Morgunblaðið - 14.12.1993, Page 57

Morgunblaðið - 14.12.1993, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 57 Vandræði á vaktinni Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóborgin og Bíóhöllin: Aftur á vaktinni - Another Stake- out Leiksijóri John Badham. Handrit Jim Kouf. Aðalleikendur Richard Dreyfuss, Emilio Estevez, Rosie O’Donnell, Dennis Farina. Banda- risk. Touchstone 1993. Þá eru þeir komnir aftur á kreik löggufélagamir Dreyfuss og Estevez, en ein sex ár eru liðin síðan þeir voru á vaktinni í Stakeout. Það getur reynst ágætt búsílag er illa árar hvað andagiftina snertir að dusta rykið af gömlum hugmyndum og satt best að segja þá hefur John Badham, leik- stjóri og framleiðandi þessara mynda, ekki verið atkvæðamikill síðari árin. Og forðast einsog heitan eldinn að bregða mikið útaf gömlu formúlunni. Aftur á vaktinni fetar dyggilega í spor frummyndarinnar, er í þessum sama, galgopalega kæruleysisstíl og kemst stundum upp með það. En því miður gerist það álíka oft að brandar- amir og athafnirnar em á tæpasta vaði aulafyndni sem á ekki einu sinni heima í ærslamynd sem þessari. Dreyfuss og Estevez meðalmennskan uppmáluð, til orðs og æðis, ef svo mætti segja. Bæði leikurinn og lín- urnar sem þeir flytja.' Að þessu sinni er þeim refsað fyr- ir mistök með því að skikka þá í gæslu undir stjórn saksóknarans Rosie O’Donneli og eru karlremburn- ar ekki par hrifnar af þeirri ráðstöf- un. Verkefnið er að hafa uppá mikil- vægu vitni (Cathy Moriarty) og vernda. Fer flest úrskeiðis sem farið getur. Lengst af virkar myndin einsog leikhúsfarsi á áhorfandann. Sviðin eru þröng, absúrd samtöl og athafnir á mörkum þess að eiga nokkuð skylt við raunveruleikann - sem á þó jafn- an að blunda undir niðri og við erum minnt hressilega á í lokin. En dæmið gengur þó bærilega upp, Aftur á vaktinni er ekki leiðinleg þó hún jaðri stundum við það og á nokkra, fjöruga spretti. Með aðeins meiri yfirlegu hefði hún getað orðið mjög svo fram- bærileg, aðlaðandi dáraskapur líkt og forverinn. Það eru aukaleikararnir sem standa sig skást að þessu sinni því Dreyfuss og Estevez ganga fyrir- hafnarlaust í gegnum myndina. O’Donnell sýnir hér einsog í Svefn- laus í Seattle að hún á til góða takta. Tveir ágætisleikarar (sem eiga það sameiginlegt að fá alltof sjaldan al- mennileg hlutverk) Moriarty og Dennis Farina, reyna hvað þau geta að halda sínum smálegu rullum að- eins á lofti en það er Felton Perry sem stendur sig best, skilar leigu- morðingjahlutverki sínu á mátulega harðsoðinn en þó spaugilegan hátt. Madeleine Stowe lætur ekki skrá sig á hlutverkalistann að þessu sinni. framtíð bjarta og fagra. Yfir hópn- um trónir gamli harðjaxlinn James Caan sem leikur þjálfara liðsins og virðist vera farinn að mýkjast fullm- ikið með árunum. Ward, sem líka skrifaði handritið, tekur sér góðan tíma að greina frá þessu öllu, sér- staklega lítt spennandi ástarmálun- um sem dragast vilja á langinn og draga sannarlega mjög niður í frá- sögninni. Allur þessi hátíðlegi ungl- ingasamsláttur vill verða svo mæðu- legur og sár að engu tali tekur. Það er líka sjaldnast fyrr en í þriðja þætti sem sportmyndir eins og þessi fara að rúlla almennilega enda er þá loksins komið að úrslita- leiknum. Það má vera að maður skilji ekki ruðningsboltann til hlýtar en Ward sé til þess að það skipti ekki öllu máli og kvikmyndar leikinn með talsverðum bravúr. Maður ætti að vera orðinn vanur þessum loka- þáttum en einhvem veginn hefur keppnin alltaf áhrif á mann. Fullkomin áætlun rís aldrei hátt en er amerísk unglingamynd í með- allagi með nokkrum góðum sport- senum í lokin. I bandaríska boltanum Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Fullkomin áætlun („The Pro- gram“). Sýnd í Laugarásbíói. Leik- stjóri og handritshöfundur: David S. Ward. Aðalhlutverk: James Caan, Craig Sheffer, Kristy Swan- son, Halle Berry. Fullkomin áætlun eða „The Pro- gram“ eftir David S. Ward, sem gerði „The Sting" í gamla daga, er dæmi- gerð unglingamynd með amerískum ruðningsbolta í bakgrunni og hún hefði sennilega vakið jafnlitla athygli og aðrar slíkar hefði ekki komið til atriði í henni sem krakkar í Banda- ríkjunum tóku að herma eftir með hörmulegum afleiðingum. Myndin segir frá hópi leikmanna í háskólaliði í ruðningi og eitt kvöldið koma þeir út af bar svolítið fullir og foringinn og aðalpersóna myndarinnar, sem gælir seinna við sjálfsmorð á lestar- teinum, leggst á nærliggjandi hrað- braut. Til að vera ekki minni menn leggjast félagar hans með honum. Þetta virkar í raun sárasaklaust miðað við það sem gengur og gerist í bíómyndum. Leikstjórinn Ward not- ar það til að lýsa hugarástandi aðal- persónunnar, sem er bestur í liðinu og á milljón dollara framtíð fyrir sér, en á líka í talsverðri innri baráttu vegna afskiptaleysis föður síns. Og atriðið er notað til að lýsa samstöðu leikmannahópsins. Hægt er að benda á aragrúa annarra atriða í öðrum myndum sem krakkar gætu hermt eftir með slæmum afleiðingum en þetta tóku þau upp og „The Program" varð fræg að endemum. Atriðið var fjarlægt úr bandarísku útgáfunni. Að öðru leyti er hér um fasta liði eins og venjulega að ræða eins og þeir koma fyrir í brokkgengum ungl- ingamyndum að vestan. Hver leik- maður sem myndin fylgist með á við sín vandamál að etja; einn er á ster- um, annar á í erfíðum ástarmálum, sá þriðji slasast, sá fjórði sér enga í boði eru 0 mismunandi lyklar 1 nótt (2 clagíir) alla daga vikunnar kr. 11.000,- fyrir tvo. í miðri viku kr. 17.800,- fyrir tvo. HELGAH 2 nætur (3 dagar) iöstud. til sunnud. kr. 21.800,- fyrir tvo. SPA8I 4 nætur (5 dagar) í miðri viku kr. 29.800,- fyrir tvo. Innifalið í lyklum: Gisting, morgunverður af hlaðborði og þríréttaður veislukvöldverður auk aðgangs að öllum þægindum hótelsins svo sem jarðgufubaði, útisundlaug, heitum pottum, þrekæfingasal, tennisvelli, mu holu golfvelli o.fl. Einnig stendur til boða ýmis sérþjónusta svo sem snyrti- og hárgreiðslustofa, nuddstofa, hcstalciga, bílaleiga, stangveiði og margt fleira. Gjaktlyklamir eru tii söki í JfóLagjafekósi oMtar í Krkglimni, Borgarkríngkmni eða í síma 98-347W og þó færð iykiimn sendan heim. Sendum í póstkröfu. Yisa - Euro raðgreiðslur Gjafalyklamir gilda altí órið 1994 HÓTEL ÖDK HVERAGERÐI - SÍMI98-34700 - FAX 98-34775 NILFISK GM200 NILFISKGM200 hefur nýjan 5-þrepa síunarbúnað og hreinni útblástur en nokkur önnur ryksuga (heldur eftir 99% rykagna stærri en 0,3/1000 mm). GM200 er líka hljóðlátari (58 desibel), kraftmeiri (11 50W mótor) og endingarbetri (2000 tímar áður en skipta þarf um kol í mótor). ★ 7m inndregin rafmagnssnúra ★ Innbyggt sogstykkjahólf ★ Aflaukandi kónísk slanga ★ Þægileg sogaflsstilling ★ Rykmælir lætur vita þegar skipta á um poka ★ Létt (7,8 kg.) og lipur NILFISK GM200 kostar aðeins kr. 23.150.- 21.990.- staðgreitt og er hverrar krónu virði! iFOnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420 Lagar sig vel að fœtinum BACK GUARD. NÝJU SANDALARNIR FRÁ SCHOLL MEÐ STUÐNINGSHÆL Back Guard sandalamir frá Scholl eru með sérstökum stuðningspúða í hæl, svokölluðum Poronk. Poron ® tekur högg af fætinum og minnkar þannig titringinn í fótum og baki. Back Guard sandalar með Poron* létta þannig álag á fætur og bak. Stuðningspúðinn Poron® Frauðkennt efni gerir sandalann léttan Stamur sóli með góðu mynstri ÚTSÖLUSTAÐIR: Akraness Apótek, Akureyrar Apótek, Apótek Austurlands, Apótek Blönduóss, Borgar Apótek, Borgamess Apótek, Dalvíkur Apótek, Egils- staða Apótek, Garðabæjar Apótek, Grindavíkur Apótek, Hafnar Apótek, Háaleitis Apótek, Holts Apótek, Hraunbergs Apótek, Húsavíkur Apótek, Ingólfs Apótek, ísafjarðar Apótek, Keílavíkur Apótek, Kópavogs Apótek, Laugamess Apótek, Laugavegs Apótek, Lyfsala Hólmavíkur, Lyfsala Kirkjubæjarklausturs, Lyfsala Víkur, Lyfsala Vopnafjarðar, Mosfells Apótek, Nesapótek Eskifirði, Nesapótek Neskaupstað, Nesapótek Reyðarfirði, Nesapótek Seltjamamesi, Ólafsfjarðar útibú,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.