Morgunblaðið - 22.01.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
19
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Selljarnarnesi
Tólf bjóða sig fram
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fer fram í
dag, Iaugardaginn 22. janúar. Kosið verður að Austurströnd
3, frá kl. 10 til 20. Atkvæðisrétt hafa allir fullgildir félagar í
sjálfstæðisfélögum á Seltjarnarnesi sem eru 16 ára og eldri.
Auk þess þeir stuðningsmenn flokksins, sem hafa kosningarétt
í komandi bæjarstjórnarkosningum og undirrita stuðningsyfir-
lýsingu við flokkinn.
Kjósa skal ákveðinn mann í
ákveðið sæti á framboðslistanum
með því að tölusetja framan við
nöfn manna á kjörseðlinum í
þeirri röð sem óskað er að þeir
skipi listann. Kjörseðill er því
aðeins gildur að kosnir séu sex
frambjóðendur, hvorki fleiri né
færri. Boðið er upp á heimakosn-
ingu fyrir fatlaða og sjúka sem
ekki komast á kjörstað.
Jón Hákon Magnússon, fram-
kvæmdastjóri, 52 ára, kvæntur
Aslaugu G. Harðardóttur og býr
á Látraströnd 6.
Jón Sigurðsson, bókhalds- og
ijárhagsráðgjafi, 43 ára, kvæntur
Ingveldi Sveinbjörnsdóttur og býr
á.Selbraut 10.
Petrea I. Jónsdóttir, ritari,
44 ára, gift Kristni Guðmunds-
syni og býr á Vallarbraut 6.
Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóri, 59 ára, kvæntur Sigríði
Gyðu Sigurðardóttur og býr á
Miðbraut 29.
Sveinn H. Guðmarsson, nemi,
19 ára og býr á Barðaströnd 23.
Þröstur Haraldsson Eyvinds,
lögreglufulltrúi, 41 árs, kvæntur
Sigurlaugu Bjarnadóttur og býr
á Bollagörðum 27.
Erna Nielsen, húsmóðir, 51
árs, gift Birni Jónssyni og býr á
Barðaströnd 11.
Guðmundur Jón Helgason,
flugumsjónarmaður, 40 ára,
kvæntur Lilju Ægisdóttur og býr
á Vesturströnd 8.
Gunnar Lúðviksson, verslun-
armaður, 36 ára, kvæntur Grétu
Birgisdóttur og býr á Bollagörð-
um 119.
Hildur Jónsdóttir, ferðamála-
fulltrúi, 45 ára, gift Sigmundi
Ríkarðssyni og býr á Melabraut
52.
Jens Pétur Hjaltested,
rekstrarhagfræðingur, 44 ára,
kvæntur Maríönnu Haraldsdóttur
og býr á Nesbala 33.
Jón Jónsson, kaupsýslumaður,
63 ára, kvæntur Ástríði G. Páls-
dóttur og býr að Barðaströnd 25.
Jón Hákon Jón Sigurðsson
Magnússon
Sveinn H. Þröstur Haraids-
Guðmarsson son Eyvinds
Gunnar Hildur Jónsdóttir
Lúðvíksson
Ema Nielsen
Sigurgeir
Sigurðsson
Guðmundur Jón
Helgason
Jens Pétur
Hjaltested
Jón Jónsson
Fræðirit frá Almannavörnum
ALMANNAVARNIR ríkisins hafa gefið út fræðslurit um hópslysa-
viðbúnað sjúkrahúsa, greiningarsveita og fyrstuhjálparflokka. Rit-
inu er dreift endurgjaldslaust til allra sjúkrahúsa, heilsugæslu-
stöðva, björgunarstöðva, almannavarnanefnda, lögreglustjóra og
annarra þeirra sem málið varða samkvæmt heildarskipulagi al-
mannavarna.
Þá gefa Almannavarnir ríkisins
árlega út yfirlit yfir þjálfun manna
í sérhæfðum störfum á sviði al-
mannavarna skv. því sem gert er
ráð fyrir í heildarskipulaginu. Um
er að ræða þjálfun í fimm mismun-
andi greinum almannavarna.
í skránni kemur fram að staða
þjálfunarmála vegna Almanna-
varna er sem hér segir en vakin
er athygli á að almannavarnaum-
dæmi í landinu eru alls 60 talsins:
1. 117 vettvangsstjórar frá 41
almannavarnaumdæmi hafa verið
þjálfaðir.
2. 68 flokkstjórar frá 28 al-
mannavarnaumdæmum hafa verið
þjálfarið í björgunar- og ruðnings-
störfum.
3. 188 flokkstjórar frá 36 al-
mannavarnaumdæmum hafa verið
þjálfarir í fjölda- og félagshjálp.
4. 96 flokkstjórar frá 18 al-
mannavamaumdæmum hafa verið
þjálfaðir í fyrstu hjálp.
Morgunblaðið/B.B.
Við Bláalónið
MIKIÐ var um að vera við Bláa lónið þegar tökur á kvikmynd Frið-
riks Þórs, Cold Fever, fóru þar fram í vikunni.
Nýjasta kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar
Tafir á kvikmynda-
tökum vegna bílslyss
„OKKUR hefur gengið ágætlega fyrir utan bíislys um helgina. Við
lentum útaf í Krísuvík með allt dótið. Enginn meiddist alvarlega
en slysið seinkaði okkur um tvo daga,“ sagði Friðrik Þór Friðriks-
son, kvikmyndagerðarmaður, þar sem hann var við tökur á nýj-
ustu kvikmynd sinni, Cold Fever, í Bláa lóninu á mánudag.
Fyrstu atriði myndarinnar voru
tekin upp í Japan fyrir áramót.
Eftir það var haldið til íslands og
hefur verið myndað hér á landi í
tæpar tvær vikur. Friðrik sagði að
myndað hefði verið á nokkrum
stöðum á landinu og í Bláa lóninu
færi aðalleikarinn Nasatoshi Nag-
ose í bað. í myndinni leikur hann
mann sem tekur sér ferð á hendur
til íslands til þess að vitja jarð-
neskra leifa foreldra sinna. Nasa-
toshi er þekktur popptónlistarmað-
ur og kvikmyndaleikari í heima-
landi sínu, Japan.
Aðrir áberandi leikarar í mynd-
inni eru Fisher Stevens og Lilly
Taylor. Friðrik sagði að Fisher
væri sennilega þekktastur fyrir að
hafa lengi vel verið fylgisveinn
hinnar þekktu bandarísku leikkonu
Michelle Pfeiffer. Lilly hefði leikið
í myndum eins og Arizona Dreams
og Short Cut.
Leitað hafði verið eftir íslenskri
leikkonu í eitt af stærri hiutverkum
myndarinnar en Friðrik sagði að
nú hefði verið tekin ákvörðun um
að ráða erlenda leikkonu í hlut-
verkið. Ekki hefði hins vegar verið
tekin endanleg ákvörðun um hver
yrði fyrir valinu.
Upplýsingaskrifstofa
Björgólfs Guðmundssonar
Vatnagörðum 28
S 88 30 44 • 88 30 45
Opið 13 - 22. Allir velkomnir!
PROFKJÖR SJALFSTÆÐISMANNA
5.-
sæi
Allar pottaolöntur