Morgunblaðið - 14.12.1993, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
COSPER
Hugsaðu þér bara. Það er búið að snjóa heil ósköp síðan
ég byrjaði að tala við þig.
Ég sagði þér að þú ættir ekki
að gefa vísindunum heilann að
þér látnum ...
Ást er...
5-27
... þegar þið eruð frátekin
hvort fyrir annað.
TM Reg U S Pat Ott — all fights reaerved
• 1992 Los Angetes Times Syndicate
<ts&
Ég fer þá út í tunnu í dag...
HÖGNI HREKKVÍSI
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Biskupar og búvörur
Frá Ólafi H. Torfasyni:
Gunnlaugur Júlíusson hagfræð-
ingur vakti hér í dálkunum (5.
desember) athygli á þeirri stefnu
sænskrar verslanakeðju að hafna
erlendum matvælum með vafa-
sama fortíð úr Evrópusambandinu
en bjóða heldur neytendum áfram
örugga innlenda gæðavöru. Mér
finnst rétt að benda á að varúðar-
orð af þessu tagi eru ekki bara
einhver sérviska Hemköp-fyrir-
tækisins eða varnarbarátta ís-
lenskra bænda, heldur angi af víð-
tækri umræðu sem nú hefur bloss-
að upp sem aldrei fyrr á megin-
landinu.
21. október sl. var í Bonn birt
sameiginleg yfirlýsing rómversk-
kaþólskra biskupa í Þýskalandi,
þar sem ekki aðeins er krafist
hertrar dýraverndar heldur er al-
menningur hvattur til að draga
úr neyslu á kjötvörum, vegna
slæmra aðferða sem tíðkast í land-
búnaðinum þarlendis. Þýska bisk-
uparáðstefnan nefntr plagg sitt
„Abyrgð manneskjunnar á dýrinu“
(Die Verantwortung des Menschen
fúr das Tier) og rökstyður hana á
guðfræðilegum og siðferðilegum
forsendum. Biskuparnir mælast til
þess að stórlega verði dregið úr
dýratilraunum, að þær fari ekki
fram nema læknisfræðileg nauð-
syn krefjist og að þannig sé þá
um hnúta búið að dýrin þjáist sem
allra minnst. Dýratilraunir vegna
snyrtivöruframleiðslu telja þeir
óréttlætanlegar af siðrænum
ástæðum og hvetja neytendur til
að kaupa ekki snyrtivörur af fyrir-
tækjum sem láta stunda þær.
Og varðandi matvælin er rök-
semdafærslan svipuð og hjá Svíun-
um: Þýska biskuparáðstefnan
hvetur neytendur eindregið til að
draga úr kjötneyslu meðan
skepnuhald í landbúnaði ES sé í
jafn slæmu horfi og raun er á.
Spyija megi hvort dagleg neysla
á kjöti geti réttlætt þjáningar dýra
í miklum mæli. í yfirlýsingu þýsku
biskupanna er skorað á þá sem
annast matarinnkaup fyrir ka-
Frá Alfreð Þorsteinssyni:
Venjulegir stjórnarmenn í
hverfafélögum sjálfstæðismanna
virðast illa upplýstir um vinnubrögð
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins, ef dæma má skrif Sigurðar
Sigurðssonar hér á síðunni mið-
vikudaginn 8. desember sl. Fyrr-
nefndur Sigurður, sem sæti á í
stjórn Félags sjálfstæðismanna í
Grafarvogi, lýsti undrun sinni og
vonbrigðum með þá ákvörðun borg-
aryfírvalda að leyfa sjoppu- og
bensínafgreiðslu á útivistarsvæði í
Grafarvogi í námunda við íþróttam-
iðstöð og skóla, sem hundruð barna
og unglinga sækja daglega, sökum
slysahættu, sem af því skapaðist.
Ákallar hann borgarstjóra, borgar-
ráð og skipulagsnefnd í nafni 2000
íbúa hverfisins, sem mótmælt hafa
sjoppu- og bensínafgreiðslunni og
biður um, að þessari ákvörðun verði
hnekkt.
Nú vill svo til, að það voru flokks-
bræður Sigurðar, sem tóku ákvörð-
un um þessa staðsetningu í krafti
meirihluta síns í skipulagsnefnd,
borgarráði og borgarstjóm, þannig,
að ekki er við neina aðra að sakast.
þólska skóla, menntastofnanir og
dagheimili og veislur og hátíða-
höld á vegum kaþólskra í Þýska-
landi að sjá til þess af þessum
sökum að minna verði um kjötvör-
ur á þeim vettvangi.
'ÓLAFUR H. TORFASON,
Laugamesvegi 108,
Reykjavík.
En það, sem Sigurður veit
kannski ekki, er það, að eiginkona
þáverandi framkvæmdastjóra þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins sótti um
lóðina — og Olíufélagið Skeljungur,
sem neitaði að taka þátt í útboði
um bensínafgreiðslu, sem skipu-
lögð var í hverfinu — ætlar að
komast bakdyramegin inn í Grafar-
voginn.
Þetta mál er því algerlega mat-
reitt í Valhöll og hagsmunir íbúa
í Grafarvogi, hvort sem þeir til-
heyra Sjálfstæðisflokknum eða
ekki, eru hreint aukaatriði, þegar
á annað borð þarf að hygla gæðing-
um flokksins.
Einhvern tímann var talað um
nytsama sakleysingja í Morgun-
blaðinu af öðru tilefni og virðist
það eiga vel við um sjálfstæðis-
menn í Grafarvogi, sem munu
eflaust fylgja flokknum sínum
dyggilega í kosningunum næsta
vor. Er ekki líka sagt, að þangað
leiti klárinn sem hann er kvaldast-
ur.
ALFREÐ ÞORSTEINSSON,
varaborgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins.
Sjálfstæðissjoppan í
Grafarvogi
Víkveiji skrifar
Sl. laugardag birtust hér í blað-
inu athyglisverð ummæli sem
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða viðhafði á ferðamálaráð-
stefnu sl. fimmtudag. Forstjóri
Flugleiða sagði m.a.:„Eg er sann-
færður um, að íslenzkri ferðaþjón-
ustu stafar nokkur ógn af þeirri
samþjöppun, sem er að verða á
erlendum ferðamarkaði í því formi,
að ferðaheildsölur, ferðaskrif-
stofukeðjur og leiguflugfélög eru
að tengjast eignaböndum. Við
sjáum merki um þetta í öllum
helztu markaðslöndum okkar í
Evrópu."
Og síðar í sömu ræðu sagði Sig-
urður Helgason:„Hin hættan er sú,
að nái þessar ferðaskrifstofukeðjur
lykilstöðu í sölu til íslands á sumar-
vertíðinni kann svo að fara að þær
eða fyrirtækjasamsteypur, sem
þær eru hluti af, seilist eftir öllum
þáttum viðskiptanna."
Ekki skal dregið í efa, að allt er
þetta satt og rétt hjá forstjóra Flug-
leiða. En hljómar þetta ekki eitt-
hvað kunnuglega? Hefur ekki það
sama verið að gerast hér á íslandi?
Hafa Flugleiðamenn ekki verið að
„tengjast eignaböndum" velflestum
ferðaskrifstofum, allmörgum hótel-
um og fleiri fyrirtækjum á þessu
sviði?! Má ekki búast við, að þeim
örfáu aðilum, sem Flugleiðamenn
hafa ekki „tengzt eignaböndum“
„standi ógn af þeirri samþjöppun",
sem er að verða á hinum innlenda
ferðamarkaði?!
Er það hlutverk Háskóla íslands
að flytja Las Vegas inn til
íslands. Það er erfitt að kyngja
því, að ekkert sé sjálfsagðara en
að forystumenn æðstu mennta-
stofnunar þjóðarinnar standi fyrir
því, að setja upp þessa ómerkilegu
spilakassa, sem nú standa í röðum
hér og þar um borgina. Ekki þarf
að efast um, að mikil aðsókn verð-
ur að þessum kössum og að Há-
skólinn og aðrir, sem fengið hafa
hlutdeild í hagnaðinum muni ná í
umtalsvert fjármagn með þessum
hætti.
Þetta er hins vegar ekki samboð-
ið Háskóla íslands. Hafí menn
haft efasemdir um það áður en
vélarnar voru settar upp, þarf eng-
inn að efast um það lengur hvað
hér er að gerast. Las Vegas hefur
hafið innreið sína á Islandi. Er þá
ekki sjálfsagt að leyfa almennt
starfsemi spilavíta? Og ef ekki:
hver er munurinn á þeim og pen-
ingavélum Háskólans?
xxx
*
Aundanfömum árum hafa kom-
ið út fjölmargar bækur, sér-
staklega í Bandaríkjunum, sem
fjalla um það, hvemig fólk á að
haga lífi sínu. Alveg sérstaklega
hafa verið skrifaðar margar bækur
um líkamsrækt og sumar þeirra
náð mikilli útbreiðslu, séstaklega
þó bækur bandarísku leikkonunnar
Jane Fonda. Sagt er, að líkams-
ræktaræðið hafi byijað í Kalifor-
níu, sem sögð er uppspretta
margra nýjunga í lífsháttum fólks.
Hvað sem því líður er ljóst, að
þessi tízkubylgja er ekki lengur
tízkubylgja heldur hefur hún haft
varanleg áhrif á lífsvenjur ótrúlega
margra.
Nú hefur Ragnar Tómasson,
lögfræðingur, tekið sig til og skrif-
að slíka bók, sem hann byggir á
eigin reynslu. Þetta er myndarlegt
framtak og vönduð bók og höfund-
inum til sóma. Höfundurinn segir
m.a.:„Mér finnst líkamsræktin
hafa breytt ótrúlega miklu í lífi
mínu. Sjálfsmyndin er sterkari,
streitan minni og dagleg líðan allt
önnur og betri....Alls konar erfið-
leikar og amstur eru og verða allt-
af á vegi okkar en mér þykir miklu
auðveldara að takast á við það í
dag. Breytingin er í rauninni ótrú-
leg.“
Fólk þarf ekki að stunda jafn
umfangsmikla líkamsrækt og bók-
arhöfundur gerir til þess að finna
hin jákvæðu áhrif hennar. Þótt
ekki sé um annað að ræða en dag-
Iegar gönguferðir finna menn fljótt
áhrif þeirra, ekki eingöngu á lík-
amlega heilsu. Það fer ekkert á
milli mála, að í reglulegum göngu-
ferðum eða annars konar líkams-
rækt felst andleg upplyfting, sem
veldur því, að fólk er stæltara til
þess að takast á við dagleg vanda-
mál, eins og Ragnar Tómasson
segir.
*■
Þ