í fæðuvali er mikilvæg tiltölulega snemma eftir að bam hættir á bijósti. En ein- hæft fæðuval getur verið ástæða til dæmis hægðatregðu eða járns- korts. Önnur ráð ætluð börnum en fullorðnum Ráðleggingar til fullorðinna í öllum löndunum í kringum okkur miða að því að fituneysla veiti ekki meira en tæplega þriðjung orkunnar, en íslensk manneldis- markmið miða að fituneyslu sem ekki er meiri en 35 hundraðshlutar orkunnar. Séríslensk markmið fyr- ir böm eru ekki til en samnorræn markmið miða að hlutfallslega meiri fituneyslu bama en fullorð- inna. Þessar ráðleggingar eru skýrar en hafa þó greinilega ekki náð eymm foreldra smábama. í umræðunni um fituneyslu er eðli- legt að fólk velti fyrir sér hvort hætta sé á að fullorðnir neyti of lítillar fitu. Auk þess að veita okk- ur orku veitir fita lífsnauðsynlegar fitusýrur og fítuleysin vítamín sem em nauðsynleg bæði börnum og fullorðnum. Óhætt er að segja að hættan á fituskorti er svo að segja engin meðal heilbrigðra einstak- linga. I þeim heimshlutum þar sem matarskortur er veralegur eins og til dæmis á Indlandi sést hreinn fituskortur, en fituneysla sumra Asíuþjóða veitir um 15 hundraðs- hluta orkunnar að jafnaði sem er of lágt. í okkar heimshluta er ekki hætta á slíku nema meðal ákveð- inna sjúklinga. Mjög mikilvægt er að gera sér grein fyrir að ekkert bendir til þess að þær ráðleggingar séu rang- ar sem beint hefur verið til fullorð- inna Vesturlandabúa um að minnka heildarfituneyslu og það fyrst og fremst með minni notkun Fasteign heimili frekar en fjárfesting eftir Steingerði Steinarsdóttur Húseigendafélagið hélt borgara- fund á Hótel Sögu 30. október síð- astliðinn í tilefni 70 ára afmælis félagsins en fundarefnið var hvort fasteignir á íslandi væra trygg eign eða verðhrun handan við homið. Mörg áhugaverð sjónarmið, hugmyndir og niðurstöður komu fram á fundinum sem nægt gætu til að skapa Húseigendafélaginu verkefni næstu 70 árin. Á þær helstu verður drepið hér á eftir. Framsögumenn voru fengnir með tilliti þess hve góða yfirsýn þeir hafa yfir fasteignamarkaðinn hver frá sínu sjónarhomi. Almennt vora þeir á einu máli um að verð á fasteignum hafi farið lækkandi að undanfömu og þá sérstaklega á stærri íbúðum og atvinnuhús- næði. Menn höfðu hins vegar mis- munandi skoðanir á því hvort botn- inum væri náð þ.e. hvort verð héldi áfram að síga, verð muni standa í stað eða verðhækkun sé handan við homið. Flestir töldu þó að að- gerðir ríkisstjómarinnar í vaxta- málum myndu fljótlega auka eftir- spum .eftir húsnæði og þar með hækka verðið. Góður afli í Smug- unni og víðar auka vonar um góða lonuvertíð myndi skila sér í bættum efnahag landsmanna og í kjölfarið fylgdu auknar fjárfestingar. Nokkrir gerðu verðhran fast- eigna á landsbyggðinni að umtals- efni og töldu að aukið framboð félagslegs íbúðarhúsnæði hefði haft óheillavænleg áhrif á verð á almennum markaði utan höfuð- borgarsvæðisins. Verð á íbúðum í félagslega kerfinu er fastákveðið en ekki háð ytri aðstæðum, fólk sækir því í öryggið. Einn fram- sögumanna benti á að eiginfjár- myndun í félagslega húsnæðiskerf- inu væri mjög lítil fyrstu árin og ykist ekki fyrr en eftir 20 ára eign- arhald. Kerfi þetta hentaði því að sínu leyti betur erfíngjum en þeim sem strituðu fyrir afborgunum. Þrátt fyrir þetta kýs fólk úti á landsbyggðinni frekar að taka á sig það tap er hugsanlega gæti orðið á eignarhlutdeild þess en að hætta öllu sínu á fijálsum markaði. Félagsmálaráðherra taldi ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af Steingerður Steinarsdóttir „Félagsmálaráðherra taldi að ef aðgerðir rík- isstjórnarinnar í vaxta- málum gæfu góða raun væri líklegt að svigrúm skapaðist til að auka lán til þeirra er væru að kaupa sína fyrstu íbúð og þá myndi unga fólk- ið væntanlega skila sér í auknum mæli út á fast- eignamarkaðinn.“ aukinni hlutdeild félagslegs íbúð- arhúsnæðis á fasteignamarkaði í dreifbýli og benti á að stefna stjórnvalda væri að kaupa notaðar I .
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.