Morgunblaðið - 09.01.1994, Síða 16

Morgunblaðið - 09.01.1994, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 að stundum líða meira en þijú ár frá héraðsdómi þar til dómur geng- ur í Hæstarétti. Dómurum í Hæstarétti hefur fjölgað úr sex í átta á þessum árum frá 1976 og komið hafa til starfa tveir löglærðir aðstoðarmenn, sem eru ráðnir til tveggja ára í senn. Breytingarnar hafa leitt til erfið- leika vegna þrengsla hér í húsinu. Nú starfar Hæstiréttur í tveimur deildum. Önnur er fimm manna deild og hin þriggja manna. Það er þingað hér á morgnana alla virka daga á starfstímanum. Hér eru tveir réttarsalir og er sá minni ófullnægj- andi, það vantar fundarherbergi og í raun viðunandi aðstöðu fyrir starfsfólkið.“ — Þú segir að ekki verði til lengdar unað við dráttinn á sumum málum. Hvað er til bragðs að taka? „Nú er komið til allsheijarnefndar Alþingis stjórnarfrumvarp sem felur í sér ýmsar ráðstafanir til að flýta málum svo sem hækkun áfrýjunarfj- árhæðar og fjölgun dómara. Um það er ekki einhugur meðal dómara í Hæstarétti, því miður, hvernig að þessu skuli staðið. Það eru ýmsir sem telja að vandinn verði ekki leystur nema með því að stofna nýtt dómstig. Ég vil minna á að dómstigin hérlendis voru fleiri en tvö áður fyrr. Þannig voru þau þijú frá 1800, er nútímadómstólastarf hófst hérlendis, fram til 1920 er dómsvald Hæstaréttar í Danmörku var afnumið." — Hver er þín skoðun? „Hún er sú að það sé til vinnandi að reyna að gera umbætur með þeim hætti sem lagt er til í frum- varpinu sem nú er til meðferðar í Alþingi." — Hvað mælir gegn því að fjölga dómstigum um eitt? „Kostnaður og ef til vill byggða- sjónarmið. Það er erfitt að sjá að til séu næg verkefni nema fyrir einn dómstól á millidómstigi sem þá yrði sjálfsagt í Reykjavík." — Hvað þýðir þetta mikla álag á dóriíarana? „Það þýðir að stóru einkamálin bíða.“ — Það er ekki slegið af faglegum kröfum? „Nei, það er ekki gert.“ Fallegt hús í staðinn fyrir svart bílastæði — Þið sjáið fram á úrlausn í hús- næðismálum. „Já, þetta hús var tekið í notkun árið 1949 og þótti gott miðað við aðstæður sem þá voru í réttinum og hugmyndir manna um vinnuað- stöðu sem ekki voru þær sömu og nú er. Það hefur lengi verið rætt um að bæta húsnæði réttarins. Við höfðum sjálfir um nokkurn tíma von um að komast að í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Um skeið var ætlunin að við fengjum hluta af húsi sem átti að byggja milli núverandi dóm- húss og íþróttahúss Jóns Þorsteins- sonar. Það hefur ekki enn verið ráðist í þá framkvæmd og sjálfsagt hefur stjórnarráðið full not fyrir bygginguna sem þar kann að rísa. Síðan varð það niðurstaðan í um- ræðum innan réttarins að reyna að ýta málinu aftur af stað. Við töldum æskilegt að rétturinn væri í gamla miðbænum. Athygli okkar beindist að lóð rétt hjá núverandi dómhúsi, þ.e. bílastæðinu á horni Ingólfs- strætis og Lindargötu. Undirtektir voru góðar og eins og vera ber tók dómsmálaráðherra málið í sínar hendur og skipaði byggingarnefnd. I sumar fór fram stór samkeppni og bárust fjörutíu tillögur. Fyrstu verðlaun hlaut tillaga frá arkitekta- stofunni Studio Granda sem er teiknuð af Margréti Harðardóttur og Steve Christer. Það hefur verið Ekkf I\lýll dómhús Hæslaréllar NÝJA dómhúsinu hefur verið valinn staður milli Landsbókasafnsins, Þjóðleikhússins og Arnarhvols. Ljósmyndin af líkönum þessara bygg- inga sýnir hvernig dómhúsið mun falla inn í umhverfið. álum hefur ljölgað og reyndar einnig dómurum og öðru starfsliði," segir Þór. „Breytingin er mjög mikil að því er varðar málafjölda. Á fyrsta árinu, 1976, var 244 málum skotið til Hæstaréttar með áfrýjun eða kæru. Á árinu 1993 urðu þau 520. Dómarnir árið 1976 voru 139 en á þessu ári 436. Þetta er auðvitað geysilega mikil aukning og er hún kannski mest áberandi í opinberu málunum en þeim fjölgaði úr 21 í 107. Það hefur óneitanlega farið svo að sum mál dragast Iengur en önnur og satt að segja svo mikið að við það verður ekki unað til lengdar. Málum hér má skipta í þrennt eftir því hvaða tíma þau taka: Kærumál, opinbet* mál og einkamál. Kærumál- in, sem ekki eru flutt munnlega, og opinberu málin, sem flutt eru munn- Morgunblaðið/Kri8tinn Á tímamótum ÞÓR Vilhjálmsson í réttarsal Hæstaréttar, sem hefur verið starfsvettvangur hans í seytján ár. Þór Vil- hjálmsson hæstarétt- ardómari í viðtali um Hæstarétt, stöðu dóm- stólanna og refsipólitík Viðtal: Páll Þórhallsson ÞOR Vilhjálmsson hefur nú fengið leyfi frá störfum í Hæstarétti eftir að hafa átt þar sæti frá 1976. Morgunblaðið heimsótti Þór milli jóla og nýárs á skrifstofu hans og ræddi við hann um Hæstarétt og stöðu dóm- stólanna. Þór var forseti réttarins 1983- 1984 og frá 1. janúar 1993 til síðustu ára- móta. Þá tók hann við embætti í nýstofnuð- um EFTA-dómstóli úti í Genf. Ef sá dóm- stóll starfar til frambúðar, sem örðugt er að spá fyrir um, má gera ráð fyrir að Þór komi ekki aftur til starfa við Hæstarétt. Nú í vikunni var dregið um hversu lengi hver dómari situr og kom í hlut austuríska dóm- arans og Þórs að sitja í þijú ár en hinir dómaramir þrír silja í sex ár. Þór var fyrst beðinn um að líta um öxl á þessum tímamót- um og riíja upp hvaða breytingar hefðu helstar orðið á störfum og starfsháttum Hæstaréttar frá því hann tók þar til starfa. lega, eru afgreidd nokkurn veginn eins þau berast. Þetta kemur niður á meðferðartíma einkamála, sem eru munnlega flutt. Mörg þessara mála hafa dregist allt of lengi. Málsmeðferðartími í einkamálum, sem dæmd eru af fimm dómurum, hinum stærri einkamálum, getur nú verið ailt að tvö ár frá því að lög- menn ljúka sínum undirbúningi. Lögmennirnir þurfa sinn tíma svo æsldlegt aö þyngja refsíngar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.