Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994
9
FATASTÍLL, TÓNAFÖRÐUN OG TÓNA-
LITGREINING
Upplýsingar hjá
Únnu F. Gunnarsdóttur
í síma 682270
164 kr.
á da§ koma
sparnabinum
í lag!
Það þarf aðeins 164 kr. á dag til að
spara 5.000 kr. á mánuði með áskrift
að spariskírteinum ríkissjóðs. Ef þú
bíður með að spara þangað til þú
heldur að þú hafir „efni" á því
byrjar þú aldrei. Líttu á sparnað sem
hluta af reglulegum útgjöldum
þínum, þannig verður sparnaðurinn
auðveldari en þú heldur.
Ert þú búin(n) að spara
164 kr. í dag?
Hringdu í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og byrjaðu
reglulegan sparnað með áskrift
að spariskírteinum ríkissjóðs.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
Óviðunandi
framtíðar-
mynd!
Fréttabréf um verð-
bréfaviðskipti segir m.a.
um þau dæmi sem sýnd
eru á meðfylgjandi mynd:
„Skuldsetning hins op-
inbera eykst í öllum dæm-
unum, en þeim mun meira
sem reiknað er með hæg-
ari hagvexti. Þannig verða
opinberar skuldir saman-
lagt árið 2000 um 74% af
landsframleiðslu í dæmi
1, um 68% í dæmi 2 og
62% í dæmi 3. Til saman-
burðar er áætlað að þetta
hlutfall muni svara til um
56% af landsframleiðslu á
líðandi ári. Samkvæmt
þessu hækkaði umrætt
skuldahlutfall að minnsta
kosti um 6 prósentustig
fram til aldamóta og
versta falli um 18 pró-
sentustig. Þetta er auðvit-
að óviðunandi framtíð-
armynd, jafnvel þó að
hagvaxtarhorfur væru
taldar góðar. í þessu sam-
bandi má einnig minna á
að umrætt skuldahlutfall
er farið að nálgast óþægi-
lega 60% markið sem Evr-
ópusambandið telur að
aðildarríkin þurfi að halda
sig innan i framtíðinni.
Þessi dæmi eru vissu-
lega mikil einföldun á
veruleikanum. Setja mættí
dæmin fram á mun full-
komnari hátt, meðal ann-
ars með því að vinna út
frá nettóskuldum hins op-
inbera, afkomu hins opin-
bera fyrir vaxtagreiðslur,
raunávöxtun og aðgrein-
ingu milli eríendra og inn-
lendra lána. Slík vinnu-
Skuldir opinberra
hlutfall af landsframleiðslu
Dæmi 1—i
s P Á
10
t-----1----1-----1----1----1-----1----1----1-----1----r 0
1980 1982 1984 1986 1988 1990 1992 1994 1996 1998 2000
Tafla úr Fréttabréfi um verðbréfaviðskipti.
Þróun opinberra skulda
Fréttabréf um verðbréfaviðskipti (Sam-
vinnubréf Landsbankans) hefur reiknað
út þrjú einföld dæmi um þróun opinberra
skulda (brúttó) sem hlutfall af landsfram-
leiðslu til aldamóta. Þau eru tíunduð á
meðfylgjandi skýringarmynd. í dæmi 1
er enginn hagvöxtur; í dæmi 2 1,5%
hagvöxtur og í dæmi 3 er hann 3% á ári.
brögð hefðu þó ekki
breytt heildarmyndinni að
neinu því marki sem skipt-
ir nuili fyrir umíjöllun
hér. í því sambandi nægir
að benda á að opinberar
skuldir hafa hækkað úr
36% af landsframleiðslu i
56% á siðustu sex árum.
Það gengur einfaldlega
ekki að sagan endurtaki
sig á næstu sex árum,
ekki einu sinni verulega
endurbætt...“
Frá halla til
jafnvægis
„Enginn vafi er á því
að hátt hlutfall erlendra
lána í opinberum skuldum
hér á landi er veikleika-
merki, sérstaklega í Ijósi
nettó skuldastöðu þjóðar-
búsins út á við. Flestar
aðrar þjóðir fjármagna
lánsfjárþörf hins opinbera
með útgáfu verðbréfa í
innlendum gjaldmiðli. ís-
lendingar þurfa smám
saman að þoka sér inn á
sömu braut og í þvi skyni
er nauðsynlegt að draga
úr Iánsfjárþörfinni til þess
að koma í veg fyrir að
vextir hækki úr hófi.
Þannig yrði staða rflds-
sjóðs treyst og jafnframt
staða þjóðarbúsins út á
við.
Til að rétta af búskap
hins opinbera er mikil-
vægt að horfa til nokkurra
ára í senn. Vandinn verð-
ur ekki leystur í einu vet-
fangi og það er ekkert
hald í almennum yfirlýs-
ingum um að jafnvægi
verði náð í ríkisfjármálum
á næsta eða þarnæsta ári.
Slíkar yfirlýsingar eru
innantóm orð. Þess í stað
þarf að gera vandaða fjár-
lagaáætlun til nokkurra
ára og ræða hana með
Qárlagafrumvarpi á
hverjum tíma. Fjárlaga-
áætlun af slíku tagi ætti
að sjálfsögðu að byggja á
gildandi lögum og reglum
um þau atriði sem hafa
áhrif á gjöld og telgur rik-
issjóðs og þeim breyting-
um sem stjómvöid hafa
ákveðið að beita sér fyrir
til þess að ná markmiðum
sinum í ríkisfjámiálum ...
Nefna má að flest aðild-
arriki OECD, ef ekki öll
utan Islands, gera slíkar
fjárlagaáætlanir tíl langs
tíma.
Við rflgandi aðstæður í
þjóðarbúskapnum og þær
horfur sem við blasa virð-
ist hæfilegt að koma á
jafnvægi í ríkisfjármálum
á tveimur til þremur
ámm. Gera þarf fjár-
lagaáætlun til nokkurra
ára, ef til vill fjögurra til
flmm ára, sem sýnir í ein-
stökum atriðum hvernig
áformað er að ná þvi
markmiði. Áætlunin þarf
að sýna hvaða útgjaldaliði
á að lækka og hvaða gjöld-
um og sköttum á að breyta
og jafnframt hvenær.
Þannig má vinna sig út
úr vandanum í áföngum
og koma ríkisfjármálun-
um á varanlegan grunn".
Ný stuttmynd frumsýnd
NÝ íslensk stuttmynd, „Byron“, verður frumsýnd í Tjarnarbíói föstu-
daginn 4. mars kl. 9. Myndin er 20 mín. löng og er gerð á svart/hvíta
filmu. Höfundur og leikstjóri er Guðmundur Karl Björnsson.
Myndin fjallar um ljósaperuna
„Byron" sem lendir í ýmsum hrakn-
ingum og verður bitbein hagsmuna-
afla sem tengjast stjórnmálum, trú-
málum, listsköpun og fleiru.
Þótt myndin sé í gamansömum
anda er myndmálið í ætt við ex-
pressionisma og „film noir“.
Steingrímur E. Guðmundsson og
Einar Jónsson sömdu tónlist við
myndina, Magnús S. Guðmundsson
sá um myndræna hönnun og Þor-
kell S. Harðarson gerði sviðsmynd.
Einnig verður sýnd stuttmynd
Þorvarðar Ámasonar, „Nature
Morte“, en Þorvarður er einnig
kvikmyndatökumaður myndarinnar
um Byron. Myndirnar verða sýndar
4., 7., 9., 11. og 14. mars kl. 9 og
10 í Tjarnarbíói.
SPEGILSJÓÐIR VÍB
Oryggi frá upphafi til framtídar
Þú þarft ekki endilega að kaupa spariskírteini ríkissjóðs til
þess að njóta öryggis og eignarskattsfrelsis. Mun minni
sveiflur eru á ávöxtun Sjóðs 5, auk þess sem viðskiptin eru
einfaldari og þægilegri.
• 11,5% RAUNÁVÖXTUN SL. 12 MÁN.
• ABYRGÐ RÍKISSJÓÐS
• EIGNARSKATTSFRELSI
• ÓKEYPIS VARSLA
Ráðgjafar VIB vejta frekari upplýsingar uin Sjóðsbréf 5 í
afgreiðslunni í Ármúla 13a eða í síma 91 - 68 15 30.
Jafnframt er hægt að kaupa Sjóðsbréf 5 í útibúum
Islandsbanka utn allt land. Verið velkomin í VÍB!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
I— Ármúla 13a, sími: 91 - 68 15 30. __l