Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994
17
Peningamál
Varkár vaxtalækkun
þýzka seðlabankans
NYJA ÞYSKA SEGULLESTIN
Þýsk stjórnvöld taka (dag ákvörðun um hvort þau leyfi nýstárlega
hraðlest sem gengur fyrir segulkrafti, en henni er ætiað aö tengja
Hamborg og Berlín.
Frankfurt. Reuter.
ÞÝZKI seðlabankinn leyfði á
þriðjudag lítils háttar lækkun
mikilvægra vaxta á peninga-
markaði, sem hefur verið haldið
óbreyttum síðan í desember, og
vextir fóru niður fyrir 6% í fyrsta
skipti í fimm ár.
Mikilvægir vextir á endurkeypt-
um verðbréfum, sem hafa áhrif á
aðra skammtímayexti, lækkuðu í
minnst 5,97%. Sérfræðingar telja
að gripið verði til frekari ráðstafana
á næstu vikum og að þær geti leitt
til þess að forvextir, sem hafa verið
lækkaðir í 5,25%, lækki meir á öðr-
um ársfjórðungi.
Þótt fyrirfram hefði verið búizt
við að lækkun vaxta á peninga-
markaði. yrði lítil urðu fjárfestar
fyrir vonbrigðum þegar þeir komust
að því hve lítilfjörleg hún var í raun
Bandaríkin
Yfirráð Viacom
mæta mótspymu
Wilmington, Deleware. Reuter.
LÖGFRÆÐINGAR óánægðra
hluthafa í bandaríska fyrirtæk-
inu Blockbuster Entertainment
reyna að koma í veg fyrir fyrir-
hugaðan samruna þess og kapal-
sjónvarpsfyrirtækisins Viacom
Inc, sigurvegarans í „tíu millj-
arða dollara baráttunni“ um yfir-
ráðin yfir Paramount Communic-
ations.
Hluthafar í Blockbuster hafa
gagnrýnt fyrirhugaðan samruna við
Viacom vegna þess að hlutabréf
þeirra hafa stöðugt lækkað í verði
síðan stungið var upp á sameining-
unni fyrr á þessu ári.
Hluthafarnir hafa lagt fram
kröfu í Wilmington, Delaware, um
bráðabirgðalögbann til þess að
hindra samrunann, sem var kunn-
gerður 7. janúar þegar Viacom háði
harða baráttu við sjónvarpsvið-
skiptafyrirtækið QVC Network um
yfirráðin yfir Paramount. Block-
buster er mesta myndbandasölufyr-
irtæki Bandaríkjanna og lögbanns-
beiðnin er lögð fram í Wilmington,
því að dómstólar þar geta fjallað
um flókin fyrirtækjamál.
Hluthafarnir segja að að þar sem
eigendaskipti verði í fyrirtækinu
eigi þeir kröfu á aukagreiðslu fyrir
hlutabréf sín.
í lögbannsbeiðninni er því haldið
fram að Blockbuster hafi greitt allt-
of hátt verð fyrir B-flokks hlutabréf
í Viacom. Alls voru 23 milljón slík
bréf keypt fyrir 55 dollara hvert
^^^Vaskhugi
íslenskt bókahaldsforrit!
Fjárhags-, sölu-, launa-, birgðaT,
viðskiptamannakerfi og margt fleira er
í Vaskhuga. Einfalt og öruggt 1 notkun.
Vaskhugi hf. Sími 682 680
og verðið er talið of hátt þar sem
hlutabréf í Viacom hafa lækkað í
verði að undanförnu. Með kröfunni
um bráðabirgðalögbann er reynt að
stöðva þessi hlutabréfakaup.
Bretland
Tap og upp-
sagnir hjá
Britísh Gas
London. Reuter.
Tap varð á rekstri British Gas í
Bretlandi á síðasta ársjórðungi í
fyrra og 5.000 starfsmönnum
verður sagt upp til viðbótar
20.000, sem þegar hafa misst
vinnuna.
Tapið nam 1,65 milljarði punda,
en skilaði 223 milljóna punda hagn-
aðifá sama tíma árið á undan. Alls
varð 553 milljóna punda halli á
rekstri British Gas allt árið í fyrra,
en fyrirtækið skilaði 473 milljóna
punda hagnaði 1992.
og veru. Skuldabréf og hlutabréf
lækkuðu í verði í Þýzkalandi og
vonbrigði vegna lítillar vaxtalækk-
unar Þjóðveija leiddu einnig til
verðlækkana í París, London og á
öðrum helztu peningamörkuðum
Evrópu, sem hafa verið að ná sér
eftir miklar lækkanir í síðustu viku.
Belgíski seðlabankinn fór að
dæmi hins þýzka og lækkaði aðal-
vexti sína í 6,25% úr 6,40% og lok-
unarvaxtastig úr 7,75% í 7,90%.
Þetta var önnur lækkunin á tæpri
viku og sýnir að staða belgíska
frankans er er enn sterk gagnvart
markinu.
í Bretlandi benda skattahækkan-
ir, lítill hagvöxtur og skattalækkan-
ir til þess að vextir verði aftur lækk-
aðir. Á sama tíma riðar pundið til
falls. „Óvissan er mikil í efnahags-
málum og stjórnmálum,“ sagði
brezkur hagfræðingur. „Sífelldir
erfiðleikar John Majors forsætisráð-
herra og litlar vinsældir vegna
skattahækkana bæta ekki úr skák,“
sagði hann.
Stýri og
hreyfiafl
Stýrisegull
halda lestinni
á sporinu
Segulpúðahraðlestin
Jafnvægissegull
Togar lestinaaö
neöanveröu aö
sporinu
Sporið
Hreyfanlegt segul-
sviö gregur lestina
áfram með
jafnvægisseglinum
Langdræg gerð lestarinnar
Hraði: 300 - 500 krrVklst.
Lengd: 252m
Farþegar: 1.500
Buröargeta (farþ.+farmur): 1241.
Heimild: Magnetschnellbahn AG
ÞJONUSTU-
Við tökum við ábendingum
op tillögum sem varða
þjonustu SVR í símsvara
814626
Strætisvagnar Reykjavíkur hf
FLUGLEIDIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða bf. verður haldinn fimmtudaginn 17. mars
1994 í efri þingsölum Hótels Loftleiða og hefst kl 14.00.
Dagskrd:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins, Reykjavíkurflugvelli, blutabréfadeildd2. hceð frd og með 10. mars kl.
14:00. Dagana 14. til 16. mars verða gögn afgreidd frá kl 09:00 til 17:00 og
fundardag til kl. 12:00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12:00 á
fundardegi.
Stjórn Flugleiða hf.
FLYTUR AÐ SKUTUVOG11
- F0STUDAGINN 4. MARS!
.ioatanH
.bci&ra b Lia