Morgunblaðið - 14.12.1993, Qupperneq 71
71
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993
Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins
Kvótakerfið ekki lög-
fest um aldur og ævi
JÖN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og formaður Al-
þýðuflokksins segir það rangt og ósanngjarnt að halda því fram
að milliþinganefnd Alþýðuflokksins um mótun sjávarútvegs hafi
verið sniðgengin. „Milliþinganefndin var ráðgjafarnefnd. Það hlýt-
ur að vera þingflokksins að lokum, að semja við samstarfsflókk-
inn og taka pólitískar ákvarðanir um málamiðlanir og bera á
þeim ábyrgð. Það er mesti misskilningur ef menn halda það að
kvótakerfið verði hér með lögfest um aldur og ævi,“ sagði Jón
Baldvin m.a. í samtali við Morgunblaðið í gær.
Jón Baldvin segir að það sé út
af fyrir sig rétt, að milliþinganefnd-
in, sem sett hafi verið á laggirnar
eftir seinasta flokksþing Alþýðu-
flokksins og hafi átt að vera til
ráðuneytis um mótun sjávarútvegs-
stefnunnar, hafí lokið sínu hlut-
verki að sinni. „Hitt er rangt og
vægast sagt ósanngjamt, að halda
því fram að nefndin hafi verið snið-
gengin. Staðreyndin er sú að allt
frá því tvíhöfðanefnd stjórnarflokk-
anna skilaði tillögum hefur flokks-
stjórn Alþýðuflokksins og þing-
flokkur þráfaldlega rætt þessi mál
og meðlimir milliþinganefndar haft
öll tækifæri til að koma sínum
sjónarmiðum á framfæri," sagði
Jón Baldvin.
Hann sagði að margir fundir
hefðu verið haldnir um þessi efni;
flokksstjómarfundir, fundir þing-
flokks og milliþinganefndar og
seinast fundur milliþinganefndar
°g þingflokks á Hótel Sögu 6.
desember sl.
„Sú stefna var mótuð á flokks-
þingi að koma skyldi í veg fyrir
að krókaleyfísmenn yrðu færðir
undir aflamarkskerfí. Að óbreytt-
um lögum hefðu þeir farið undir
aflamarkskerfið og kvóti þeirra
verið skertur úr rúmlega 20 þúsund
þorskígildistonnum niður í um það
bil 4 þúsund tonn. Þessu hefur nú
verið breytt með þeim hætti að
trillukarlar, samkvæmt nýjustu
málamiðlunartillögum, em undir
einskonar sóknarmarkskerfí sem
stjómast af banndögum. Þessi nið-
urstaða er í anda þess sem mælt
var með á flokksþinginu," sagði
formaður Alþýðuflokksins.
Jón Baldvin sagði jafnframt að
hörð gagnrýni hefði komið fram á
flokksþinginu á núverandi kvóta-
kerfí og sú gagnrýni hefði farið
vaxandi, ef nokkuð væri, frá því
flokksþing var haldið. „A flokks-
þinginu komu ekki fram aðrar til-
lögur, um hvað ætti að koma í stað-
inn, það er að segja annað en óskil-
greint sóknarstýringarkerfí. Þær
tillögur eru ekki fullmótaðar og
ekki var samkomulag um þær á
milli stjórnarflokkanna. Alþýðu-
flokkurinn getur ekki gengið út frá
því sem gefnu að hann nái fram
ýtrustu kröfum sínum í stjórnar-
samstarfinu. Það er að sjálfsögðu
flokksþingið sem mótar stefnuna
en það verður að halda á spilunum
hveiju sinni, eftir því sem mögu-
„Það er ekkert leyndarmál að
mikill meirihluti eða nánast allir í
þessari nefnd hafa verið mjög
leikar eru á,“ sagði utanríkisráð-
herra.
Jón Baldvin sagði að Alþýðu-
flokknum hefði tekist að ná sam-
komulagi við samstarfsflokkinn um
þær hugmyndir sem flokkurinn
beitti sér fyrir að því er varðar
Þróunarsjóð sjávarútvegsins. „Þær
hugmyndir lúta að hvoru tveggja,
verkáætlun um fjárhagslega endur-
skipulagningu og örari hagræðingu
í sjávarútveginum og vísi að veiði-
leyfagjaldi, sem þar með hefur náð
lögfestingu. Þetta er málamiðlun
sem fengin er að frumkvæði Al-
þýðuflokksins og þingflokkurinn
getur eftir atvikum sætt sig við,
sem áfangalausn,“ sagði hann.
Loks sagði Jón Baldvin að mikil
og hörð gagnrýni milliþinganefnd-
arinnar á misnotkun á ftjálsu fram-
sali innan aflamarkskerfísins hefði
komið fram. „Það mál er vissulega
mjög alvarlegt, enda hefur þegar
verið boðað verkfall af hálfu sam-
taka sjómanna til að fá því hnekkt.
Fulltrúi Alþýðuflokksins í tvíhöfða-
ósáttir með að halda áfram þessu
aflamarkskerfi með fijálsu fram-
sali sem búið hefur verið við und-
nefnd hefur reifað tillögur um
hvernig unnt sé með atbeina lög-
gjafar að hnekkja núverandi kjara-
samningabrotum, eins og þau við-
gangast við hið frjálsa framsal.
Sjávarútvegsráðherra hefur lýst sig
reiðubúinn til að taka á því máli,
þótt endanleg niðurstaða í því sé
ekki fengin. Milliþinganefndin var
ráðgjafarnefnd. Það hlýtur að vera
þingflokksins að lokum, að semja
við samstarfsflokkinn og taka póli-
tískar ákvarðanir um málamiðlanir
og bera á þeim ábyrgð. Það er
mesti misskilningur, ef menn halda
það að kvótakerfíð verði hér með
lögfest um aldur og ævi. Það er
ófullkomið mannanna verk. Reynsl-
an af því er ekki í samræmi við
upphaflegar væntingar höfunda
þess og það er á valdi löggjafar-
samkundunnar hvenær sem er, að
breyta því, eða koma með annars
konar stjórnkerfi í staðinn, ef um
það næst pólitísk samstaða," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson.
anfarin ár og ég fæ ekki betur séð
en æ fleiri séu að átta sig á að
þetta kerfí stenst ekki. Einkum
og sér í lagi sýnist mér að sjó-
menn séu á góðri leið með að hafna
þessu kerfí og þess vegna erum
við ekkert kátir með að þingflokk-
ur Alþýðuflokksins samþykkir að
leggja fram frumvörp sem gera
ráð fyrir að festa þetta kerfí í
sessi. Um það snýst málið fyrst
og fremst,“ sagði Magnús.
Hann sagði að síðan væru mis-
munandi áherslur innan nefndar-
innar í einstökum málum.
Sjávarútvegsnefnd Alþýðuflokksins fundar í kvöld
Til tals hefur komið
að nefndin segi af sér
MAGNÚS Jónsson, veðurfræðingur og formaður nefnar Alþýðu-
flokksins um sjávarútvegsmál sem skipuð var á síðasta flokks-
þingi til að fjalla um málaflokkinn milli þinga, segist geta stað-
fest að til tals hafi komið að öll nefndin segi af sér vegna sam-
komulags um þau frumvörp um sjávarútvegsmál sem stjórnar-
flokkarnir hafa komið sér saman um að leggja fram á þingi.
Lyktir málsins ráðist hins vegar ekki fyrr en í kvöld þegar nefnd-
in hafi verið boðuð saman til fundar til að ræða þá stöðu sem upp
sé komin. Einstaka nefndarmenn hafi lýst því yfir að þeir ætli
að segja af sér, en hann hafi ekki lýst slíku yfir né nefndin í
heild og farið verði yfir málið í kvöld.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Heilsað upp á jólasveininn á Tryggvatorgi.
Þau fögnuðu jólasveinunum á Selfossi um helgina.
Fjöldi fólks af Suðurlandi í jólaskapi á Selfossi síðasta sunnudag
Jólasveinar á Tryggvatorgi
Selfossi.
FJÖLDI fólks fylgdist með því þegar jólasveinar héldu sína ár-
legu innreið á Tryggvatorg á Selfossi. Þeir heilsuðu upp á börn-
in og sungu nokkur jólalög.
Um leið og jólasveinarnir ins sem þeir komu með flutti
stukku ofan af þaki hópferðabíls- Bryndís Brynjólfsdóttir, forseti
bæjarstjómar Selfoss, ávarp og
að því loknu var kveikt á bæjarjól-
atrénu framan við Hótel Selfoss
við Tryggvatorg.
Fjöldi fólks af Suðurlandi legg-
ur jafnan leið sína á Selfoss til
að fylgjast með jólasveinunum og
segjast kaupmenn verða duglega
varir við þá hreyfingu.
Sig. Jóns.
49. lcikvika , 11. des. 1993
Nr. Leikur: RöOin:
1. Aston V. - Wimbledon - - 2
2. Chclsea - Ipswidi - X -
3. I.ivcrpool - Swindon - X -
4. Man. City - Tottenham - - 2
5. Newcastle - Man. Utd. - X -
6. Oidham - Biackbum . . 2
7. Shcff. Utd - Evcrton - X -
8. Southamptn - QPR - - 2
9. West Ham - Coventry 1 - -
10. Luton - Tranmere - - 2
11. Notts Cnty - Millwall - - 2
12. Oxford - Bolton - - 2
13. Stoke- Middlesbro 1 - -
Heildarvinningsupphæðin:
117 milljón krónur
13 réttir: 10.503.240 | kr.
12 réttir: 122.460 | kr.
11 réttir: 6.780 | kr.
10 réttir: 1.300 | kr.
49. leikvika , 12. des. 1993
Nr. Leikur: RöOin:
1. Gcnoa - Foggia - - 2
2. Inter - Sampdoria 1
3. Lazio - Juvcntus 1
4. Napoii - Atalanta 1
5. Piacenza - Roma 1
6. Reggiana - Lecce 1
7. Torino - Cremonese - X -
8. Bari - Modena 1 - -
9. Brescia - Vicenza 1
10. Lucclicse - Cosenza 1
11. Padova - Venezla - X -
12. Pescara - Ancona . 1 - -
13. Vcrona - F. Andria - X -
Heildarvinningsupphsðin:
12 milljónir króna
13 réttin 3.219.200 kr.
12 réttir: 15.470 kr.
11 réttir: 1.190 kr.
10 réttin 300 kr.
EUROr'TIPS
49. leikvika , 7-8. des. 1993
Nr. Leikur:___________ Röðin:
1. Salsburg - Sporting (hl.) - X -
2. Salsburg - Sporting 1 - -
3. Dortmund - Bröndby (hl 1 - -
4. Dortmund - Bröndby 1 - -
5. Karisruhe - Bordaux (hl. 1 - -
6. Karisruhe - Bordaux 1 - -
7. Cagliari - Mecfaelcn 1 - -
8. Inter - Norwich 1 - -
9. Boavista - OFI Krít 1 - -
10. TenerilTa - Juventus 1 - •
11. La Coruna - Frankfurt - - 2
12. Barcciona - Monaco 1 - -
13. Spartak M. • Galatasar. • X •
14. W. Bremen - Anderiecht 1 - -
Hcildarvinningsupphæöin:
3,7 milijón krónur
14 réttin 147.770 J kr.
13 réttir: 11.830 | kr.
12 réttin 880 | kr.
11 réttir: 0 Jkr