Morgunblaðið - 22.01.1994, Page 4

Morgunblaðið - 22.01.1994, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994 ^ Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson I Daníelsslipp STARFSMAÐUR í Daníelsslipp í óvenjulegri málningarvinnu, en hann var að „skreyta" perustefni á skipi í slippnum. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 21. JANUAR YFIRLIT: Skammt norðaustur af Jan Mayen er 950 mb lægð sem þok- ast noröaustur en nærri kyrrstæð 964ra mb lægð er við strönd Græn- lands vestur af Vestfjörðum. SPÁ: Framan af degi verður allhvöss eða hvöss vestan og suðvestanátt, éljagangur vestanlands en úrkomulítið austantil. Þegar líður á daginn snýst vindur smém saman til norðvestlægrar áttar og hvessir þá enn norðaust- an til á landinu, með éljum norðan og vestanlands, áfram þurrt og bjart veður á Suðausturlandi og Austurlandi. Frost á bilinu 5 til 9 stig. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Nokkuö hvöss norðanátt, einkum um landið austanvert. Éljagangur á Norður- og norðausturlandi, annars staðar úrkomulítið,. Frost 4 til 10 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Hæðarhryggur verður yfir landinu og vindur því yfirleitt fremur hægur. Bjartviðri í flestum landshlutum og frost víða um eða yfir 10 stig. HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Á þriðjudag verður stíf austanátt og snjókoma með S- og SA-ströndinni, en annars staðar þurrt og enn talsvert frost. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsími Veðrstofu fslands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt r r r * r * r r * r r r r r * r Rigning Slydda & é á Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduéi Él * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld s Þoka ■'ig-. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 í gær) Vegir á Suðvestur- og Vesþjrlandi eru flestir færir en hálir og er þar taisverður éljagangur. Á Vestfjörðum er ófært um Hálfaán og Breiðadals- heiði en þokkaleg færð er á Kleifaheiði, Botnsheiði og Steingrímsfjarðar- heiði. Vegna veðurs er þungfaert um Holtavörðuheiði og Vatnsskarð, en ófært um bröttubrekku og Öxnadalsheiði. Fært er frá Sauðárkróki til Siglufjarðar. Frá Akureyri er fært um Víkurskarð og með ströndinni til Vopnafjarðar. Á Austurlandi eru vegir víðast færir en þó er þungfært um Mývatns- og Möðrudalsöræfi. Aðrir vegir á landinu eru víðast færir en umtalsverð hálka er víðast hvar á vegum. Áformað er að opna milli Akureyrar og Reykjavíkur á morgun ef veður leyfir. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tfma Akureyri Reykjavík hiti ■i-5 -r5 veður skafrenningur skafrenningur Bergen 7 rigning Helsinki 2 súld Kaupmannahöfn 5 þokumóða Narssarasuaq +16 skýjað Nuuk +16 skýjað Osló 5 8kýjað Stokkhólmur 7 alskýjað Þórshöfn 2 snjóél Algarve 12 helðsklrt Amsterdam 6 suld Barcelona 9 heiðskírt Berltn 3 alskýjað Chicago +16 léttskýjað Feneyjar 8 heiðskírt Frankfurt +1 þokumóða Glasgow 8 súld Hamborg 5 súld London 8 alskýjað Los Angeles 9 þoka Luxemborg +1 þokumóða Madríd 9 heiöskírt Malaga 'vantar Mallorca 12 léttskýjað Montreal +18 léttskýjað New York +13 heiðskfrt Oriando 9 þokumóða Parfe 3 þokumóða Madelra 16 skýjað Róm 12 léttskýjað Vín 2 skýjað Washington +16 léttskýjað Wlnnipeg +14 heiðskírt ÍDAGkt. 12.00 Heimild: Veðurstofa íslands . (Byggt é veðurspá kl. 16.30 i gær) Býður 100 togara í öllum verðflokkum til sölu Talsvert fram- boð og hægt að gera góð kaup „ÉG VILDI vekja athygli á að ég get boðið skip i öllum verðflokkum, en það er auðvitað kaupendanna að meta hvort þau henta öll við okk- ar aðstæður. Þá hef ég einnig lagt áherslu á að vinna markaði fyrir notuð, íslensk skip erlendis. Síðasta dæmi um slíka sölu er þegar Lísa María frá Olafsfirði var seld til Rússlands skömmu fyrir jól. Fyrir skipið fékkst gott verð og það var son, rekstrarhagfræðingur. Þorsteinn auglýsti í Morgunblað- inu í gær undir yfirskriftinni „Hvaða lit viltu?“, að hann hefði til sölu yfir 100 togara af öllum gerðum og stærðum, á verði frá 10 milljónum króna. „Ég hef undanfarin 7 ár ver- ið í ýmsum viðskiptum með skip, haft milligöngu um kaup þeirra hing- að, sölu þeirra úr landi og sölu innan- lands,“ sagði Þorsteinn. „Það er tals- vert framboð á skipum um þessar mundir og hægt að gera góð kaup. Markaðsverð er nokkuð undir kostn- aðarverði og eg hef orðið var við áhuga manna á að kanna þessi mál betur. Við getum boðið allt frá göml- um ísfisktogurum frá um 1960 og upp í mjög nýleg skip og verðið er frá 10 milljónum upp í einn milljarð staðgreitt," sagði Þorsteinn Guðna- króna. Svo verður hver að gera upp við sig hvað hentar honum.“ Þorsteinn sagði að hann vildi einn- ig vekja athygli á að fyrirtæki hans, UNS, hefði milligöngu um sölu skipá úr landi. „Nýjasta dæmið er frá því skömmu fyrir jól þegar við seldum Lísu Maríu frá Ólafsfírði til Rúss- lands. Mjög gott verð fékkst fýrir skipið og Rússamir staðgreiddu, sem: ég held að þeir hafi ekki gert áður í viðskiptum með notuð skip. Ég heft lagt talsverðan kostnað í það að kanna möguleika á sölu íslenskra skipa til útlanda og samstarf um veiðar íslenskra skipa erlendis. Árangur þessa starfs er að byija að skila sér,“ sagði Þorsteinn Guðnason, rekstrarhagfræðingur. 122 þúsund greiðsluseðlar vegna bif- reiðagjalda fyrri hluta ársins sendir út Þriðjungshækk- un o g tekjurnar 1.830 milljónir UM þessar mundir er verið að senda út 122 þúsund greiðsluseðla vegna innheimtu á fyrrihluta bifreiðagjalda árið 1994. Gjöldin miðast við þyngd bifreiðar og hækka um nær þriðjung frá fyrra ári og á hækkun- in að mæta að nokkru því tekjutapi ríkissjóðs sem orsakaðist vegna lækkunar virðisaukaskatts á matvæli úr 24,5% í 14%. Alls er gert ráð fyrir að tekjur af bifreiðagjöldum skili rúmum 1.830 miiijónum króna í ríkissjóð í ár, samanborið við 1.350 milljónir króna í fyrra. Gjöldin miðast við þyngd bifreiðar og eru greiddar í ár 5,62 kr. fyrir hvert kíló ef bifreiðin er undir eitt þúsund kílóum á þyngd. Gjöld á kíló í fyrra voru 4,33 kr. Hækkunin er 1,29 kr. sem jafngildir tæplega 30% hækkun. Fyrir hvert kíló umfram eitt þúsund greiddist 50% hærra gjald í fyrra en álagið hækkar nú í 65%. 6,50 kr. voru greiddar í fyrra fyrir hvert kíló umfram eitt þúsund en í ár þarf að greiða 9,27 krónur fyrir hvert kíló. Fyrri hluti bifreiða- gjalda af fólksbíl sem er til dæmis 930 kíló að þyngd nemur því krónum 5.226 en var í fyrra 4.027 krónur. Fyrir jeppabifreið sem vegur 1.790 kíló þarf í ár að greiða tvívegis 12.109 krónur, -en bifreiðagjöld geta aldrei numið hærri upphæð en 12.729 krónum í hvort skipti sam- kvæmt upplýsingum fjárrnálaráðu- neytisins. Gjald vegna vátryggingar ökumanns fellur niður Á móti kemur að innheimta gjalds vegna vátryggingar ökumanns fellur niður frá áramótum, en í fyrra voru innheimtar 1.200 krónur tvívegis vegna þess með bifreiðagjöldunum. Gjöldin eru greidd af öllum bifreiðum á ökutækjaskrá 400 kíló eða þyngri burtséð frá því hvort bílarnir eru í umferð eða númer þeirra hafa verið lögð inn. Gjalddagi vegna fyrrihluta gjaldanna er 1. janúar og eindagi síðasti dagur febrúarmánaðar og vegna seinnihluta gjaldanna 1. júlí og eindagi 31. ágúst. Viðvörunarmerkingar á tóbaksvörur Sýning í Ráðhúsinu á tillögnm frá 6-12 ára SYNING á tillögnm 6—12 ára barna um gerð nýrra viðvörunarmerk- inga á tóbaksvörur verður opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag kl. 15. Tillögurnar á sýningunni voru valdar úr innsendingum í samkeppni sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið efndi til í samvinnu við menntamálaráðuneytið, Landlæknisembættið, Tóbaksvarnanefnd og fleiri í grunnskólum landsins 15. september til 15. nóvember sl. Þátttaka í keppninni og gæði þeirra úrlausna sem bárust fóru langt fram úr vonum aðstandenda keppninnar. Nálægt sjötíu skólar sendu um fjögur þúsund myndir og annað eins af slag- orðum um nýjar tillögur að viðvörun- armerkingum á tóbaksvörur. Það vakti athygli nefndarmanna í undir- búningsnefnd samkeppninnar hversu stór hluti mynda og texta í samkeppn- inni skyldi vera með slíkum ágætum að erfitt yrði að velja þá fremstu meðal jafningja, eins og segir í frétta- tilkynningu frá heilbrigðis: og trygg- ingamálaráðuneytinu. Sýningin stendur í Ráðhúsi Reykjavíkur til 28. janúar. Opnun- arathöfn sýningarinnar og afhending verðlauna hefst í dag kl. 15. Apple-umboðið, Flugleiðir hf. og Vaka-Helgafell gefa verðlaun til keppninnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.