Morgunblaðið - 28.12.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.12.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐUR 295. tbl. 81.árg. ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bretland Umdeild tvíbura- fæðing 59 ára konu London. The Daily Telegraph. 59 ÁRA gömul bresk kona fæddi tvíbura á jóladag eftir fijósemisaðgerð og er fæðingin mjög umdeild í Bretlandi. Nokkrir embættismenn í heil- brigðisráðuneytinu og læknar sögðu fæðinguna óeðlilega en aðrir töldu konur hafa rétt til að eignast börn á hvaða aldri sem er. Bresk dagblöð skýrðu frá því að tvíburarnir hefðu verið teknir með keisaraskurði á sjúkrahúsi í London. Konan, sem var ekki nafn- greind, hafði gengist undir ftjó- semisaðgerð í Róm. Breskir læknar höfðu hins vegar neitað henni um slíka aðgerð vegna aldursins. „Við getum ekki komið í veg fyrir að konur fari í slíka meðferð í öðrum löndum en ef til vill efnum við til viðræðna við aðrar þjóðir um hvaða siðareglur eigi að gilda varðandi hinar miklu framfarir sem hafa orðið í læknisfræðinni," sagði Virginia Bottomley heil- brigðismálaráðherra. Sandra Macara, formaður sam- taka breskra lækna, sagði hins vegar að þetta mál kæmi aðems konunni og lækni hennar við. „Ég tel fullkomlega skiljanlegt að kon- an láti einskis ófreistað til að eign- ast barn, jafnvel þótt hún hafi verið heldur sein á sér,“ sagði hann. Læknirinn John Marks, fyrrver- andi formaður samtakanna, var á öndverðum meiði og benti á að konan þyrfti að annast tíu ára tví- bura þegar hún yrði 69 ára gömul. Konan átti ekki börn fyrir og er sögð auðug kaupsýslukona. Sæði úr eiginmanni hennar var notað til að ftjóvga egg úr ítalskri konu á þrítugsaldri og fjórum fóst- urvísum var komið fyrir í legi henn- ar. Bílferð frá London til New York London. Reuter. SEX ökumenn héldu í gær frá London og vonast til þess að verða fyrstir til að aka bifreið frá Bretlandi til New York. Okumennirnir ætla að aka í gegnum Ermarsundsgöngin, sem eru ætluð jámbrautalest- um. Þeir stefna að því að verða komnir til Póllands á fimmtu- dag. Síðan aka þeir þvert yfir Rússland og yfír ís á Berings- sundi til Alaska og Kanada. Þeir vonast til þess að koma til New York eftir 14 vikur, eða um páskana. Kohl um verkefni leiðtogafundar NATO Reuter Clinton á gæsaveiðum BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, fór á gæsaveiðar í Maryland í gær þrátt fyrir hörð mótmæli bandarískra dýraverndarsamtaka. Ein gæs veiddist í veiðiferðinni, sem tók tvær klukkustundir. Að henni lokinni kvaðst Clinton telja að veiðifélagi hans, Bill Brewster, þingmað- ur demókrata, hefði veitt gæsina. „Við skutum báðir á hana, en ég held að hann hafi drepið hana,“ sagði forsetinn. Öryggi Mið-Evr- ópu verði treyst New York Byssur af- hentar fyr- ir leikföng New York. The Daily Telegraph. MEIRA en 300 byssum var skipt fyrir ávisanir upp á leik- föng fyrir 100 dollara í leik- fangaverslun í New York fyr- ir jólin. Það var 14 ára piltur sem fékk hugmyndina að þessu og faðir hans, eigandi verslana- keðjunnar Toys R Us, hratt henni þegar í framkvæmd. Borgarbúar tóku framtakinu mun betur en menn gerðu sér vonir um, líklega vegna óánægju fólks með ofbeldið á götum borgarinnar. A jóladag hafði lögreglan í Washington Heights á Manhatt- an fyllt 15 kassa af skammbyss- um og stóran skáp af rifflum og öðrum skotvopnum. Dagblöð í New York sögðu að borgarbúar hefðu aldrei áður látið jafn margar byssur af hendi í einu og lýstu framtakinu sem ,jólakraftaverki“ sem New York-búar hefðu beðið eftir. „Ég vona, að Arafat átti sig á, að ég hef ekkert nýtt fram að færa,“ sagði Peres í gær áður en hann fór til Kaíró til viðræðna við fulltrúa PLO um brottflutning ísraelska herliðsins frá Gaza og Jeríkó. Hefur hann tafist vegna deilna um hve stórt svæði Palestínumenn fái við Jeríkó, um öryggismál vegna ísra- elskra landseta á Gaza og um það hverjir skuli gæta landamæranna milli Gaza og Egyptalands og Jeríkó og Jórdaníu. Mikið ber í milii Palestínumenn kreíjast 300 ferkm svæðis við Jeríkó en ísraelar buðu fyrst aðeins 27 ferkm. Hafa þeir að sumra sögn hækkað boðið í 70 ferkm en Palestínumenn telja það allsendis ófullnægjandi. Þetta þrátefli hefur meðal annars valdið því, að óánægja með Arafat fer vaxandi meðal Palestínumanna og í gær var skýrt frá því, að fjórir Bonn. Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, ætlar að leggja áherslu á það á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins, NATO, í Bruss- el 11.-12. janúar að fyrrverandi kommúnistaríki Mið-Evrópu, Pólland, Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland, fái auknar trygg- ingar fyrir öryggi sínu. Gert er ráð fyrir því að á fundinum verði fjallað um aðildarumsóknir þessara ríkja. Kohl sagði að líta yrði uppgang hins öfgafulla þjóðernisinna Vlad- ímírs Zhírínovskíjs í rússnesku kosningunum alvarlegum augum og jafnframt mætti ekki gleyma að þjóðernisöfgar hefðu sótt fram víðar en í Rússlandi. Zhírínovskíj hefur m.a. hótað Þjóðveijum kjamorkuárás og sagði sl. fimmtudag að Rússar ættu leyni- vopn sem væru mun öflugri en kjarnavopn og gætu með þeim eytt öllum Vesturlöndum. Kanslarinn sagði að þýsk utan- ríkisstefna yrði á næsta ári grund- völluð á evrópskri einingu, þar sem samstarf Þjóðveija og Frakka væri grunntónninn auk samvinnu við Bandaríkin í Atlantshafs- bandalaginu. Sjá frétt á bls. 31. Aukin svartsýni vegna deilna ísraela og Palestínumanna ísraelar segjast úti- loka meiri eftirgjöf Jerúsaiem, Blat. Reuter. SHIMON Peres, utanríkisráðherra ísraels, sagði í gær, að ísrael- ar hefðu ekkert meira að bjóða PLO, Frelsissamtökum Palestínu- manna, hvað varðaði brottflutning ísraelsks herliðs frá Gaza og Jeríkó og því væri nú komið að Yasser Arafat, leiðtoga samtak- anna, að gefa eftir. Hafa þessar deilur aukið svartsýni á fram- kvæmd friðarsamninga Israela og Palestínumanna. ísraelskir hermenn skutu til bana norskan gæsluliða Sameinuðu þjóðanna í Líbanon í gær. Töldu þeir, að hann og félagar hans væru skæru- háttsettir menn í Fatah-hreyfingu Arafats hefðu sagt af sér. Talsmaður SÞ í Líbanon sagði í gær, að ísraelskir hermenn hefðu skotið af skriðdrekum og sprengju- vörpum á norskan eftirlitsflokk skammt frá þorpinu Blat með þeim afleiðingum, að einn Norðmann- anna beið bana og annar særðist. Átti þetta sér stað á svokölluðu öryggissvæði í Suður-Líbanon, sem ísraelar ráða, en talsmenn ísraela segja, að þeir hafi talið Norðmenn- ina vera hóp skæruliða. Jan Egeland, aðstoðarutanríkis- ráðherra Noregs, mótmælti þessum atburði mjög harðlega við ísraelsk stjórnvöld í gær og sagði, að hann væri í raun óskiljanlegur. Norsku hermennirnir hefðu verið við venju- leg störf á eftirlitssvæði Sameinuðu þjóðanna. Yossi Beilin, aðstoðarut- anríkisráðherra ísraels, hefur harmað atburðinn og heitið ná- kvæmri rannsókn á honum. Reuter Sprengjuárás á ferðamenn íKaíró ÁTTA Austurríkismenn og átta Egyptar særðust í gær þegar herskáir múslimar köstuðu tveimur sprengjum og skutu á rútu nálægt fornri mosku í Kaíró. Tveir Austurríkismannanna særðust alvarlega, 25 ára karlmaður sem fékk byssukúlu í höfuðið og kona á sama aldri sem fékk skot í læri. Erlendum ferðamönnum hefur fækkað mjög í Egypta- landi undanfarna 18 mánuði vegna slíkra tilræða múslima sem vilja steypa stjórninni af stóli. 29 múslimar hafa verið teknir af lífi frá því í júní. Á myndinni kanna öryggisverðir rútuna sem ráðist var á í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.