Morgunblaðið - 22.01.1994, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1993
46
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
„Tökum því sem að höndum ber“
- segir Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, sem segir að það skipti litlu máli hverjir
mótherjar íslands í EM verði. í dag verður dregið í riðla í Manchester
ÁSGEIR Elíasson, iandsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu, hefur litlar
áhyggjur vegna dráttarins í Evr-
ópukeppni landsliða, sem fer
fram í Manchester í dag. „Það
skiptir ekki miklu máli hverjir
mótherjarnir verða — við þurf-
um mest að hugsa um sjálfa
okkur, að við komum sem best
■»undirbúnir í leiki okkar. Flest
þau landslið sem taka þátt í
Evrópukeppninni eru sterk. Við
tökum því sem að höndum ber
og skoðum málið þegar dráttur-
inn er yfirstaðinn," sagði Ásgeir
í viðtali við Morgunblaðið f gær.
Asgeir sagði að allar þær þjóðir
sem væru í fyrsta styrkleika-
flokki væru með mjög sterk landslið.
„Ég vil gjaman sleppa við að fara
til Rússland, en væri ekkert á móti
því að leika gegn Dönum eða Svíum.
Þegar ég skoða annan styrkleika-
flokkinn, vil ég vera laus við að fara
til austurhluta Evrópu, en gæti vel
sætt mig við að fara til Grikklands,
jen annars er ég ekkert farinn að spá
í hlutina — geri það eftir dráttinn,“
sagði Asgeir.
47 þjóðir taka þátt
í forkeppninni
Þátttaka í Evrópukeppni landsliða
hefur aldrei verið meiri, en alls taka
47 þjóðir þátt. Leikið verður í átta
UM HELGINA
Handknattleikur
Laugardagur:
deild karla:
KA-húsið: KA-ÍR 18
Eyjar: ÍBV - Þór 16.30
1. deild kvenna:
Vestm’eyjar: ÍBV - Grótta ...kl. 16.30
2. deild karla:
Digranes: HK-Fram ...kl. 16.30
Sunnudagur:
1. deild karla:
Garðabær: Stjaman-Víkingur.. 20
Höllin: KR-UMFA 20
Kaplakriki: FH-Haukar 20
Körfuknattleikur
Sunnudagur:
Úrvalsdeild:
Borgames: Skallgr. - Valur 16
Stykkishólmur: Snæfell - ÍA 18
Grindavík: UMFG-KR 20
Njarðvík: UMFN-UMFT 20
1. deild karla:
Digranes: UBK-ÍS 20
Egilsstaðir: Höttur-Þór 14
Seljaskóli: ÍR-Reynir 20
Mánudagur.
1. deild kvenna:
Kennarahásk.: ÍS - ÍR 20
Blak
Laugardagur:
1. deild karia:
KA-húsið: KA - Þróttur R 14
Hagaskóli: ÍS-ÞrótturN 18
1. deild kvenna:
KA-húsið: KA - Víkingur 15.15
Hagaskóli: ÍS-ÞrótturN 1915
Sunnudagur:
1. dcild kvenna:
KA-húsið: KA - Víkingur 14
Mánudagur:
1. deild karla:
Hagaskóli: ÍS-HK 20
1. deild kvenna:
Hagaskóli: ÍS-HK 21.15
Sund
Landsbankamót SH verður framhaldið í
Hafnarfirði í dag kl. 10 og á sama tíma á
morgun.
Borðtennis
Hið árlega innanfélagsmót Víkings og Jarls-
ins verður í TBR-húsinu á morgun, sunnu-
dag, og hefst kl. 11.
Skvass
Head-mótið í skvassi fer fram í Veggsporti
við Stórhöfða um helgina. Mótið hófst í
gærkvöldi en verður framhaldið í dag. Um
aðra helgi verður keppt í unglingaflokkum.
Glíma
Þorramót Glímusambands Islands verður
haldið að Varmá í Mosfellsbæ á morgun,
sunnudag, og hefst kl. 16.
£eila
'1 kvöld kl. 20 verður mót Nýliða og Keilu-
hallarinnar í Öskjuhlíðinni.
Frjálsíþróttir
Meistaramót íslands í fjölþrautum innan-
húss fer fram í dag og á morgun. Keppt er
1 7 íþróttagreinum karla og 6 greinum
kvenna. Mótið hefst í Baldurshaga í dag
kl. 11 og á morgun kl. 10. Keppni í stangar-
stökki og 800 m hlaupi karla og 1.000 m
hlaupi kvenna fer síðan fram á Laugar-
"vatni á morgun kl. 15.
riðlum. Leikið verður í sjö sex þjóða
riðlum og einum fimm þjóða riðli í
undankeppninni og komast sigurveg-
aramir úr hveijum riðli í úrslita-
keppnina, ásamt sex þeim þjóðum
sem ná bestum árangri í öðru sæti.
Síðan leika þær þjóðir sem ná verst-
um árangri í öðru sæti í riðlunum —
aukaleik á hlutlausum velli um síð-
asta lausa sætið. Þess má geta að
þegar uppi verður staðið verður
árangur gegn fjórum efst liðunum í
riðlinum látinn gilta. Þetta er gert
til þess að mikið markaregn gegn
þjóðum eins og San Marínó og Arme-
níu geta ráðið úrslitum um marka-
hlutfall.
Úrslitakeppninn fer fram í Eng-
landi 1996. Þá verða 30 ár síðan
heimsmeistarakeppnin fór þar fram.
Eins og þá verða sextán þjóðir sem
taka þátt í úrslitakeppninni og verð-
ur leikið í fjórum Ijögurra þjóða riðl-
um á átta keppnisvöllum.
Tvær þjóðir komast upp úr hveij-
um riðli og þá í átta liða úrslit. Búið
er að ákveða, að ef verður jafntefli
í leikjum í átta liða úrslitunum, verða
þeir framlengdir, en flautaðir af
strax og annað liðið skorar í fram-
lengingunni. Ef jafnt verður einnig
eftir 30 mínútna framlengingu, þá
fer fram vítaspymukeppni. Þannig
fyrirkomulag hefur verið reynt í
keppni yngri knattspymumanna með
góðum árangri.
Það kemur sterklega til greina að
þriggja stiga fyrirkomulagið verði
tekið upp í undankeppninni — að sig-
ur gefi þijú stig, en jafntefli eitt.
Það fyrirkomulag verður í HM í
Bandaríkjunum í sumar.
Styrkleikaflokkar
Breytingar voru gerðar á styrkleikaflokkum EM í gær. Wales var fært í
2. flokk, en Tékkland fært úr flokknum í 3. flokk. Macedonía var fært úr
6. flokk í 4. flokk, en Slóvakía úr 4. flokk niður í 5. flokk og Luxemborg úr
5. flokki í 6. flokk.
Styrkleikaflokkamir eru því þannig þegar dregið verður í dag:
1. FLOKKUR: Þýskaland, Frakkland, Rússland, Holland, Danmörk, Sví-
þjóð, Ítalía, írland.
2. FLOKKUR: Noregur, Rúmenía, Sviss, Portúgal, Grikkland, Spánn,
Wales, Úkraína.
3. FLOKKUR: Búlgaría, Belgía, Skotland, N-írland, Pólland, Ungveija-
land, Tékkland, Króatía.
4. FLOKKUR: ísland, Austurríki, Finnland, Litháen, ísrael, Macedonía,
Hvíta-Rússland, Georgía.
5. FLOKKUR: Tyrkland, Lettland, Albanía, Kýpur, Malta, Færeyjar, Eist-
land, Slóvakía.
6. FLOKKUR: Luxemborg, San Marínó, Lichtenstein, Slóyenía, Moldavía,
Armenía, Aserbajdsjan.
í Englandi
Villa Park,
39.406 áhorfendur
Nottingham
| Birmingham
Borgir sem
leikið verður í
og keppnisvellir
LONDON
Wembley,
80.000 áhorfendur
Opnunarleikur 8. júní
Úrslitaleikur 30. júní
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
Reuter
Maier á sigurbraut í Maribor
ULRIKE Maier frá Austurríki sigraði í annað sinn í stórsvigi heimsbikarsins á þessu keppnistímabili í
Maribor í Slóveníu í gær. Hún var 0,25 sekúndum á undan svissnesku stúlkunni Verni Schneider, sem
náði besta tímanum í síðari umferð.
TENNIS / OPNA ASTRALSKA
Courier stefnir á þrennu
Jim Courier hefur tekið stefnuna
á þrennu á opna ástralska
meistaramótinu, eftir sigur á
Svíanum Nicklas Kulti, 6-3, 6-3,
7-6. Curier, hefur ekki tapað tenn-
isleik í Melbourn síðan 1991, stefnir
að því að verða fyrstur í 27 ár til
að fagna sigri á mótinu þijú ár í
röð. Hann mætri Wayne Ferriera
frá S-Afríku í sextán manna úrslit-
um.
Bandaríkjamaðurinn Pete Samp-
ras, sem vann vinstrihandarmann-
inn Stephane Simian frá Frakk-
landi, 7-5, 6-1, 1-6, 6-4, mætir
Ivan Lendl. Sampras, sem er núm-
er eitt á heimsstyrkleikalistanum,
hefur komist í sextán manna úrslit
í átta stórmótum í röð. Lendl sigr-
aði Hollendinginn Paul Haarhuis
4-6 6-2 6-2 6-4. Þess má geta að
Lendl var sektaður um 72 þús. ísl.
krónur, fyrir að láta línuvörð fá
það óþvegið í leiknum gegn Haar-
huis. Steffi Graf, sem stefnir á
sinn ljórða meistaratitil í Melbourn,
lagði Barbara Roittner að velli 6-2
6-4, en Helena Sukova (þrettánda
á heimslistanum), sem lék til úr-
slita 1989, tapaði, 4-6, 3-6, fyrir
frönsku stúlkunni Sandrine Testud,
sem er númer 115 á styrkleikalist-
anum.
URSLIT
Körfuknattleikur *»
NBA-deildin
Leikir aðfararnótt fimmtudags:
Minnesota - San Antonio...........93:83
■Dog West gerði 23 stig fyrir Minnesota.
David Robinson var stigahæstur hjá San
Antonio að vanda, gerði 25 stig.
Denver - Houston...............111:106
■Reggie Williams gerði 25 stig í tvífram-
lengdum leik fyrir Denver. Houston gerði
aðeins eina körfu, þriggja stiga, í síðari
framlengingunni á móti sjö stigum frá
heimamönnum. Otis Thorpe gerði 24 stig
fyrir Rockets og Hakeem Olajuwon 22.
LA - Lakers - Phoenix..........107:102
■Þetta var fyrsti NBA-leikurinn í Los
Angeles frá því að jarðskjálftamir riðu yfir
fyrir viku. James Worthy gerði 14 af 22
stigum sínum í síðari hálfleik og var besti
leikmaður Lakers sem hafði tapað fjórum
leikjum í röð fyrir þennan leik. Fyrrum leik-
maður Lakers, AC Green, var stighæstur í
liði Phoenix með 24 stig.
Skíði
Heimsbikarkeppnin
Maribor, Slóveníu:
Stórsvig kvenna:
Ulrike Maier (Austurríki)......2:28.83
(1:11.44/1:17.39)
Vreni Schneider (Sviss).........2:29.08
(1:12.00/1:17.08)
Katja Seizinger (Þýskal.)......2:29.31
(1:11.84/1:17.47)
Martina Ertl (Þýskal.).........2:29.62
(1:12.80/1:16.82)
Anita Wachter (Austurríki).....2:30.21
(1:12.43/1:17.78)
Deborah Compagnoni (Ítalíu)....2:30.23
(1:12.33/1:17.90)
Christina Meier-Hoeck (Þýskal.).2:30.63
(1:12.76/1:17.87)
Heidi Voelker (Bandar.)........2:31.10
(1:12.87/1:18.23)
Marianne Kjörstad (Noregi)......2:31.38
(1:13.33/1:18.05)
HANDBOLTI
Selfyssingar hittast
á Hard Rock Café
Selfyssingar mæta ungverska fé-
laginu Pick Szeged í fyrri viðureign
liðanna í 8-Iiða úrslitum Evrópukeppni
bikarhafa í Ungveijalandi í dag. Bjarni
Felixson, íþróttamaður á ríkisútvarp-
inu er með í för og lýsir leiknum beint
í útvarpinu. Stuðningsmenn Selfossl-
iðsins hér heima ætla að hittast á
Hard Rock Café kl. 15 og hlusta á
lýsinguna, sem hefst kl. 16.