Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994
Geðlæknafélag íslands segir atvinnulausa vera sérstakan áhættuhóp
Atvinnulausir fái heilbrigð-
isþjónustu á góðum kjörum
STJÓRN Geðlæknafélags íslands ályktaði í gær um heilbrigðisþjón-
ustu við atvinnulausa. Stjórnin skorar á heilbrigðis- og félags-
málayfirvöld að sjá til þess að atvinnulausir njóti sömu kjara við
heilbrigðisþjónustu og öryrkjar. Slíkt myndi leiða til raunverulegs
sparnaðar þar sem kostnaður við læknismeðferð sjúkdóma á frum-
stigum er hverfandi borið saman við lækningu alvarlegra veikinda
og örorku en í ályktuninni segir að atvinnulausir séu sérstakur
áhættuhópur í heilsufarslegu tilliti. Þeir spari við sig heilsuvernd-
andi læknisaðgerðir og komi ekki til eftirlits fyrr en í óefni sé
komið. Heilbrigðisráðherra, Guðmundur Árni Stefánsson, segir
að hann sé tilbúinn til að láta skoða þetta mál í ráðuneyti sínu.
Ólafur Ólafsson landlæknir
lagði til í grein sem birtist í Morg-
unblaðinu í maí á síðasta ári að
þeir sem hafi verið atvinnulausir
í sex mánuði eða lengur njóti sömu
kjara og elli- og örorkulífeyrisþeg-
ar hvað varðar læknis- og lyíja-
kostnað. Hið sama skuli gilda fyr-
ir fjölskyldur ef fyrirvinna er at-
vinnulaus.
Að sögn Kristins Tómassonar,
ritara Geðlæknafélags íslands,
voru skrif Ólafs kveikjan að álykt-
un félagsins. í henni segir að at-
vinnulausum sé hættara við að fá
ýmsa sjúkdóma, s.s. ýmsa geð-
sjúkdóma, þ.m.t. áfengissýki,
hjarta- og æðasjúkdóma, melting-
arfærasjúkdóma og aðra alvarlega
sjúkdóma. Þetta geti stafað af
ýmsum ástæðum. Bæði leiði aukið
álag á einstaklinginn til þess að
sjúkdómur komi fram, til þess að
atvinnulausir spari við sig heilsu-
vemdandi læknisaðgerðir og að
þeir komi ekki til eftirlits fyrr en
í óefni sé komið.
Sjúkdómar geta orðið illvígir
Þannig geti alvarlegir sjúkdóm-
ar skotið djúpum rótum og orðið
illvígir viðureignar. Til þess að
fyrirbyggja þetta sé nauðsynlegt
að atvinnulausum bjóðist heil-
brigðisþjónusta á sömu lqörum og
ellilífeyrisþegar og öryrkjar njóti.
Þetta sé eðlilegt þar sem kjör at-
vinnulausra séu um margt lík og
hjá þessum tveimur hópum.
Ólafur Ólafsson segir áð þessu
máli hafi verið hreyft í heilbrigðis-
ráðherratíð Sighvats Björgvins-
sonar en það hafi ekki náð fram
að ganga. Ólafur segir fyllstu
ástæðu til að leggja áherslu á
þetta og lýsir ánægju sinni með
að Geðlæknafélagið skuli hafa tek-
ið það upp.
VEÐUR
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +2 léttskýjað Reykjavlk 2 úrkoma
Bergen 4-1 léttskýjað
Helsinki +6 heiðskfrt
Kaupmannahöfn +1 alskýjað
Narssarssuaq •i4 skýjað
Nuuk -i-1 alskýjað
Ósló +7 léttskýjað
Stokkhóimur +5 léttskýjað
Þórshöfn 2 haglél
Algarve 18 iéttskýjað
Amsterdam B þokumóða
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín 0 rigning
Chicago -i-3 alskýjað
Feneyjar 11 þokumóða
Frankfurt 11 skýjað
Glasgow 5 skýjað
Hamborg 0 frostúði
London 6 alskýjað
LosAngeles 12 heiðskírt
Lúxemborg 10 skýjað
Madrid vantar
Malaga 17 léttskýjað
Mailorca vantar
Montreal +20 þokumoða
NewYork +4 skýjað
Orlando 16 alskýjað
París 9 skýjað
Madeira 16 skýjað
Róm 17 skýjað
Vín 11 skýjað
Washington 1 alskýjað
Winnipeg +7 (éttskýjað
VEÐURHORFUR í DAG, 2. MARZ
YFIRLIT: Um 400 km suðvestur af Reykjanesi er 965 mb. heldur vaxandi laegð,
sem þokast norður. Yfir Skandinaviu er 1.035 mb. hœð.
SPÁ: Suðvestan- og vestanátt, víða allhvöss. Éljagangur um landið sunnan- og
norðanvert, en norðan- og norðaustanlands léttir til.
STORMVIÐVÖRUNBúist er við stormi á öllum miðum og á Vestur-, Norður-, Aust-
ur-, Faareyja-, Suðaustur- og Suðurdjúpum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Ailhvöss suðvestanátt, einkum aunn-
an- og suðvestanlands, en mun hægari norðan- og austanlands. Á Suður- og Vest-
urlandi verða él en úrkomulaust annars staðar. Frost 4-7 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg austan- og suðaustanátt. Dálítil snjókoma
suðaustan- og austaniands en úrkomulaust annars staðar. Frost 7-8 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.46,16.30, 19.30, 22. 30. Svar-
sfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
O -'i '-á Æ
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V Ý V
Skúrir Slydduél B
r r r * r *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vmdörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30ígær)
Töluverð hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Vestfjörðum
er þungfært um Breiðadals- og Botnsheiðar, sömuleiðis er þungfært um Fjarðar-
heiði og Breiðadalsheiði á Austurlandi. Annars staðar á landinu eru allir aðalvegir
yfirleitt greiðfærir en sums staðar er nokkur hálka á heiðum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni
linu 99-6315.
Vegagerðin.
I DAG kl. 12.00
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Riðið frá borði
JÚLÍUS Guðni Antonsson kemur í land eftir að hafa siglt með
hest sinn á Akraborginni. Með honum á myndinni er Sólveig
Einarsdóttir en hún tók á móti Júlíusi Guðna.
Áheitasöfnun norðlenskra hestamanna
Tæplega 700 þús-
und hafa safnast
UM 680 þúsund krónur höfðu safnast í söfnun norðlenskra hesta-
manna til styrktar krabbameinssjúkum um kvöldmatarleytið i
gær, að sögn Halldóru Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Krabba-
meinsfélagsins á Akureyri. Þrír norðlénskir hestamenn riðu
boðreið suður frá Staðarskála I tilefni norðlenskra hestdaga í
Reiðhöllinni í Víðidal og söfnuðu áheitum á leiðinni.
Sigurður Óskarsson, einn
knapanna, sagði að reiðin hefði
gengið vel enda hefði veðrið verið
frábært, en lagt var upp á sunnu-
dag. Sigurður reið fyrsta áfang-
ann, Sighvatur Benediktsson tók
svo við og Júlíus Guðni Antonsson
fór svo síðasta áfangann með
hjálp tækninnar en hann kom
með Akraborginni frá Akranesi á
hádegi í gær.
Söfnunarféð rennur t.il kaupa
á innbúi í nýja íbúð sem Krabba-
meinsfélagið hyggst festa kaup á
handa krabbameinssjúkum utan
af landi sem þurfa að leita lækn-
inga til Reykjavíkur.
Að sögn Halldóru eru fjórar
slíkar íbúðir í notkun nú og er ein
þeirra sérstaklega ætluð aðstand-
endum krabbameinssjúkra bama.
Verður söfnuninni haldið
áfram til laugardags á norðlensk-
um hestadögum í Reiðhöllinni og
verður tekið við áheitum í síma
91-674012.
Borgarlögmaður segir starfi sínu lausu
Vil sjálfur ráða
hvenær ég hætti
MAGNÚS Óskarsson, borgariögmaður, sagði starfi sínu lausu í gær.
Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri margra ára göm-
ul ákvörðun sín að ráða því hvenær hann hætti hjá borginni frekar
en að bíða eftir því að vera skyldaður til að hætta. Magnús ætlar
að snúa sér að störfum á lögfræðistofu.
„Ég er búinn að vinna í 38 ár á
sama stað, kominn á eftirlaunaaldur
fyrir nokkru og það er ekkert merki-
legt við það að gera alvöru úr því
að hætta,“ sagði Magnús. „Það má
alltaf velta fyrir sér hvenær rétti
tíminn er kominn. Það sem réð úr-
slitum um að ég geri það núna er
tækifæri til að setjast inn á lög-
fræðistofu þar sem sonur minn
starfaði, þangað til hann tók nokkuð
óvænt við öðru starfí. Þar fæ ég
aðstöðu til að sinna eitthvað lög-
fræðistörfum, hóflega mikið vona
ég, og prófa að vera sjálfs mín
herra.“
Magnús sagði að það gæti verið
að mönnum dytti í hug að gefa
þessari ákvörðun einhveija dular-
fulla, pólitíska merkingu vegna
væntanlegra borgarstjómarkosn-
inga. „Þeir mega það fyrir mér, en
það síðasta sem mér dytti í hug
væri að láta skoðanakannanir hjá
Skáís eða öðrum stjóma mínu lífí.
Auk þess er ég búinn að upplifa
allt of margar kosningar til að fara
að ákveða úrslit þeirra þrem mán-
uðum fyrirfram," sagði Magnús
Óskarsson, borgarlögmaður.
Þýska skipið Frithjof
Á leið í land
með veikan
grænlensk-
an sjómann
ÞÝSKA eftirlitsskipið Frithjof er
á leið til Islands með grænlenskan
sjómann sem þjáist af botnlanga-
bólgu.
Að sögn landhelgisgæslunnar var
maðurinn sóttur um borð í græn-
lenska togarann Kiliutaq á mánu-
dag. Á Frithjof er sjúkrahús og
læknir en skipið fylgist með veiðum
þýskra skipa á Dornbanka, innan
grænlenskrar lögsögu. Frithjof er
langt frá landi og er búist við því
að hann komi ekki til Reykjavíkur
fyrr en á fimmtudag. Slæmt veður
er á þessum slóðum og tefur það
förina nokkuð.