Morgunblaðið - 22.01.1994, Síða 7

Morgunblaðið - 22.01.1994, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994 7 Eitt hundrað ára verslun í Vík í Mýrdal - eftir Kjartan Ólafsson VERSLUNARSAGA Vestur- Skaftfellinga, þriðja bindi, eftir Kjartan Olafsson, fyrrverandi ritstjóra, er komið út. Útgefandi er Vestur-Skaftafellssýsla. Er þetta lokabindi verksins sem fjallar ítarlega um verslun Vest- ur-Skaftfellinga. Jafnframt er það víðtæk saga samgangna í héraðinu, svo og stjórnmála- átaka og félagslegrar þróunar. Varpað er ljósi á mannlíf og atvinnuhætti og þá menn sem voru í fararbroddi í sókn til framfara og bættra lífskjara. í þriðja bindi Verslunarsögu Vestur-Skaftafellsýslu er m.a. fjallað um vöruflutninga með suð- austurströndinni, að Skaftárósi og Hvalsíki og uppskipun og verslun á eyðisöndum, Kaupfélag Skaft- fellinga frá 1928 þar til starfsemi þess lauk 1990, Verslun Halldórs Jónssonar á árunum 1914-1950, Verslunarfélag Vestur-Skaftfell- inga og arftaka þess, Kaupmanna- verslanir í Vík og sveitaverslanir í byijun aldar og síðar. Að lokum er ítarlegur kafli um verslunar- hætti Öræfinga allt frá því á 17. öld og viðskipti þeirra við verslan- ir í Vík. Bókin er 456 bls. að stærð og hana prýða um 670 ljósmyndir sem fæstar hafa birst áður. Bókin verður send í póstkröfu til áskrifenda en þeir geta einnig vitjað hennar hjá Björgvin Salóm- onssyni, 'Skeiðarvogi 29, Reykja- vík. -----» ♦ ♦---- Athugasemd Morgunblaðinu barst í gær svo- hljóðandi athugasemd frá Þór- unni Sigþórsdóttur, sem er frambjóðandi í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Hafnarfirði: „Vegna prófkjörs Sjálstæðis- manna í Hafnarfirði var óskað eftir að frambjóðendur sendu inn upplýsingar um sjálfa sig til bæjar- blaðsins Hamars. í textanum sem ég sendi frá mér stóð að ég stund- a,ði nám í hagfræði við Háskóla íslands, en hann birtist í blaðinu undir litmynd af frambjóðandan- um var hann orðinn að hagfræð- ingi. í Morgunblaðinu í gær eru birtar myndir af öllum frambjóð- endum í prófkjörinu í Hafnarfirði með sama texta. Af tillitsemi við Ara fróða, skólasystkin mín og kennara, skal það því áréttað að ég er ekki fræðingur í einu eða neinu, heldur nemi í H.Í., sem og í Söngskólanum í Reykjavík.“ Höföar til .fólks í öllum starfsgreinum! TOYOTA kynnir festingu fyrir hlut sem VOLVO kynnti árid 1972 - Barnabílstól í framsæti. Volvo kynnti árið 1972 hlut sem margoft hefur orðið fyrirmynd annarra - barnastól sem snéri baki í mælaborðið. TÍL Aö AUKA ÖRYGGI BARNA ÞINNA í BÍLNUM DUGAR EKKERT MINNA EN ÁRATUGA REYNSLA OG RANNSÓKNIR. volvo LLi BRIMBORG BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST! Volvo kostar frá 1.498.000 kr. staðgreitt kominn á götuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.