Morgunblaðið - 28.12.1993, Page 49

Morgunblaðið - 28.12.1993, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1993 49 Eva Sæmunds- dóttir — Minning Fædd 22. ágúst 1908 Dáin 16. desember 1993 Hvað boðar nýárs blessuð sól? Hún boðar náttúrunnar jól. Hún flytur líf og líknarráð. Hún ljómar heit af Drottins náð. Þetta upphafserindi úr sálmi Matthíasar Jochumssonar var í miklum metum hjá elskulegri tengdamóður minni, Evu Sæ- mundsdóttur, sem verður jarð- sungin frá Keflavíkurkirkju í dag, þriðjudaginn 28. desember. Nú á haustdögum hrakaði heilsu hennar mjög og var fljótlega sýnt að hveiju dró. Laust eftir mið- nætti 16. desember sofnaði hún inn í nóttina, þreytt og hvíldinni fegin. Ferðin mót blessaðri nýárssólinni var hafin. Eva var fædd 22. ágúst 1908 í Ólafsvík. Foreldrar hennar voru sæmdarhjónin Ragnheiður Elín Guðbrandsdóttir og Sæmundur Skúlason, sem þá bjuggu í Ólafs- vík, en fluttust síðar að Tröð í Eyrarsveit. Eva var fjórða bam þeirra hjóna af sjö. Næstyngst er Lára, sein nú er ein á lífí af þeim systkinum. Þegar Eva var aðeins átta ára gömul gerðist sá hörmulegi atburð- ur að móðirin unga veiktist og féll frá eftir skamma sjúkdómslegu. Stóð þá Sæmundur einn eftir með bömin sín sjö og enga aðstoð að fá. Hvað var til ráða? Bömunum var komið fyrir hjá vandalausum á hinum ýmsu bæjum í hreppnum. Eva fór þá fyrst að Móabúð í Eyrarsveit til Þórdísar og Ásgeirs Kristjánssonar, sem þar bjuggu. Þau vom sómafólk sem reyndist Evu afar vel, en atvikin höguðu því þannig að dvölin varð þar ekki löng. Fór hún þá að Hjarðarfelli og eftir það á ýmsa aðra staði. Geta má nærri hve þetta allt hefur haft djúp áhrif á sálarlíf móður- lausa barnsins. Ekki var um skóla- göngu að ræða utan nokkrar vik- ur. En oft hafði Eva á orði við mig á sínum efri ámm: „Mikið væri gaman að vera ungur í dag og fá að læra“. Seinna kvæntist Sæ- mundur faðir Evu Júlíönu Gísla- dóttur og fluttist þá Eva til þeirra um tíma. Þau Sæmundur og Júl- íana eignuðust tvö börn sem bæði era látin. Fimmtán ára að aldri fluttist Eva til Stykkishólms. Var hún þá í vist eða við aðra vinnu sem til féll. í Stykkishólmi kynntist hún ungum manni, Jóni Hjaltasyni verkstjóra. Felldu þau hugi saman og stofnuðu fljótlega til hjúskapar. Þau hófu búskap í Vestmannaeyj- um, voru þar um eins árs skeið, fluttu síðan aftur til Stykkishólms þar sem þau bjuggu til ársins 1930, að þau fluttu til Reykjavíkur. Þá vom miklir krepputímar og lífsbar- áttan hörð. Erfitt var um húsnæði og algeng sjón var vor og haust að sjá vömbíla hlaðna húsgögnum og annarri búslóð. Sumir voru allt- af að flytja, þár á meðal voru þau Jón og Eva. Jón var svo lánsamur að fá vinnu við verkstjórn hjá Vegagerð ríkis- ins, en úr húsnæðismálum rættist ekki til fulls fyrr en um 1956; þá réðust þau í að byggja, Jón þá hátt á sextugsaldri. Mikil var gleð- in er þau gátu flust í húsið sitt í Básenda 10 árið 1958. Ekki auðn- aðist þeim þó að búa lengi í eigin húsnæði. Örlögin gripu í taumana. Heilsu Jóns fór að hraka og það svo ört að sýnt var að hann yrði að komast á hjúkrunarheimili. Varð þá að ráði að hann flyttist til Keflavíkur, þar sem tvær dætur þeirra Evu bjuggu. Hann fékk vist- un á dvalarheimili aldraðra í Kefla- vík, en lést á sjúkrahúsi Keflavíkur þann 7. desember 1972. Eva flutt- ist til Keflavíkur 1970 og hlúði að manni sínum eftir fremsta megni. Hún keypti lítið hús að Kirkjuvegi 14 þar sem hún bjó svo lengi sem hún gat annast um sig sjálf. Að hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði fór hún rúmlega áttræð og dvaldist þar til dauðadags. Á Garð- vangi leið henni vel. Þar var ein- staklega vel hugsað um hana og er starfsfólki öllu færðar hugheilar þakkir fyrir frábæra umönnun og hjálp. Börn Evu og Jóns eru fjögur. Elstur er Hjalti Ólafur, kvæntur undirritaðri og eiga þau sjö börn, þá Ragnheiður Elín, gift Ingva Brynjari Jakobssyni, þau eiga sjö börn. Jóhannes Bjarni, ókvæntur, á einn son og yngst er Sæbjörg Elsa. Hún'giftist Indriða Adólfs- syni, eiga þau einn son, en slitu samvistum. Barnabamabörnin em tuttugu og átta og barnabarna- barnabörnin era tvö. Eva var mikil höfðingskona, hreinskiptin og sönn. Hún var glað- lynd og gestrisin og naut þess að hafa margt í kringum sig, svo lengi sem heilsa og kraftar leyfðu. Nú þegar ævi hennar er öll, er mér efst í huga þakklæti. Þakklæti fyr- ir alla hennar elskusemi við mig, fyrir allt sem hún var. Megi blessun guðs fylgja henni á nýrri vegferð. Halldóra Þ. Sveinbjörnsdóttir. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. + Okkar ástkaeri faðir, tengdafaðir og afi EÐVALD HINRIKSON MIKSON, er látin. Jarðaförin auglýst síðar. Jóhannes Eövaldsson, Katherin Eðvaldsson, Atli Eðvaldsson, Steinunn Guðnadóttir, Anna Eðvaldsdóttir, Gfsli Guðmundsson, og barnabörnin hans. + Fósturfaðir okkar, HJALTI EINARSSON, Austurbrún 6, andaðist 24. desember. Fyrir hönd vandamanna, Dfana Garðarsdóttir, Steinunn Garðarsdóttir. t Ástkœr faðir okkar og fósturfaðir, ÞORSTEINN JÚLÍUSSON, fyrrv. skipstjóri frá Neskaupsstað, lést á Hrafnistu í Reykjavík aðfararnótt jóladags. Ársæll Þorsteinsson, Guðný Þorsteinsdóttir, Halldór Haraldsson, + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR frá Vfðigerði, síðasttil heimilis í Bergholti 3D, Biskupstungum, lést í Landspítalanum 24. desember. Ásbjörn Ólason, börn, tengdabörn og barnabörn. + Eiginmaður minn, STEFÁN ÁGÚST GUÐJÓNSSON, Sólheimum 27, andaðist í Landspítalanum 23. desember sl. Bergþóra Valdimarsdóttir. . + Elskulegur eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, RÖGNVALDUR BJARNI HARALDSSON, lést á heimili sínu, Brunnum 15, Patreksfirði, 25. desember. Valgerður Sveinsdóttir, Sveinn Rögnvaldsson, Gróa Bjarnadóttir. + Móðurbróðir okkar, MARINÓ MAGNÚSSON, Jaðri, Bíldudal, andaðist í Patreksfjarðarspítala á jóladag. Theódór Jónsson, Erna Jónsdóttir, Edda Jónsdóttir, Sigurður Þ. Árnason, Jóna Jónsdóttir, Njáll Þorbjörnsson. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang amma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Svalbarða 11, Hafnarfirði, lést í Landspftalanum 26. desember. Þorleifur Gunnarsson, Lilja Sveinsdóttir, Haukur Jónsson, Guðrún Sveinsdóttir, Þórarinn Kristinsson, Anney Sveinsdóttir, Frans Arason, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, GÍSLI JAKOBSSON bakarameistari, Skipasundi 24, Reykjavík, lést í Landspítalanum aðfaranótt 26. desember. Ólöf S. Gísladóttir, Pétur Hjálmsson, Gunnlaugur H. Gfslason, Halla Guðmundsdóttir, Guðbjörg Gísladóttir, Sigurður Sigurðsson, Þorsteinn Gíslason, Ásdís Jónsdóttir, Gísli Gíslason, Hallbera Jóhannesdóttir, Guðrún Gísladóttir, Þorvarður Guðlaugsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS GUÐLAUGSDÓTTIR, Búðargerði 1, Reykjavfk, andaðist á heimili sínu föstudaginn 24. desember. Helgi Kristófersson, Margrét Einarsdóttir, Kristófer Kristófersson, Sigrún Alda Kjærnested, Magnús Elvar Magnússon, Sigríður Pála Konráðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN ÞORVALDSSON slökkviliðsmaður, Nónvörðu 10, Keflavík, lést á heimili sínu 26. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Jane Petra Gunnarsdóttir, Gunnar Þ. Jónsson, Inga M. Ingvarsdóttir, Theodór G. Jónsson, Ragnheiður Thorarensen, Guðbjörg I. Jónsdóttir, Róbert Þ. Guðbjörnsson, Örn S. Jónsson, Ása K. Margeirsdóttir, Rúnar Már Jónsson, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.