Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 44
ttngtuifrlðfeifr V/SA LECTRO ir i RAFRÆNT PJÓNUSTUKORT MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK Sím 091100, SÍMBRÉF 091181, PÓSTHÓLF 3010 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Allflestir vertíðar- bátar búnir með kvóta FLESTIR vertíðarbátar eru búnir eða langt komnir með þorskaflaheimildir sínar en flestum ber saman um að veiði sé með miklum ágætum nú, alls staðar sé fisk að finna á grunn- slóð. Afli línubáta fyrir Norður- landi hefur verið afar góður að undanförnu og togarar reyna að forðast þorskinn til að treina sér kvótann. Jóhann Símonarson skipstjóri á Bessa IS segir þorsk um allan sjó og sumir bátar að vestan séu að veiðum kvótalausir. Óttar Guðlaugsson skipstjóri á Auðbjörgu SH segir að vertíðin hafi gengið vel en kvótann kláraði skipið um síðustu áramót. Það hef- ur verið að veiða leigukvóta með dragnót frá áramótum. Hann sagði að það virðist vera töluvert mikið um smærri fisk „og ef hann þyngist um svona % hluta eða helming þá þurfum við ekki að drepa eins marga fiska. En þetta verður sjálfsagt mjög erfitt hjá öll- um,“ sagði Óttar. Farnir að veiða kvótalausir Jóhann Símonarsson skipstjóri á Bessa ÍS segir að menn geri sér ekki grein fyrir ástandinu vegna kvótaskerðingar á Vestfjörðum. Þar sé spurningin orðin sú hvort menn haldi áfram veiðum þrátt fyrir upp- urinn kvóta eða svelti ella. Hann segir að nokkrir bátar að vestan séu þegar farnir að veiða kvótalaus- ir. Agæt veiði hefur verið hjá línu- bátum fyrir norðan síðustu daga og hefur afli báta frá Siglufirði verið 150-200 kg á bala. Einn línu- bátur frá Þórshöfn komst upp í tvö tonn eftir daginn en að meðaltali hafa bátarnir verið með um 1.200- 1.400 kg. Sjá nánar í Úr verinu bls. Bl, B2, B4 og B5. Handknattleikur Leikið fyrir luktum dyr- umíEyjum MÓTANEFND Handknatt- leikssambands Islands úr- skurðaði í gær að leikur ÍBV og KR í 1. deild karla, sem fram fer í Vestmannaeyjum í kvöld, yrði leikinn fyrir luktum dyrum. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt handknattleikslið er beitt slíkri refsingu. Mótanefnd HSÍ telur að ÍBV hafi ekki staðið nægilega vel að framkvæmd síðasta heima- leiks milli ÍBV og Víkings í síð- ustu viku. Öryggi og eftirliti hafi verið ábótavant. Sigbjörn Óskarsson, þjálfari og leikmaður ÍBV, var úrskurð- aður í sjö mánaða keppnisbann af aganefnd_ HSI vegna óíþróttamannslegrar fram- komu í umræddum leik. Sjá bls. 42. Norðmenn frysta ekki loðnuhrogn og mikil eftirspurn í Japan 'ks l- Morgunblaðið/Albert Kemp Drekkhlaðinn LOÐNUSKIPIÐ Jón Kjartansson siglir drekkhlaðið inn Fáskrúðsfjörð með fullfermi af loðnu með stolt fjarðarins, Skrúð, í baksýn. Verð hefur hækkað um allt að þriðjung milli ára VERÐ á loðnuhrognum hefur hækkað um allt að þriðjung á Japansmarkaði milli ára, en framboð er nú lítið vegna þess að Norðmenn frysta ekki loðnu- hrogn í ár og er eftirspurn mikil. Gylfi Þór Magnússon, framkvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsa, kveðst telja að markaðurinn geti tekið við allt að 8.000 tonnum af hrognum. Frystihús hérlendis hafa almennt ekki hafið loðnu- hrognafrystingu, því hrognafyllingin hefur ekki náð æskilegu marki, sem talið er vera um 23-24%, og er nýtingin í hreinsuninni ekki góð. Nokkur frysting er þó hafin í«Vestmannaeyjum og í Þórs- höfn. Gylfi Þór segir að frystihús innan vébanda SH hafi þó allt til reiðu og hafi vélabúnaður þegar verið yfirfarinn. Loðnuveiði var dræm í gær vegna brælu. „Veðurfar og hegðun loðnunnar getur sett strik í reikninginn. Loðnan getur horf- ið á augabragði og hrygnt á tveimur dögum án þess að nokkuð veiðist af henni, eins og við þekkjum t.d. frá því í fyrra, þannig að töluverð áhætta og óvissa fylgir þessari framleiðslu,“ segir Gylfi Þór. í fyrra tókst að frysta um 700 tonn af hrognum. Sæmundur Guðmundsson, að- stoðarframkvæmdastjóri hjá íslenskum sjávarafurðum, segir að ef veiðar takist nú sé skynsamlegt að safna birgðum því íslend- ingar séu nú einu framleiðendur loðnu- hrogna fyrir Japansmarkað, og misfarist veiðar á næsta ári sé öruggast að eiga til eitthvert magn til að anna eftirspurn þá. „Markaðurinn er algerlega tómur núna og því skynsamlegt að framleiða aðeins meira ■ en menn áætla ársneyslu," segir Sæmund- ur. Yfir 300 þús. tonnum landað Samkvæmt upplýsingum frá Félagi ís- lenskra fiskimjölsframleiðenda er nú búið að landa um 303 þúsund tonnum af loðnu á vetrarvertíð eða rúmlega 756 þúsund tonna heildarveiði á loðnuvertíð. Loðnukvót- inn er rúmlega milljón tonn og eru eftir- stöðvar hans um 315 þúsund tonn. Borgin vill verja 800 millj. til átaks í atvmmimálum Formaður Atvinnuley sistry ggingasj óðs segir sjóðinn að óbreyttu ekki geta lagt fram 400 milljónir til átaksins Á FUNDI borgarráðs í gær lagði Markús Örn Antonsson borgarstjóri fram tillögu til úrbóta í atvinnumálum sem felur í sér að ráðist verði í sérstök átaksverkefni á vegum borgar- sjóðs og fyrirtækja borgarinnar og til þeirra varið 800 milljón- um króna, enda verði Atvinnuleysistryggingasjóði gert kleift að veita helming þeirrar upphæðar, eða um 400 milljónir króna, til verkefnanna. Tillögunni var vísað til borgarstjórnar til umfjöllunar. Pétur Sigurðsson, formaður Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs, segist fagna öllum hugmyndum til úrbóta í atvinnu- málum, en gerir ekki ráð fyrir að hugmynd borgarsljóra sé möguleg og bendir á að sjóðurinn hafi einungis 600 milljónir króna til ráðstöfunar. Verði tillaga borgarstjóra að veruleika verður hægt að ráða nálægt eitt þúsund manns til 650-700 starfa í tvo til sex mán- uði. Gert er ráð fyrir að byijað verði að ráða fólk af atvinnuleysis- skrá í mars hjá borgarsjóði, borg- arfyrirtækjum og verktökum á þeirra vegum. Þá er einnig lagt til að ráða fólk af atvinnuleysis- skrá til afleysinga í sumar umfram það sem er ráðgert í fjárhagsáætl- un. Miðað er við 200 störf í átta vikur að jafnaði og er reiknað með að kostnaður verði um 30 milljónir. 600 milljónir til ráðstöfunar Pétur Sigurðsson sagði að fyrir það fyrsta væri það ekki í verka- hring borgarstjórnar Reykjavíkur að samþykkja að borgin fengi 400 milljónir króna úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði og því komi þessi samþykkt á óvart þar sem talað sé um að borgin ætli að leggja fram ákveðna upphæð og hinn hlutann eigi að sækja í Atvinnu- leysistryggingasjóð. „Sjóðurinn hefur 600 milljónir til ráðstöfunar samkvæmt þessum bráðabirgða- ákvæðum í lögunum um átaks- verkefni á vegum sveitarfélaga. Auðvitað er hver umsókn fyrir sig afgreidd sérstaklega. Eg á samt ekki von á því, miðað við það sem var framgangsmátinn á síðasta ári, því nú eru þetta mjög svipaðar reglur, að þessi hugmynd borgar- stjórans sé möguleg," sagði Pétur. Hann sagði að ef hugmyndin væri möguleg og sjóðurinn yrði að setja fé í verkefnið reiknaði hann með að önnur sveitarfélög myndu fylgja í kjölfarið og þá myndi talsvert vanta upp á að endar næðu saman. Hins vegar myndi ekkert gleðja hann meira en ef áhugi yrði hjá sveitarfélög- unum að framkvæma góða hluti og eyða þar með atvinnuleysi. Hann talaði nú ekki um ef yfir- völd fjármála væru tilbúin til að leggja meira fé til þessara mála. Sjá nánar bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.