Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.12.1993, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Forræðismál Sophiu Hansen Dæmt vegna brota Halims Als á um- gengnisréttinum HALIM Al, fyrrverandi eiginmaður Sophiu Hansen, var handtekinn í síðustu viku árla morguns og látinn sitja í varðhaldi fram á kvöld er hann var tekinn til yfirheyrslu. Handtökuskipun á hendur Halim var gefin út í kjölfar þess að hann mætti ekki þegar réttað var í sakadómi í Istanbul vegna endurtekinna brota Halims á umgengnisrétti Sophiu við dæturnar, sem hann hefur brotið 24 sinnum á sl. tveimur árum. Dómur verður kveðinn upp í málinu 19. janúar næstkomandi. Í yfirheyrslunni kom ekkert nýtt fram, einungis það sem Halim hefur margoft áður sagt, að hann hafi ákveðið að Sophia fái ekki að hitta dætumar nema á heimili Halims og undir hans eftirliti. Halim A1 var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Að sögn Sigurðar Péturs Harðarsonar, stuðn- ingsmanns Sophiu Hansen, hafa þær fréttir borist frá Tyrklandi að dómur muni falla í sakadómi vegna um- gengnisréttarbrota Halims 19. jan- úar nk. Samkvæmt tyrkneskum lög- um er hámarksrefsing fyrir hvert brot 6 mánuðir. Ef hámarksrefsingu væri beitt væri hægt að dæma Halim A1 í 12 ára fangelsi. Greinargerð til Mannréttindadómstólsins Sigurður Pétur segist hafa þær fréttir frá Hasip Kaplan, Iögmanni Sophiu í Tyrklandi, að greinargerðar tyrkneska stjómvalda til mannrétt- indadómstólsins í Strassborg sé að vænta innan einnar viku. Tyrknesk stjórnvöld hafa frest til 24. desember til að skila greinargerðinni. Mann- réttindadómstóllinn hefur fallist á að taka þann hluta forræðismálsins fyr- ir sem snýr að umgengnisbrotum Halims. Að sögn Sigurðar Péturs fjölluðu tyrkneskir fjölmiðlar mikið um for- ræðismálið á sunnudag. Meðal ann- ars birtist löng grein um málið í dagblaðinu Húrriet, sem er næst- stærsta dagblað Tyrklands. Sjón- varpsstöðvar í Tyrklandi hafa hringt mikið til lögmanns Sophiu í Istanbul og falast eftir viðtölum við Sophiu þegar hún verði næst í Tyrklandi. Þá segir Sigurður Pétur að ijöl- margir tyrkneskir einstaklingar hafí sett sig í samband við Hasip Kaplan og boðið aðstoð. Þeir hafa m.a. óskapast yfír aðgerðarleysi tyrk- neskra stjómvalda í málinu. Mannréttindasamtökin sýknuð Dómur í máli sem tyrknesk stjórn- völd höfðuðu gegn mannréttinda- samtökunum í Istanbui féll 9. desem- ber sl., sem hafa m.a. stutt vel bar- áttu Sophiu Hansen. Stjómvöld gerðu kröfu um að samtökin yrðu leyst upp og skrifstofu þeirra lokað. Málið var höfðað þar sem samtökin hafa mikið látið að sér kveða vegna síendurtekinna mannréttindabrota tyrkneskra yfírvalda. Dómarinn féllst ekki á rök yfírvalda í málinu og vom samtökin sýknuð af kröf- unni. Morgunblaðið/Rax Frá vígslu hússins BJÖRN Ástmundsson, forstjóri Reykjalundar, flytur ávarp við vígslu hússins. Nýjar íbúðir teknar í notkun á Reykjalundi NÝJAR íbúðir fyrir fatlaða voru teknar í notkun á Reykjalundi sl. föstudag. Það var heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Guðmund- ur Árni Stefánsson, sem opnaði húsnæðið. Þrír íbúar eru þegar fluttir inn og verða hinar íbúðirnar teknar í notkun eftir áramót þegar fleiri starfsmenn hafa verið ráðnir. Byggingu hússins lauk fyrir tveimur árum en ekki hefur tek- ist að tryggja fé til reksturs þess fyrr en nú. Guðmundur Ámi Stefánsson opnaði húsið form- lega í viðurvist fjölda gesta, Li- onsmanna, íbúa og aðstandenda. Fjölumdæmisstjóri Lions flutti ávarp og greindi frá söfnunar- starfí hreyfíngarinnar árið 1989 sem var grundvöllur að bygging- unni. Séra Jón Þorsteinsson, sóknarprestur í Mosfellspresta- kalli, flutti blessunarorð og gaf húsinu nafnið Hlein. Þrír íbúar era. fluttir inn og flytur sá fjórði inn fljótlega. Alls eru íbúðirnar sjö og verða hinar þrjár teknar í notkun eftir áramót. Skýrsla lögð fram um sorphirðu á Vestfjörðum Sorpeyðingarstöð fyrir Isfirðinga talin dýrust Sorpbrennsla/urðun á Vestljbrðum kostnafiur á íbúa á ári 2.000 4.000 6.000 8.000 10.000 12.000 /l4.000kr. Sameiginleg brennsla Sameiginleg urðun ísafirði. SKYRSLA um sorphirðu og sorpeyðingu á Vestfjörðum, sem fjórð- ungssambandið, Samband íslenskra sveitarfélaga og umhverfisráðu- neytið hafa látið gera, sýnir að ódýrasta leiðin til sorpeyðingar er sameiginleg urðun. Brennsla virðist alls staðar vera nokkuð dýrari kostur. Þannig er gert ráð fyrir í skýrslunni að sorpeyðingarstöð á ísafirði sem þjónar fsfirðingum einum eins og nú er gert ráð fyrir sé uin 50% dýrari en sameiginleg urðun. Komi öll nágrannasveitarfé- lögin til samstarfs um brennsluna á ísafirði er hún samt 23% dýrari en sameiginleg urðun. Formaður bæjarráðs á ísafirði segir að kostnaður urðunar sé vera- lega lægri en komið hafí fram við könnun ísafjarðarkaupstaðar fyrir um ári og gert sé ráð fyrir 30 millj- óna króna mengunarbúnaði í nýju stöðinni á Isafirði, sem ekki hefur verið pantaður og engin þörf sé á í næstu framtíð. Hann segir jafnframt að í kostnaðarliðina við urðun í Gerð- hamradal í Dýrafirði vanti bæði vegagerð og veitulagnir. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem haldinn var á ísafírði fyr- ir skömmu til að kynna niðurstöður nefndarinnar, en í henni áttu sæti Sigurbjörg Sæmundsdóttir deildar- stjóri í umhverfisráðuneytinu, for- maður, Guðrún S. Hilmisdóttir verk- fræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kristinn Jón Jónsson formaður bæjarráðs á Isafírði, Olafur Arnfjörð Guðmundsson sveitarstjóri í Patreksfirði og Stefán Gíslason sveitarstjóri á Hólmavík. Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri í um- hverfisráðuneytinu stjórnaði fundin- um. En auk fundar sem haldinn var með sveitarstjómum á norðursvæði Vestfjarða á miðvikudagskvöld, höfðu áður verið haldnir fundir á Patreksfírði og Hólmavík. Miðað við kostnaðaráætlanir skýrslunnar hækkar kostnaður tvöfalt til þrefalt á Vestfjörðum miðað við það sem nú er. Fer úr 4.000 krónum á íbúa á ári í 8-14.000 krónur Nefndin gerir ráð fyrir þrem sorp- svæðum á Vestfjörðum, í Vestur- Barðastrandarsýslu, í Ísaíjarðarsýslu og í Strandasýslu að undanskildum syðsta hreppnum, Bæjarhreppi, sem ætlað er að fylgja Norðurlandi vestra. í Vestur-Barðastrandarsýslu er áætlað að sameiginlegur kostnað- ur við urðun verði 7.761 króna á íbúa, en ein brennsla fyrir svæðið kosti 13.666 krónur. í ísaijarðarsýsl- um hefði sameiginleg urðun orðið ódýrast að mati nefndarinnar og kostað 7.565 krónur á íbúa. En þar sem hafin er bygging sorpeyðingar- stöðvar á ísafirði kemur sú leið ekki lengur til greina. Næstódýrasti kost- urinn fyrir ísfirðinga er að öll sveitar- félög sameinist um brennslu á Isafírði, en sá kostur kostar 9.329 krónur á íbúa. En sá kostur er um 1.000 krónur dýrari á mann fyrir nágrannasveitarfélögin, en ef þau urðuðu sitt sorp sjálf. Sitji ísfirðing- ar einir uppi með sína stöð kostar það 11.369 krónur á mann, eða rétt- um 50% meira en ódýrasti kosturinn samkvæmt skýrslunni. Sorphirðu- kostnaður á Isafírði í dag er 4.795 krónur á íbúa samkvæmt sömu skýrslu. Hvergi er gert ráð fyrir sorp- hirðu í sveitum við Ísaíjarðardjúp. Á Hólmavík er gert ráð fyrir áfram- haldandi urðun og er áætlað að hún kosti 9:700 á mann á ári. Þar fer nú fram athyglisverð tilraun með heimaflokkun á sorpi, sem felst í því að fjölskyldur jarðgera úrganginn eftir því sem það er hægt. Gert er ráð fyrir þeim möguleika á stærri stÖoðunum að safna sorpi í gáma og flytja það til eyðingar í Reykjavík, en það virtist alltaf vera með dýrastu kostunum, þó er það ódýrara; samkvæmt skýrslunni, en sérstakar brennslur í Bolungarvík, á Flateyri og Patreksfírði. Uröun viö Flateyri, Þ.eyri og Bol.vík Uröun í Önundarfíröi Uröun við Flateyri og Bolungarvík Gjaldskrá Sorpu Ný stjómsýslulög' undir- búin með námskeiðum HINN 1. janúar nk. taka gildi ný stjórnsýslulög nr. 37/1993. Lög þessi gilda um stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Þau gilda þegar sljórnvöld, þar á meðal stjórnsýslunefndir, taka ákvarðanir um rétt og skyldu manna. Um þessar mundir stendur for- sætisráðuneytið fyrir námskeiðinu um efni stjórnsýsluiaganna. Ann- ars vegar er um að ræða fræðslun- ámskeið ætluð lögfræðingúm, yf- irmönnum í ráðuneytum og æðstu stjómendum ríkisstofnana. Nám- skeið þessi standa í tvo daga og er farið ítarlega yfír efni laganna. Hins vegar er um að ræða kynn- ingarnámskeið, einkum ætluð öðr- um ólöglærðum starfsmönnum í Stjórnarráðinu. Á því námskeiði, sem stendur í einn dag, er efni stjórnsýslulaganna kynnt í stórum dráttum. Fyrirlesarar á fræðslunám- skeiðunum eru Eiríkur Tómasson, hæstaréttarlögmaður og formaður nefndar, er samdi frumvarp til stjómsýslulaga og Páll Hreinsson, aðstoðarmaður umboðsmanns Al- þingis, sem einnig átti sæti í þeirri nefnd. Fyrirlesarar á kynningarnám- skeiðunum em lögfræðingarnir Guðmundur Þór Guðmundsson, dóms- og kirkjumálaráðuneyti, Sólveig Guðmundsdóttir, heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neyti, Skúli Guðmundsson, Hag- stofu íslands, Þórhallur Vilhjálms- son, emæbtti umboðsmanns AI- þingis, og Þórhildur Líndal, for- sætisráðuneyti, en hún hefur jafn- framt annast skipulagningu nám- skeiðanna fyrir hönd þess ráðu- neytis. Áætlað er að yfir 300 manns sæki námskeiðin sem haldin em í Borgartúni 6 en þau hófust 24. nóvember og lýkur 15. desember. Forsætisráðuneytið stefnir að því að halda fleiri námskeið af svipuð- um toga á næsta ári, þar á meðal fyrir sveitarstjórnarmenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.