Morgunblaðið - 09.01.1994, Side 38

Morgunblaðið - 09.01.1994, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 ATVINNIIA UGL YSINGAR Fasteignasala í Reykjavík, í fullum rekstri, óskar eftir sam- starfi við löggiltan fasteigna- og skipasala. Svör sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 13. janúar merkt: „Löggiltur - 4165.“ Með allar upplýsingar verður farið sem trúnaðarmál. Atvinnuþróunar- félag Suðurnesja auglýsir Starfsmaður óskast til að annast daglegan rekstur félagsins. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknif berist til stjórnar félagsins fyrir 21. janúar 1994. Útflutningur Útflutningsfyrirtæki óskar eftir starfskrafti til sölumennsku, skjalagerðar og almennra skrifstofustarfa. Enskukunnátta nauðsynleg svo og bílpróf. Umsóknir skilist inn á auglýsingadeild Mbl., merktar: „Fiskur - 12144“, fyrir 14. jan. Matvælaframleiðendur Vantar fyrirtæki þitt tæknimann? Hef áhuga á því að starfa að nýsköpun eða við breyt- ingu á tæknistigi ífyrirtæki þínu. Er matvæla- fræðingur að mennt. Áhugasamirvinsaml. skrifiðtil auglýsingadeild- ar Mbl., fyrir nk. föstud. merkt: „Tæknimaður". Bókari Fóstrur Leikskólinn Stubbasei, Kópavogsbraut 9, óskar eftir fóstru eða starfsmanni með aðra uppeldismenntun nú þegar. Einnig óskast fóstra eða þroskaþjálfi í 50% starf f.h. í stuðning við barn til hausts. Nánari upplýsingar veitir Þóra Sveinsdóttir, leikskólastjóri, í síma 44024. Atvinna/húsnæði Óska eftir atvinnu og húsnæði í Reykjavík. Vinsamlegast sendið tilboð á þýsku eða ensku á eftirfarandi heimilisfang: Thomas Stuckert, Lessingstrasse 13, D-64407 FR-Crumbach, Þýskalandi. Fóstra Stjórn Atvinnuþróúnarfélags Suðurnesja hf., Hafnargötu 12, Keflavík. RÍKISSPÍTALAR Reyklaus vinnustaður GEÐDEILD LANDSPÍTALANS Iðjuþjálfa vantar á geðdeild Landspítala. Starfið er fjölbreytt og býður upp á sjálfstæð vinnubrögð og þverfaglega vinnu. Boðið er upp á handleiðslu með reyndum iðjuþjálfa. Frekari upplýsingar gefur Elín Ebba Ásmundsdóttir, yfiriðjuþjálfi, í síma 601795. OLDRUNARLÆKNINGADEILD Á öldrunarlækningadeild 3 er laus til um- sóknar heil staða hjúkrunarfræðings frá 1. febrúar nk. Unnið er aðra hverja helgi, engar næturvaktir. Deildin er endurhæfingar- og meðferðardeild með 20 sjúkrarúm. Unnið er samkvæmt einstaklingshæfðri hjúkrun og er megin- áhersla lögð á sjálfstæði í starfi og teymis- vinnu. Nánari upplýsingar gefa Lúðvík H. Gröndal, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 602263 og Anna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, í síma 602266. HJARTADEILD Vegna aukinnar starfsemi óskum við eftir fleiri hjúkrunarfræðingum til starfa. Hjartadeildin er 21 rúma deild og hefur um áraraðir verið leiðandi í hjúkrun hjartasjúkl- inga. í boði er einstaklingsbundin aðlögun í umsjá reynds hjúkrunarfræðings. Vinnutími eftir samkomulagi. Upplýsingar gefa Unnur Sigtryggsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601250 og Bergdís Kristjánsdóttir, hjúkrunar- framkvæmdastjóri, í símum 601000/601300. RANNSOKNASTOFA í MELTINGARSJÚKDÓMUM Laus er staða hjúkrunarfræðings á rann- sóknastofu í meltingarsjúkdómum. Á deild- inni eru m.a. gerðar maga-, ristil-, gallvega- og berkjuspeglanir. Öll starfsaðstaða deild- arinnar er mjög góð. Nánari upplýsingar gefur Bergdís Kristjáns- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í símum 601000/601300. RÍKISSPÍTALAR Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi meö starfsemi um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri meöferö sjúkra, fræöslu heilbrigöisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf- 8emi. Okkur er annt um velferö allra þeirra, sem viö störfum fyrir og meö, og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum. Starfsemi Ríkisspítala er helguö þjónustu viö almenning og viö höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi. Fyrir einn af umbjóðendum okkar viljum við ráða starfsmann til bókhaldsstarfa. Um er að ræða fiskvinnslufyrirtæki, sem staðsett er á Reykjavíkursvæðinu. Leitað er að starfsmanni, sem hefur reynslu í bókhaldsstörfum, hefur þekkingu á tölvum og bókhaldskerfum á tölvur. Viðkomandi starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt og hafið störf fljótlega. Nánari upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu okkar þriðjudaginn 11. janúar kl. 10-12. Upplýsingar eru ekki veittar í síma. Umsóknir óskast sendar undirrituðum fyrir 15. janúar nk. Þrep hf. - endurskoðun, Skipholti 50b, 105 Reykjavík. Akureyrarbær Fóstrur - fóstrur Dagvistardeild Akureyrarbæjar auglýsir lausar til umsóknar eftirtaldar stöður: Stöðuryfirfóstru og deildarfóstru við leikskól- ann Holtakot. Stöðu yfirfóstru og deildarfóstru við leikskól- ann Iðavöll. Eina og hálfa deildarfóstrustöðu við leikskól- ann Lundarsel. Hálfa stöðu deildarfóstru að leikskólanum Flúðum. Deildarfóstrustöðu að leikskólanum Síðuseli. Stöðu deildarfóstru að leikskólanum Sunnubóli. Stöðu deildarfóstru og almennrar fóstru að leikskólanum Pálmholti. Stöðu almennrar fóstru að leikskólanum Árholti. Stöðu deildarfóstru að leikskólanum Klöppum. Stöðu almennrar fóstru að leikskólanum Krógabóli. Stöðu yfirfóstru og deildarfóstru við skóla- dagheimilið Hamarkot. Upplýsingar um þessar stöður gefur deildar- stjóri dagvistardeildar í síma 96-24600. Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Akureyrarbæjar eða launanefndar sveitar- félaga og Fóstrufélags íslands. Einnig auglýsir dagvistardeiid lausa til um- sóknar stöðu matráðskonu við leikskólann Holtakot frá 1. febrúar nk. Upplýsingar gefur leikskólastjóri Holtakots í síma 96-27081. Laun samkvæmt kjarasamningi Einingar og Akureyrarbæjar. Uppiýsingar um launakjör gefur starfs- mannastjóri Akureyrarbæjar í síma 96-21000. Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til 14. janúar nk. Starfsmannastjóri. Fóstra óskast til starfa í leikskólann á Siglu- firði. Leikskólinn er þriggja deilda og er í nýju, glæsilegu húsnæði, sem tekið var í notkun sl. haust. í leikskólanum starfa nú þrjár fóstrur og einn þroskaþjálfi auk annars starfsfólks. Á Siglufirði er góð tómstunda- og íþróttaað- staða. Þar eru m.a. nýlegt íþróttahús, eitt besta skíðasvæði landsins, öflugur tónlistar- skóli, auk mjög fjölbreytts mannlífs. Siglufjarðarkaupstaður greiðir flutnings- kostnað og útvegar húsnæði. Allar upplýsingar um starfið veitir leikskóla- stjóri í síma 96-71359 á daginn og 96-71996 á kvöldin. Leikskálar, Siglufirði. Húsvörður Staða húsvarðar í Setbergsskóla í Hafnar- firði er laus til umsóknar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir berist skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 4, fyrir kl. 16 föstudaginn 14. janú- ar nk. á umsóknareyðublöðum sem þarfást. Nánari upplýsingar gefa skólastjóri í síma 651011 og skólafulltrúi í síma 53444. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. TOLLSKÝRSLUGERÐ 'Oskum eftir að ráða mann til starfa hjá traustu þjónustufyrirtæki, sem m.a. sérhæfir sig í tollskýrslugerð. Starfssvið: Tollskýrslugerð, verðútreikningur. Fjölbreytt og krefjandi starf, sem krefst fagkunnáttu, öruggrar þjónustu og fæmi í mannlegum samskiptum. Við leitum að manni með reynslu í meðferð tollskýrslna, útfyllingu og úrvinnslu. Þekking á S.M.T. kerfinu mjög æskileg. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf merktar "Tollskýrslugerð 001" fyrir 15.janúar n.k. Hagva ngurhf Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.