Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 39 DOMSDAGUR A leið út á lífið tóku þeir ranga beygju inn í martröð. Þá hófst æsilegur flótti upp á líf og dauða þar sem enginn getur verið öruggur um líf sitt. Aðalhlutverkið er í höndum Emilio Esteves (Loaded Weapon 1) og leik- stjóri er Stephen Hopkins sem leikstýrði m.a. Predator 2. Sýnd kl. 5,7,9 og 11.15. Bönnuð innan 16 ára. BAWÆM MÓÐIR Einn mesti sálfræðiþriller seinni tima. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð i. 14 ára. ★ ★ ★ a.i. Mbi. Rómantísk gamanmynd Aðalhlutv. Matt Dillon, Annabella Sciorra, Marie-Louise Parker 09 William Hurt. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Doktorsritgerð í sagnfræði SIGURÐUR Gylfi Magnússon varði doktorsritgerð í sagnfræði við Camegie Mellon University í Pittsburgh í Bandaríkjunum 10. desember sl. Ritgerðin ber heitið „The Continuity of Everyday Life. Popular Culture in Iceland 1850-1940“. Þar er gerð tilraun til að meta þær breytingar sem áttu sér stað á íslandi seinni hluta 19. aldar og í upphafi 20. aldar og hvaða áhrif þær höfðu á hversdagslíf fólks, einkum barna og unglinga. Aðal- áherslan er lögð á bænda- samfelagið, en þó er einnig gerður lauslegur saman- burður á því og þéttbýlinu. Athyglinni er beint að lífs- ferli einstaklinga og hvernig þeir náðu að sameina vinnu og menntun, oft við erfiðar Alls sóttu 32 um starf slökkviliðsstjórans en Egg- ert Vigfússon fráfarandi aðstæður. Aðrir efnisþættir eins og ungbarnadauði, áhrif íslenskra bókmennta, samskipti barna og foreldra, trúmál, hjátrú og óformleg menntun eru einnig til um- fjöllunar í ritgerðinni og mótun þeirra á lífsviðhorfi fólks. Tilsjónarmaður doktors- ritgerðarinnar var dr. Peter Stearns, en að auki voru í doktorsnefndinni dr. John Modeil og dr. Mary Linde- mann. Við vinnslu ritgerðar'- innar naut Sigurður styrkja bæði frá íslandi og Banda- ríkjunum, m.a. frá Vísindar- áði íslands og Sagnfræði- slökkvistjóri, sem hættir vegna aldurs, lætur af störf- um 1. maí. Dr. Sigurður Gylfi Magn- ússon stofnun Háskóla íslands. Hann hefur birt niðurstöður rannsókna sinna í fagtíma- ritum beggja vegna Atlants- hafsins. Hann er m.a. höf- undur bókarinnar Lífshættir í Reykjavík 1930-1940. Sigurður Gylfi er sonur hjónanna Katrínar Sig- urðardóttur og Magnúsar Helgasonar, stjórnarform- anns í Hörpu hf. í Reykja- vík. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla íslands 1980, BA-prófi í sagnfræði og heimspeki frá Háskóla íslands 1984 og MA-prófi frá Carnegie Mellon Uni- versity í Bandaríkjunum 1987. Sigurður Gylfi stund- ar um þessar mundir kennslu og framhaldsrann- sóknir við Camegie Mellon háskólann í Pittsburgh. Brunavarnir Árnessýslu Kristján Einarsson slökkviliðsstj óri FRAMKVÆMDASTJÓRN Brunavarna Árnessýslu hef- ur ráðið Kristján Einarsson húsasmíðameistara sem slökkviliðsstjóra frá 1. maí næstkomandi. SÍMI: 19000 Far vel frilla min Myndin sem hefur farið sigurför um allan heim F A R I W F. 1 L M V CONCUBlNE - /*■/- if ct,m x.,f. Rosin besta myndin í Cannes '93 ásamt Píanó Kosin besta erlenda myndin á Golden Globe '94 Tilnefnd til ÓskarsverMauna '94 sem besta erlenda myndin „Ein sterkasta og vandaðast mynd síiarí ára“, ★ ★★★ Rás 2. Farewell my Concubine Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 12 ára. KRYDDLEGIN HJÖRTU Aðsóknarmesta erlenda myndin í USA fré upphafi. ★ ★★★ Hallur Helgason, Pressan. ★★★Júlíus Kemp, Eintak. ★ ★★Hilmar Karlsson, D.V. ★★★1/2Sæbjörn Valdimarsson, Mbl. ★ ★★hallar i fjórar, Ólafur Torfason, Rás 2. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Flótti sakleysingjans Sýnd kl. 5,7,9 og 11. HVfTATJALDEB Stranglega bönnuö i. 16 ára. MAÐUR AIM ANDLiTS ★ ★ ★ A.l. MBL. Aðalhlutv.: Mel Gibson. Tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna. M.a. besta myndin. PÍAfMÓ Sigurvegari Cannes-hátið- arinnar 1993 „Píanó, fimm stjörnur af fjórum mögul.“ ★ ★ ★ ★ ★ G.Ó. Pressan Sýnd kl. 4,55, 6.55, 9 og 11.15. Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.10. Héraðsdómur Reykjaness dæmir í árásarmáli Sex mánaða fangelsi og 4 milljónir í bætur 19 ÁRA piltur hefur verið dæmdur í 6 mánaða óskilorðs- bundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að reka ölkrús í andlit manns með þeim afleiðingum að hann missti sjón á öðru auga og hlaut alvarlega áverka í andliti. Pilturinn var einnig dæmdur til að greiða þeim sem hann réðst á rúmlega 3,9 milljónir króna í bætur. Árásin átti sér stað í miðbæ Hafnarfjarðar um klukkan þrjú aðfaranótt laugardagsins 31. júlí sl. þar sem sá sem fyrir árásinni varð var á gangi á leið frá skemmtistað. Hann mætti nokkrum piltum sem höfðu rifið upp tré úr beði, lét í ljós vanþóknun sína og lenti í stimpingum við einn pilt- anna en síðan hélt hver sína leið. Þeir mættust aftur og þegar átök virtust í aðsigi kom árásarmaðurinn, vatt sér formálalaust að mannin- um og sló hann í andlitið með 840 gramma þungri bjórkrús. Krúsin brotnaði á andliti mannsins og hlaut hann níu skurði og þijár minni skrámur í andliti. Einn skurðurinn var sýnu dýpstur og stærstur og náði m.a. yfir og inn í vinstra augað. Árásarmaðurinn skarst á hendi. Árásarmaðurinn og aðrir viðstaddir forðuðu sér á brott en maðurinn meðvit- undarlítill skjögraði einn á brott og mætti vegfaranda sem kallaði til lögreglu og sjúkrabíl. Sjónlaus á vinstra auga Maðurinn hefur gengist undir nokkrar aðgerðir vegna áverkans á auganu og vegna lýta í andliti og er niðurstaða meðferðarinn- ar sú að hann er sjónlaus á vinstra auganu. Af þeim sökum hefur maðurinn m.a. ekki getað sinnt stýrimanns- starfi sem hann er menntað- ur til og er varanleg örorka hans metin 25%. í niðurstöðu Más Péturs- sonar héraðsdómara segir að um hafi verið að ræða tilefnislausa, vísvitandi lík- amsárás, sem var sérstak- lega hættuleg vegna þess tækis sem notað var enda hafi hlotist stórfellt líkams- tjón af árásinni. Þá orki það til þyngingar refsingar að árásarmaðurinn hvarf af vettvangi í stað þess' að koma manninum til hjálpar en hann hafi strax getað gert sér grein fyrir hvað vopnið hafði reynst hættu- legt. Hæfileg refsing var talin 6 mánaða fangelsi, óskilorðsbundið. Þá var bótakrafa árásarþolans tek- in til greina að fullu og hon- um dæmdar tæplega 4 millj- ónir króna í bætur úr hendi árásarmannsins. Kjör vígslubiskups Skáiholtsstiftis á komandi vori Kennarar guðfræði- deildar eru á kjörskrá KJÖRSKRÁ vegna kosningar vígslubiskups í Skálholts- stifti hefur verið lögð fram. Á henni er 131 prestlærð- ur maður og hafa kennarar guðfræðideildar Háskóla Islands og starfsmenn biskupsstofu nú kosningarétt. Kærufrestur til breytinga er til 7. mars. Kjörskráin liggur frammi á biskupsstofu og í umdæmi vígslubiskups í Skálholti, það er Múla-, Austfjarða-, Skaftafells-, Rangárvalla-, Árness-, Kjalarness-, Borg- arfjarðar-, Snæfellsness-, og Dala-, Barðastrandar-, ísa- fjarðar-, og Reykjavíkur- prófastdæmum. Hinn 11. febrúar síðast- liðinn leitaði dómsmálaráðu- neytið lögfræðiálits um kosningarétt kennara guð- fræðideildar HÍ og starfs- manna biskupsstofu og var komist að þeirri niðurstöðu að þeir ættu að njóta kosn- ingaréttar við vígslubiskups- kjör í Skálholtsstifti á kom- andi vori. Kærur til breyt- inga á kjörskrá þurfa að hafa borist formanni kjör- stjórnar í dóms- og kirkju- málaráðuneyti fyrir kl. 13.30, 7. mars næstkom- andi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.