Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 1
56 SIÐURB/C 50. tbl. 82. árg. MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins ivtíuter Ahtisaari tekur við embætti MARRTI Ahtisaari og kona hans Eeva (t.v.) veifa til mannfjöldans fyrir framan forsetahöllina í Hels- inki en Ahtisaari sór í gær embættiseið forseta Finn- lands. Þeim á hægri hönd standa Mauno Koivisto, fráfarandi forseti, og kona hans, Tellervo. Ahtisaari lagði aðaláherslu á aðgerðir í efnahagsmálum í ræðu við embættistökuna og gagnrýndi hann ríkis- stjórnina m.a. fyr(r að fullyrða að aðeins væri einn valkostur fyrir hendi í efnahagsmálum. Sjá „Stefnan í efnahagsmálum . . .“ á bls. 20. Flugvöllurinn í Tuzla opnaður Moskvu, Sarajevo, Sameinuðu þjóðunum. Reuter. RADOVAN Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba, var í heimsókn í Moskvu í gær og féllst á að heimila flutninga á hjálpargögnum með flugvélum til Tuzla, höfuðvígis múslima í norðurhluta lands- ins, eftir að rússneska stjórnin hafði lofað að senda þangað her- menn til eftirlits. Karadzic hóf heimsóknina með því að fara í Danílovskíj-klaustrið, höfuðstöðvar rússnesku rétttrúnað- arkirkjunnar, til að leggja áherslu á trúartengsl Rússa og Serba. Hann ræddi síðan við Andrej Koz- yrev ‘ utanríkisráðherra í tvær klukkustundir og að fundi þeirra loknum gáfu þeir út yfirlýsingu um að Bosníu-Serbar hefðu samþykkt að flutningar á hjálpargögnum hæfust á næstunni um flugvöllinn í Tuzla. „Þessi afstaða Bosníu- Serba er byggð á því að rússneskir eftirlitsmenn fylgist með því að flugvöllurinn verði ekki notaður í hernaðarskyni," sagði í yfirlýsing- unni. Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið Serbum frest til 7. mars til að opna Maraþonsamningar í Brussel um stækkun Evrópusambandsins Svíar, Finnar og Austur- ríkismenn semja um aðild Brussel. Reuter. SVÍAR, Finnar og Austurríkismenn náðu í gær samningum við Evrópusambandið um aðild að sambandinu frá og með 1. janúar 1995 en þá höfðu samningaviðræður staðið linnulaust í rúmar 30 klukkustundir. Samningaviðræðum Evrópusambandsins og Norð- manna var fyestað fram í næstu viku. Esko Aho forsætisráðherra Finna sagðist ekki alls kostar ánægður með samningana en á þeim myndi fullgert aðildarsamkomulag byggjast sem síðar yrði lagt fyrir finnsku þjóðina, Carl Bildt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði samninginn mjög góðan og hefðu Evrópusambands-ríkin tekið til greina sjónarmið Svía. „Samningur Svía og aðildarríkj- anna tólf er mikilvægasti alþjóðasamningur, sem Svíar hafa gert á þessari öld,“ sagði Bildt. Olga í Færeyj- um í garð Dana Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. MARITA Pedersen lögmaður Færeyja sagði í gær að samband Fær- eyja og Danmerkur væri hið versta í fjörutíu ár. Astæðan er krafa Dana um að Færeyingar uppfylli danska skilmála um framseljanlega kvóta. Forráðamenn færeyskra sjómanna hóta verkföllum ef Danir falla ekki frá kröfu sinni en meðal sjómanna er mikil andstaða við því að breyta kvótafyrirkomulaginu. Færeyingar hafa hingað til ekki viljað fallast á skilyrði Dana fyrir skuldbreytingu erlendra lána en nú vantar jafnvirði átta milljarða ís- lenskra króna í ríkissjóð eyjanna. Féð á meðal annars að nota til að borga laun um mánaðamótin. Poul Nyrup Rasmussen forsætis- ráðherra Danmerkur sagði í gær að Danir hefðu þegar lagt hart að sér að leysa vanda Færeyinga, en ofveiðar væru ógnun við allt at- vinnulíf eyjanna. Hann sagði að Færeyingar hefðu ekki staðið við sinn hlut af samningi milli Færeyja og Danmerkur og því gætu Danir ekki tekið til við að endurfjármagna færeysk lán. Færeyski fiskiflotinn yrði að laga sig að breyttum að- stæðum og framseljanlegir kvótar væru hluti af þeirra aðlögun. Ulf Dinkelspiel, Evrópumála- ráðherra Svíþjóðar og aðalsamn- ingamaður Svía, var mjög ánægð- ur með niðurstöðuna og sagði Svía eiga eftir að hagnast mjög á aðild að sambandinu. Taldi hann niðurstöðuna mjög hagstæða Svíum og vera gott veganesti í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild síðar á árinu. Svíar náðu einnig fram að þurfa ekki að greiða fullt framlag til sambandsins fyrr en eftir fimm ár. Fyrsta árið greiða þeir einung- is 50 milljónir Ecu, annað árið 150 milljónir og síðan töluvert meira á því þriðja og fjórða og loks alla upphæðina á fimmta ári aðildar. Ann Wibble, fjármálaráðherra Sví- þjóðar, vildi í gær ekki gefa upp hvert árlegt heildarframlag Svía til Evrópusambandsins verður, þegar upp er staðið. Þá sögðu sænskir stjórnmálamenn að mjög viðunandi samkomulag hefði náðst varðandi landbúnaðarmál. Eykur ekki þrýsting á Norðmenn Gro Harlem Brundtland, for- sætisráðherra Noregs, sagði það ekki setja neina tímapressu á Norðmenn að Svíar hefðu náð samkomulagi. Samningaviðræður Norðmanna og Evrópusambands- ins hefjast á ný þann 8. mars og þá verður reynt að finna viðun- andi lausn varðandi sjávarútvegs- og landbúnaðarmál. Brundtland sagði samningsstöðu Norðmanna vera óbreytta enda stæði vilji Evr- ópusambandsríkjanna til að öll rík- in fjögur, sem sótt hafa um aðild, næðu samkomulagi. Björn Tore Godal, utanríkisráðherra Noregs, sagði að þegar samningaviðræð- unum var frestað hafí flest bent til að samkomulag væri í augsýn,- Gangi Svíar, Finnar, Norðmenn og Austurríkismenn í Evrópusam- bandið stækkar það um helming að flatarmáli og auður þess eykst um 10%. Nær það við svo búið frá Miðjarðarhafi langt norður fyrir heimskautsbaug og austur að landamærum Rússlands. flugvöllinn í Tuzla, en hann var eitt af skotmörkunum í sprengju- árásum þeirra á borgina á mánu- dag. Kozyrev lýsti samkomulaginu sem „stóru skrefi“ í friðarumleitun- um rússnesku stjórnarinnar. Ejup Ganic, varaforseti Bosníu, sagði hins vegar að samkomulag Serba og Rússa væri „móðgun við Sam- einuðu þjóðirnar" og ekki kæmi til greina að fjölga rússneskum her- mönnum í landinu. „Sú aðferð að dæla Rússum inn í Bosníu og láta þá standa andspænis vestrænum hermönnum er óviðunandi.“ Tuzla er iðnaðarborg og var með 85.000 íbúa fyrir stríðið en tugir þúsunda flóttamanna hafa komið þangað frá yfirráðasvæðum Serba í Austur- og Norður-Bosníu. Bill Clinton Bandaríkjaforseti og John Major, forsætisráðherra Bret- lands, sögðust í gær ætla að senda nefnd til Sarajevo til að kanna hvað gera þurfi til að tryggja að Sarajevo-búar fái rafmagn, vatn og eldsneyti til kyndingar. Frakkar hafa lagt til að öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna samþykki ályktun þess efnis að samtökin. beiti sér fyrir því að Sarajevo-búar fái rafmagn og vatn og að fjórar borgir í Bosníu fái sérstaka vernd eins og Sarajevo. Stjórnarerindrek- ar hjá Sameinuðu þjóðunum segja nú að þessi tillaga verði látin liggja í salti vegna andstöðu Rússa. Bosníska höfuðborgin hefur ver- ið án vatns og rafmagns mánuðum saman vegna umsáturs Serba og Rússar eru ekki andvígir þeim hluta tillögunnar. Þeir eru hins vegar á móti hugmyndum Frakka um hvernig orða eigi ályktunina um að veita fjórum borgum til viðbótar sérstaka vernd Sameinuðu þjóð- anna með fulltingi NATO. Þeir vilja tryggja að öryggisráðið samþykki ekki ályktanir sem gætu réttlætt loftárásir af hálfu NATO til að fylgja þeim eftir. Reuter Vináttuböndin treyst JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, er nú í heimsókn í Banda- ríkjunum og fór í fyrrakvöld til Pittsburgh í Pennsylvaníu ásamt Bill Clinton Bandaríkjaforseta. Heimsókninni er meðal annars ætlað að draga úr spennunni milli ríkjanna að undanförnu. Vel fór á með leið- togunum í gær og myndin var tekin í Pittsburgh, þar sem afi Majors og faðir munu hafa starfað um tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.