Morgunblaðið - 28.12.1993, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993
AKUREYRI
Rússar kaupa Lísu Maríu frá Ólafsfirði
60 daga sigling til
nýrra heimkynna
LÍSA María ÓF, sem er fjölveiðiskip, lagði úr höfn á Ólafsfirði á
aðfangadag, en skipið hefur verið selt rússneska útgerðarfyrirtæk-
inu Sobryflot. Utgerðarfélagið Stígandi á Ólafsfirði átti skipið.
_ . ->< * -*** t Morgunblaðið/Rúnar Þór
Leitað a aðfangadag
KAFARAR tóku þátt í leitinni á aðfangadag auk fjölmenns liðs björgunarsveitarmanna og þá var sér-
þjálfaður leitarhundur sendur frá Reykjavík. Skipulegri leit er nú hætt, en um næstu helgi verða fjör-
ur gengnar og leitað af sjó.
Skipulegri leit að Sigtryggi Jónssyni hefur verið hætt
Fjölmenni leitaði án
árangurs jóladagana
SKIPULEGRI leit að Sigtryggi Jónssyni sem staðið hefur yfir
á Akureyri um öll jólin hefur verið hætt. Sigtryggur fór frá
heimili sínu Hríseyjargötu 21 á Akureyri síðdegis á Þorláks-
messu og hefur ekki spurst til hans síðan.
Fjölmennt lið björgunarsveitar-
manna úr Hjálparsveit skáta á
Akureyri og Flugbjörgunarsveitinni
á Akureyri hafa frá því aðfaranótt
aðfangadags leitað um allan bæ,
fjörur hafa verið gengnar og leitað
á sjó. Þá var komið með sérþjálfað-
an leitarhund frá Reykjavík á að-
fangadag sem notaður var við leit-
ina. Kafarar tóku þátt í leitinni og
leituðu við bryggju, allt frá Oddeyr-
arbryggju og út að slipp. Engar
haldbærar vísbendingar hafa komið
fram um ferðir Sigtryggs, sem jafn-
an er kallaður Tryggvi.
Fjörur gengnar
Pétur Torfason í svæðisstjóm
björgunarsveitanna sagði að leitað
hefði verið í fyrirtækjum á Odd-
eyri, upp með Glerá og víðar og
þá hefðu björgunarsveitarmenn í
slysavarnafélögum á Olafsfirði,
Dalvík, Árskógsströnd, Hrísey,
Grenivík og Svalbarðsströnd tekið
þátt í leitinni með heimamönnum
jóladagana. Búið væri að kemba
ákveðin svæði margoft en án árang-
urs. Formlégri leit væri nú hætt,
P HIN árlega jólatréskemmtun
íþróttafélagins Þórs verður hald-
in í félagsheimilinu Hamri á
morgun, miðvikudaginn 29. desem-
ber og hefst hún kl. 16.30. Gengið
verður í kringum jólatré, jólasveinar
koma í heimsókn og boðið verður
upp á kaffihlaðborð.
en enn væri verið að svipast um
eftir Tryggva. Hann sagði að um
næstu helgi væri fyrirhugað að
ganga íjörur og leita af sjó og má
búast við að fjöldi manna taki þátt
í þeirri leit, sem nú er verið að skipu-
leggja.
Sigtryggur Jónsson er 73 ára
gamall, lágvaxinn, dökkhærður en
aðeins farin að grána. Hann var í
dökkum frakka, bláum buxum og
í kuldaskóm þegar hann fór að
heiman.
Nokkrir fulltrúar frá rússneska
fyrirtækinu voru í Ólafsfirði í
nokkrar vikur fyrir jólin þar sem
þeir voru að undirbúa siglinguna
og kynnast skipinu, en aðsetur
fyrirtækisins er á Sakhalin-eyju í
Kyrrahafi, skammt norðan við
Japan. Fyrirtækið sem keypti Lísu
Maríu ÓF er stórt og á um 200
skip sem það gerir út.
Frá því skipið lagði úr höfn á
Ólafsfirði á aðfangadag var 60
daga sigling framundan til nýrra
heimkynna. Með skipinu fór einn
íslendingur, Magnús Lórenzson
vélstjóri.
■ SALA flugelda hófst í gær hjá
íþróttafélaginu Þór. Opið er dag-
lega frá kl. 10 til 22 og á gamlárs-
dag er opið frá kl. 9 -16. Allur
ágóði af flugeldasölunni rennur til
íþrótta- og æskulýðsstarfa.
Tjamarkvartettmn
Tónleikar
á Dalvík
Tjarnarkvartettinn heldur tón-
leika í Samkomuhúsinu á Dalvík,
„Ungó“, fimmtudagskvöldið 30.
desember og hefjast þeir kl. 21.
Á efnisskránni eru djass- og dæg-
urlög, negrasálmar og sígild jólalög.
Tjarnarkvartettinn skipa þau Rósa
Kristín Baldursdóttir, sópran, Krist-
jana Arngrímsdóttir, alt, Hjörleifur
Hjartarson, tenór, og Kristján Hjart-
arson, bassi.
Tjarnarkvartettinn hefur víða
komið fram að undanförnu og er
fyrirhugað að næstu tónleikar verði
á Húsavík sunnudaginn 2. janúar.
(Fréttatilkynning.)
Stofnar fyrirtæki í Norður-Svíþjóð
Kynnir íslenskar vörur
AKUREYRINGURINN Sigurður Baldursson hefur stofnað fyrirtæki í
Umea í Norður-Svíþjóð þar sem hann er nú búsettur og ætlar hann
að kynna íslenskar vörur þar í landi eftir áramótin.
Sigtryggur Jónsson
Fyrirtæki Sigurðar heitir Baldurs-
son Trading og er tilgangurinn að
efla vörusölu og þjónustu á milli ís-
lands og Svíþjóðar. Á meðal þess sem
hann er að selja ytra er handunnin
ullarfatnaður af ýmsu tagi, hnakkar
frá Hnakkvirki á Akureyri og margs
konar vörur fyrir hestamenn, en ís-
lenska hestinn segir hann vinsælan
þar í landi. Frá Svíþjóð flytur hann
síðan inn aftanívagna í snjósleða og
ýmsa aukahluti, vetrarklæðnað,
pípulagningaverkfæri, snjótroðara
og tæki til að slípa skautasvell auk
þess sem hann býður tæknilega ráð-
gjöf fyrir bæjarfélög sem vilja gera
góð skautasvell.
V örukynningar
Sigurður verður á ferðinni á Akur-
eyri helgina 15. til 16. janúar næst-
komandi þar sem hann verður með
vörukynningu á snjósleðasýning sem
þá verður haldin og í febrúar eða
mars ætlar hann að efna til kynning-
ar á íslenskum vörum í Umea og
hefur hann áhuga á að bæta við sig
fleiri vöruflokkum og vill því gjarnan
heyra í þeim sem vilja selja vörur
sínar til Svíþjóðar.
Umea er um 100 þúsund manna
bær á sömu breiddargráðu og
Reykjavík og segir Sigurður að veð-
urfar þar sé svipað og á íslandi.
50% fall í íslensku í kenn-
aradeild á haustmisseri
HELMINGUR þeirra nemenda sem tóku próf í íslensku við kennara-
deild Háskólans á Akureyri féll á prófinu. Niðurstaða er fengin úr
fjórum af fimm prófum sem þreytt voru í kennaradeildinni á haust-
misseri og er fallið frá 5 og upp í 50%. Allir sem sóttu um skólavist
og höfðu stúdentspróf fengu inni í deildinni, en í ljósi þessarar reynslu
kemur til álita að velja nemendur úr hópi umsækjenda. Kennsla hófst
í kennaradeild við skólann síðasta haust, 94 sóttu um í upphafi, 76
nemendur hófu námið en þeir er nú um 65 talsins.
Alls mættu 48 nemendur í próf í þeirra. Minnst fall var í námskeiði
íslensku og féllu 24 þeirra. I stærð-
fræðipróf mættu 47 nemendur og
féllu 23. Þá mættu 59 nemendur í
próf í aðferðafræði og féllu 20
Kennarar
Gagnfræðaskóli Akureyrar leitar eftir kennara frá
og með næstu áramótum til sérverkefna.
Upplýsingar gefa: Skólastjóri í síma 96-21018.
Aðstoðarskólastjóri í síma 96-23351.
sem nefnist ísland og umheimurinn,
sem er sögu- og landafræðinám-
skeið, en í það próf fóru 64 nemend-
ur og féllu 4.
5-50% fall
Guðmundur Heiðar Frímannsson
forstöðumaður kennaradeildar sagði
að þetta fall í deildinni, frá 5% og
upp í 50%, væri ívið meira en hann
hefði fyrirfram búist við. Þessar töl-
ur væru þó ekki endanlegar, þar sem
fólki hefði verið gefinn kostur á að
segja sig úr prófi eða prófum og
taka þau þess í stað í janúar. Þó
nokkur hópur hefði kosið að nýta
sér þann möguleika, þannig að í
sumum gp’einum ættu 25 til 30
manns eftir að taka próf.
Guðmundur sagði að fallið í kenn-
aradeildinni nyrðra væri meira en í
Kennaraháskóla íslands, en á það
bæri að líta að úr u.þ.b. 320 manna
hópi umsækjenda væru valdir úr
þeir bestu, en einungis um 120
manns væru teknir inn í skólann
hver ár. Þá sagði hann að þessi fall-
prósenta væri áþekk og hjá sam-
bærilegum stofnunum og nefndi fé-
lagsvísindadeild Háskóla íslands
sem dæmi.
Engin ein skýring
„Það er engin ein skýring á þessu
falli í kennaradeildinni," sagði Guð-
mundur. Hann sagði nemendur með
mjög mismunandi undirbúning að
baki og ef til vill mætti segja að
uppbygging námsins á haustmisseri
hefði ekki hentað hópnum, en tvö
stór námskeið, íslenska og stærð-
fræði, hefðu sett svip sinn á misser-
ið. Greinilegt væri að margir nem-
anna þyrftu meiri undirbúning fyrir
þessi námskeið og spurning væri
hvort hægar þyrfti að fara yfir
námsefnið.
„Við munum takaþetta allt saman
til gaumgæfilegrar athugunar,
skoða alla þætti málsins, skipulag
námsins, bakgrunn nemanna, kenn-
ara við deildina og námsefnið sjálft.
Við vonum að kennslukönnun þar
sem nemar sögðu álit sitt á ýmsu
er varðar deildina gefi okkur ein-
hverjar vísbendingar,“ sagði Guð-
mundur.
Alls sóttu tæplega 100 manns um
nám við deildina, en þegar kennsla
hófst í haust mættu 76. Nú eru um
65 manns við nám í deildinni. Allir
sem sóttu um og uppfylltu skilyrði
um stúdentspróf fengu aðgang að
deildinni, en að sögn Guðmundar
kemur til greina í ljósi þessarar
reynslu að velja strax í upphafi úr
hópi nemenda þá sem fá skólavist,
en með hvaða hætti það hugsanlega
yrði gert væri óljóst.