Morgunblaðið - 14.12.1993, Page 60
60-
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
Minning
Ingileif Guðmunds■
dóttir frá Þjótanda
Fædd 5. júní 1909
Dáin 5. desember 1993
Hinn 5. desember sl. andaðist
amma mín, Ingileif Guðmundsdóttir,
á heimili sínu í Hraunbæ 103 í
Reykjavík. Þrátt fyrir að amma væri
orðin 84 ára að aldri kom andlát
hennar á óvart, þar sem henni haðfí
nánast aldrei orðið misdægurt um
sína ævidaga og hún hafði notið
góðrar heilsu allt til hinstu stundar.
Amma var fædd í Seli í Asahreppi
hinn 5. júní 1909. Hún var dóttir
hjónanna Sesselju Vigfúsdóttur og
Guðmundar Jóhannessonar er þar
bjuggu. Hún var áttunda í röð fjórt-
án systkina og ólst upp í þeim stóra
hópi í Seli. Eins og gefur að skilja
hefur það verið erfítt að ala upp svo
stóran bamahóp löngu fyrir tíma
bamabóta og nokkurrrar opinberrar
aðstoðar við barnniargar fjölskyldur.
Þau systkinin urðu því snemma að
byrja að taka til hendinni til að létta
undir í lífsbaráttunni, fyrst í föður-
garði og síðar er þau stálpuðust réðu
þau sig í vinnumennsku á öðrum
heimilum.
Arið 1928 giftist amma afa mín-
um, Ólafi Einarssyni á Þjótanda í
Villingaholtshreppi. Það sama ár
hófu þau búskap á Þjótanda með
foreldrum Ólafs, þeim Einari Brynj-
ólfssyni og Guðnýju Hróbjartsdóttur.
Eftir fráfall Einars árið 1932 tóku
þau hins vegar alfarið við búsforráð-
um, en Guðný dvaldist á heimili
þeirra allan þann tíma er þau bjuggu
á Þjótanda.
Ömmu og afa varð sex bama auð-
ið, en þau era: Unnur, fædd 29. júlí
1928, dáin 28. febrúar 1933; Hulda,
fædd 18. júní 1930, dáin 7. mars
1933; Einar, fæddur 25. janúar 1934,
kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur
og búa þau á Ægissíðu í Djúpár-
hreppi; Ásta, fædd 9. september
1935, dáin 13. janúar 1986, var gift
Áma Sveinssyni; Sesselja, fædd 30.
apríl 1942, búsett í Reykjavík; Gunn-
ar, fæddur 22. janúar 1951, kvæntur
Sólveigu Gyðu Guðmundsdóttur og
era þau búsett í Reykjavík.
Bærinn Þjótandi er á bökkum
Þjórsár við Þjórsárbrú og stendur því
í þjóðbraut, sem leiddi af sér að þar
varð viðkomustaður margra er um
veginn fóra, sérstaklega eftir að bfla-
öldin hélt innreið sína með vaxandi
umferð er leið fram á þessa öld. Á
búskaparáram ömmu og afa var því
mikill erill á Þjótandaheimilinu og
gestkvæmt mjög, enda var á þeim
t
Eiginmaður minn,
KRISTJÁN G. GfSLASON,
lést 12. desember.
Ingunn Jónsdóttir Gíslason.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRARINN B. PÉTURSSON,
Hlunnavogi 9,
lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 12. desember.
Anna Lísa Hjaltested,
börn, tengdasonur
og barnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir,
KARL INGÓLFSSON,
áðurtil heimilis
á Reynimel 39,
andaðist í Hafnarbúðum 12. desember.
Áslaug Þorsteinsdóttir,
Halldór Karlsson, Ingibjörg Pétursdóttir.
árum rekin þar símstöð, pósthús og
verslun um tíma, ennfremur var þar
endastöð fyrir fólksflutningabifreið-
ar, en afí rak um langt skeið sér-
leyfí á leiðinni frá Reykjavík að Þjót-
anda, auk þess sem hann tók virkan
þátt í félagsstörfum í sveitinni og
starfaði síðustu æviár sín sem odd-
viti Villingaholtshrepps. Rekstur bús
og heimilis hvíldi því mjög á herðum
ömmu.
Eftir fráfall afa árið 1962 brá
amma búi og fluttist til Reykjavíkur
ásamt yngri syni sínum Gunnari. Þar
starfaði hún fyrst hjá Sláturfélagi
Suðurlands, en síðan lengst af á
Pijónastofunni Viðju.
Amma var rólynd kona, en félags-
lynd. Hún hafði yndi af tónlist og
hafði sjálf góða söngrödd. Nú hin
síðari ár tók hún virkan þátt í starfí
félags eldri borgara í Reykjavík og
söng með kór félagsins um skeið.
Hún hafði gaman af því að ferðast
og ferðaðist mikið innan lands sem
utan á efri áram, nú síðast fyrir
nokkram vikum brá hún sér til Ir-
lands ásamt dótturdætram sínum.
Sorgin knúði oftar en einu sinni að
dyram hjá ömmu, því að þremur
bama sinna varð hún að fylgja til
grafar, fyrst árið 1933 er tvær elstu
dætur hennar létust með viku milli-
bili. Slíkt hlýtur að hafa verið ungri
móður þung raun. Rúmlega hálfri
öld síðar stóð hún enn í sömu sporam
er Ásta dóttir hennar lést úr krabba-
meini aðeins fímmtug að aldrei. Þó
að amma bæri harm sinn ekki á torg,
fór ekki hjá því að hún tæki fráfall
Ástu nærri sé, þar sem þær mæðgur
vora afar samrýndar og bjuggu
lengst af í nábýli hvor við aðra.
Margar af fyrstu bemskuminning-
um þess er þessar línur ritar tengj-
ast heimsóknum að Þjótanda. Þær
ferðir vora jafnan tilhlökkunarefni,
enda gaf amma sér ávallt tíma, þrátt
fyrir annríki, til að sinna litlum snáða
er margs þurfti að spyija.
Ég vil nú við leiðarlok þakka
ömmu minni fyrir samfylgdina. Útför
hennar verður gerð í dag frá Foss-
vogskirkju. Guð blessi minningu
hennar.
Guðmundur Einarsson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
MAGNÚS KRISTJÁNSSON
kökugerðarmeistari,
Furugerði 11, Reykjavík,
lést á öldrunardeild Borgarspítalans 10. desember.
Jakobína B. Einarsdóttir,
Birna Magnúsdóttir, Þráinn Karlsson,
Magnús Þráinsson,
Karl Þráinsson, Helga M. Óttarsdóttir,
Björg Jakobina Þráinsdóttir, Guðmundur H. Torfason,
Auður Þráinsdóttir,
Þráinn Arnar Magnússon,
Marfa Karlsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
YNGVI GRÉTAR GUÐJÓNSSON,
Löngumýri 24,
Garðabæ
áður Skóiavörðustíg 44,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju
í dag, þriðjudaginn 14. desember,
kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hans, láti
Landssamtök hjartasjúklinga njóta þess.
Valdfs Gunnlaugsdóttir,
Guðmundur Pétur Yngvason, Berglind Bragadóttir,
Elvar Andri Guðmundsson.
Mig langar til að minnast elsku-
legrar ömmu minnar nokkram orð-
um. Ég var ekki gömul þegar ég
kynntist hversu góð og hjartahlý
amma mín var. Það vora mér miklar
ánægjustundir þegar ég kom í bæinn
og fékk að heimsækja hana í Álfta-
mýrina og gista hjá henni. Árin liðu
og kynni okkar efldust. Ég gat alltaf
treyst á pðstoð hennar þegar ég
þurfti á að halda, hún var alltaf tilbú-
in að rétta hjálparhönd.
Seinna, þegar ég eignaðist mína
eigin fjölskyldu, var amma mín ætíð
sama hjálparhella sem fyrr. Ég vona
að mér hafí tekist að endurgjalda
henni það góða sem hún gaf mér.
Mikið þykir mér vænt um að dætur
mínar, Bylgja Lind og Sunna Rún,
hafa fengið að kynnast henni. Ófáar
stundimar las hún fyrir þær eða
sagði þeim ævintýri. Bömin elskuðu
hana og virtu og mörg vora þau
skiptin sem hún þurfti að sitja undir
spurningaflóði, því amma kunni við
flestu svör.
Amma var einstaklega lífsglöð og
þróttmikil kona. Hún átti auðvelt
með að hrífa nærstadda með sér í
leik og starfí. Hún tók virkan þátt í
félagsstarfi eldri borgara og ég
minnist þess hversu oft hún talaði
um söngkórinn sinn. Einnig var hún
virkur þátttakandi í íþróttafélagi
eldri borgara. Allt þetta starf veitti
henni mikla og ómælda ánægju. Já,
þær era margar minningamar sem
koma upp í hugann.
Sl. haust fóram við Harpa systir
mín í nokkurra daga ferð til írlands
með ömmu. Sú ferð verður okkur
systram ætíð minnisstæð. Amma
naut hverrar stundar, hverrar mín-
útu. Margt brölluðum við saman og
amma var alltaf miðpunkturinn í
þeim ánægjustundum.
Okkur kom ekki til hugar á þeirri
stundu að amma ætti svo skammt
eftir ólifað, enda þótt hún hafí verið
orðin fullorðin kona þá kom andlát
hennar mjög á óvart. Á jólunum sem
nú ganga í garð stóð til, eins og
undanfarin ár, að amma væri hjá
Ijölskyldu minni. Jólin verða tómleg
án hennar. Hún sem með sinni glað-
værð og sönnu trú veitti okkur þá
jólastemmningu sem svo margir leita
eftir.
Það er erfitt að kveðja, og vitneskj-
an um að sjá þig ekki oftar er sár,
en minningin um þig lifír með okkur
sem nutum þeirra forréttinda að
kynnast þér. Elsku amma, ég þakka
þér fyrir allt, megi Guð varðveita þig.
Ingunn Hulda Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
ERFIDRYKKJUR
t
Látin er ástkaer móðir okkar,
HALLA HERMÓÐSDÓTTIR,
Strandaseli 8.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hermann Þór Jónsson,
Kristján Karl Gunnarsson,
Ingibjörg Gunnarsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
BJÖRN JÓNSSON,
Dalbæ,
Súðavík,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsi ísafjarð-
ar sunnudaginn 12. desember.
Stella Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
STEFÁN KRISTJÁNSSON
frá Hólmavík,
til heimilis í
Ljósheimum 8a, Reykjavík,
lést á heimili sínu aðfaranótt 11. des-
ember síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 16. desember kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Landssamtök hjarta-
sjúklinga.
Kristín Ólafsdóttir,
Ágúst Kr. Stefánsson,
Bára, Eiríkur og barnabörn.
UÓSKER FYRIR LEIÐI
J ©; pcinit s/i
I S 1 HELLUHRAUNI 14 • 220 HAFNARFIRÐI • SlMI 652707
g(m ISM
sími 689509
Erfidrykkjur
Glæsileg kíiíli-
hlaðborð íallegir
síilir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 2 23 22