Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 Með morgunkaífinu Ég lét ekki skítugar hendur á dyrnar hjá þér. Ég sparka hurðum alltaf upp. Aster . . . ....strandferð með fjölskyldunni TM Reg. U.S Pat Otl.—all rights reserved © 1993 Los Angetes Times Syndicate Ég er hræddur um að við sé- um alla vega ekki þeir fyrstu sem klífum hérna. „EIZT þú ÍLiTLU SVÖRTU 3ÓK1NSJI HANSf" BRÉF TDL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Innkomnir — velkomnir Frá Sr. Kristjáni Björnssyni Nauðsynlegt er að finna nýtt orð um innflutt fólk af ólíku þjóð- erni sem gerist íslendingar. Aður fyrr var notast við orð eins og inn- flytjendur og átti það orð líklega sitt blómaskeið á meðan Norður- Ameríka var að byggjast. Það hef- ur fallið úr venju fyrir þær sakir að það þykir vísa um of til heild- sala, þ.e. innflytjenda varnings. Nú í vetur hefur verið gerð áber- andi tilraun til að nota orðið ný- búi. Hugsunin er líkast til sú að nýbúa-heitið sé ekki niðrandi og hljóti að vea jákvætt vegna þess að eitthvað nýtt felst í orðinu. Nú hefur hins vegar komið á daginn að fólkið sem hefur flutt hingað og orðið samlandar okkar hefur spurt spuminga eins og: Hvenær hættum við að vera nýbúar? Er það í samræmi við notkun orðsins Hin 16 ára Oksana Baiul frá Úkraínu var að mati Víkveija vel að glæstum ólympíusigri sínum í listhlaupi kvenna á skautum kom- in síðastliðið föstudagskvöld. Það var hrein unun að horfa á þessa fíngerðu stúlku í ftjálsu æfingun- um, sem hún lauk á nánast fullkom- inn hátt, þrátt fyrir að hafa slasast á fæti deginum áður við æfingar. Fágaðar, Ijaðurmagnaðar og styrk- ar hreyfingar hennar, ásamt ótrú- legu öryggi hennar í erfiðum stökk- um vöktu ómælda hrifningu þeirra sem fylgdust með mjög svo spenn- andi úrslitakeppninni. Eftir allt dramað í kringum þær bandarísku stöllur Nancy Kerrigan og Tonyu Harding fannst Víkveija sem heimsmeistarinn ungi, Baiui, væri vel að sigrinum kominn. Það varð enn ljósara, þegar að verðlaunaaf- hendingunni kom, því þá var svo að sjá sem Kerrigan væri ekki alls kostar sátt við silfrið sem hún hlaut. Að minnsta kosti virtist sem hún ætti í stökustu vandræðum með að brosa. Kannski hún hafi verið full- bráð að fagna sigri. xxx Alltaf er jafngaman að því þegar menn hafa ákveðinn húmor nýburi, sem verður komabarn áður en við vitum af? Sjálfsagt hefur það átt að hljóma við orðið íbúar, en vekur óvart upp drauga aðskiln- aðar við þá sem búa hér fyrir. í eldri kirkjubækur átti prestur að skrá alla þá sem fluttu inn í viðkomandi prestakall og einnig hina sem fluttu úr kallinu. Þessir tveir kaflar prestþjónustubóka báru heitin innkomnir og burtvikn- ir, þ.e. þeir sem komið höfðu inn og hinir sem vikið höfðu burt. Skrár þessar voru fyrri tíma skrán- ing á búferlaflutningum og þjón- uðu mikilvægu hlutverki sem þjóð- skrá Hagstofunnar hefur tekið við. Af þessari skrá er hægt að lesa úr'tveimur dálkum innkomnir frá og innkomnir til varðandi frekari upplýsingar um flutninginn. Hagstofan hefur tekið upp mun andlausari orð um þessar búsetu- færslur og notar jafnan orðasam- fyrir umhverfi sínu, eða þeirri um- ræðu sem efst er á baugi hveiju sinni. Þannig þótti Víkveija í síð- ustu viku sem það væri bráðsmellin hugmynd hjá þeim sem stýra veit- ingarekstrinum á Hótel Borg, að nefna súpu dagsins Seljavallasúpu. Egill Jónsson, formaður landbúnað- arnefndar Alþingis og kartöflu- bóndi frá Seljavöllum, hefur verið ein aðalsöguhetjan í langri, lítt skilj- anlegri og hundleiðinlegri landbún- aðarþrætu stjórnarflokkanna. Hon- um til heiðurs nefndu þeir Hótel Borgarmenn því Seljavallasúpuna, sem að uppistöðu til mun hafa ver- ið samsett úr seljurót og kartöflum! xxx Umræða um veðurfar er alla jafna mikil hér á landi. Veð-~ urblíðan í síðustu viku, í upphafi góu, var mikið rædd manna á með- al, enda mjög sérstakt að við fáum að njóta slíks veðurs á þessum árs- tíma. Flestir kunnu örugglega vel að meta blíðuna og nutu útivistar. Víkveija fannst því skondið um miðja síðustu viku þegar hann ók með leigubíl BSR og ræddi m.a. um þetta dásamlega veður við bíl- stjórann, þegar hann sagðist svo sannarlega vona að þessi góða tíð böndin þeir sem flutt hafa til lands- ins og þeir sem flutt hafa af landi brott, ef ég man þetta rétt eftir fréttatilkynningum á janúardögum ár hvert. Getur hver séð það fyrir sig að slíka útþynningu er erfitt að nota í heiti um fólk sem tekur sig upp í heimalandi sínu af fúsum vilja eða nauðbeygt til að setjast að í öðru. Ef brýnt þykir í einhveijum til- vikum að gefa innkomnum íslend- ingum sérstakt heiti, til dæmis í umræðu um stöðu þeirra hér á landi, tel ég rétt að hafna orðinu nýbúar. Innkomnir er orð sem hætt er að nota í færslum til kirkju- bóka og liggur ónotað í málinu í sambandi við flutninga fólks. Að vera innkominn vekur hugrenning- artengsl við orð eins og velkominn. Það getur líka minnt okkur á að fólkið sem sest hér að er vonandi komið til að vera. Fólkið á það sameiginlegt að vera af ólíku bergi brotið og er nú komið inn til lands- ins. Það ætti líka að minna afgang- inn af þjóðinni á þá staðreynd að íbúar þessa lands eru allir inn- komnir ef við förum aftur um fá- einar aldir. Varpa ég því hugmynd- inni fram við innkomna að þeir taki þetta orð til skoðunar og komi því inn í málið ef þeim líkar það vel. SR. KRISTJÁN BJÖRNSSON, sóknarprestur á Hvammstanga og ritstjóri Kirkjuritsins. Gagnasafn Morgmiblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. héldist ekki lengi. Hann sagði að þegar svona viðraði, væri ekkert að gera hjá leigubílstjórum. Það færu svo margir fótgangandi, sem í verra veðri notuðu leigubíla, og eidra fólk, sem væri stór hluti við- skiptavina leigubílstjóra, færi held- ur með strætisvögnum, þegar ekk- ert væri að veðri og færð. Nú þeg- ar allar götur og gangstéttir væru í þokkabót auðar, færu viðskiptin niður úr öllu valdi. xxx Skíðaunnendur á hinn bóginn hafa vel kunnað að meta veð- urblíðuna undanfarna daga. Blá- fjöll, Skálafell og Hengilssvæðið löðuðu til sín fjölda manns nú um helgina. Víkveiji var í hópi þeirra sem sóttu Bláfjöllin heim, bæði á laugardag og sunnudag. Satt best að segja kom það Víkveija á óvart, að ekki skyldu enn fleiri halda á fjöll um helgina, því veðrið var hreint dýrlegt, þótt skíðafærið hafi ekki verið upp á það allra besta. Vonandi að það snjói nú svolítið til ljalla, því þannig mun færið batna til muna og þá er aldrei að vita, nema hægt verði að stunda skíðin vel fram í aprílmánuð. Dónaskapur Frá Ásgerði Halldórsdóttur: Það er greinilegt að sameiginlegt framboð vinstri flokka til borgar- stjórnar Reykjavíkur á sér marga talsmenn meðal greinahöfunda Pressunnar. Ýmsir róttæklingar og marxistar, sem unnu með væntan- legu borgarstjóraefni vinstri flokk- anna í stúdentapólitíkinni fyrr á árum, skrifa nú reglulega í blaðið og hlaða Ingibjörgu slíku lofi, að venjulegu fólki sem alla tíð hefur haft óbeit á persónudýrkun er farið að ofbjóða. En langt er seilst, þegar byggja á upp ímynd Ingibjargar. í síðustu Pressu fer aðdáendalið hennar í sérkennilegan mannjöfnuð. Þar kemur eftirfarandi fram: „Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Það er makalaust að engum skuli hafa tekist að skjóta niður geisla- bauginn af henni. Henni hefur tek- ist hið ógerlega, þ.e. að sameina vinstri menn í Reykjavík án þess í fjölmiðlum að hafa nokkuð fyrir því sjálf. Skyn- söm, yfirveguð og greind með for- ystuhæfileika. Með eiginleika sem myndu nýtast í hvaða embætti sem er í heiminum." „Vigdís Finnbogadóttir. Ætti að fá heiðursnafnbót fyrir þessi enda- lausu leiðindi. Hún er meistari hins fyrirsjáanlega og fyrirsegjanlega. Hún er svo fyrirsjáanleg. Eins lífleg og spennandi og hríslurnar sem hún er alltaf að gróðursetja." Hvað gengur þessu fólki til? Hef- ur það enga sómatilfinningu? Á því að líðast að halda þessu áfram? Stöðvum það. Ég kann ekki ráð við því ein en vonast til þess að almenn- ingur sé tilbúinn til að snúast gegn yfirgangi slíkra dóna sem eru að leggja ýmsa fjölmiðlana undir sig og ætla að komast til æðstu áhrifa í þjóðféiaginu með lúalegum starfs- aðferðum. ÁSGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, Bollagörðum 1, Reykjavík. Yíkveiji skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.