Morgunblaðið - 02.03.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994
33
Guðrún Þorkels-
dóttir — Minning
Fædd 2. júní 1902
Dáin 22. febrúar 1994
Herborg Hjálmars
dóttir — Minning
Amma mín, Guðrún Þorkelsdótt-
ir, lést á Landspítalanum 22. febr-
úar sl. eftir stutta sjúkralegu á 92.
aldursári._ Hún var fædd 2. júní
1902 í Ártúni á Kjarnesi, yngst
átta barna hjónanna Guðrúnar
Jónsdóttur og Þorkels Asmundsson-
ar. Fjölskyldan bjó í Ártúni til árs-
ins 1914 en þá lést Þorkell og Guð-
rún fluttist ásamt yngstu börnum
sínum til Reykjavíkur. Amma fór
fljótt að vinna með móður sinni,
aðallega í fiskvinnslu og þess hátt-
ar, en eftir að hún fullorðnaðist fór
hún í vist hér og þar. í einni vist-
inni líkaði henni best og var þar í
14 ár, en það var hjá þeim hjónum
Önnu Guðmundsdóttur og Kristni
Brynjólfssyni í Ráðagerði. Þar
kynntist hún eiginmanni sínum,
Guðmundi Jónassyni frá Borg í
Reykhólasveit. Þau eignuðust tvær
dætur, Kristínu Jónu, f. 14. janúar
1943, og Önnu, móður mína, f. 16.
mars 1945. Bamabörnin eru sex
og barnabarnabörnin þrjú.
Amma óg afi bjuggu í Efstasund-
inu mestan part búskapar síns og
áttu margir skjól þar hjá ömmu,
bæði systkinabörn hennar og systk-
ini, jafnt sem skyldmenni afa míns.
Ein manneskja naut þó sérstaklega
góðvildar ömmu, en það var bróður-
dóttir hennar, Svanborg Kjartans-
dóttir, sem amma tók undir sinn
verndarvæng sex ára gamla eftir
lát móður hennar og ól hana upp.
Amma var sérlega traust og vinnu-
söm og vann úti fullan vinnudag
til 76 ára aldurs.
Guðmundur afi minn lést árið
1964 og bjó amma áfram í húsinu
þeirra til ársins 1971 en þá keyptu
þau saman, foreldrar mínir og hún,
og bjó hún með mömmu til dauða-
dags.
Amma var hlédræg og lítið fyrir
fjölmenni en mikill og traustur vin-
ur vina sinna og hafði óforbetran-
legt skopskyn. Hafði hún yndi af
að segja frá skondnum atvikum,
t.d. þegar elstu barnabörnin tóku
sig til og, í samvinnu aldrei slíku
vant, hreinsuðu til í sparibolla-
skápnum þannig að það yngra rétti
úr skápnum meðan það eldra kast-
aði fínu bollunum hennar niður af
svölunum. Augun í ömmu hreinlega
dönsuðu þegar hún sagði frá þessu.
Við systkinin áttum því láni að
fagna að amma var á heimilinu frá
því við munum eftir okkur. Það var
ákaflega. notalegt að vita af því að
hún var alltaf heima þegar við kom-
um úr skólanum og hiustaði þolin-
móð á það sem hafði á daga okkar
drifið og oft sagði hún okkur frá
gömlum dögum eða einhverju sem
hún hafði lesið eða heyrt í útvarp-
inu, sem var hennar aðal dægra-
stytting eftir að hún hætti að vinna.
Það er erfitt að lýsa einhveijum
sem maður hefur þekkt alla ævi og
þykir ákaflega vænt um, án þess
að verða væminn. En traustari og
lítillátari manneskju held ég að ég
hafí aldrei kynnst og á sennilega
ekki eftir að kynnast því ég tel að
með hennar kynslóð kveðjum við
líka einstaklega agaðan og nægju-
saman þankagang.
Elsku amma, í dag kveðjum við
þig með söknuði og reynum að sam-
gleðjast þér að vera komin yfir
landamærin þangað sem þig er
búið að langa lengi. Það er gott að
vita að þú tekur á móti okkur þeg-
ar okkar tími kemur.
Arna Björk.
Hann varð einkennilega þögull
dagurinn þegar við fréttum að þú
værir farin. Og hann varð þrunginn
minningunni um þig. Sorgin og tár-
in leiddust hönd í hönd, en viku úr
vegi fyrir myndum sem við kölluð-
um fram úr hugarfylgsnum okkar
af eldhúsinu, ilmandi af bökunar-
lykt, vettvangi margra ógleyman-
legra atburða, þar sem aðalpersón-
an lék af fingrum fram við söng
tfyggðavina sinna, fuglanna.
I jjósi þessara minninga var auð-
velt að brosa í gegnum tárin, sér-
staklega þegar hnyttin tilsvör þín
og einlægar skoðanir á atburðum
líðandi stundar vöknuðu í munni
þeirra sem sátu saman þennan dag.
Það fór ekki mikið fyrir þér, en
umfang orða þinna og verka skilur
eftir tómarúm sem verður ekki fyllt
nema við endurfundi okkar, þegar
við saman gleðjumst, öllum stund-
um.
Og hvar sem smáfuglar koma saman,
til að gleðjast meðal blómanna,
þar ert þú.
Kveðja frá Bibba og íj'ölskyldu,
Dalvík.
Geir Gígja.
Þú komst svo blítt inn í líf okk-
ar, svo hlý, tignarleg og falleg.
Að setjast í litla notalega eldhús-
hornið þitt og ræða við þig um lífið
og tilveruna við kertalogann var
yndislegt.
Þú varst ótæmandi viskubrunnur
á menn og málefni, þjóðmál og trú-
mál. Þú kenndir okkur að meta það
sem við áttum, þegar þú gafst okk-
ur innsýn í þína ævisögu. Þú varst
vinur sem hafðir alltaf tíma til að
hlusta, tíma til að gefa góð ráð og
hlýja hönd til að halda í. Þú gast
laðað að þér og umvafið alla af
hjartagæsku þinni, það var sama á
hvaða aldri börnin voru, alltaf varst
þú á sömu bylgjulengd og skildir
þau.
í gegnum tárin er ekki annað en
að gleðjast yfir því ríkidæmi að
hafa átt þetta allt í þér.
Gg ilmurinn í kringum þig,
amma, blómin, pönnukökuilmurinn
sem litlu börnin elskuðu, kertaljósið
og fallegu lögin sem þú gast spilað
fyrir okkur. Þú varst eins og lítil
álfkona sem steigst dansspor á eld-
húsgólfinu og sagðir: „Hlustið á
fegurðina í söngnum!"
Ég þakka það nú hversu oft og
hve ljúft það var að taka utan um
þig og segja þér hversu mikils virði
þú varst og hversu vænt okkur
þótti um þig.
Við drúpum höfði í lotningu og
virðingu og þökkum þann gimstein
er þú gafst okkur af kærleikssjóði
þínum.
Krisljana, Kjartan og börn.
Minning
ÞorbjörgÞ. Bender
hjúkrunarkona
Elsku amma okkar lést hinn 22.
febrúar nær áttræð að aldri. Við
söknum þess að fá ekki að sjá hana
framar og vera með henni. Samt
erum við glaðir yfír því að hafa
fengið að kynnast henni svo vel
þegar við áttum héima saman, fyrst
á Melhaganum og svo í Frostaskjól-
inu. Á þessum árum sagði hún frá
mörgu um uppvaxtarár sín í sveit-
inni, Kelduhverfi, sem var henni svo
hugleikin. Hún kenndi okkur að
spila. Við spilamennskuna gat oft
verið glatt á hjalla þó við bræðurn-
ir værum stundum tapsárir. Eins
hafði hún gaman af því að fara í
boltaleik með okkur og vorum við
að vonum skjótari á eftir boltanum.
Á árum áður hefði hún haft betur
enda kraftmikil kona. Það er ekki
svo langt síðan hún hjólaði um allt.
Á rólegum stundum var gott að
skríða í hlýjan ömmufaðm og heyra
hana fara með margvísleg ljóð, vís-
ur og sálmavers. Það var ekki sjald-
an sem hún fór með þessi erindi:
Vorið góða, grænt og hlýtt
græðir fjör um dalinn;
allt er nú sem orðið nýtt,
æmar, kýr og smalinn.
Hún gaf okkur líka ýmis heilræði
fyrír lífið svo sem að þolinmæði
þrautir vinnur allar. í þeim anda
kenndi hún okkur að leysa hnúta.
Fyrir henni táknaði það hið sama
og takast á við hlutina í stað þess
að leita auðveldra lausna.
Þegar við fórum í háttinn á kvöld-
in þá sat hún iðulega hjá okkur og
raulaði þá gjarnan vögguvísuna
„Sofðu, unga ástin mín“, eða sagði
sögur.
Nú þegar dagur er að kvöldi
kominn í lífí hennar ömmu þá viljum
við þakka henni allar þessar góðu
stundir og kveðja hana með von
um að Guðs englar vaki allt um
kring yfir sænginni hennar.
Guð blessi þig.
Kristján Theodór, Jóhannes
Páll og Þorbjörg Andrea.
+
Bróðlr minn og mágur,
PÉTUR KRISTJÁNSSON
fyrrverandi kaupmaður,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. mars kl. 15.00.
Haraldur Kristjánsson, Gerða Herbertsdóttir
og fjölskylda.
Kveður í ranni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó
aftur að fara i göngur.
(Jónas Hallgrímsson)
.!* J.
IHéiril. I30KG
Sími 11440
Önnumsterfidrykkjur
íokkarfallegaog
virðulega Gyllta sal.
. \
Minningarathöfn um eiginmann minn, föður okkar, tengdaföður,
afa, son og bróður,
GÍSLA G. KRISTJÁNSSON,
Bókhlöðustíg 3,
Stykklshólmi,
sem fórst með mb. Önnu þann 1. desember sl., fer fram frá Stykk-
ishólmskirkju laugardaginn 5. mars kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á björgunarsveitina Berserki.
Þóra M. Halldórsdóttir,
Jóhanna Gísladóttir,
Helga Gfsladóttir, Bjarni Bjarnason,
Gabrfela Rún, ^
Steinunn D. Garðarsdóttir, G. Valur Valtýsson,
Hafrún Bylgja og Valtýr,
Kristján Guðmundsson, Auður Júlíusdóttir,
Erlar J. Kristjánsson,
Jónina K. Kristjánsdóttir,
Kristján J. Kristjánsson
og fjölskyldur þeirra.
Ástkœr eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTINN FRÍMANN JAKOBSSON,
Stekkjargerði 4,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. mars
kl. 13.30.
Eiín Árnadóttir,
Jakob Kristinsson, Jóhanna Antonsdóttir,
Árni Kristinsson, Eygló Ingimarsdóttir,
Steinunn Kristjana Kristinsdóttir, Hrafnkell Guðmundsson,
Filippía Guðrún Kristinsdóttir, Sigurður Ólafsson,
Þórdís Björg Kristinsdóttir, Ágúst Björn Ágústsson,
Kristinn Frímann Kristinsson, Elín Guðmundsdóttir,
Svanur Kristinsson, Hulda Hermannsdóttir,
Örn Kristinsson, Ragnheiður Tryggvadóttir
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts
mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTMUNDAR GUÐMUNDSSONAR,
Laufvangi 1,
áður Reykjavíkurvegi 29,
Hafnarfirði.
Ragnhildur Magnúsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vináttu viö andlát og
útför
ÁSTRÍÐAR G. GUÐMUNDSDÓTTUR,
Langholtsveg 96,
Reykjavík.
Guðmundur Ingimundarson, Jóhanna M. Guðjónsdóttir,
Guðni Ingimundarson, Kristfn Sigmundsdóttir,
Guðrún Ingimundardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför
JÓNDÍSAR SIGURRÓSAR EINARSDÓTTUR
frá Tálknafirði,
Álftahólum 4.
Jónfna Vigdís Ármannsdóttir, Einar Brandsson,
Jakob Einar Ármannsson, Guðjóna Ólafsdóttir,
Erla Svandís Ármannsdóttir, Þórarinn Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.