Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994
43
HANDKNATTLEIKUR
Mikilvægir
leikir í Ung-
vevjalandi
„Mjög óhress með að þurfa að leika báða leik-
ina úti," sagði Erla Rafnsdóttir, landsliðsþjálfari
ÍSLENSKA kvennalandsiiðið
heldur utan í dag til Ungverja-
lands þar sem liðið leikur báða
leiki sína í Evrópukeppni
kvennalandsliða. Þetta eru
mikilvægir leikir því sigurveg-
arinn kemst í úrslitakeppnina í
Þýskalandi næsta haust.
Eg er mjög óhress með að þurfa
að leika báða leikina í Ung-
veijalandi og lagði til að þeir yrðu
báðir hér heima,“ sagði Erla Rafns-
dóttir landsliðsþjálfari í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Við fengum
fyrst fáránlegt tilboð um að leika
báða leikina úti og sendum gagntil-
boð um að leika báða leikina hér
heima. Þá kom annað tilboð um að
leika báða leikina úti og það var víst
þess eðlis að ekki var annað hægt
en að taka því. Með þessu er verið
að lágmarka kostnaðinn," sagði Erla.
Ungverska kvennalandsliðið er
mjög sterkt og það er gríðarlega
mikið í húfi fyrir þarlendan hand-
knattleik þvi stuðningsaðilar lands-
liðanna, karla og kvenna, sögðust
ekki tilbúnir að styrkja handknatt-
leikinn nema annað hvort liðið kæm-
ist í úrslitakeppnina. Karlamir náðu
ekki að tryggja sér sæti í úrslita-
keppninni og því ríður mikið á að
konunum takist það.
„Ég tel möguleika okkar ekki
mikla enda eru þessar stúlkur allar
atvinnumenn og æfa tvisvar á dag.
Það er mikil pressa á þeim vegna
framtíðar handboltans í landinu og
það gæti hjálpað okkur eitthvað. Við
mætum tiltölulega afslappaðar til
leiks því við erum búnar að ná
markmiði okkar og ef okkur tekst
að stöðva harðaupphlaup þeirra, sem
er þeirra sterkasta hlið ásamt mar-
kvörslunni, getur svo sem allt gerst.
En þetta verður erfitt," sagði Erla.
Þess má geta að fyrri leikurinn
verður á fóstudaginn, á sama stað
og Selfyssingar léku í Evrópukeppn-
inni á dögunum. Síðari leikurinn er
í annari höll og þurfa stúlkumar að
skipta um hótel, nokkuð óvenjuleg
staða. Leikið á fóstudegi kl. 18, far-
ið á annað hótel seint um kvöldið
og leikið síðan í hádeginu daginn
eftir. Erla sagði þetta dálítið furðu-
legt og sagðist fegin að hafa Ninu
Getsko, markvörð Stjömunnar, með
í för, en hún lék í Ungveijalandi
áður en hún kom til Islands og talar
ungversku. Nina yrði fyrst allra til
að bretta upp ermamar ef ekki yrði
farið með þær eins og sæmir í svona
samskiptum.
Öm Magnússon, framkvæmda-
stjóri HSÍ, sagði aðspurður um
ástæðu þess að báðir leikimir skuli
leiknir erlendis að þetta væri ein-
URSLIT
JMFG - Haukar 85:70
þróttahúsið 1 Grindavík, úrvalsdeildin í
iðrfuknattleik þriðjudaginn I. mars 1994.
Jangur leiksins: 2:0, 10:2, 13:13, 20:15,
10:32, 26:36, 26:41, 40:41, 40:43, 40:47,
18:47, 59:59, 72:60, 80:64, 85:70.
5tig UMFG: Wayne Casey 24, Nökkvi Már
lónsson 16, Hjörtur Harðarson 13, Unndór
Sigurðsson 11, Guðmundur Bragason 10,
Pétur Guðmundsson 6 og Marel Guðlaugs-
»n 5.
3tig Hauka: Jón Arnar Ingvason 20, John
Rhodes 18, Tryggvi Jónsson 15, Pétur
íngvason 9, Sigfús Gizurason 6 og Jón Öm
Juðmundsson 2.
Dómarar: Jón Otti Olafsson og Kristinn
jskarsson sem stóðu sig vel.
Áhorfendur: Um 550.
1. DEILD KVENNA:
tR-UMFG.....................32:128
göngu spuming um peninga. „Við
fengum tilboð þess eðlis að það marg
borgar sig fyrir okkur að leika báða
léikina úti,“ sagði Öm.
Nú voru fslensku strákamir kall-
aðir heim íleikinn gegn Finnum þrátt
fyrir að vonlítið, eða vonlaust^ væri
að vinna upp þann mun sem þurfti.
Það hefur væntanlega kostað eitt-
hvað en síðan er þessi mikilvægi leik-
ur seldur úr landi. Hefði slíkt verið
gert ef karlalandsliðið hefði átti í
hlut?
„Við kölluðum strákana heim í
leikinn gegn Finnum því við vildum
einskis láta ófreistað að vinna upp
þann mun sem þurfti þó svo munur-
inn væri ef til vill fjarstæðukenndur.
Það verður að segjast eins og er að
áhorfendur koma á karlaleikina þeg-
ar við emm með okkar sterkasta lið
en því miður er það ekki enn svo
með kvennaleikina. Lið þeirra er
mjög sterkt og væntanlega mun
sterkara en okkar lið. Ef leikið hefði
verið heima og að heiman hefði fyrri
leikurinn verið úti og þá væntanlega
ekki verið mikil aðsókn á síðari leik-
inn hér heima. HSÍ á í fjárhagsörðug-
leikum og við sáum okkur ekki ann-
að fært en að taka tilboðinu. Það er
ekki verið að hygla strákunum. Þetta
er bara blákalt reikningsdæmi,"
sagði Örn.
IÞROTTIR FATLAÐRA / OLYMPIUMOT I LILLEHAMMER
Landslidid
Erla Rafnsdóttir hefur valið 13 stúlk-
ur til að leika gegn Ungveijum.
Herdís Sigurbergsdóttir úr Stjörrt-
unni gaf ekki kost á sér en annars
er hópurinn þannig skipaðun
Markverðir: N
Fanney Rúnarsdóttir........Gróttu
Hjördís Guðmundsdóttir....Víkingi
Aðrir leikmenn:
Inga Lára Þórisdóttir.....Víkingi
Halla Maria Helgadóttir...Víkingi
Auður Hermannsdóttir....—Virum
Laufey Sigvaldadóttir......Gróttu
Ragnheiður Stephensen.-.Stjömunni
Andrea Atladóttir.............ÍBV
Heiða Erlingsdóttir.......Víkingi
Svava Sigurðardóttir......Víkingi
Una Steinsdóttir........Stjömunni
Guðný Gunnsteinsdóttir ...Stjömunni
Hulda Bjamadóttir.........Víkingi
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Svanur Ingvarsson mætir á æfingu á skautasvellið í
Laugardal. Hann mætir með sleða sinn í skottinu, en tek-
ur síðan við æfingar í sleðastjaki á svellinu.
Svanur eini
keppandinn
frá íslandi
Svanur Ingvarsson verður eini íslenski keppandinn
á Vetrarólympíumóti fatlaðra sem hefst í Lille-
hammer í Noregi 10. mars. Þetta verður í fyrsta sinn
sem íslendingar senda keppenda á Vetrarólympíumót
en mótið er nú haldið í sjötta sinn. Þátttakendur verða
um eitt þúsund frá 31 landi og er það um 40% aukn-
ing frá mótinu í Albertville fyrir tveimur árum.
Svanur mun keppa í sleðastjaki og ætlar hann að
taka þátt í 100, 500, 1.000 og 1.500 metra stjaki.
íþróttasamband fatlaðra leggur áherslu á að rennt
er blint í sjóinn með árangur enda er verið að keppa
í sleðastjaki í fyrsta sinn á vetrarleikunum og er þátt-
taka Svans fyrst og frekst hugsuð sem stuðningur
við þessa nýju íþróttagrein. Þegar fatlaðir íþróttamenn
taka þátt í mótum erlendist hefur stefnan iðulega
verið sett á sigur, en að þessu sinni eru kröfumar
ekki eins miklar enda ætlar Svanur bæði að taka þátt
í stuttum sprettum og einnig í millivegalengdum.
Svanur, sem er nýorðinn 31 árs, er þekktari sem
sundmaður en þegar Norðmenn leituðu aðstoðar ís-
lendinga til að fá sleðastjak inná leikana var haldið
námskeið hér á landi og sýndu margir áhuga á grein-
inni, meðal annars Svanur og var hann valinn til að
keppa í Lillehammer.
Vetrarólympíumótið hefst fimmtudaginn 10. mars
og iýkur laugardaginn 19. mars. Svanur keppir í 100
metra sieðastjaki mánudaginn 14. mars og einnig í
500 metra stjaki. Miðvikudaginn 16. mars keppir
hann i 1.500 metra stjaki og föstudaginn 18. í 1.00
metra sleðastjaki.
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD
Grindvfldngar komnir í úrslK
GRINDVIKINGAR unnu Hauka
85:70 og tryggðu sér þar með
rétt til að leika í úrslitakeppni
úrvalsdeildar. Haukar geta náð
þeim að stigum en þar sem
Grindvíkingar hafa betur í inn-
byrðisviðureignum félaganna í
vetur, hafa sigrað í þremur við-
ureignum en Haukar í einni,
komast þeir ekki upp fyrir þá.
Það var augljóst í byijun að
bæði lið ætluðu sér ekkert
annað en sigur í leiknum. Mikil
barátta í báðum lið-
Frímann um og taugaspenna
Óiafsson í leikmönnum.
skrífar Nökkvi Már Jónsson
sem spilaði mjög vel
í fyrri hálfleik dreif heimamenn
áfram og um miðjan hálfleikinn
voru þeir yfir 20:15. Nökkvi fékk
þá sína 3. villu og fór útaf en Hauk-
arnir sneru leiknum sér í vil með
17 stigum án svars og komust í
32:20. Þá loksins skoraði Nökkvi
tvær körfur fyrir heimamenn og
hafði þá skorað 13 af 24 stigum
þeirra. Pétur Ingvason kom Hauk-
um 15 stigum yfir með 5 stigum í
röð og staðan 41:26 tveimur mínút-
um fyrir hlé. í næstu sókn stal
Unndór Sigurðsson boltanum af
Jóni Arnari, skoraði og fékk víta-
skot sem hann skoraði úr. Þá var
eins og Grindavíkurliðið vaknaði af
dvala og þeir skoruðu hverja körf-
unar á fætur annarri án svars og
minnkuðu muninn í 1 stig rétt fyrir
hlé en John Rhodes skoraði síðustu
körfuna fyrir Hauka.
Haukamir byijuðu seinni hálf-
leikinn af krafti og komust 7 stigum
yfir með körfm frá Jóni Amari og
John Rhodes en Guðmundur Braga-
son og Wayne Casey komu Grind-
víkingum yfir með 4 stigum hvor.
Jafnt var á næstu tölum og á 11.
mínútu jöfnuðu Haukar 59:59.
Heimamenn skoruðu 2 stig og Pét-
ur Ingvason skoraði 1 stig úr víti.
Heimamenn tóku þá góða rispu og
gerðu nánast út um leikinn á tveim-
ur næstu mínútum með 12 stigum
og komust í 72:60. Ingvar Jónsson
þjálfari Hauka fékk dæmda í sig
tæknivillu á þessum kafla og gerðu
heimamenn 5 stig eftir þann dóm.
Þennan mun náðu Haukamir aldrei
að vinna upp og máttu játa sig sigr-
aða á lokakafla leiksins.
„Þessi leikur skipti milku máli.
Það er érfitt að halda einbeitingu
allan leikinn og við lentum undir í
fyrri hálfleik en sýndum góðan kar-
akter er við unnum upp forskotið í
fyrri hálfleik. Spiluðum síðan mjög
vel í þeim seinni og héldum þeim í
27 stigum," sagði Nökkvi Már Jóns-
son fyrirliði Grindvfkinga.
Nökkvi spilaði mjög vel í iiði
Grindvíkinga og var í miklu stuði
í fyrri hálfleik. Unndór Sigurðsson
einn af ungu strákunum stóð sig
mjög vel, skoraði mikilvæg stig og
var fastur fyrir í vöminni. Guð-
mundur var í mikilli baráttu allan
leikinn við Rhodes í vörninni og var
umsetinn í sókninni og skilaði sínu •
vel. Casey lifnaði við í seinni hálf-
leik og, Hjörtur var sterkur.
Jón Öm Guðmundsson fyrirliði
Hauka var ekki glaður í leikslok.
„Þessi ósigur kostaði okkur þann
litla möguleika sem við áttum á að
komast í úrslitakeppnina. Ég var
þó bjartsýnn í fyrri hálfleik þar sem
við náðum góðum kafla og forskoti
en það hvarf eins og dögg fyrir
sólu. Það má aldrei sofna á verðin-
um gegn Grindavíkurliðinu. Þeir eru
með það góðar skyttur og eru fljót-
ir fram. Við náðum síðan ekki að
halda haus og þeir komu miklu
grimmari til leiks í seinni hálfleik
og unnu verðskuidað" , sagði Jón.
Haukamir spiluðu oft á tíðum
vel í fyrri hálflei og framan af seinni
hálfleik en misstu síðan einbeiting-
una þegar þeir lentu undir. Jón
Amar, John Rhodes og Tryggvi
Jónsson spiluðu vel en hinir náðu
ekki að fylgja þeim eftir.