Morgunblaðið - 14.12.1993, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
Norskir
farmenn
að hverfa
NORSKIR farmenn eru deyja
út en í þeirra stað fjölgar stöð-
ugt á skipunum mönnum frá
ýmsum Asíuríkjum. Þeir sætta
sig við laun, sem oft eru ekki
nema brot af launum Norð-
manna. Á 1.155 norskum skip-
um, sem skráð eru í NIS, norsku
alþjóðaskráningunni, eða eru
undir erlendum fána, eru aðeins
814 norskir undirmenn. Á sömu
skipum eru hins vegar 45.900
útlendingar. Þótt yfirmenn séu
teknir með þá fer hlutfall Norð-
manna í flotanum aðeins í 13%.
Talsmenn sjómanna segja, að
ástæðan fyrir afturförinni sé
samþykkt Stórþingsins 1987 á
NIS en meginmarkmiðið með
henni var að bæta hag útgerðar-
innar með því að láta útlendinga
taka við störfum Norðmanna.
Flugumferð
lamaðist
FLUGUMFERÐ í Svíþjóð var
að mestu lömuð í gær vegna
dagsverkfalls tæknimanna og
hlaðmanna á sænskum flugvöll-
um og verkbanns, sem vinnu-
veitendur gripu til. Krefjast
verkfallsmenn 3% kauphækkun-
ar en vinnuveitendur hafa 1%
hækkun. Talsmaður SAS sagði
í gær, vinnustöðvunin myndi
trufla ferðir 17.000 farþega fé-
lagsins og áætlaði, að fresta
þyrfti 500 ferðum. Sáttafundur
í deilunni átti að vera í gær en
verkfallsmenn höfðu ákveðið,
að yrði enginn árangur af hon-
um, yrði boðað til annars dags-
verkfalls næstkomandi mánu-
dag.
Sátt um ríkis-
arfann
SÍÐUSTU breytingar á forystu
kommúnistaflokksins í Norður-
Kóreu benda til, að enginn
ágreiningur sé um, að Kim
Jong-il, sonur Kim Il-sungs, for-
seta landsins, taki við af föður
sínum sem leiðtogi flokks og
þjóðar. I liðinni viku var Kim
Jong-ju, bróðir forsetans eða
„leiðtogans mikla“, skipaður í
miðstjórnina og stjómmálaráðið
eftir að hafa verið úti í kuldan-
um í 17 ár og var þá jafnvel
talið, að það væri fyrirboði meiri
breytinga. Svo er ekki segja
stjórnmálaskýrendur og spá því,
að Jong-il muni taka við forystu
í flokknum í febrúar og síðar
við forsetaembættinu úr hendi
föður síns.
Arangurslaus
fundur
ENGINN árangur varð af fundi
Færeyinga og Norðmanna um
nýjan fiskveiðisamning í Björg-
vin í síðustu viku. Segir Thomas
Arabo, sjávarútvegsráðherra
Færeyja, að strandað hafi á
kröfu Norðmanna um skötusels-
og grálúðukvóta fyrir norska
netabáta í færeyskri landhelgi.
Það var fyrst í fyrra, að Færey-
ingar fóru að veiða skötusel í
net og grálúðu fyrst nú í ár.
Telja þeir, að allt of lítil reynsla
sé komin á veiðar á þessum teg-
undum með þessum veiðarfær-
um og því sé of snemmt að
semja um ákveðna kvóta.
Kazakar sam-
þykkja
ÞINGIÐ í Kazakhstan staðfesti
í gær samninginn um bann við
útbreiðslu kjarnorkuvopna,
skömmu eftir að A1 Gore, vara-
forseti Bandaríkjanna, kom í
opinbera heimsókn til landsins.
Reuter
Endeavour til jarðar
GEIMFERJAN Endeavour lenti í gær á Cape Canaveral-höfða á Flórída
eftir velheppnaða viðgerð á Hubble-sjónaukanum, sem er á sporbaug
umhverfis jörðu. Árangur geimfaranna sjö sem um borð voru hefur bætt
mjög ímynd Bandarísku geimferðastofnunarinnar (NASA) en hún hefur
liðið fyrir hvert óhappið á fætur öðru. Alls voru geimfararnir ellefu daga
úti i geiminum, þar af höfðu þeir, sex karlar og ein kona, unnið að við-
gerðum í rúmar 35 stundir.
Jozsef Antall forsætisráðherra látinn
Forystukreppa í
Ungverjalandi
Búdapcst. Reuter.
JOZSEF Antall, forsætisráðherra Ungveijalands, lést af völd-
um krabbameins á sunnudag, 61 árs að aldri, og óvíst er
hver tekur við embættinu.
Antall var
fyrsti leiðtogi
landsins eftir
hrun komm-
únismans.
Hann var trúr
hugsjóninni um
evrópska sam-
vinnu, barðist
fyrir réttindum
Ungverja í ná-
grannaríkju-
num og þótti
reyndur og slyngur stjórnmálamað-
ur.
Flokkur Antalls, Lýðræðisvett-
vangur á eftir að ákveða hver taki
við forsætisráðherraembættinu.
Nokkrir embættismenn sögðust bú-
ast við því að Peter Boross, sem
gegnir nú embættinu til bráða-
birgða, yrði fyrir valinu, en aðrir
sögðu að nokkrir af atkvæðamestu
stofnendum flokksins myndu neita
að fallast á hann. Boross gekk í
flokkinn í fyrra og hefur ekki náð
að festa sig þar í sessi.
Vilja forðast valdabaráttu
„Æðstu stofnanir Lýðræðisvett-
vangs eru staðráðnar í að koma í
veg fyrir valdabaráttu svo við glöt-
um ekki þeim stöðugleika sem nauð-
synlegur er til að byggja upp land-
ið,“ sagði Sador Lezsak, starfandi
formaður flokksins. Lezsak hefur
verið orðaður við forsætisráðherra-
embættið og Lajos Fur varnarmála-
ráðherra þykir einnig líklegur eftir-
maður Antalls.
Deilt um framkvæmd friðarsamnings Israela og PLO
Heimkvaðiiingxi
hermanna frestað
Jerúsalem. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO), sagði í gær að alvarleg vandamál væru komin upp í
friðarumleitunum ísraela og PLO. Arafat og Yitzhak Rabin,
forsætisráðherra ísraels, tókst ekki að ná samkomulagi um
brottflutning ísraelskra hermanna frá hernumdu svæðunum
sem átti að hefjast í gær.
Arafat og Rabin ákváðu að koma
saman aftur eftir tíu daga og Rab-
in kvaðst vona að unnt yrði að ná
samkomulagi í meginatriðum fyrir
þann tíma. „Síðan verðum við að
ganga frá samningi í smáatriðum,"
sagði hann.
Deilan snýst um hvernig standa
eigi að eftirliti við landamærin að
hernumdu svæðunum. Shimon Per-
FLEIRI rannsokmr a afskiptum
Dana af málefnum Færeyinga
eru nú í uppsiglingu. Ríkisendur-
skoðunin danska hefur nú verið
beðin um að gera úttekt á hvaða
vitneskju danska forsætisráðu-
neytið hafði á hverjum tíma um
aðstæður á Færeyjum á síðasta
áratug. Athyglin beinist einkum
að skýrslum, sem sérstök nefnd
um málefni Færeyja skrifaði
handa forsætisráðherra.
í umræðum danskra stjórnmála-
manna um málefni Færeyja hefur
iðulega verið bent á að Poul
Sehluter og stjóm hans hafi látið
sem vind um eyru þjóta ábendingar
um að stjórn Færeyja stefndi í óefni.
Kirsten Jakobsen, þingmaður
Framfaraflokksins, sem hefur beitt
sér mikið í Færeyjaumræðunni,
hefur oftar en einu sinni farið fram
á rannsókn á þessuin þætti, til að
komast til botns í hvar ábyrgðin
liggi-
Hingað til hefur bæði stjórn og
stjórnarandstaða verið andvígar
slíkum rannsóknum, en nú hafa
endurskoðendur ríkisreikninga, sem
eru kosnir af þinginu, farið þess á
leit við ríkisendurskoðun að athuga
boðskipti forsætisráðuneytis og
es, utanríkisráðherra ísraels, var
sammála Arafat um að alvarleg
staða væri komin upp í friðarumleit-
ununum.
Fjölmiðlar í ísrael skýrðu frá því
að stjórnvöld væru að íhuga að
grípa til einhliða aðgerða til að sefa
Palestínumenn. Stjórnin kynni til
að mynda að tilkynna takmarkaða
og táknræna heimkvaðningu eða
Færeyjanefndar þess. Sú athugun
gæti orðið liður í að athuga hvers
vegna ekki var gripið í taumana
Formaður samtakanna, Ignatz
Bubis, telur að stór hluti þýsku þjóð-
arinnar sé ekki nógu þroskaður til
að horfa á myndina með gagnrýnu
hugarfari og því sé hættulegt að
gefa hægriöfgasinnum tækifæri til
að koma skoðunum sínum á fram-
færi á þennan hátt.
Myndln sem heitir „Beruf Neo-
nazi“ eða „Starf nýnasisti" er um
80 mínútur að lengd og ijallar um
ungan leiðtoga hægriöfgasinna í
láta palestínska fanga lausa. ísra-
elskir ráðherrar sögðu hins vegar
að þetta hefði ekki verið rætt á
fundi sem efnt var til í ríkisstjórn-
inni í gær.
ísraelar og Palestínumenn höfðu
óttast að tafir á heimkvaðningu
hermannanna gætu reynst vatn á
myllu andstæðinga friðarsamkomu-
lagsins frá 13. september og ólgan
á hernumdu svæðunum gæti magn-
ast. Frá því samkomulagið var gert
opinbert hafa 39 Palestínumenn og
18 ísraelar verið drepnir. ísraelskir
hermenn skutu þijá herskáa músl-
ima til bana í gær.
fýrr en Færeyingar sjálfir fóru fram
á aðstoð Dana við að leysa fjárhags-
vanda sinn.
Munchen. Leikstjóri myndarinn-
ar, Winfried Bonengel, segir að
ekki sé um áróðursmynd að ræða
heldur raunsanna lýsingu á
brengluðum hugmyndum og
skoðunum nýnasista og hún eigi
því fullt erindi við þjóðina.
Líklegt er að myndin verði
tekin aftur til sýninga en að við
verði bætt skýringum og athuga-
semdum við það sem fram kem-
ur.
Rannsaka
aftur lát
Hendrix
London. Reuter. Daily Telegraph.
BRESKA lögreglan hefur
ákveðið að rannsaka andlát
gítarsnillingsins Jimi
Hendrix að nýju vegna
óska fyrrum vinkonu hans,
Kathy Etchingham. Fékk
hún sjálfstæðan aðila til að
rannsaka andlátið og hefur
lögreglan ákveðið á grund-
velli upplýsinga hans að
opna málið aftur.
Hendrix lést árið 1970 að-
eins 27 ára að aldri. Kafnaði
hann í eigin spýju í kjölfar of-
neyslu svefnlyfja á heimili þý-
skrar skautastjörnu, Moniku
Danneman, í vesturhluta Lond-
on. Meðal þess sem fullyrt er
í skýrslu sem lögð var fyrir
breska saksóknaraembættið er
að bjarga hefði mátt lífi Hendr-
ix með því að kalla fyrr á lækn-
ishjálp. Jafnframt segir þar að
þrátt fyrir ímynd Hendrix hafi
hann hvorki verið háður fíkni-
efnum né haldinn andlátslöng-
un.
Monika Danneman fagnaði
því í gær að rannsóknin skyldi
tekin upp. „Það er ekkert að
fela, ég hef alltaf lýst því sem
gerðist en urmull af slúðursög-
um hefur verið á kreiki vegna
þess að fólk hefur viljað búa
til eigin útgáfu af andlátinu,"
sagði hún.
Da’nneman sagði að Hendrix
hefði komið til hennar klukkan
20.30, hún hefði eldað mat og
þau hefðu drukkið eina flösku
af hvítvíni með matnum. „Þetta
var ánægjulegt kvöld, ekkert
rifrildi og engin spenna í loft-
inu, við sátum og töluðum sam-
an og hlustuðum á tónlist,"
sagði hún. Danneman kallaði á
sjúkrabíl er hún áttaði sig á
því að Hendrix var meðvitund-
arlaus í rúmi á heimili hennar.
Hafði hann gleypt níu svefnpill-
ur sem hún átti.
Noel Redding, bassaleikari í
hljómsveit Hendrix, sagði um
helgina að dauði gítarsnillings-
ins hefði ætíð verið grunsam-
legur í sínum huga. Hann hefði
verið vel að sér um lyf og hætt-
ur samfara lyfjanotkun og því
tryði hann því íæplega að hann
hefði gleypt níu svefnpillur af
slysni.
Danska ríkisendurskoðunin um ástandið í Færeyjum
Aðgerðaleysið rannsakað
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Heimildarmynd um
nýnasista bönnuð
Bcrlín. Frá Ilrönn Marinásdóttur, fréttaritara Morgunblaðains.
BANN hefur verið lagt við sýningu á heimildarmynd um nýnasista
sem sýnd hefur verið undanfarið í kvikmyndahúsum í Þýskalandi.
Samtök gyðinga í Þýskalandi kærðu sýningar á myndinni á þeim
forsendum að í henni væri að finna nasískan áróður og að hún
óhreinkaði minningu fórnarlamba nasismans.