Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 66
. .4* É/ÚJfc
66
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
16500
★ EVROPUFRUMSYNING A GEGGJUÐUSTU GRINMYND ARSINS
Hún er algjör-
lega út í hött..
Já, auövitaö, og hver ann-
ar en Mel Brooks gæti
tekiö að sér að gera grín
aö hetju Skírisskógar?
Um iciö gerir hann grín
aö mörgum þekktustu
myndum síöari ára, s.s.
The Godfather, Indecent
Proposal og Dirty Harry.
Skelltu þér á Hróa;
hún er tvímælalaust
þess viröi.
Leikstjóri: Mel Brooks.
★ ★★★ BOX OFFICE
★ ★★ VARIETY
★ ★★ L.A. TIMES
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
★ — n
★ BIOMYNDIR & MYIMBOIMD Tímarit áhugafólks um kvikmyndir
DESEMBER BLAÐIÐ ER KOMIÐ ÚT. ÁSKRIFTARSÍMI 91-811280. *
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
1
Morgunblaðið/Silli
Halldór Blöndal samgöngumálaráðherra opnar formlega vöruhöfnina á Húsavík.
Vöruhöfniii á Húsa-
vík opnuð til afnota
Húsavik.
SAMGÖNGUMÁLARÁÐHERRA, Halldór Blöndal, opn-
aði vöruhöfnina á Húsavík til afnota fyrir skömmu, en
lokið er miklum endurbótum á höfninni, sem hófust
árið 1988.
Athöfnin hófst með ávarpi
t bæjarstjórans, Einars Njáis-
íf sonar, en síðan flutti sóknar-
' presturinn, séra Sighvatur
. Karlsson, stutta hugvekju
og bæn og bað öllum þeim
sem frá höfninni sigldu og
til hafnar leituðu Guðs bless-
unar á leiðum sínum og að
þeir næðu ávallt heilir í höfn,
hvert sem leiðir þeirra lægju.
Að vígslunni lokinni var
haldið til Hótels Húsavíkur
og þar rakti Einar Njálsson
bæjarstjóri sögu fram-
i kvæmda við vöruhöfnina,
eða svokallaðan Norðurgarð,
en þær hófust 1944 þegar
í fyrsti hluti hafnargarðsins
var byggður. Síðan hefur
garðurinn verið lengdur en
þáttaskil urðu í sambandi
, við hafnarframkvæmdimar
1988 eftir að Hafnamála-
stofnun hafði gert rannsókn-
ir og tillögur um úrbætur á
og endurbyggingu vöru-
hafnar við Norðurgarð og
hófust þá framkvæmdir, en
gengu hægt, þar til 1992
að ráðist var í seinni hluta
endurbyggingarinnar. Að
undangengnu forvali og út-
boði var samið við Hagvirki-
Klett hf. sem var lægstbjóð-
andi. Verkinu var skipt í tvo
hluta, dýpkun hafnarinnar
og römmun á stálþili, en
seinni hlutinn var fólginn í
því að ganga frá lögnum og
lýsingu ásamt því að steypa
þekju.
Upphaflega hafði verið
vonast til að hægt yrði að
ná tilskilinni dýpt með bein-
um greftri, en það reyndist
ekki mögulegt og varð því
að bora og sprengja botninn
áður en grafið var. Þetta
olli því að verkið tók lengri
tíma og varð dýrara en
áformað var í upphafi.
Bæjarstjóri lauk máli sínu
með því að þakka sam-
gönguráðherra fyrir hans
góða stuðning við þessar
framkvæmdir svo og verk-
tökum og öðrum þeim, sem
að framkvæmdum hefðu
komið.
Auk bæjarstjóra ávarpaði
Halldór Blöndal ráðherra
viðstadda og ræddi um hve
nauðsynlegt það væri hverri
byggð að hafa góðar sam-
göngur bæði á sjó og landi
og sagðist fullviss um að þau
mannvirki, sem nú hefði ver-
ið gerð við Húsavíkurhöfn,
yrðu öllu héraðinu til góðs.
Einnig ávörpuðu viðstadda
Jóhann Bergþórsson, sem
þakkaði gott samstarf verk-
taka við verksala, og Friðrik
Sigurðsson, forstjóri Kísiliðj-
unnar, en hann sagðist
fagna bættri aðstöðu við
höfnina, sem væri mikils-
virði fyrir Kísiliðjuna, enda
væri hún stærsti einstaki
notandinn, því af 60 þúsund
tonnum sem árlega færu nú
um höfnina væru 20 þúsund
tonn kísilgúr.
Húsvíkingar hafa fundið
fyrir því, að það er ekki verra
fyrir kjördæmið að eiga ráð-
herra í ríkisstjóm, því í ráð-
herratíð Guðmundar Bjama-
sonar fékk Húsavík ný-
byggða Heilsugæslustöð og
í ráðherratíð Halldórs BlÖn-
dal miklar endurbætur við
höfnina.
- Fréttaritari.
iitvjusr Got A irmr Siiwaca
JjJJJJ JJILIj: JJÆUJ
STÆRSTA BIOIÐ
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS
HASKOLABIO simi 22140
OKEYPIS JURASSIC PARK MERKI
FYLGJA HVERJUM BÍÓMIÐA
Sýnd kl. 5 og 7.05. B. i. 10 ára.
".•"V ' ' ^
INÐOKINA
Sýnd kl. 5 og 9. B. i. 14 ára
Fjolskyldan frabæra i glænyrri grinmynd þar sem uppatækin
eiga sér engin takmörk. Og nú hefur bæst við nýr lítill fjöl-
skyldumeðlimur við litla hrifningu eldri systkinanna.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
(Ath.: Atriði í myndinni geta valdið ótta ungra barna).
THE COMMITMENTS
HETJAIM
They saið tHm wasnl a man
tm earth wha could pull off
a bank job like thls.
__ They wete right.
lltt
REflLMcCOY
Fjörug spennumynd með Kim Basinger um ótrúlegt bankarán
Sýnd kl. 5, 9 og 11.05. B. i. 12 ára.
BELLE DE JOUR
Sýnd kl. 9
Sjá auglýsingu
Flreyfimyndafélagsins
BIOMYNDIR &
MYNDBÖND
Tímarit áhugafólks um
kvikmyndir.
Áskriftarsími 91-811280.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Nemendur Skjöldólfsstaðaskóla ásamt foreldrum sínum við föndurgerð.
Foreldrar föndra í
Skj öldólfsstaðaskóla
Vaðbrekku, Jökuldal.
NEMENDUR Skjöldólfsstaðaskóla buðu foreldrum sínum
á tónleika í skólanum snemma í desember. Þar léku
þeir af fingrum fram og kom í Ijós að þeir höfðu stund-
að námið af áhuga, því að hljóðfæraleikurinn var hinn
áheyrilegasti.
Ekki létu krakkarnir þar
við sitja heldur drifu foreldr-
ana í að föndra og létu þá
búa til jólakortin með sér.
Virtist þetta takast allbæri-
lega og þá sérstaklega hjá
kvenþjóðinni sem virtist vön
að fást við þvíiíkt. Karlpen-
ingurinn sem mætti á staðinn
virtist ekkl vanþörf á að æfa
sig meira við föndrið og er
nú beðið eftir að krakkarnir
kalli þá til og kenni þeim bet-
ur fræðin. „. . -