Morgunblaðið - 02.03.1994, Síða 20

Morgunblaðið - 02.03.1994, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 2. MARZ 1994 Tæknifundur Alþjóðahvalveiðiráðsins Bann við hvalveið- um við Suðurheim- skaut ekki samþykkt Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. TILLAGA Frakka og íra um að banna hvalveiðar við Suðurheim- skaut í háifa öld hlaut ekki nægan stuðning á fundi tækninefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins á Norfolk-eyju til að tryggja samþykki henn- ar á aðalfundi ráðsins í Mexíkó í maí. Fimm daga fundi um tillöguna lauk í fyrri viku og þótti þá ljóst að sögn bandarísku fréttastofunnar Associated Press að helstu and- stæðingar hennar, Japanar og Norðmenn, gætu safnað nægu fylgi til að fella hana í vor. Tillagan nýtur reyndar fylgis meirihluta aðildarríkja hvalveiði- ráðsins en % atkvæða þarf til að hún verði samþykkt. Japanar héldu því fram að hrefnustofninn væri orðinn það stór að óhætt væri að veiða tvö til fjög- ur þúsund dýr á ári og færðu að auki rök að því að hrefnuveiðar á svæðinu myndu tryggja viðgang steypireyðinnar, sem telst í útrým- ingarhættu. Fulltrúar 26 þjóða sátu fundinn á áströlsku eynni Norfolk og gátu þeir ekki komist að niðurstöðu. Friðunarsinnar vísuðu rökum Jap- ana á bug og sögðu að um leið og veiðar á einni tegund væru leyfðar væri ógemingur að koma í veg fyr- ir að aðrar yrðu veiddar í leyfis- leysi. En þeir gátu ekki sæst á ýmis tæknileg atriði, eins og hvar hið friðaða svæði ætti að hefjast, þótt þeir styddu tillöguna. Að mati hvalveiðiráðsins eru nú aðeins um 500 steypireyðar á suð- urhveli jarðar og 4.000 steypireyðar á hnattkúlunni allri. Talið er að stofnstærð hrefnunnar sé um 760.000. Reuter Embættistaka Finnlandsforseta MARRTI Ahtisaari sór embættiseið Finnlandsforseta í gær. Honum á hægri hönd stendur Mauno Koivisto, fráfarandi forseti, en Riitta Voskuainen, þingforseti er honum á vinstri hönd. Martti Ahtisaari sver embættiseið Finnlandsforseta Reuter Hebron. Reuter. ÍSRAELAR ákváðu að láta um 500 palestínska fanga lausa í gær en Frelsissamtök Palest- ínumanna (PLO) sögðu að það væri ekki nóg til að bjarga frið- arviðræðunum. Átök blossuðu upp víða á her- numdu svæðunum í gær, fjórða daginn í röð eftir að landnemi myrti 43 múslima á bænafundi á föstudag. Fjöldamorðið kynti undir einum mestu átökum í 27 áru sögu hernáms Israela á svæðinu og varð til þess að friðarviðræðum ísraela og Palestínumanna var frestað. Slakað var á útgöngubanni sem náði til tveggja milljóna Palestínu- manna en Ehud Barak, forseti herráðsins í ísrael, sagði að herinn byggist við öldu árása af hálfu Palestínumanna sem ekki væri hægt að koma algjörlega í veg fyrir. Talsmenn PLO sögðu að ísrael- ar gætu aðeins sefað reiði íbúanna á hernumdu svæðunum með því að leysa þúsundir palestínskra fanga úr haldi þegar í stað. Þeir kröfðust þess einnig að allir gyð- ingar búsettir á hernumdu svæð- unum, alls um 120.000 manns, yrðu afvopnaðir. Lögreglumála- Stefnan í efnahagsmál- um vakti mesta athygli Helsinki. Reuter. MARTTI Ahtisaari tók við embætti forseta Finnlands í gær af Mauno Koivisto, sem setið hefur í embætti í tvö sex ára kjörtíma- bil. Kom Ahtisaari nokkuð á óvart með ákveðnum pólitískum yfír- lýsingum í stefnuræðu sinni. Lagði hann mikla áherslu á rétt þeirra sem minna mega sín og sagði að ekki mætti draga úr fé- lagslegu öryggi þegar æ fleiri landsmenn lenda í fjárhagsþrenging- um. Hann kvaðst einnig vera meðmæltur nánari tengslum við Evrópu, það myndi ýta undir öryggi og velferð Finnlands. Skömmu eftir þessa ræðu tilkynnu embættismenn Evrópusambandsins að Finnar myndu undirrita aðildarsamning að sambandinu síðar um daginn. Laus úr prísundinni PALESTÍNUMAÐUR, sem var látinn laus úr fangelsi í gær, myndar sigurmerki með fingrunum í rútu á leið til heimabæjar síns á Vestur- bakka Jórdanar. Atök á hernumdum svæðum Israela Um 500 palestínsk- um föngum sleppt ráðherra ísraels, Moshe Shahal, sagði hins vegar að vopn yrðu aðeins tekin af um hundrað manns, félögum í Kach, herskárri hreyfingu landnema gyðinga. Ahtisaaris bíða erfiðar ákvarðanir í utanríkismálum og mesta efnahagslægð sem verið hef- ur í landinu frá því að það hlaut sjálfstæði frá Rússum árið 1917. Ahtisaari er mikill Evrópusinni og var ætlunin að aðildarviðræðum Finna lyki fyrir embættistökuna. Samningurinn við Evrópusamband- ið verður á meðal fyrstu mála sem koma til kasta hans. Þingmenn komu í þinghúsið nánast beint af ríkisstjórnarfundi og tóku nýir fundir við strax að lokinni emb- ættistökunni, sem fór að venju fram í þinghúsinu í Helsinki. Það var hins vegar einkum innanríkisstefna Ahtisaaris sem vakti athygli þingmanna og blaða- manna. Áfskipti Finnlandsforseta af efnahagsmálum og öðrum inn- anríkismálum hafa verið afar tak- mörkuð. Samkvæmt stjórnarskrá og hefð sér forsetinn aðallega um samskipti Finna við aðrar þjóðir, svo og yfirstjórn heraflans. Er stefna Ahtisaaris því önnur en Kauvistos, fyrirrennara hans. Ahtisaari telur alrangt að draga úr félagslegu öryggi þegar æ fleiri landsmenn lenda í fjárhagsþreng- ingum. Þá gagnrýndi hann ríkis- stjórnina fyrir að gefa í skyn að aðeins einn valkostur væri fyrir hendi í efnahagsmálum. Sagði hann að þjóðin þyrfti að sýna vilja og hugrekki til að koma með lausn- ir á atvinnuleysinu. Hvað utanríkismálin varðar leggur Ahtisaari áherslu á að við- halda góðum tengslum við Rúss- land og sagði í ræðu sinni að koma yrði í veg fyrir að Evrópa skiptist í austur- og vesturhluta. Koivisto gagnrýnir landbúnaðinn Mauno Koivisto, fráfarandi Finn- landsforseti, ávarpaði einnig þing- heim áður en hann lét af embætti. Var búist við að ávarpið yrði með formlegum hætti en sú reyndist ekki raunin. Gagnrýndi Koivisto meðal annars landbúnaðarstefnu þjóðarinnar undanfarinn áratug. Hann hefur sjaldan eða aldrei tekið svo sterkt til orða í þessum málum. Körfuboltaáhugamaður Martti Oiva Kalevi Ahtisaari er 56 ára. Hann er mikill tónlistarunn- andi, bregður sér reglulega í sána- böð og hefur gaman af körfubolta. Ahtisaari hyggst fara í fleiri heim- sóknir út á land en forverar hans en kona hans, Eeva, kveðst ætla að einbeita sér að því að grenna eiginmanninn, sem er 127 kíló að þyngd. Eiga þau hjón einn son. Ahtisaari á að baki langan feril í utanríksþjónustunni, var m.a. að- stoðarframkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna. Hann var frambjóð- andi Jafnaðarmannaflokksins og sigraði Elisabethu Rehn, frambjóð- anda Miðflokksins í kosningunum en það var í fyrsta sinn sem Finnar kjósa forseta sinn beinni kosningu. Kosningar til bæjar- og sveitarstjórna fara fram í Hollandi í dag Atvinnuleysi og anldn glæpa- tíðni helstu kosningamálin Heemstede. Frá Kristínu Waage og Reyni Þ. Finnbogasyni. KOSNINGAR til bæjar- og sveitarstjórna fara fram í dag, miðviku- dag, í Hollandi. Aðalkosningamálefnin eru aukin atvinnutækifæri og bætt öryggi borgaranna. Flokkamir eru allir sammála um að setja beri þetta á oddinn en þá greinir á um hvernig settu marki skuli náð. Fyrir skömmu var gerð skoðana- könnun í 11 stórum borgum og bæjum til að leiða fram hver væru, að mati almennings, mikilvægustu málefnin á þessum stigum stjórn- sýslunnar. Efst á listanum reyndist baráttan gegn aukinni glæpatíðni, þá atvinnumál, umferðarmál og vegagerð, eiturlyfjavandinn og í fímmta sæti var krafa um bætt hús- næði. Þeir flokkar sem taka þátt í bæj- ar- og sveitarstjórnarkosningunum eru sömu rótgrónu flokkarnir og bjóða fram í þingkosningum en í nær öllum bæjarfélögum eru flokkar sem eingöngu beita sér fyrir málefnum sem snerta eigið sveitarfélag. Fylgi þessara flokka er oft töluvert. Þingkosningar í maí Kosningabaráttan hefur sam- tvinnast baráttunni fyrir þingkosn- ingarnar sem fram fara í maí. Þjóð- málaumræðan hefur því sett mjög sterkan svip á baráttuna. Barátta gegn auknu atvinnuleysi er efst á stefnuskrá allra flokkanna og um leið vilja þeir minnka hallann á ríkis- sjóði og lækka skuldir ríkisins til að ná 3%-mörkum Evrópusambandsins. I síðustu skoðanakönnun sem gerð var 22. febrúar reyndist fylgi stjórnarflokkanna hafa minnkað töluvert frá því sem var í síðustu kosningum, 1989. CDA - Kristileg- ir demókratar - og PvdA - Verka- mannaflokkurinn - missa 33 af þeim 103 þingsætum sem þeir hafa. Búist er við að fylgið fari að mestu til D66 - Demókrata 66 - VVD - Ftjálslyndra demókrata - og Gro-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.