Morgunblaðið - 28.12.1993, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 28.12.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993 25 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Gunnar Einarsson tekur fyrstu skóflustunguna að nýrri björgunarstöð. Viðstaddir voru björgunarsveit- armenn og bæjarstjórinn, Karl Björnsson. Selfoss Fyrsta skófhistungan a,ð nýrri björgunarstöð Selfossi. FYRSTA skóflustungan að nýrri björgunarstöð á Selfossi var tekin 18. desember. Um er að ræða hús með um 400 fermetra nýtanlegt gólfpláss. Húsið verður að hluta á tveimur hæðum. Það eru björgunarsveitarmenn úr Tryggva á Selfossi sem standa að byggingu stöðvarinnar og mun hún leysa af hólmi eldra húsnæði þeirra við Hrísholt. Nýja stöðin verður á Austurvegi 54. Fram- kvæmdir við björgunarstöðina verða boðnar út í janúar og bygg- ingu lokið á næsta ári. „Það fer auðvitað eftir áhuga manna og ýmsum aðstæðum hvernig okkur gengur með þetta hús,“ sagði Gunnar Einarsson, formaður sveitarinnar, er hann tók fyrstu skóflustunguna. Hann . sagði að sveitin væri nú vel búin tækjum og því væri unnt fyrir björgunar- sveitarmenn að( einbeita sér að byggingu hússins. Sig. Jóns. Björgunarstöð - leikskóli Húsnæðis- fléttaá Selfossi Selfossi. FYRSTA skóflustunga að björg- unarstöð á Selfossi sem tekin var nýlega er liður í því að hægt sé að opna 25 plássa leikskóladeild og gera breytingar á skóladag- heimili. Karl Björnsson bæjarstjóri upp- lýsti við athöfn, þegar tekin var skóflustunga að nýrri björgunar- stöð, leikfléttu sem í gangi er á Selfossi og ganga mun upp um mitt næsta ár. Upphaf fléttunnar er að bæjar- sjóður keypti fyrir tveimur árum iðngarða af Atvinnuþróunarsjóði Selfoss með ákveðnum breytingum á lánum. Síðan flutti áhaldahús bæjarins í iðngarðana. Gamla áhaldahúsið var að hluta tekið und- ir slökkvistöð en hinn helmingur þess settur ásamt einni milljón króna upp í kaup á Tryggvabúð, gömlu björgunarstöð björgunar- sveitarinnar Tryggva. Björgunar- sveitin mun selja áhaldahúsið og byggja nýju björgunarstöðina og ljúka því verki á næsta ári. Þá er fyrirhugað að skátar fái gömlu Tryggvabúðina undir sína starfsemi og flytji úr húsnæði við Tryggva- götu, sem áður hýsti Bæjar- og héraðsbókasafnið. I safnahúsið er síðan fyrirhugað að skóladagheimil- ið flytji en það er nú til húsa í leik- skólanum Alfheimum og teppir þar eina deild. Þegar svo kapallinn er genginn upp verður unnt að stytta biðlistann eftir leikskólaplássum og hefja starfrækslu leikskóladeildar í Álfheimum, en nú vantar pláss fyr- ir 60 böm á leikskóla. Karl benti á að þessi flétta kæmi mörgum til góða og væri sérlega ánægjulegt að koma henni í kring. - Sig. Jóns. «flla b r é f a b i n d i Þið hringið - við sendum Múlalundur Vinnustofa SÍBS • Hátún 10c Símar. 688476 og 688459 • Fax: 28819 Una ap, OBMV mxmm aoniwuin * eteaimn* eumtai 486 SX, 25 MHz, 240 MB diskur, 4 MB minni, LocalBus, laust sæti fyrir Pentium örgjörva, Vesa skjástýring, MS DOS 6.0 stýrikerti, Windows 3.1,14" SVGA/LR litaskjár, lyklaborö og mús. Fyrir aðeins krónur: 486 DX, 33 MHz, 4 MB minni, 1 MB skjáminni, LocalBus, laust sæti fyrir Pentium örgjörva, Vesa skjástýring, MS DOS 6.0 stýrikerfi, Windows 3.1, 14" SVGA/LR litaskjár, lyklaborö og mús. V á mónuði í 24 mónuði. Staögreiösluverö tölvunnar er kr. 126.000. Ofangreind afborgun miöast viö staögreiöslusamning Glitnis og mánaöarlegar greiöslur í 24 mánuöi. Innifaliö í afborgun er VSK, vextir og allur kostnaöur. á mánuði í 24 mánuði. Staögreiösluverö tölvunnar er kr. 164.900. Ofangreind afborgun miöast viö staögreiöslusamning Glitnis og mánaöarlegar greiöslur (24 mánuöi. Innifaliö ( afborgun er VSK, vextir og allur kostnaöur. Hjá Ambra er öryggi ekki aðeins innantóm fullyrðing, heldur geta kaupendur verið fullkomlega áhyggjulausir um sinn hag. Viö stöndum við okkar loforð. Hjá Ambra merkir afkastageta ekki aðeins skjótan svartíma og hraöa vinnslu, heldur afburðagæði. Það sama á við um alla okkar þjónustu, vörur og sérfræöilega aðstoð. Hjá AMBRA felast góð kaup ekki aðeins í hagstæðu verði á tilteknum vélargerðum, heldur bjóðum við frábært verö á öllum vörum og þjónustu, sé miðað við gæði. Einstaklega hagstætt verð miðað viö afköst. Örugg viðskipti við áreiðanlegt fyrirtæki. Traustar vörur með AMBRA ábyrgð. Bm þú ¥il Tölvunar í þessari auglýsingu eru aðeins tvö dæmi um þá möguleika sem þér standa til boða. Hægt er að aðlaga tölvuna nákvæmlega að þínum þörfum. Þú ákveður diskstærð, minni, skjástærð og velur þér þann aukabúnað sem þú vitt fá. Við útbúum svo tölvuna eftir þfnum óskum fljótt og örugglega - þér að kostnaöarlausu! A M B R -A NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 - S(MI 69 77 OO Allíaf skrefi á undan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.