Morgunblaðið - 02.03.1994, Page 5

Morgunblaðið - 02.03.1994, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 5 Fann ekki bílinnsinn ÖKUMAÐUR varð að leita að- stoðar lögreglu síðdegis á mánu- dag, þar sem hann hafði gleymt hvar hann lagði bíl sinum. Maðurinn kom til lögreglu um kl. 18 og sagði sínar farir ekki sléttar. Hann hafði brugðið sér í miðbæinn, en verið í þungum þönk- um og þegar erindi hans lauk hafði hann gleymt hvar hann lagði bíln- um. Lögreglan varð við beiðni mannsins um að svipast um eftir bíl hans og fannst hann skömmu síðar. ♦ ♦ ♦-- Þeyst um í Þingholtum LÖGREGLU þykir ökumenn fara heldur geyst um Þingholt- in, en þar er þétt byggð og þröngar götur. 18 voru stöðvað- ir þar fyrir of hraðan akstur á mánudag. í Þingholtunum er 30 km há- markshraði, en lögreglan stöðvaði ökumenn sem fóru þar um á tvö- falt meiri hraða. Líklegt er að lög- reglan hafi nánar gætur á hraða ökutækja um þennan bæjarhluta á næstunni. ----♦ ♦-♦-- Agimtist teiknibólur LÖGREGLAN handtók búðar- þjóf í Hagkaupum í gær. Hann varð uppvís að því að stela teiknibólum. Lögreglan þarf alloft að hafa afskipti af búðarþjófum og ekki eru það ávallt dýrustu hlutir sem þeir sækjast eftir, líkt og sannaðist í þessu dæmi. ----♦.♦-♦-- Suður-Afríka Vegabréfs- áritun óþörf STJÓRNVÖLD í Suður-Afríku hafa nú ákveðið að krefjast ekki lengur vegabréfsáritunar fyrir islenzka rikisborga, sem koma í stuttar heimsóknir til landsins. Vegabréfsáritunar hefur verið þörf í langan tíma. Jón Reynir Magnússon, ræðis- maður Suður-Afríku á íslandi, seg- ir að afnám vegabréfsáritunar nái til styttri ferða, skemmti- og við- skiptaferða, en áritunar verði áfram þörf, ætli menn sé að stunda nám eða vinnu þarna syðra. Þá þurfi blaðamenn, sem þangað ætla í efnisöflun, á vegabréfsáritun að halda. ----» ■♦ ♦- Gæsin er komin Miðhúsum. Svo virðist sem farfuglar séu orðnir eitthvað ruglaðir í ríminu. Fréttaritari sá sl. mánudag tvær gæsir á túninu á Reykhólum. Hann frétti þá að þrjár gæsir hefðu ver- ið hér á ferð nokkra undanfarna daga. Innanverður Breiðafjörður hefur oftast verið þakinn lagnaðar- ís um þetta leyti en nú er flæðiland- ið allt autt. 1 O O % ÁBYRGÐ Opið laugardaga kl. 10:00 - 17:00 Það getur verið töluverð áhætta að kaupa notaðan bíl. Þú getur auðveldlega sannreynt að útlit bílsins sé í lagi en fæstir hafa getu né aðstöðu til að sannreyna hvað leynist undir yfirborðinu. Þess vegna býður Brimborg hf. SEX mánaða ábyrgð á notuðum Daihatsu og Volvo bflum í eigu Brimborgar. Allir notaðir bflar af þessum tegundum eru yfirfarnir af þjónustumiðstöð Brimborgar og þar er allt lagfært sem er í ólagi áður en bflarnir eru seldir. Þannig er öryggi þitt tryggt. Ábyrgðin gildir til sex mánaða eða að 7500 km. og allt er í ábyrgð nema yfirbygging bílsins. faxafeni 8 • sími fi-6SSS70 - Sveinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.