Morgunblaðið - 28.12.1993, Síða 24

Morgunblaðið - 28.12.1993, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993 Bjartur í Sumarhúsum úr Sjálfstæðu fólki. Lifandi persónur skáldverka í daga- tali Islandsbanka Kristín Gunnarsdóttir myndskreytti Á NÆSTA ári fagnar íslenska þjóðin 50 ára afmæli lýðveldisins. Óhætt er að segja að fornar bókmenntir þjóðarinnar hafi átti og eigi ríkan þátt í því að efla sjálfstæðisvitund hennar m.a. vegna þess að þær voru skrifaðar á íslensku meðan flestar aðrar þjóðir skrifuðu á ritmáli kirkjunnar, latínu. Söguhetjur Islendingasagn- anna hafa margar hverjar öðlast sjálfstætt líf meðal lesenda og ritsnilld bókmenntanna hefur án efa haft mikil áhrif á íslenska tungu, segir í fréttatilkynningu frá íslandsbanka. í dagatali íslandsbanka fyrir árið 1994 eru kynntar persónur úr tólf íslenskum skáldverkum sem skrifuð hafa verið á þessari öld og hefur Kristín Ragna Gunn- arsdóttir gert afar fallegar teikn- ingar við textann. Persónuflóra þeirra er litrík og með því að taka örfá dæmi vill bankinn vekja at- hygli fólks á íslenskum skáldverk- um sem eru óþrjótandi uppspretta frásagnarlistar og fijórra hug- mynda. Skáldverkin sem dæmi eru tek- in úr í dagatalinu eru eftir höfund- ana Einar Má Guðmundsson, Guð- mund G. Hagalín, Guðberg Bergs- son, Guðmund Andra Torfason, Svövu Jakobsdóttur, Halldór Lax- ness, Þórberg Þórðarson, Fríðu Á. Sigurðardóttur, Vigdísi Gríms- dóttur, Ólaf Jóhann Sigurðsson og Davíð Stefánsson. Persónulýs- ingar eru ógleymanlegar þeim sem lesið hafa skáldverk þessara höfunda. Amnesty International • * Á fundinum kom fram að sam- tökin tóku á móti rúmlega 900 vor- kópaskinnum síðastliðið sumar. Verða þau sútuð og notuð til fram- leiðslu á flíkum og munum. Sam- tökin taka einnig á móti haustkópa- skinnum. Eggert Jóhannsson feld- skeri hefur verið stórtækastur í að nýta skinnin og hafa selskinnsflíkur hans fengið góða dóma. Þá kom fram að skinn hafa verið notuð í borðstofustóla sem Þórdís Zoéga Alþjóðleg herferð gegn „mannshvörfum“ og pólitískum morðum Vaxandi sala á spiki, kjöti og selsviðum SELABÆNDUR vilja alls ekki að nýting selastofna verði sett undir sjávarútvegsráðuneyti eins og boðað er í frumvarpi til laga sem nú liggur fyrir Alþingi. í ályktun aðalfundar Samtaka selabænda segir að sellátur hafi alltaf tilheyrt bújörðum og var ályktað að best færi að svo yrði áfram og að lög um nýtingu selastofnanna gerðu ráð fyrir því að þessi mál tilheyrðu landbúnaðarráðuneyti. AMNESTY International stendur um þessar mundir fyrir alþjóð- legri herferð gegn pólitískum morðum og „mannshvörfum". Meðal þeirra mála sem samtökin vilja vekja athygli á er morð á hjúkrunarkonu í Perú og „hvarf“ Tamíla á Sri Lanka. Perú Marta Crisóstomo García, 22 ára hjúkrunarkona, var myrt af einkenn- isklæddum hermönnum á heimili sínu í Huamanga í Perú þann 8. september 1989. Fyrr um daginn hafði Marta gefið sérstökum rann- sóknaraðila vitnisburð sinn vegna fjöldamorða hermanna á 30 bænd- um í bænum Cayara þann 14. maí 1988. Morðið á Mörtu hefur ekki verið rannsakað né ábyrgir aðilar sóttir til saka þó svo að dómstólar hafi undir höndum staðfestar frá- sagnir vitna. Marta var ein átta vitna að bændamorðunum, öll vitnin átta hafa verið myrt. Vinsamlegast skrifið kurteislega orðuð bréf til stjórnvalda í Perú og biðjið um að rannsókn verði framkvæmd á morðinu á Mörtu Crisóstomi Garcia og ábyrgir aðilar sóttir til saka. Póstfang: Presidenta Alberto Fujimori Presidente de la República Palacio de Gobierno Plaza de Arms Lima 1, Perú. Sri Lanka 159 ungir Tamílar „hurfu“ úr flóttamannabúðum í Vantharamo- olai á Sri Lanka þann 5. september 1990. Vitni.sáu lögreglumenn flytja mennina á brott í bílum, enginn þeirra hefur sést síðan. Lögreglan neitar að hafa þá í haldi. Seenit- hamby Pillanayagam, ungur fjöl- skyldufaðir, er einn þeirra sem „hvarf“ þennan dag. Hann og fjöl- skylda hans voru meðal þúsunda annarra sem leituðu hælis í flótta- mannabúðum til að flýja átök milli ríkishersins og vopnaðra and- spyrnuhópa. Vinsamlega skrifið kurteislega orðuð bréf til yfirvalda á Sri Lanka og biðjið um að „hvarf“ Seenit- hamby Pillanayagam og hinna 158 verði rannsakað. Biðjið um að rann- sóknin verði óháð og gagnger og að upplýsingar um afdrif eða veru- stað þeirra verði opinberaðar og ábyrgir aðilar sóttir til saka. Póstfang: The Hon J A E Amaratunga Minister of Home Affairs Ministry of Home Affairs Secret- ariat Independence Square Colombo Sri Lanka. Samstarfsverkefnið Samherjar Vinnuskólinn ræður grunn skólanemendur til starfa hefur hannað. Hafa þeir vakið at- hygli, meðal annars á sýningu í Danmörku. Þá nýtir handverksfólk um allt land selskinn við gerð smá- muna fyrir ferðamenn. Á síðasta ári seldist talsvert af skinnum til Danmerkur og Græn- lands en sá markaður virðist nú vera mettaður í bili. Þá kom fram á fundinum að nokkrar tilraunir hafa verið gerðar með vaxandi árangri að selja spik, kjöt og selsvið. BORGARRÁÐ hefur samþykkt að Vinnuskóli Reykjavíkur standi að samstarfsverkefninu Samherjar með grunnskólum í Reykjavík. Verkefnið verður í fyrstu rekið sem tilraunaverkefni á tímabilinu 1. janúar 1994 til 31. maí 1995. Ætlunin er að ná þannig til ákveð- inna nemenda í 9. og 10. bekk grunnskólanna. Annars vegar til þeirra sem eru í starfsdeildum eða sérdeildum skólanna og hins veg- ar þeirra nemenda sem af ýmsum orsökum hafa flosnað upp úr námi, týnast og skólar hafa ekki nein úrræði fyrir. Gert er ráð fyr- ir að þátttakendur fái greidd laun eins og almennt er í Vinnuskólan- um eða 90% af unglingatöxtum Dagsbrúnar. Gert er ráð fyrir að verkefninu verði stjórnað af Vinnuskóla Reykja- víkur og mun skólinn sjá um alla framkvæmd. Samstarfsaðilar eru Skólamálaráð Reykjavíkur, Skóla- skrifstofa Reykjavíkur og Fræðslu- skrifstofa Reykjavíkurumdæmis. Nemendum grunnskólanna verður boðin sérstök kynnig á atvinnulífinu, fyrirtækjum, stofnunum og starf- stéttum allt eftir samkomulagi við kennara viðkomandi nemanda. Istundaskrá Aðalreglan verður sú að kynningin eða atvinnuþátttakan verður ákveð- inn hluti af vikulegri stundaskrá nemanda. Þátttakendum utan grunn- skólans verður boðin tímabundin vinna í samráði við umsagnaraðila. Markmiðið er að nemandi geti snúið aftur til náms í sínum skóla að lok- inni vinnu. Auk beinnar vinnu verða sett upp námskeið þar sem farið er yfir ýmis gagnleg atriði svo sem vinnu, stéttarféiög, atvinnumiðlun og ráðningarstofur, tryggingamál og ýmis mál tengd réttindum, skyldum og uppbyggingu þjóðfélagsins. Beiðni um þátttöku í verkefninu berist Vinnuskólanum á sérstöku eyðublaði sem kennari viðkomandi nemanda fyllir út og skólastjóri sam- þykkir en sé um nemenda utan skóla að ræða þarf að fylgja stutt greinar- gerð frá skólasálfræðingi. Eiturefnagámur- inn sendur úr landi EITUREFNAGAMURINN sem fannst á reki í grennd við Vest- mannaeyjar í lok nóvember var sendur úr landi á miðvikudag í síðustu viku. Erlendur aðili hefur greitt allan kostnað sem af gámnum hlaust hér á landi en Siglingamálastofnun hefur ekki fengið skýr svör frá skipafélag- inu sem flutti hann um hvenær og hvar gámurinn lenti í hafinu. Að sögn Mikaels Ólafssonar full- trúa hjá Siglingamálastofnun var eiturefnagámurinn sendur áleiðis til Antwerpen. Vilja skýr svör Erlendur leigutaki, sem hafði gáminn á leigu, hefur greitt allan kostnað sem varð vegna gámsins hér á landi. Mikael sagði að leigu- takinn myndi krefja skipafélagið sem flutti gáminn um endur- greiðslu. Hann sagði að enn hefðu ekki fengist svör um það hjá skipa- félaginu hvenær og hvar gámurinn hefði lent í sjónum. Þá væri ekki ljóst hvort skipafélagið hefði til- kynnt'um gáminn til næsta strand- ríkis eftir að hann tapaðist eins og alþjóðareglur krefjast. ♦ ♦ ♦ Flugmaður- inn farinn BANDARÍSKI feijuflugmaðurinn Christopher Levelle, sem dvalið hefur hérlendis síðan á sunnudag meðan rannsókn fór fram á vand- ræðum þeim sem hann lenti í á flugi milli Glasgow og Reykjavík- ur og yfirlýsingum hans í kjölfar- ið, hélt af landi brott á Þorláks- messu. Kvöldið áður luku flugvirkjar við- gerð á hitakerfi flugvélar en í sam- tali við Morgunblaðið sagði Levelle að hann hefði þá slegið för sinni á frest vegna myrkurs og þess að veð- urskilyrði umhverfis Grænland voru léleg. Eftir skýrslutöku Loftferðaeftirlits af flugmanninum á þriðjudag sá Flugmálastjóm ekki ástæðu til að óska eftir að hann dveldist hérlendis lengur. C4V£GI65 -S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.