Morgunblaðið - 22.01.1994, Síða 15

Morgunblaðið - 22.01.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994 15 Arna Sigfússon í 2. sæti! eftir Margréti Theodórsdóttur Mörg stórfelld framfaraskref hafa verið tekin í skólamálum Reyk- víkinga á síðasta kjörtímabili undir farsælli forystu Áma Sigfússonar. í skólum Reykjavíkur eru í vetur um 14 þúsund nemendur og fjöl- margir starfsmenn. Það er því aug- ljóst að umbætur í skólamálum tengjast beinlínis daglegu lífi stórs hluta Reykvíkinga því allir þessir nemendur og starfsmenn skólanna tilheyra auðvitað ijölskyldum og það er kunnara en frá þurfi að segja áð góður vinnustaður bama og full- orðinna skiptir miklu máli hvað varðar heill þeirra og hamingju. Einkunnarorðin sem unnið hefur verið eftir em: Reykjavík á að hafa forystu í skólamálum sem og öðrum góðum málum. Mikil ábyrgð fylgir þessu keppikefli en Árni hefur sýnt mikla burði til þess að bera þá ábyrgð. í þessu felst ekki einungis það að tryggja sem best að lög- bundnum verkefnum sé skilað held- ur ekki síður að leitast við að hafa góða framtíðarsýn og leyfa sér að hugsa hátt og róa síðan að því öllum árum að hinar ýmsu hugmyndir verði að vemleika. Þá er ég ekki bara að tala um steinsteypu, tækja- kost, aðstöðu af ýmsu tagi eða ann- að sem tengist ytri ramma skóla- starfsins — heldur ekki síður að „Til vitnis um nútíma- leg vinnubrögð Árna er að hafin er tilraun um gæðamat í skólum borgarinnar.“ taka upp ýmsar nýjungar sem bein- ast að því að hlúa að Uppeldisþætt- inum í skólastarfi. Heilsdagsskólaverkefnið er geys- iumfangsmikið og margþætt, bæði í undirbúningi og framkvæmd. Við stjóm þessa verkefnis hefur Áma tekist að hrífa starfsmenn skóla með sér, sýnt góða skipulagshæfi- leika og fylgt málum vel eftir. Þetta verkefni felur í sér að hver skóli þarf að sýna frumkvæði — og leit- ast við að bjóða nemendum og for- eldrum í hverfum borgarinnar upp á nýtt skipulag, sem er sérstakt í hveijum skóla fyrir sig. Þetta tæki- færi hlýtur að vera kærkomið, nú á tímum óska um aukið sjálfstæði skóla og að hver skóli eigi mögu- leika á að hafa meiri fjölbreytni í sínu skólastarfi, í takt við þá skóla- stefnu sem hver skóli setur sér. Með öðmm orðum, skólar hafa nú betra tækifæri til að skapa sér sér- stöðu/sjálfstæði. Gaman! Marga jákvæða þætti má nefna sem tengjast heilsdagsskólanum: Öryggi nemenda hefur áukist; ferðum til og frá skóla fækkar og foreldrar vita af barninu sínu á ömggum stað meðan á skóladegin- um stendur. Foreldrar geta nú tekið þátt í að skipuleggja skóladaginn að nokkm leyti með ungviðinu sínu. Með því móti getur sambandið við skólann orðið sterkara og nánara. Starfsmenn skóla fá fleiri tæki- færi til þess að kynnast nemendum sínum við fjölbreyttari iðju. Aukin þörf fyrir starfsmenn skóla hefur einnig komið sér vel á tímum atvinnuleysis. Heilsdagsskólinn hófst sem til- raunaverkefni á síðasta vetri með þátttöku fimm skóla en í vetur em allir borgarskólamir þátttakendur, nema einn. Um 2.000 nemendur hafa verið þátttakendur í vetur. Má segja að þessi fjöldi sé meiri en björtustu vonir fólu í sér. Áfram verður haldið að þróa þetta verk- efni — og árangurinn markvisst metinn. Það markmið að gera skólana einsetna hefur þótt nokkuð lang- sótt. Árni hefur lagt á það mikla áherslu að leita leiða til þess að flýta fyrir langþráðu takmarki. Þegar er ljóst að á þessu ári bætast skólar í hóp þeirra einsetnu, góðu heilli, með nýtingu lausra kennslustofa m.a. og markvisst verður unnið áfram að því að stika stórum í átt að einsetningu. Af sama eldmóði vann Árni ötul- lega að því heillaskrefi að skólar Margrét Theodórsdóttir Reykjavíkur tölvuvæddust svo um munaði. Ráðist var í þetta verkefni í tveimur áföngum: Tölvuverum var fyrst komið upp í þeim skólum sem hafa unglingastig en síðan í skólum yngri bama. Einnig var samið um tengingu allra skóla borgarinnar við tölvukerfi Menntanetsins svo- nefnda. Sú tenging býður upp á fjölmarga möguleika fyrir bæði nemendur og kennara, á íslandi sem í öðrum löndum. Gott, betra, best... Fleira til vitnis um nútímaleg vinnubrögð Árna er að hafin er til- raun um gæðamat í skólum borgar- innar undir forystu skólamálaráðs. Hér er um mjög forvitnilegt við- fangsefni að ræða á sviði skóla- mála. Hugmyndafræði og aðferðir gæðastjórnunar geta svo sannar- lega nýst í skólastarfi og það verð- ur spennandi að fýlgjast með næstu skrefum gæðastjórnunar í grunn- skólum borgarinnar. Þekking Árna á stjórnun og nútímalegum vinnu- brögðum á því sviði hefur tvímæla- laust opnað fyrir þennan farveg inn í skólana. Það hefur hvorki ríkt lognmolla né deyfð í skólamálaráði þessi fjög- ur ár. Þvert á móti hafa ráðsmenn smitast af athafnagleði Áma, vilja hans til þess að gera vel og bæta skólastarfið í borginni. Fyrir hendi hefur verið áhugi, opinn hugur og framkvæmdagleði. Eins og fram kemur hér á undan hefur margt snúist til betri vegar í skólamálun- um að frumkvæði Áma. Þó er fjöl- margt ótalið. Það hefur verið gam- an að kynnast vinnubrögðum hans og festu, samviskusemi og getu til þess að fylgja málum vel eftir. Það sama gildir um kynni mín af Árna sem borgarfulltrúa sl. fjögur ár. Hann er traustur athafnamaður með mikinn áhuga á málefnum Reykvíkinga og er auk þess dreng- ur góður. Eg gef honum mín bestu með- mæli á vettvangi TíoVgarmálanna og styð heils hugar brautargengi hans í 2. sætið í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í lok mánaðarins. Höfundur er skólastjóri og varaformaður skólamálaráðs Reykjavíkur. Valgerður í eitt af þrem efstu sætum eftir Helgu Ingólfsdóttur Dagana 29. og 30. janúar nk. fer fram opið prófkjör sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Fjölmargir hæfir fram- bjóðendur eru í kjöri en þó vil ég vekja sérstaka athygli á Valgerði Sigurðardóttur sem stefnir að kjöri í 3. sæti í prófkjörinu. Valgerður er fædd árið 1953. Eig- inmaður hennar er Friðbjörn Björns- son og eiga þau þijár dætur og tvö barnaböm. Valgerður hefur gegnt fjölmörg- um trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæð- isflokkinn sl. 20. ár Hún sat S stjórn Kvenréttindafélags íslands frá árinu 1985 til 1992 sem fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins. Hún starfaði í jafnréttis- nefnd Hafnarfjarðar í átta ár, þar af fjögur ár sem formaður. I átta ár hefur Valgerður verið stjórnar- kona í Vorboða, félagi sjálfstæðis- kvenna í Hafnarfirði, og sl. þijú ár „Valgerður hefur sýnt það og sannað að hún er verðugur fulltrúi sjálstæðisfólks í bæjar- stjórn.“ formaður félagsins. Einnig hefur hún setið í stjórn Fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Hafnarfirði og í kjördæmisráði Reykjanesskjördæm- is. Síðasta kjörtímabil hefur Val- gerður setið sem varamaður í hafn- arstjóm Hafnarfjarðar en höfnin og starfsemi hennar er eitt aðaláhuga- svið Valgerðar, en hún og maður hennar hafa rekið fiskverkum hér í Hafnarfirði í nokkur ár. Sjálf hef ég átt þess kost að starfa með Valgerði í stjórn Vorboða sl. þijú ár og hef þar kynnst mannkost- um hennar og starfsgleði. Valgerður hefur sýnt það og sannað að hún er verðugur fulltrúi sjálfstæðisfólks Helga Ingólfsdóttir í bæjarstjórn og mun starfa þar af heilindum fyrir alla bæjarbúa nái hún kjöri. Til þess að geta teflt fram breiðum lista sem endurspeglar íbúa bæjarins í bæjarstjórnarkosningunum í vor er nauðsynlegt að kona skipi eitt af þremur efstu sætum listans. Sameinumst um Valgerði í 3. sæti. Höfundur er gjaldkeri Vorboðans. Styðjum Pál í annað sætið eftir Halldór Svein Rafnar Kjósum öll Pál Gíslason í 2. sætið á lista sjálfstæðismanna. Páll Gíslason læknir er Reykvík- ingum að góðu kunnur fyrir merk störf sín í þágu heilbrigðismála, félagsmála og öldrunarmála borgarinnar. Nú æðir breiðfylking fjórflokk- anna vígreif fram á völlinn í væntanlegum borgarstjórnarkosn- ingum. Allir þeir Reykvíkingar sem styðja vilja núverandi borgarstjóra og fylgismenn hans til sigurs, verða að beita blákaldri skynsemi í væntanlegum átökum. Mestu sigurlíkur borgarstjórans byggjast á því að hann eigi ágætis liðsmönnum á að skipa í væntan- legum átökum, og þar tel ég Pál Gíslason lækni einna fremstan í flokki. Ég hef þekkt Pál Gíslason í meira en hálfa öld, allt frá því Halldór Sveinn Rafnar „Tel ég Pál Gíslason lækni einna fremstan í flokki.“ er við urðum samstúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík 1943. Páll Gíslason er drengur góður, öruggur, varkár og ákveðinn og hefur verið það alla tíð. í dag á ég því láni að fagna að sitja með honum í stjórn Hjúkr- unarheimilisins Eirar þar sem borgin og Blindrafélagið ásamt fleirum vinna saman að merku máli og lífsnauðsynlegu. Sem stjómarformaður Eirar sýnir Páll enn sama dugnaðinn og útsjónarsemina og þá ódrepandi seiglu sem einkennir hann í öllum verkum hans. Ég skora á alla þá sem vilja sig- ur núverandi borgarstjórnarmeiri- hluta, að styðja Pál Gíslason til setu í öðru sæti listans. Með von um vissu um væntan- legan sigur. Höfundur er framkvæmdastjóri Blindnifélngsins. Breyttar áherslur — ný vinnubrögð eftir Ragnheiði Kristjánsdóttir Það er gaman að vígja ný mann- virki, standa að stórum uppákom- um, klippa á borða og komast í fréttirnar. En það getur líka verið nauðsynlegt að vinna góðum mál- um brautargengi þótt þau komist e.t.v. ajdrei í sviðsljósið með sama hætti. í Hafnarfirði er röðin komin að fjölmörgum verkefnum sem seint munu vekja þjóðarathygli en hafa setið á hakanum í alltof lang- an tíma. Sú vinna snýst ekki fyrst og fremst um steinsteypu — heldur fólk. Hún snýst ekki um nýjungar heldur viðhald. Hún snýst ekki um fjáraustur heldur ráðdeildarsemi. Hún snýst um að fólki líði vel í fallegum og góðum bæ, hafí at- vinnu eins og frekast er unnt á erfiðleikatímum og safni ekki sam- eiginlegum skuldum vegna rangra fjárfestinga og fjármálalegrar óstjórnar. Framboð mitt í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Hafnarfirði er án stórra upphrópana. Mér þykir hins vegar vænt um bæinn minn og vil gjarnan leggja mitt af mörkum til þess að gera hann enn betri. Sem kennari í Hafnarfirði og full- trúi í skólanefnd bæjarins veit ég eðlilega um ótal verkefni, bæði stór og smá, sem bætt geta líðan, öryggi og menntun barnanna og sem foreldri sé ég ekki síður margt sem auðgað getur daglegt líf fjöl- skyldufólks og heimilanna í bæn- um. Brýn verkefni í atvinnuupp- byggingu bíða okkar á allra næstu misserum. Við Hafnfírðingar höf- um ekki farið varhluta af erfiðleik- um stórra fyrirtækja í verktaka- iðnaði sem skapað hafa fjölda bæjarbúa atvinnu og þegar físk- vinnslan hefur að auki dregist saman jafn hastarlega og raun ber vitni er óhjákvæmilegt að leita tafarlaust nýrra leiða. Atvinnu- leysi eða yfírvofandi missir at- vinnu er staðreynd á mörgum heimilum í bænum og það er af- Ragnhelður Kristjánsdóttir „Samhliða átaki í at- vinnumálum er lykilat- riði að vel sé haldið á fjármálum bæjarins.“ dráttarlaust forgangsmál að tak- ast á við þann vanda af ábyrgð og útsjónarsemi. I þeim efnum þurfum við að nýta öll þau tæki- færi sem lífæð athafnalífsins. Hafnarfjarðarhöfn, hefur upp á að bjóða og hafa það að auki hugf- ast að það er fráleitt á öllum svið- um sem reglan um „stærra fyrir- tæki — aukinn hagnað" fær stað- ist. Samhliða átaki í atvinnumálum er lykilatriði að vel sé haldið á fjár- málum bæjarins. I þeim efnurn þurfa breyttar áherslur og ný vinnubrögð að koma til. Með traustan fjárhag að bakhjarli eig- um við Hafnfirðingar endalausa möguleika á að gera góðan bæ enn betri. Höfundur er kennari og þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðisnmnna í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.