Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 Sveitarstjórnarkosningarnar í Eyjafjarðarsveit Jóhannes Geir og Sigurgeir hætta Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit. UNDIRBÚNINGUR er nú hafínn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor í Eyjafjarðarsveit. E-listinn sem hlaut fímm menn kjörna af sjö í síðustu kosningum hélt fund nýlega þar sem málin voru rædd. Á fundinum lýsti Jóhannes Geir Sigurgeirsson alþingismaður sem skipaði 4. sæti listans fyrir fjórum árum því yfír að hann gæfí ekki kost á sér á listann í komandi kosningum. Jóhannes var kjörinn á þing fljótlega eftir að hann hóf störf í sveitarstjóm og hefur 1. varamaður listans, Ármann Skjaldarson, því setið í sveitar- stjóm í hans stað. Sigurgeir Hreinsson fyrrverandi oddviti í Saurbæjarhreppi lýsti því einnig yfir að hann gæfí ekki kost á sér á listann, en hann skipaði þriðja sæti listans fyrir síðustu kosningar. Birgir Þórðarson á Öngulsstöð- um og Ólafur Geir Vagnsson sem vora í fyrsta og öðra sæti gefa áfram kost á sér á listann. Tveir listar vora í boði við síð- ustu sveitarstjómarkosningar, E- listinn sem saman stóð af fólki sem áður hafði verið í hreppsnefndum gömlu hreppanna þriggja og N- listinn sem var nýtt framboð og ■ FÖSTUGUÐSÞJÓNUSTA verður í kvöld, miðvikudagskvöldið 2. mars, kl. 20.30 í Akureyrar- kirkju. Sungið verður úr Passíusál- munum. Osló 58 M Það kostar minna en þig grunar að hringja til útlanda rn PÓSTUR OG SÍMI *58 kr.: Verð á 1 mínútu símtali (sjálfvirkt val) til Oslóar á dagtaxta m.vsk. hlaut tvo menn kjöma. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort N-listinn býður fram aftur. Benjamín Miðstöð fólks atvinnuleit Rættum aukna at- vmnui fiskverkun AUKIN atvinna við fiskverkun á Akureyri verður rædd á opnu húsi Miðstöðvar fólks í atvinnu- leit í dag, miðvikudag, frá kl. 15 til 18 og þá verður staða atvinnumála almennt á Norður- landi til umfjöllunar. Gestir verða Björgólfur Jó- hannssón ijármálastjóri Útgerðar- félags Akureyringa og Guðmund- ur Omar Guðmundsson formaður Alþýðusambands Norðurlands. Rætt hefur verið um hvemig auka megi vinnu við fullvinnslu afla og auka hráefni til vinnslu hér heima, en Björgólfur hefur mikinn áhuga á þeim málum og hefur m.a. beitt sér fyrir því að Útgerðarfélagið fái rýmri heimild- ir til landana úr þýsku togurunum sem tengjast fyrirtækinu. Hefur hann skoðað hvaða áhrif það hefði bein og óbein á fjölgun starfa á Akureyri. Guðmundur hefur gott yfirlit yfír stöðu atvinnumála hjá félags- mönnum Alþýðusambands Norð- urlands og mun reifa þau mál á fundinum. Ýmsar upplýsingar og dagblöð liggja frammi og kaffí og brauð verða á borðum þátttakendum að kostnaðarlausu, en allir eru vel- komnir sem áhuga hafa á þessum umræðuefnum. Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson Einangrunarstöðin skoðuð FYRSTU svínin koma í ein- angrunarstöðina í Hrísey í dag, en um helgina skoðuðu stjórn- armenn í Svínaræktunarfélagi íslands stöðina. Fyrstu svínin koma í einangrunarstöð svína í Hrísey Fimm grísafullar gylt- ur með flugi frá Noregi FYRSTU svínin koma í einangrunarstöð svína sem reist hefur verið í Hrísey í dag, miðvikudag, en um er að ræða fímm gyltur sem sóttar voru til Hamar í Noregi. Gylturnar koma í 19 sæta Dornier- vél Islandsflugs sem var sérstaklega útbúin til flutninganna. Einangrunarstöðin var formlega tekin í notkun síðastliðinn laugar- dag að viðstöddum landbúnaðar- ráðherra, Halldóri Blöndal, Hauki Halldórssyni, formanni Stéttar- sambands bænda, auk stjómar- manna í Svínaræktarfélagi Islands og fleiri gesta. Stöðin hefur nú verið sótthreins- uð og fær enginn að fara þar inn nema dýralæknir og bústjórinn, Kristinn Ámason. Stöðin var reist í fyrrasumar og er hún tæplega 400 fermetrar að stærð. Fluttar í sérstökum búrum \ Fyrstu fimm gyltumar, norsk landsvín, voru sóttar til Hamar í Noregi og er áætlað að flugvél með þær innanborðs lendi á Akur- eyrarflugvelli eftir hádegi í dag, miðvikudag. Smíðuð voru sérstök trébúr með loftgötum undir gylt- urnarauk þess sem vélin var klædd með plasti að innan að sögn Sigfús- ar Sigfússonar hjá íslandsflugi og hefur verið unnið að breytingunum undanfama daga. Gyltumar eru allar með fangi og er áætlað að sú fyrsta gjóti í kringum 20. mars næstkomandi. Þá koma fimm gyltur í stöðina í lok þessa mánaðar, þannig að í stöðinni verða tíu gyltur. Gert er ráð fyrir að svínin verði send í land úr einangrunarstöðinni þegar kom- ið er að þriðja ættlið. Um 250 lóðir óveittar eða framkvæmdir ekki hafnar 2n °r NÆGT framboð er á lóðum á Akureyri um þessar mundir, en í greinargerð byggingafulltrúa Jóns Geirs Ágústssonar kemur fram að samtals eru til um 250 lóðir undir óveittar íbúðir og íbúðir sem hefur verið úthlutað en framkvæmdir ekki hafnar á. samtals 131 íbúð í fjölbýlishúsum en byggingaframkvæmdir ekki hafnar. Nú era óveittar sjö lóðir undir einbýlishús á Akureyri og þá hefur 13 lóðum fyrir einbýlishús verið úthlutað en framkvæmdir ekki HÁSKÓUNN A AKUREYRI Fyrirlestur Tími: Miðvikudaginn 2. mars 1994 kl. 20.30. Staður: Háskólinn á Akureyri við Þingvallastræti, stofa 24. Flytjandi: Þorsteinn Gyjfason, prófessor í heimspeki við Háskóla íslands. Efni: Gildi, boð og ástæður. Lesturinn fjallar um undirstöður siðfræðinnar frá sjónarmiði dygða- fræði nútímans og verklegrar rökfræði. Öllum er heimill aðgangur. hafnar á umræddum lóðum, þann- ig að samtals eru 22 einbýlishúsa- lóðir til um þessar mundir. Óveittu einbýlishúsalóðimar era langflest- ar í Síðuhverfi og ein við Hafnar- stræti og önnur við Stórholt. Þær lóðir sem búið er að úthluta en framkvæmdir ekki hafnar á eru flestar við Dvergagil og nokkrar era í Síðuhverfi. Alls era 58 lóðir fyrir raðhúsa- íbúðir tilbúnar, þar af hefur 13 ekki verið úthlutað, en 45 þeirra er búið að ráðstafa, en bygginga- framkvæmdir ekki hafnar. Þessar lóðir era á ýmsum stöðum í bæn- um, þær sem ekki hefur verið út- hlutað era í Giljahverfí, en hinar m.a. í Síðuhverfi, Giljahverfí og Lundahverfi. Lóðir undir fjölbýlishús eru samtals 171, ekki hefur verið út- hlutað lóðum undir tvö 20 íbúða fjölbýlishús við Drekagil og Trölla- gil, en búið er að veita lóðir undir Heimspeki- fyrirlestur ÞORSTEINN Gylfason prófessor í heimspeki við Háskóla Islands flytur opinberan fyrirlestur við Háskólann á Akureyri í kvöld, miðvikudagskvöldið 2. mars, kl. 20.30 í stofu 24. Fyrirlesturinn nefnist Gildi, boð og ástæður og í honum er íjallað um undirstöður siðfræðinnar frá sjónar- miði dygðafræði nútímans og verk- legrar rökfræði. Þar verður snúist eindregið gegn því höfuðatriði sið- fræði Kants og margra annarra höf- unda að mönnum beri skilyrðislaus skylda til að hlíta kröfum siðferðisins án þess þó að dregin verði sú álykt- un af afneitun þessarar hugmyndar um skilyrðisleysi sem margir vilja draga, að siðferði sé óskynsamlegt. (Fréttatilkynning.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.