Morgunblaðið - 14.12.1993, Page 37
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
37
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Sigiir öfgaaflanna
í Rússlandi
Það er mikið áhyggjuefni að allt
bendir til þess að ótvíræður
sigurvegari kosninganna í Rússlandi
á sunnudag sé Vladímír Zhírínovskí
og stjórnmálahreyfing hans, Frjáls-
lyndi lýðræðisflokkurinn. Reynist
tölur þær sem birtar voru í gær
réttar er þjóðernissinnaður öfga-
flokkur þar með orðinn að áhrifa-
mesta aflinu á fyrsta lýðræðislega
Iq'örna þingi Rússlands.
Þá vekur athygli allmikið fylgi
Rússneska kommúnistaflokksins.
Flokkurinn fékk tæp 11% atkvæða
og munaði því litlu að hann yrði
næststærsti flokkurinn á rússneska
þinginu.
Svo virðist sem þessir tveir flokk-
ar, sem eru tákn alls þess í rússnesk-
um stjómmálum, sem Vesturlönd
vonuðu að myndi hverfa með lýð-
ræðislegra stjórnkerfi, muni fá fleiri
þingmenn en flokkar umbótasinna.
Margar yfirlýsingar Zhírínovskís
í kosningabaráttunni hafa vakið ugg
jafnt meðal umbótasinnaðra Rússa
sem annarra. Hann segist vera
hlynntur rússneskri útþenslustefnu
og vill innlima gömul Sovétlýðveldi
á borð við Eystrasaltsríkin og Úkra-
ínu. Hann hefur lýst yfir andstöðu
við markaðshagkerfí og vill fjöldaaf-
tökur á forystumönnum glæpahópa.
Lýðskrum af þessu tagi virðist eiga
mikinn hljómgrunn meðal Rússa nú
um stundir.
Sigur Zhfrínovskís og kommún-
ista vekur upp spumingar um fram-
tíð lýðræðisins í Rússlandi ekki síst
í ljósi þess aukna valds, sem forseta-
embættið fær á kostnað þingsins,
með hinni nýju stjómarskrá lands-
ins. Samkvæmt henni nýtur forset-
inn yfírburðavalds gagnvart þing-
heimi sem sitja mun í tveimur deild-
um. Sterkt forsetaembætti kann að
reynast kostur á næstu áram er
Borís Jeltsín þarf að takast á við
þing þar sem öfgamenn era í meiri-
hluta. En hvað gerist ef öfgamaður-
inn Zhírínovskí eða einhver skoð-
anabróðir hans verður næsti forseti
Rússlands? Vitað er að hann sækist
eftir embættinu.
En þegar úrslit kosninganna eru
skoðuð verður ekki heldur litið hjá
hinni dræmu þátttöku. Bendir flest
til þess að einungis rúmlega helm-
ingur rússneskra kjósenda hafi nýtt
sér kosningarétt sinn og að ekki
síst ungt fólk hafi ákveðið að sitja
heima.
Hin lélega kosningaþátttaka og
mikið fylgi öfgaflokka bendir til
mikillar óánægju meðal kjósenda.
Sú óánægja er að ýmsu leyti skiljan-
\ leg í ljósi þeirra gífurlegu breyt-
I inga, sem orðið hafa á högum íbúa
l Rússlands á undanfömum áram.
í Heimsveldi Rússa, Sovétríkin, leyst-
f ist upp og varð að engu á örfáum
j mánuðum. Rússar, sem til skamms
f tíma vora íbúar risaveldis, eru nú
| orðnir að fátækri þriðjaheimsþjóð,
. sem gengur um með betlistaf á al-
þjóðavettvangi.
Efnahagslíf Rússlands er rjúk-
andi rúst, lífskjör hafa dregist gífur-
lega saman og afkomuöryggi stórra
hópa er lítið sem ekkert. Glæpasam-
tök og sterk mafía vaða uppi. Kerfis-
breytingamar hafa leitt til mikillar
upplausnar á flestum sviðum þjóð-
lífsins og misskiptingar auðs. Auð-
vitað hlýtur slíkt ástand að bitna á
vinsældum stjómvalda. Kosningaúr-
slitin era hins vegar því miður einn-
ig tákn um að stór hluti kjósenda
vilji ekki horfast í augu við hina
raunveralegu orsök vandans. Efna-
hagsvandinn er ekki tilkominn
vegna tilrauna til að koma á mark-
aðskerfi heldur rúmlega átta ára-
tuga kommúnískrar ofstjómar og
óstjórnar. Jegor Gajdar, fyrrum for-
sætisráðherra, var á sínum tíma
harðlega gagnrýndur af harðlínuöfl-
unum, er hann gaf verðlag frjálst á
flestum nauðsynjavöram í janúar
1992 með þeim afleiðingum að verð-
lag hækkaði um 250% á einum sól-
arhring. Vissulega bitnuðu þessar
verðhækkanir á almenningi. En þær
urðu einnig til þess að nauðsynjavör-
umar, sem áður vora ófáanlegar,
fóra aftur að sjást í verslunum.
Ómögulegt er að spá fyrir um
hvaða afleiðingar kosningaúrslit
helgarinnar munu hafa á þróunina
í Rússlandi á næstu árum. Þótt
flokkur Zhírínovskís fái flest at-
kvæði á enn eftir að koma í ljós
hvort nokkur flokkur sé reiðubúinn
til samstarfs við hann. Leiðtogi
Rússneska kommúnistaflokksins
hefur þegar lýst yfir þvi að komm-
únistar vilji ekki samstarf við flokk,
sem stefnir að því að innlima aftur
þau Sovétlýðveldi, sem öðlast hafa
sjálfstæði.
En þó að enginn flokkur taki upp
samstarf við Zhírínovskí getur eng-
inn heldur litið fram hjá þeim
árangri sem hann hefur náð með
lýðskrami sínu. Hættan er sú að
aðrir flokkar og ráðamenn muni
reyna að nálgast sjónarmið hans í
því skyni að auka eigin vinsældir.
Þó að Zhírínovskí hafi ekki meiri-
hluta á þinginu verða áhrif hans
eflaust mikil.
Rétt eins og í Póllandi á sínum
tíma báru umbótaöflin í Rússlandi
ekki gæfu til þess að sameinast
gegn hinum öfgaöflunum. Og rétt
eins og í Póllandi leiddi sundrangin
til ósigurs. Vonandi munu rússnesk-
ir umbótasinnar nú taka höndum
saman gegn þeim hættulegu öflum,
sem Zhírínovskí er í forsvari fyrir.
Það eru ekki nema sextíu ár síðan
Þjóðverjar veittu flokki brautar-
gengi, er ól á óánægju almennings
vegna erfiðs efnahagsástands og
meintrar niðurlægingar þjóðarinnar
á alþjóðavettvangi. Nasistar fengu
heldur ekki hreinan meirihluta í
kosningunum árið 1933 þó að þeir
hafí skömmu síðar tekið sér alræðis-
vald. Þar sem lýðræðið er á brauð-
fótum er hætta á ferðum.
Kosningarnar á sunnudag voru
fyrstu fijálsu kosningarnar, sem
haldnar hafa verið í Rússlandi. Óháð
úrslitunum hlýtur það að teljast
stórt skref í rétta átt. Úrslitin benda
samt til þess að ferð Rússa inn í
samfélag lýðræðisríkja eigi ekki eft-
ir að ganga snurðulaust fyrir sig.
Vonandi þýðir sigur öfgaaflanna
ekki að Rússland muni á ný ógna
nágrönnum sínum. Sigurinn ógnar
hins vegar ótvírætt þeim lýðræðis-
legu og efnahagslegu umbótum,
sem þrátt fyrir allt hafa átt sér stað
í Rússlandi.
SIGUR ÞJOÐERNISOFGAMANNA OG KOMMUNISTA I KOSNINGUNUM I RUSSLANDI
Öíafur Ragnar Grímsson Magnús Óskarsson
„Rússland á ótrú-
lega langt í land
með flokkakerfið44
FRAMKVÆMD þingkosninganna í Rússlandi á sunnudag var verulega
ábótavant þótt ekki hafi orðið vart neinna tilrauna til kosningasvika.
Er það mat þeirra Magnúsar Óskarssonar borgarlögmanns og Ólafs
Ragnars Grímssonar alþingismanns, eftirlitsmanna með kosningunum.
Þá vakti það sérstaka athygli þeirra beggja, að unga fólkið í Rússlandi
skyldi sitja heima og taka lítinn þátt í þeirri framtíðarmótun, sem lýð-
ræðislegar kosningar eru. Kemur þetta meðal annars fram í eftirfar-
andi spjalli, sem Lárus Jóhannesson, fréttaritari Morgunblaðsins í
Moskvu, átti við þá í gær.
Það vakti nokkra furðu í gær hve
lengi dróst að birta tölur úr kosning-
unum og Magnús Óskarsson kvaðst
ekki kunna á því skýringu. „Hitt er
svo annað mál, að af samtölum við
menn úr herbúðum Zhírínovskís veit
ég, að þeir treysta ekki landskjör-
stjórninni. Hún er skipuð af núver-
andi valdhöfum, ólíkt því sem er hjá
okkur þar sem alþingi kýs hana.“
Að sögn Magnúsar var mælst til
að atkvæði um stjórnarskrána yrðu
talin fyrst og það væri því líklega
skýringin á því, að niðurstaðan þar
hefði legið fyrir tiltölulega snemma
og löngu áður en ljóst var með úrslit-
in að öðru leyti. Hann sagði hins veg-
ar eftirtektarvert hvað kosningaþátt-
takan hefði verið lítil, um 53%.
„Þessi þjóð er að bijótast út úr
einræðiskerfinu og þetta eru fyrstu
lýðræðislegu kosningamar. Einnig
var áberandi hve fátt ungt fólk var
að kjósa á þeim stöðum sem ég hafði
eftirlit á. Annars era kjörstaðir nátt-
úralega misjafnir. I sumum hverfum
Moskvu býr t.d. nær eingöngu gam-
alt fólk. Fyrirfram fengum við lista
með 100 kjörstöðum og nöfn tengiliða
en ég sætti mig ekki við að vera beint
á ákveðna staði þar sem að öllum lík-
indum væri búið að láta menn vita.
Við völdum þess vegna kjörstaði af
handahófi og var alls staðar vel tekið.
Við fóram á 9 kjörstaði og var
svipaða sögu af þeim að segja. Menn
notuðu kjörklefana lítið og þessu
fylgdi óneitanlega ringulreið en al-
mennt var ekkert verulegt að. Sem
sagt, það sem ég sá var í meginatrið-
um viðunandi. Þegar við bárum okkur
saman við aðra eftirlitsmenn kom í
ljós að við höfðum fundið að svipuðum
hlutum, sem stafa aðallega af
reynsluleysi í framkvæmd slíkra
kosninga," sagði Magnús Óskarsson.
„Sló mig hve unga
fólkið var fátt“
„Það var mjög skynsamleg ákvörð-
un hjá RÖSE að senda fulltrúa til
svæða sem lengi hafa verið lokuð því
greinilegt er að Moskva er á engan
hátt fulltrúi fyrir þær umbyltingar,
sem eiga sér stað í Rússlandi," sagði
Ólafur Ragnar Grímsson þegar hann
var inntur eftir eftirlitsstarfinu með
kosningunum.
„Við dvöldum í Túla, tæplega 200
km suður af Moskvu, í 3 daga og
fórum einnig út fyrir borgina í smærri
bæi til að kynnast hvernig undirbún-
ingi var háttað. Eg fékk því nokkuð
góða mynd af stöðunni og það er
auðvitað margt sem er athyglisvert.
Greinilegt er, að valdakerfíð í borg-
inni og umhverfi hennar er mjög
sterkt. Þetta er ekki valdakerfi neins
flokks, heldur sjálfs sín. Þessir menn
beittu sér með ýmsum hætti í kosn-
ingabaráttunni. Fóra á vinnustaði,
skrifuðu greinar í blöð og gerðu fólki
ljóst hvernig þeir vildu að kosið væri.
Annar þáttur var athyglisverður
og það er möguleiki fjármagns í þess-
um kosningum, sérkennileg staða hér
í Rússlandi. Frambjóðendur sem
höfðu Ijármagn gátu keypt sér fréttir
um sjálfa sig og jafnvel á forsíðum
blaðanna án þess að ljóst væri að um
kosningaauglýsingu væri að ræða.
Efnið á forsíðunni var eins og venju-
leg frétt í blaðinu skrifuð af blaða-
manni en var í reynd keypt efni, þar
sem þriðjungur af forsíðunni kostaði
1 milljón rúblna. Það gæti enginn
okkar heima á íslandi keypt frétt á
baksíðu Morgunblaðsins og látið líta
svo út að hún væri skrifuð á ritstjórn-
arskrifstofunni. Þetta virtist vera
töluvert algengt til viðbótar við, að
blöð áttu að veita flokkum jafnan
aðgang samkvæmt ákveðnum regl-
um.“
Ólafur sagði, að í þriðja lagi hefði
sér fundist greinilegt, að fólk vissi
ekki mikið um efnisatriði stjómar-
skrárinnar. Sú staðreynd að krossinn
gilti eitt á einum seðli og annað á
öðrum hefði líka raglað marga í rím-
inu.
„Kosningaathöfnin kom okkur líka
mjög spánskt fyrir sjónir. Menn tóku
út stöðuna í gluggakistum, merktu
við, gengu síðan framhjá kjörklefum
og stungu atkvæðaseðlunum í kjör-
kassann. Þetta var algengasta reglan.
Við komum á kjörstað þar sem tugir
manna vora að kjósa en kjörklefamir
voru auðir. Við gengum um og kíktum
yfir öxlina á fólki og sáum hvað það
var að kjósa.
Rússland á ótrúlega langt í land
með að mynda eðlilegt flokkakerfí
eins og við þekkjum það. Hvort það
verður, að flokkar í okkar skilningi
nái að gera sig gildandi veit enginn
í dag. Þess vegna getur auðvitað fyr-
irbæri eins og Zhírínovskí sem höfðar
til þjóðemistilfínninga og valds náð
miklu fylgi ef hann er flínkur lýðskr-
umari. Eitt sem ég vil líka ítreka sem
sló mig mjög er hve fátt ungt fólk
sást á kjörstað vegna þess að verið
er að kjósa um framtíð landsins og
unga fólkið er framtíðin," sagði Ólaf-
ur Ragnar að lokum.
Unga fólkið fráhverft
stj órnmálum og snið-
gekk kosningamar
RÚSSNESKIR kjósendur afhentu Borís N. Jeltsín forseta beisk-
an kaleik í kosningunum í fyrradag, samkvæmt óopinberum
niðurstöðum kosninganna. Samkvæmt þeim samþykktu kjósend-
ur drög að stjórnarskrá Jeltsíns en fengu stjórnarandstæðingum
meirihluta á þingi. Yngra fólk sniðgekk kosningarnar, sat heima
og því voru það nær eingöngu eldra fólk og aldraðir sem kusu.
Meginástæður þess eru sagðar þrengingar almennings og þær
að kjósendur séu búnir að fá nóg af stjórnarháttum undanfar-
inna missera og átökum um efnahagsumbætur. Uppgangur
þjóðernissinna er skýrður sem svo að almenningur sé ósáttur
við þá upplausn sem orðið hefur í landinu og óskin um Rúss-
land sem mikið veldi bluridi enn í mörgum.
Miðað við þau úrslit sem kynnt
voru í fyrstu og áður en fréttabann
var sett á, fengu umbótasinnar færri
þingsæti en stjómarandstöðuflokk-
arnir. Rússneskir bankamenn sögðu
fréttimar vekja ugg, töldu allt benda
til þess að þingið yrði lítt starfhæft.
Úrslitin höfðu þó engin áhrif á rúss-
neskum ijármálamarkaði.
Jeltsín er eflaust einhver huggun í
yfirlýsingu Gennadís Zjúganovs, leið-
toga Kommúnistaflokksins, sem sagð-
ist í gær ekki eiga neina samleið með
sigurvegurum kosninganna, flokki
þjóðemissinnans Vladímírs Zhír-
ínovskí. „Við eigum enga samleið með
þeim sem vilja þenja út landamæri
Rússlands. Við erum raunsæismenn,"
sagði Zjúganov og var yfírlýsing hans
talin til marks um að kommúnistar
myndu ekki sækjast eftir bandalagi
við þjóðernissinna á þingi.
Bæði kommúnistar og þjóðernis-
sinnar hafa lýst opinni andstöðu við
efnahagsumbætur stjórnar Jeltsíns.
Zhírínovskí byggði kosningabaráttu
sína á loforðum um að endurreisa
rússneska keisaraveldið. „Ég mun
ekki starfa með fasistum,“ sagði Ana-
tolí Tsjúbaís einkavæðingarráðherra.
Jegor Gajdar efnahagsmálaráðherra
sagðist sömuleiðis eiga erfítt með að
ímynda sér að hann gæti starfað með
fasistum.
Gennadí Búrbúlís, náinn ráðgjafi
Jeltsíns, sagði árangur Zhírínovskís
mikið áfall og hugsanlega kynni nið-
urstaðan að teija framgang umbóta-
stefnu Jeltsíns.
Óstöðugleiki framundan?
Sérfræðingar í efnahagsmálum
spáðu því að erfiðara yrði fyrir rúss-
nesk stjómvöld að halda óbreyttri
efnahags- og umbótastefnu. Míkhaíl
Khazín hjá efnahagsstofnun stjóm-
arinnar sagði að búast mætti við að
nýtt þing þar sem kommúnistar og
þjóðernissinnar væru í meirihluta
myndi reyna að knýja fram ráðstaf-
anir sem leiða myndu til efnahagslegs
óstöðugleika. „Við þekkjum aðferðir
þeirra — að lofa ljárveitingum í allar
áttir sem kemur í veg fyrir kerfis-
breytingar og reyna að viðhalda
óbreyttum heraflanum," sagði hann.
Khazín sagði að samþykkt stjóm-
arskrárinnar drægi þó úr skaðanum
og yrði til þess að hægt yrði að halda
aftur af afturhaldsöflunum. Þau hafa
haldið því fram að auka verði opinber
umsvif til að koma í veg fyrir efna-
hagslegt hran. Umbætur hafí verið
of sársaukafullar og þjóðin liðið of
miklar hremmingar þeirra vegna.
Ástæðulaust að hægja á
umbótum
Borís Fjodorov aðstoðarforsætis-
ráðherra, einn helsti arkitekt umbóta-
stefnu Jeltsíns, sagði hins vegar að
ástæðulaust væri að slaka á umbótum.
„Það verður ekki aftur snúið og ekki
hægt á ferðinni,“ sagði hann í viðtali
við breska sjónvarpið BBC. Fjodorov
játaði að stjómin myndi eiga erfiða
daga framundan í samskiptum við
þingið en sagði þó að altént yrðu fleiri
umbótasinnar á því en þinginu sem
Jeltsín rauf og sendi heim í septem-
ber. í sjálfu sér veitir samþykkt stjórn-
arskrárinnar Jeltsín möguleika á að
halda stefnu sinni til streitu en stjóm-
málaskýrendur sögðu að hann kæmist
ekki hjá því að taka tillit til þingsins.
Vestrænir hagfræðingar sögðu að
umbótastefnan myndi eiga erfitt upp-
dráttar ef þingið legðist gegn öllum
ráðstöfunum stjórnarinnar. Hækkaði
verðbólga mjög á næsta ári væri erf-
itt að ímynda sér að vestrænar íjár-
málastofnanir kæmu Rússum til hjálp-
ar með aukinni efnahagsaðstoð. Hag-
fræðingar vora hins vegar sammála
Leita að kosningafréttum
Reuter
RÚSSNESKIR blaðalesendur leita að frétt um úrslit kosninganna á sunnudag í blöðum í Moskvu í gær.
Borís N. Jeltsín forseti lýsti yfir sigri í atkvæðagreiðslu um nýja sljórnarskrá en bannaði að öðru leyti
fréttaflutning frá kosningunum vegna óvænts framgangs stjórnarandstæðinga.
um að ólíklegt ef ekki útilokað væri
að breytingamar sem hófust fyrir
tveimur árum yrðu látnar ganga til
baka. „Við höfum upplifað miklar
breytingar á tveimur áram. Verðlag
hefur verið gefíð fijálst á nær allri
framleiðslu og þjónustu, rúblan hefur
verið gengisskráð og er skiptanleg
fyrir erlendan gjaldeyri og víðtæk
einkavæðing hefur átt sér stað,“ sagði
vestrænn sérfræðingur. „Jafnvel Zhír-
ínovskí vili ekki þjóðnýta það sem
hefur verið einkavætt," bætti hann
við.
Leitað að blóraböggli
Strax eftir að kjörstöðum var lokað
og úrslit fóru að spyijast út hófst
nótt hinna löngu hnífa í Moskvu.
Umbótasinnar hófu leit að blóra-
böggli og nokkrir stuðningsmenn Bor-
ís N. Jeltsíns gengu svo langt að skella
skuldinni á forsetann. „Jeltsín forseta
urðu á alvarleg mistök með því að
halda að sér höndum meðan á kosn-
ingabaráttunni stóð og leika hlutverk
óháðs, félagslegs og pólitísks sátta-
semjara," sagði Gennadí Búrbúlís,
einn helsti ráðgjafi forsetans. Búrbúl-
ís sagði að Jeltsín hefði gerst sekur
um hættulega, pólitíska skammsýni
með því að lýsa ekki yfir stuðningi
við Valkost Rússlands, helsta stuðn-
ingsflokk forsetans. „Við verðum að
bijóta odd af oflæti okkar í framtíð-
inni og leita eftir málamið!unum,“
sagði Búrbúlís.
Hvað fór úrskeiðis?
Vestrænir stjómarerindrekar veltu
því fyrir sér hvers vegna umbótasinn-
ar hefðu ekki náð betri árangri. „Þeir
deildu of hart innbyrðis og þólitísk
umræða þeirra var of djúpstæð og
tyrfin. Þeir hafa vonandi lært þá lex-
íu, að vísu með sársaukafullum hætti,
að í fjölflokka lýðræði ber mönnum
að senda kjósendum einföld og skýr
skilaboð og koma þeim til skila. Það
hafði Zhírínovskí umfram aðra,“
sögðu vestrænir diplómatar.
vaiKsumnN-
Lýðskrumari, loddari eða
bjargvættur þjóðarinnar?
Zhírínovskí afskrifar Hitler sem misheppnaðan mann en
sjálfsævisaga hans minnir merkilega mikið á Mein Kampf
^foskvu. The Daily Telegraph, Reuter.
„ÉG ER mjög ánægður. Fyrsti dagur hins nýja, rússneska lýðræðis
er runninn upp,“ sagði Vladímír Wolfovítsj Zhírínovski, leiðtogi
Fijálslynda lýðræðisflokksins, þegar ljóst var orðið, að hann hafði
unnið mikinn sigur í fyrstu frjálsu þingkosningunum í Rússlandi.
Lýsti hann því yfir, að næsti áfangi væri forsetaembættið. Úrslitin
í Rússlandi hafa vakið ugg og skelfingu víða enda er Zhírínovskí
hvorki frjálslyndur né lýðræðislega sinnaður eins og nafnið á flokki
hans gæti gefið til kynna, heldur hálffasískur þjóðernissinni, sem
hefur heitið því endurreisa veldi Rússlands, leggja undir það sovét-
lýðveldin fyrrverandi og mörg önnur ríki, t.d. Alaska, Finnland,
Pólland, Tyrkland, Iran og Afganistan.
„Við munum koma upp dómstólum koma í veg fyrir vestræn áhrif í land-
Reuter
í góðra vina hópi
Zhírínovskí sat fund hægriöfgaflokksins Þýsku alþýðufylkingarinnar
I Passau í október sl. en mikið samband er á milli flokkanna. Hefur
Gerhard Frey, formaður alþýðufylkingárinnar, stutt Fijálslynda lýð-
ræðisflokkinn í Rússlandi með fjárframlögum.
á staðnum og skjóta foringja glæpa-
gengjanna,“ sagði Zhírínovskí í kosn-
ingaræðu nýlega og flestar yfirlýs-
ingar hans era af þessu tagi. Hann
veit hvað fólkið vill heyra, að minnsta
kosti sumir, og höfðar yfírleitt til
þess lægsta í þjóðarsálinni. í forseta-
kosningunum 1991 lofaði hann öllum
ódýru vodka og að þessu sinni var
það ríkidæmi fyrir alla.
Þjóðveijar í þrældóm
„Við tókum Berlín 1945 en skiluð-
um henni aftur,“ sagði Zhírínovskí í
kösningaræðu. „Nú búa Þjóðveijar
vel en við illa. Til hvers vorum við
að taka Berlín? Við hefðum átt að
neyða milljónir Þjóðveija til að vinna
fyrir okkur, þá hefðum við Rússar
getað haft það náðugt.“
Zhírínovskí vill banna ítök vest-
rænna fyrirtækja í Rússlandi og
mu. Vesturlönd arðræna Rússland
segir hann og þess vegna vill hann
draga úr útflutniíigi um 90%. Her-
gagnaiðnaðurinn á ekki að vera í
öðra en vopnasmíði og öllum verður
tryggð atvinna og eigin íbúð. Allar
trúardeildir aðrar en rússneska rétt-
trúnaðarkirkjan verða bannaðar og
einnig útlenskar sjónvarpsauglýsing-
ar. Þulir í rússneska sjónvarpinu eiga
að vera hreinræktaðir Rússar með
blá augu og ljóst hár.
Mælsku- og áróðursmaður
Zhírínovskí er miklu mælskari en
flestir andstæðinga hans en hann
brosir sjaldan. Honum virðist alltaf
vera fúlasta alvara hversu fáránlegar
sem yfirlýsingar hans eru. Framan
af kosningabaráttunni var hann af-
skrifaður sem bijálæðingur og það
var ekki fyrr á síðustu dögum henn-
ar, að umbót'asinnar tóku að átta sig
hvað var að gerast úti í kjördæmun-
um. Vegna móðursýkislegrar þjóð-
rembu sinnar hefur Zhírínovskí oft
verið líkt við Hitler en hann gerir
gys að þeim samanburði. Hann seg-
ist vera eindreginn stuðningsmaður
fjölflokkakerfís í stjómmálum, ekki
síður en fjöllyndis í ástamálum —
fjölbreytnin sé til bóta á báðum svið-
um.
Hvíslað um teng-sl Zhírínovskís
við valdastéttina
Þegar Fijálslyndi lýðræðisflokkur-
inn var stofnaður 1990 var mikill
orðrómur um, að hann væri ranninn
undan rifjum KGB, sovésku öryggis-
lögreglunnar, og fjármagnaður með
leynilegum sjóðum kommúnista-
flokksins. Margir Rússar era sann-
færðir um, að það séu meiri tengsl
milli Zhírínovskís og Jeltsíns en virð-
ist á yfirborðinu. A það hefur verið
bent, að þegar Jeltsín átti fund með
leiðtogum flokkanna á dögunum var
Zhírínovskí sá eini, sem reis á fætur
þegar Jeltsín gekk í salinn.
Óhamingjusöm æska
Zhírínovskí hefur tekist að vinna
sér sess sem fulltrúi rússneskrar
þjóðernisstefnu þótt sá mikli hængur
sé á, að hann er gyðingur í aðra
ættina. „Móðir mín var Rússi en fað-
ir minn var lögfræðingur,“ sagði
hann einu sinni þegar á hann var
gengið og varð þetta svar hans lands-
frægt á svipstundu. í sjálfsævisögu
sinni afskrifar hann Hitler sem mis-
heppnaðan mann en lýsingar hans á
óhamingjusamri æsku, einmanaleika
og niðurlægingu minna merkilega
mikið á Mein Kampf Hitlers.
„Ég óx upp í heimi, sem var laus
við alla hlýju — frá foreldrum, vinum
eða kennuram. Mér fannst sem mér
væri ofaukið, alltaf fyrir einhveijum,
alltaf sekur um eitthvað . . . Ég lauk
námi með hæstu einkunnum ... fór
heim í herbergiskytruna mína en þar
var enginn til að samgleðjast mér,
enginn, sem skálaði með mér. Ég
var aleinn."
Zhírínovskí er 47 ára gamall,
fæddur í Alma Ata í Kazakhstan,
kvæntur en hefur átt í mörgum mis-
heppnuðum ástarævintýram. „Hefði
ég fundið ástríka konu, hefði ég eytt
kröftum mínum á hana og fyrir hana.
Hefði ég átt góðan vin, hefði ég
varið tíma mínum með honum.“
Rússneski stjómmálaskýrandinn
Níkolaj Svanídze sagði í gær, að sig-
ur Zhírínovskís hefði gjörbreytt rúss-
neskum stjórnmálum.
„Jeltsín hefur eignast skelfílegan
andstæðing í Vladímír Zhírínovskí.
Hingað til hefur herskáa stjómar-
andstöðuna skort skýran og fram-
bærilegan leiðtoga til að stjóma bar-
áttunni gegn umbótunum en nú er
hann kominn fram.“