Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 7 Skriður hefur komist á líffæraflutninga héðan til annarra Norðurlanda Líffæri úr átta íslend- ingnm hafa verið gefin LÍFFÆRI úr átta íslendingum hafa verið send utan síðan samningur milli Norðurlanda um líffæraflutninga tók gildi í mars í fyrra og eru þetta fyrstu dæmi um íslenska líffæra- gjafa hér fyrir utan færslu líffæra, s.s. augna og nýrna, milli ættingja og annarra aðstandenda. Að sögn Olafs Z. Ólafssonar, svæfingalæknis á Borgarspítala, er búist við að að árlega verði send út líffæri úr fjórum Islendingum, en það sé þó háð framboði sem geti verið minna eða meira. Hann segir að yfirleitt séu nýru tekin, auk lifrar, lungna, hjarta og briss. Að sögn Ólafs er búið að skipa nefnd sem vinnur að því að greina almenningi frekar frá ferli og mikil- vægi líffæraflutninga til að auka vitneskju og vitund um þá. Gera þurfi fólk meðvitaðra um líffæragjöf, samanber þróunina í Bandaríkjunum þar sem slíkar aðgerðir hafa farið fram í ein tuttugu ár. „í Bandaríkjunum og raunar víðar lætur fólk jafnvel vita að fyrra bragði að það sé fúst að gefa úr sér líffæri. Fólk ber þá á sér sérstakt kort sem segir að viðkomandi sé líffæragjafi, eða hitt að hann sé ekki reiðubúinn til að gefa líffæri. Kringumstæð- ur eru yfirleitt mjög erfiðar, oft á ungt og hraust fólk í hlut og um hörmuleg slys er að ræða. Staðan fyrir þá sem taka eiga ákvörðun um líffæragjöf er erfið og einnig fyrir lækna að hefja máls á þessu við sjúklinga og aðstandendur," segir Ólafur. Einn getur bjargað fjórum „Öll framkvæmd þarf af þeim sökum að vera afar varfærin og ekki má fara of geyst í sakirnar til að sómi sé að. Það er oft tölu- verður léttir fyrir ættingja að vita ,að líffæri viðkomandi komi að gagni, því líffæri úr einum einstaklingi geta kannski bjarg- að þremur eða fjórum öðrum og lengt líf þeirra til muna. Orðið hefur gjörbylting hjá líffæraþeg- um á seinustu árum, vegna þess að með lyfjameðferð og fleiri aðferðum er hægt að halda ut- anaðkomandi líffærum miklu Iengur í einstaklingum en var hægt. Ónæmiskerfið bregst ekki jafn hratt við og fólk lifir næstum eðlilegu lífi, að vísu undir eftir- liti sérfræðinga,“ segir hann. Gríðarleg þörf í heiminum Ólafur segir að um heim allan sé gríðarleg þörf fyrir líffæri og sjái ekki fyrir endann á henni. Sérstaklega sé vöntun á nýrum, lifrum, brisum, hjörtum, hjarta- lokum, lungum, augum o.s.frv. „Þetta er mjög vel skipulagt enda þurfa líffæraþegar oft að bíða vikum, mánuðum eða jafn- vel árum saman eftir því að rétta líffærið kemur og þá þurfa þeir að vera tilbúnir að leggjast inn á sjúkrahús með fárra klukku- stunda fyrirvara. Líffæraflutn- ingurinn sem fór fram á mánu- dag er ágætt dæmi um þetta, því undirbúningur hófst í Svíþjóð áður en flugvélarnar tvær fóru í loftið þaðan. Þar fengu menn upplýsingar varðandi stærð líf- færanna, blóðflokk og fleira, sem þeir mata síðan tölvur á sem finna þá líffæraþega sem til greina koma,“ segir Ólafur. Hann segir að flutningur líffær- anna milli Norðurlanda taki yfir- leitt tvær til þrjár klukkustundir, en ígræðslan sjálf geti tekið allt að hálfum sólarhring og jafnvel lengur. Morgunblaðið/Júlíus Líffæri sótt HRAÐI er iykilatriði við líffæraflutninga og hefst undirbúningur hjá bæði upphafsstað Iíffæris og móttökustað nokkru áður en sjálfur flutningurinn fer fram. Á mánudag sóttu læknar og hjúkr- unarfólk frá Gautaborg og Lundi í Svíþjóð hjarta, lungu og nýru úr íslendingi. NOTAÐIR BILAR ' ••••• 'V • IfaáÍ5 :■ i Sp HYUNDAI ELANTRA GLSI 1600, árg. ‘92, sjálfsk., 4ra dyra, vín- rauður, ek. 20 þ. km. Vökvast., rafm. í rúðum, samlæsingar. Verð 1.080 þ. 1 MMC GALANT GLSI 2000, 4x4, árg. ‘91, 5 gíra, 4ra dyra, hvítur. Samlæsingar, vökvast., skrið- stillir. Verð 1.090 þ. i SNhL/- v G>. í. SAAB 9001, árg. ‘88, 5 gíra, 4ra dyra, rauður, ek. 116 þ. km. Verð 620 þ. MMC LANCER GLX 1500, árg. ‘91, sjálfsk., 5 dyra, rauður, ek. 57 þ. km. Vökvast., rafm. f rúðum, samlæsingar. Verð 890 þ. TOYOTA COROLLA GLI 1600, árg. ‘93, sjálfsk., 5 dyra, græn, ek. 30 þ. km. Liftback m/vökvast., rafm. í rúðum, samlæsingar. Verð 1.330 þ. MMC LANCER 1500, árg. ‘90, 5 gíra, vfnrauður, ek. 100 þ. km. Rafm í rúðum, vökvast., sam- læsingar. Verð 650 þ. w wW HYUNDAI SCOUPE TURBO 1500, árg. ‘93, 5 gíra, 2ja dyra, vínrauður, ek. 20 þ. km. Álfelgur, vindskeið, vökvast. Verð 1.190 þ. MMC COLT 1300, árg. ‘91, 5 gíra, 3ja dyra, grænn, ek. 33 þ. km. Vökvast. Verð 750 þ. MAZDA 626, árg. ‘88, sjálfsk., 5 dyra, hvítur, ek. 110 þ. km. Verð 520 þ. MMC LANCER EXE 1500, árg. ‘89, 5 gíra, 5 dyra, grár, ek. 55 þ. km. Álfelgur, vökvast., samlæs- ingar. Verð 670 þ. FIAT TEMPRA, árg. ‘91, 5 gíra, 4ra dyra, blár, ek. 53 þ. km. Verð 720 þ. LADA SAMARA 1500, árg. ‘92, 5 gíra, 4ra dyra, grá, ek. 20 þ. km. Verð 550 þ. HYUNDAI PONY 1300, árg. ‘92, 4ra gíra, 3ja dyra, rauður, ek. 30 þ. km. Verð 670 þ. LADA SAFÍR 1200, árg. ‘92, 4ra gíra, 4ra dyra, blár, ek. 10 þ. km. Verð 380 þ. FORD ECONOLINE 5800, árg. ‘91, sjálfsk., blár, ek. 45 þ. km. Verð 1.890 þ. Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga kl. 10-14. im£>notaðir BIIAR 814060/681200 LADA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.