Morgunblaðið - 02.03.1994, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994
Lyfjafræðingur
Lyfjafræðingur (cand.pharm.) óskast sem
fyrst og ekki seinna en í apríl. Fullt starf.
Upplýsingar hjá yfirlyfjafræðingi.
Lauga vegs Apótek,
Laugavegi 16, sími 24045.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Hvammstanga óskar eftir hjúkrun-
arfræðingi til starfa í vor eða byrjun sumars,
vegna sumarafleysinga, á kvöld- og morgun-
vaktir. Starfshlutfall samkomulag.
Nánari upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra
í síma 95-12329.
Aðalfundur
Þróunarfélags íslands hf.
Aðalfundur Þróunarfélags íslands hf. verður
haldinn mánudaginn 14. mars 1994 kl. 12.00
á Hótel Sögu í „Skála", 2. hæð.
Dagskrá samkvæmt 14. grein samþykkta
félagsins.
Stjórnin.
Til leigu
125 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í Skútu-
vogi 10D. Góð bílastæði. Húsnæðið er í mjög
góðu ástandi og er laust til afhendingar strax.
Upplýsingar veitir Hálfdan Hannesson, símar
77723 og 685888, og Forval hf., Skútuvogi
10D, sími 687370.
Slttá auglýsingar
I.O.O.F. 9 = 175328V2 = Bu.
□ HELGAFELL 5994030219 VI
□ GLITNIR 5994030219III-1
I.O.O.F. 7 = 175328Vz =
REGLA MUSTERISRIDDARA
RMHekla
2.3. - VS - FL
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Skrefið kl. 18.00 fyrir 10 til 12
ára krakka. Biblíulestur kl. 20.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNl 6 • SÍMI 682533
Aðalfundur F.í.
verður haldinn miðvikudags-
kvöldið 9. mars í Sóknarsaln-
um, Skipholti 50a, og hefst
hann stundvíslega kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Munið vetrarfagnaðinn laugar-
dagskvöldið 19. mars í Hótel
Selfossi. Möguleiki á gistingu.
Pantið tímanlega.
Ferðafélag (slands.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Kristniboðssamkoma í kvöld
kl. 20.30 í Kristniboðssalnum.
Ræðumaður verður Sigursteinn
Hersveinsson.
Einsöngur: Þórður Búason.
' Head
svigmót
Víkings
Reykjavík-
urmeistaramót
Svigmót Víkings fer fram bann
12. mars 1994. Keppt verður i
karla- og kvennaflokki og í flokki
15-16 ára pilta og stúlkna. Svig
mótið gildir til Reykjavíkurmeist-
ara. Þátttökutilkynningar berist
fyrir kl. 18.00 þann 4. mars 1994
á myndsendi 689456.
Mótsstjórn.
Miðilsfundir
íris Hall verður með einkatíma
til 6. mars. Hún tekur einnig
fjölskyldufundi.
Upplýsingar í síma 811073.
Silfurkrossinn.
Michael talar
Miðla einingunni Michael
fimmtudaginn3. narskl. 20.00.
Húspláss fyrir 20 manns.
Skráning í síma 677323.
Verð kr. 500,-
Garðar Björgvinsson.
Samkomulagið undirritað
MARKUS Örn Antonsson borgarstjóri og Sjöfn Ingólfsdóttir undirrita samkomulag um málefni starfs-
manna Strætisvagna Reykjavíkur hf. að viðstöddum formanni BSRB og fulltrúum starfsmanna SVR
hf. sem einnig undirrituðu samkomulagið.
Samkomulag um að starfsfólk SVR hf. verði borgarstarfsfólk
Sigur í baráttu fyrir
óbreyttum kjörum
- segir formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
SAMKOMULAG var í gær undirritað um að þeir starfsmenn
Strætisvagna Reykjavíkur hf. sem voru í starfi hjá Strætisvögn-
um Reykjavíkur 30. nóvember siðastliðinn og áttu aðild að
Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar eða tóku laun sam-
kvæmt kjarasamningum þess eigi kost á endurráðningu hjá
Reykjavíkurborg. Jafnframt gildi hið sama um þá sem ráðnir
hafa verið hjá SVR hf. síðan. Samkomulagið undirrituðu Mark-
ús Örn Antonsson borgarstjóri, Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Ogmundur Jónasson,
formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, og fjórir full-
trúar starfsmanna SVR. Borgarráð staðfesti samkomulagið
síðdegis í gær. Sjöfn Ingólfsdóttir segir að samkomulagið sé
fullnaðarsigur starfsmanna SVR hf. í baráttu þeirra fyrir
óbreyttum kjörum eins og þeim hefði á sínum tíma verið lofað.
í samkomulaginu segir að um
réttindi og kjör þeirra starfsmanna
sem óski endurráðningar hjá
Reykjavíkurborg fari eftif almenn-
um ákvæðum kjarasamnings
Reykjavíkurborgar og Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar
svo og þeim lögum og reglum sem
gilda um opinbera starfsmenn
borgarinnar og muni greiðslur til
lífeyrissjóðs og stéttarfélaga fara
fram í samræmi við það. Þá segir
að litið verði svo á að um óslitna
ráðningu hafi verið að ræða hjá
þeim sem óska endurráðningar.
Við það er miðað að umræddir
starfsmenn Reykjavíkurborgar
inni vinnuskyldu sína af hendi hjá
SVR hf. sem endurgreiðir síðan
borgarsjóði launakostnað eins og
vera myndi samkvæmt almennum
kjarasamningum. Eru aðilar
samningsins sammála um að kom-
ið verði á formlegu samstarfi
Reykjavíkurborgar, Starfsmanna-
félagi Reykjavíkurborgar og
BSRB, þar sem fjallað verði um
breytingu og nýskipan í rekstri
stofnana og fyrirtækja á vegum
borgarinnar, réttindi og skyldur
starfsmanna, félagsaðild o.fl.
Tekur af allan vafa um
réttarstöðu starfsmanna
í greinargerð borgarstjóra með
samkomulaginu við Starfsmanna-
félag Reykjavíkurborgar, sem lögð
var fyrir borgarráð í gær, segir
m.a. að með samþykkt borgar-
stjórnar 26. ágúst 1993 um breyt-
ingu á rekstrarformi Strætisvagna
Reykjavíkur sé stefnt að því að
skapa skilyrði til að ná aukinni
hagkvæmni í rekstri og jafna sam-
keppnisaðstöðu við aðila í einka-
rekstri. Slitin séu bein tengsl
stjórnmálamanna við daglegan
rekstur almenningsvagna, en þeir
hafi áfram yfirumsjón með leiða-
kerfi þeirra, fargjöldum og þjón-
ustu við borgarbúa. Ákvörðun
borgarstjórnar beinist ekki að því
að skerða kjör eða starfsöryggi
félagsmanna í St.Rv. sem unnu
hjá SVR. Þvert á móti hafi ítrekað
verið leitað leiða til að tryggja
þeim óbreytt laun og kjör, án þess
að fullnægjandi niðurstaða fengist
og þá einkum að því er taki til
lífeyrisréttinda. Samkomulagið
sem gert hafi verið taki hins vegar
af allan vafa um réttarstöðu
starfsmannanna.
Alsæl í sigurvímu
„Við erum auðvitað hér í sigur-
vímu og alsæl með þetta sam-
komulag. Við erum sátt við þessa
gjörð og teljum hana fullnaðarsig-
ur í baráttu starfsmanna fyrir því
að halda óbreyttum kjörum eins
og þeim var lofað á sínum tíma,“
sagði Sjöfn Ingólfsdóttir, formað-
ur St.Rv., eftir að samkomulagið
hafði verið undirritað. Hún sagði
að aðdragandi þess hefði hafist í
óformlegu samtali við borgar-
stjóra, og síðan hafi það verið
gert í gærmorgun að hans tillögu.
„Við treystum þessu samkomu-
lagi og áð þetta sé nú í höfn, en
við munum vinna tæknilega vinnu
í sambandi við þetta nú á næstu
dögum. Ég lýsi fullri virðingu
minni fyrir félagsmönnum okkar
og sendi þeim hamingjuóskir, en
þetta er auðvitað komið í höfn
fyrst og fremst vegna þrotlausrar
baráttu þeirra og elju,“ sagði
Sjöfn.
Prófkjör Alþýðuflokksins í Kópavogi
Guðmuiidur Odds-
son hlaut 514 at-
kvæði í fyrsta sæti
UPPLÝSINGAR frá skrifstofu
Alþýðuflokksins um greidd at-
kvæði í prófkjöri flokksins í
Kópavogi um síðustu helgi sem
Morgunblaðið birti i gær reynd-
ust rangar. Beðist er velvirðing-
ar á þessu.
Birt var tafla í blaðinu í gær sem
sýndi heildarfjolda greiddra at-
kvæða til hvers frambjóðanda í
Kópavogi, en sagt var að hún sýndi
atkvæði í hvert sæti. Af þessum
sökum birtist hér tafla frá skrif-
stofu Alþýðuflokksins í Kópavogi
sem sýnir atkvæði í sæti og heildar-
atkvæðafjölda.
1. sæti Guðmundur Oddsson 514
atkv. alls 841
næstur Kristján Guðmundsson 309
2. sæti Kristján Guðmundsson 537
atkv. alls 793
næstur Helga E. Jónsdóttir 225
3. sæti Helga E. Jónsdóttir 457
atkv. alls 739
næstur Sigríður Einarsdóttir 293
4. sæti Sigríður Einarsdóttir 416
atkv. alls 579
næstur Ingibjörg Hinriksdóttir 262
5. sæti Ingibjörg Hinriksdóttir 387
atkv. alls 510
næstur Margrét B. Eiríksd. 329
6. sæti Margrét B. Eiríksd. 441
14 ógildir
1 auður