Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.03.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 21 Fundur Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta með forseta Dúmunnar IIpp reisnarleið tog-arnir fá ekki að æsa til ófriðar á ný Moskvu. Reuter. BORÍS N. Jeltsín Rússlandsforseti varaði í gær leiðtoga uppreisn- ar þingsins í fyrra við að ögra stjórnvöldum, sagði að þeir yrðu handteknir umsvifalaust á ný ef þeir reyndu að æsa til óeirða. Talsmaður forsetans, Vjatsjeslav Kostíkov, sagði að þetta hefði komið fram í samtali forsetans við ívan Rybkín, forseta Dúmunn- ar. „Forsetinn lagði á það áherslu að sakborningarnir hefðu tekið boðinu um sakaruppgjöf og með því viðurkennt að hafa drýgt glæpi“, sagði Kostíkov. Kostíkov hafði eftir forsetanum að hann sæi að svo stöddu ekki að nein hætta steðjaði að almanna- friði í landinu og hann teldi sig hafa fulla stjórn á ástandinu. Rybkín, sem er kommúnisti, sagði eftir fundinn með Jeltsín að þeir sem reyndu að æsa til ófriðar og misnota þannig „mannúðlega ákvörðun" þingsins yrðu stöðvaðir með sameiginlegu átaki þings og forseta. „Við töpuðum öll í október [í uppreisn þingsins gegn Jeltsín] og erum öll að leita að lausn á vandanum", sagði forseti Dúmunn- ar. Hann sagði að leiðtogar upp- reisnarinnar hefðu verið látnir of fljótt úr haldi, ætlunin hefði verið Reuter Dularfull sprenging í íbúðablokk AÐ MINNSTA kosti fjórir létu lífið og átján slösuðust, sumir alvar- lega, í sprengingu sem varð í íbúðablokk í Brussel í fyrrinótt. Fjög- urra er enn saknað. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni, sem eyði- lagði með öllu átta íbúðir og olli skemmdum í fleirum. 106 íbúðir voru í blokkinni. Getum hefur verið leitt að gasleka en eldur kviknaði ekki í kjölfar sprengingarinnar. Um var að ræða félagslegt húsnæði en blokkin er í Berchem Sainte-Agathe hverfinu í norðvestur-hluta Brussel. en Links - vinstrisinnaðra græn- ingja. Aukið fylgi öfgamanna Aðaláhyggjuefni margra í þessum kosningum sem og í kosningunum í maí er aukið fyígi CD-flokksins. Flokksmenn kveðast vera „mið- demókratar“ en mörgum þykir mál- flutningur þeirra frekar minna á fas- ista. Þeir hafa nýtt sér erfíðleika í atvinnumálum og versnandi hag elli- lífeyris-, atvinnu- og örorkubótaþega til að skella skuldinni á innflytjend- ur. Aukna glæpatíðni skýra þeir einn- ig með sama hætti. Flokkur þessi er því einnig andvígur að pólitískum flóttamönnum sé veitt dvalarleyfi í Hollandi. Talið er að margir kjósend- ur muni greiða CD atkvæði sitt til að láta í ljós andúð á meintu úrræða- leysi róttgrónu flokkanna á þeim for- sendum að flokkurinn muni hvort eð er engin áhrif hafa eftir kosningarn- ar. Miklum áróðri hefur verið haldið uppi gegn þessu hugarfari og því greinilegt að áhyggjur af auknu fylgi CD eru raunverulegar. að ræða betur á þingi hugsanlegar afleiðingar sakaruppgjafarinnar. Rúslan Khasbúlatov, fyrrver- andi þingforseti, var látinn laus úr fangelsi um helgina ásamt Alex- ander Rútskoj, fyrrverandi vara- forseta, og fleiri andstæðingum Jeltsíns eftir að Dúman hafði sam- þykkt sakaruppgjöf þeim til handa. Khasbúlatov varði í gær aðgerðir þingmanna gegn Jeltsín í uppreisn- inni. Hann sagði að Jeltsín hefði verið búinn að fremja valdarán. „Hvað átti Æðsta ráðið [þingið] að gera? Það átti að haga sér í fullu samræmi við stjórnarskrána sem í gildi var og það gerðu stjórn- endur þingsins“. Hann sagði að þingið hefði haft fullan rétt til að kalla á herinn sér til hjálpar; skýrt væri kveðið á um í lögum að þing- ið hefði æðstu völd yfir hernum. Hæstiréttur Rússlands ákvað í gær að hætta málarekstri gegn leiðtogum valdaránsins 1991 er reynt var að steypa Míkhaíl S. Gorbatsjov, síðasta forseta Sovét- ríkjanna gömlu. Itar-Tass-irétta- stofan rússneska hafði eftir full- trúa heryfirvalda í dóminum að þetta hefði verið gert með hliðsjón af sakaruppgjöf Dúmunnar sem einnig náði til valdaránsmannanna frá 1991. Jeltsín og stuðningsmenn róttækrar umbótastefnu í Rúss- landi segja ákvörðun þingsins um sakaruppgjöf ólöglega en allt bend- ir nú til þess að forsetinn ætli að sætta sig við orðinn hlut. Verkföll námumanna Efnt var til sólarhringsverkfalla í mörgum rússneskum kolanámum í gær til að mótmæla töfum á út- borgun launa, sums staðar var þess krafist að ríkisstjórnin segði af sér og jafnframt að forsetakosn- ingum, sem eiga að verða 1996, yrði flýtt. Talsmaður sambands námumanna sagði að héldi rikis- . stjórnin áfram að hundsa vanda námumanna yrði næsta krafa þeirra afsögn stjómarinnar. Starfsmenn í olíu- og gasiðnaði hótuðu að taka þátt í verkföllunum en engin ákvörðun í þá veru var tekin á fundi fulltrúa þeirra í Níznevartovsk í Síberíu. Zhírí- novskíj til Strasbourg VLADÍMÍR Zhírínovskíj, leið- togi rússneskra þjóðernissinna, verður í rússnesku þingmanna- nefndinni sem verður viðstödd þing Evrópuráðsins 11.-15. apríl. Zhírínovskíj hefur verið úthýst úr mörgum Evrópulönd- um, þar á meðal Frakklandi, en Frakkar eiga þó ekki ann- arra kosta völ en veita honum vegabréfsáritun samkvæmt reglum Evrópuráðsins. Hefja eftirlit í Norður-Kóreu SEX eftirlitsmenn Alþjóða- kj arnorkumálastofnunarinnar komu í gær til Pyongyang, höfuðborgar Norður-Kóreu, til þess að kanna kjarnorku- vinnslustöðvar þar í landi. Hafa Norður-Kóreumenn verið grun- aðir um að vinna að smíði kjarnorkuvopna. Kýrnar fengu raflost BILUN í mjaltavélum á býlinu Chart Bottom í Kent í Englandi varð þess valdandi að 48 kýr fengu raflost við mjaltir í gær- morgun og drápust. Kona Ames studdi hann Washington, Moskvu. Reuter. EIGINKONA bandaríska njósnar- ans Aldrichs Ames, Rosario Ames, hefur viðurkennt að hafa verið í vitorði með manni sinum, að sögn dagblaðsins Wall Street Journal. Blaðið hefur eftir heimildarmönn- um sínum hjá dómsyfírvöldum að hún segist hafa hvatt hann til að eiga fundi með útsendurum Rússa og stutt hann við njósnirnar. Rússnesk stjórnvöld vísuðu á mánudag bandarískum stjórnarer- indreka, James Morris, úr landi og er ljóst að með þessu er verið að svara brottvísun Rússans Alexanders Lysenkos frá Washington. Stjórn Bills Clintons Bandaríkjaforseta seg- ir að Lysenko hafí verið helsti tengi- liður Ames sem talinn er hafa njósn- að fyrir Rússland og þar áður Sovét- ríkin um langa hríð. Ames var hátt- settur starfsmaður bandarísku leyni- þjónustunnar, CIA. I i*. 1 r Iml iABSIMS Nám & framtíb Laugardagsblaði Morgunblaösins, 12. mars nk., fylgir blaðauki sem heitir Nám & framtíð. í þessum blaðauka verður fjallað um Námskynningu 1994, sameiginlega námskynningu skólanna, sem haldin verður sunnudaginn 13. mars á þremur stöðum í Reykjavík. Tilgangurinn með þessum blaðauka er að auðvelda nemendum að átta sig á þeim námsmöguleikum sem boðið er upp á eftir að skyldunámi lýkur. Þeim sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blabauka er bent á að tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 7. mars Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdótir, Helga Guðmundsdóttir og Petrína Olafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar í síma 691111 eba símbréfi 691110. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.