Morgunblaðið - 02.03.1994, Side 15

Morgunblaðið - 02.03.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 15 Skólaskáklið ÍSLENSKA liðið sem keppti á norræna skólaskákmótinu í Finnlandi um helgina. Norræn skólaskák í Finnlandi Island vann í 2 aldursflokkum ÍSLENSKIR keppendur urðu efstir í tveimur aldursflokkuin í einstaklingskeppni í norrænni skólaskák sem lauk í Espoo í Finnlandi á sunnudag. Þá fékk íslenska liðið flesta vinninga á mótinu samanlagt. Mótið fór fram í Espoo í Finn- landi og var keppt í fimm aldurs- flokkum. í yngsta flokki 10 ára og yngri sigraði Sigurður Páll Steindórsson örugglega og fékk 5.5 vinninga af 6 mögulegum og Hjalti Rúnar Ómarsson varð í 5. sæti með 3 vinninga. í flokki 11-12 ára vann Bragi Þorfinnsson sigur en hann fékk 4,5 vinninga. Berg- steinn Einarsson varð 5. með 3,5 vinninga. í flokki 13-14 ára varð Jón V. Gunnarsson í 2. sæti með 3.5 vinning og Matthías Kjeld varð í 5. sæti með sama vinningafjölda. í flokki 15-16 ára varp Helgi Áss Grétarsson í 3. sæti með 4,5 vinn- inga og Arnar E. Gunnarsson varð í 7. sæti með 3 vinninga. I flokki 17-20 ára varð Magnús Örn Úlf- arsson í 4. sæti með 4 vinninga og Sigurbjörn Björnsson í 7. sæti með 3 vinninga. íslenska liðið fékk alls 38 vinn- inga en næstir komu Svíar og Danir með 31 vinning. Borg'arkringlan stækkar ÞESSA dagana er verið að und- irbúa opnun á allsérstæðri versl- unareiningu sem fengið hefur nafnið Þorpið. Þorpið verður opn- að föstudaginn 4. mars kl. 12 og í tilefni þess verður boðið upp á frítt sælgæti fyrir börnin auk skemmtiatriða. Þorpið samanstendur af 25 litlum verslunum sem bjóða upp á ýmsan varning á mjög góðu verði í nýstár- legu umhverfi. Þorpið er þannig byggt upp að gengið verður eftir einni götu með litlum verslunum til beggja handa. Hefur liver verslun smá bæjarhlut og nafn sem tengist þekktum verslunum sem hér voru fyrr á öldinni. í fréttatilkynningu frá Borgar- kringlunni segir: „Kapp verður lagt á að bjóða upp á góðar vörur á lægsta verði sem gerist, enda er allur til- kostnaður í lágmarki með sameigin- legum styrk allra sem standa að rekstri Þorpsins. Meðal þess sem boðið verður upp á í Þorpinu er antik- húsgögn, gjafavara, fatnaður á alla aldurshópa, geisladiskar, verkfæri, sælgæti o.fl. allt á frábæru verði.“ Opið verður alla virka daga frá kl. 12-18.30 og laugardaga frá kl. 10-16. ■ GRIKKLANDSVINAFÉ- LAGIÐ Hellas heldur fræðslu- fund fimmtudaginn 3. mars kl. 20.30 í Kornhlöðunni við Bankastræti. Þar heldur Inga Huld Hákonardóttir sagnfræð- ingur erindi sem hún nefnir: Frá Bakkynjum til Búbúlínu og verður þar sitthvað sagt af heter- um og húsmæðrum í Grikklandi hinu forna, þátttöku kvenna í launhelgum hátíðum og einnig verður hugsað að skjaldmeyjum og öðrum kvenskörungum í fortíð og nútíð. Að erindinu loknu gefst tækifæri til fyrirspuma og um- ræðna. Breyting á hundahaldi Leitað verður umsagna FRÉTT Morgunblaðsins um breytingar á reglum um hunda- hald í Reykjavík, var röng að því leyti að reglurnar hafa ekki hlotið endanlegt samþykki borg- aryfirvalda. Áður en til þess kemur verður borgarstjórn að fjalla um breytingatillöguna í tvígang, að sögn Gunnars Eydal skrifstofustjóra borgarstjórnar. Samþykkt borgarráðs nær til þess að leitað verði umsagna Hundaræktarfélags íslands, Lög- reglustjórans í Reykjavík og dýra- lækna Dýraspítala Watsons um bann við fjórum tegundum hunda, Dobermann, Rottweiler, Pit bull terrier og Japanees Akit, innan borgarmarkanna áður en fjallað er um tillöguna í borgarstjórn. FUJTNINGSMIÐUJNIN HF FLYTUR 0G FLYTUR 0G FLYTUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.