Morgunblaðið - 02.03.1994, Síða 34
34
MORGUNBLADIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994
fclk i
fréttum
mE''v'fcv
1 -: rJ¥... « ’V' W 1 í *.;.<<' 11
| ! ; ** í : ; % „ J|
-W'ml. I
Starfsvika var í Álftamýrarskóla nýlega og var öllum 5-10 ára nemendum boðið í Regnbogann í lok
vikunnar.
Fengn bíóferð í stað kennslu
Nemendur og kennarar Álfta-
mýrarskóla brugðu út af
hefðbundinni stundaskrá fyrir
skömmu og var kennsla lögð niður
í viku. Þess í stað voru bömin lát-
in vinna að ýmsum verkefnum
varðandi fjölskylduna í tilefni árs
fjölskyldunnar 1994. Var nemend-
um kennt að strauja, þvo þvott
og elda, jafnframt voru þeir látnir
gera verkefni og ritgerðir sem
tengdust ýmist eigin Qölskyldu eða
Qölskyldum almennt. Hjá nemend-
um 5-10 ára lauk vikunni í Regn-
boganum, þar sem forsvarsmenn
þess buðu í bíó.
VINSÆLDIR
Munkar
sláí
gegn með
tónlist
sinni
Þeir munkar sem gengið hafa
f reglu Benedictine og sest að
í klaustri nokkru nálægt bænum
Silos á Norður-Spáni hafa undan-
farin rúm þúsund ár stundað rann-
sóknir á trúarlegum handritum.
Nú hafa þeir 36 munkar sem þar
búa slegið í gegn meðal ungs fólks
í heimalandi sínu og vakið veru-
lega athygli á alþjóðavettvangi.
Ástæðan er ekki sérstæð uppgötv-
un varðandi handritin eins og
menn gætu haldið heldur hafa
þeir gefið út geisladiska með
gregorískum bænasöng sínum.
Voru diskarnir hljóðritaðir í
klaustrinu og hafa nú þegar selst
um 300.000 eintök á Spáni einu
saman.
Munkurinn Miguel býr sig undir að hitta blaðamenn eftir að plata
munkanna skaust upp á topp spænska vinsældalistans. Skaust lagið
upp yfir tónlistarmennina Gloriu Estefan, Frank Sinatra og Guns ’n’
Roses, svo dæmi séu tekin.
LÍKN
Mariah Carey
gjafmild
Söngfuglinn víðfrægi Mariah
Carey siglir nú lygnan sjó á
topp helstu vinsældalista heims
með plötu sína Music Box og lög
af henni, til að mynda lagið Hero.
Þó að hún sé þannig á sporbaug
um jörðu hefur hún ekki gleymt
jarðnesku erfíði. Fyrir skemmstu
ánafnaði hún fómarlömbum óðs
byssumanns í neðanjarðarlest á
ISAFJORÐUR
Daníel Jakobsson
*
Iþróttamaður ársins
Iþróttamaður ísafíarðar 1993
var kjörinn í hófi sem bæjar-
stjóm efndi til á fímmtudag.
Fjórar tilnefningar komu frá
íþróttafélögum í bænum en
bæjarstjóm kaus svo Daníel
Jakobsson skíðagöngumann úr
þeirra hópi.
Þau sem tilnefnd voru til
verðlaunanna em Sigríður Þor-
láksdóttir úr kvennaknatt-
spymuliði BÍ, Sigurður Samú-
lesson golfmaður, Helga Sig-
urðardóttir sundkona og Daní-
el.
Daníel er aðeins 20 ára en
er margfaldur íslandsmeistari
í göngu. Hann æfir með Asarna
ÍK í Svíþjóð þar sem hann
stundar jafírframt háskólanám.
Frá árinu 1993 liggur eftir
hann eftirfarandi afrekalisti:
íslandsmeistari í 30 km göngu
(rúmum 8 mín. á undan næsta
manni), íslandsmeistari í 15 km
göngu, íslandsmeistari í tvíkeppni,
Bikarmeistari SKÍ og íslandsmeist-
ari í boðgöngu ásamt Áma F. Elías-
syni og Gísla E. Ámasyni, en það
var einmitt Gísli sem tók við verð-
laununum fyrir Daníel, en hann er
nú á Ólympíuleikunum í Lilleham-
mer.
Daníel er meðal bestu skíða-
göngumanna í Svíþjóð þar sem
hann vann 8 göngukeppmr í fyrra
og varð í 2. og 6. sæti á sænska
Daníel Jakobsson skíðagöngu-
maður var staddur á Olympíu-
leikunum í LiIIehammer þegar
verðlaunin voru afhent.
meistaramótinu í flokki 19-20 ára.
Að sögn þeirra sem fylgst hafa
með ferli Daniels er hann raunsær
og yfírvegaður keppnismaður, sem
hefur æft af samviskusemi allt frá
8 ára aldri og stefnir á að ná árangri
á Ólympíuleikunum 1998, en þá
verður hann væntanlega á besta
aldri skiðagöngumanna.
Morgunblaðið/pþ
Nokkrir nemendur á veislukvöldinu í Reykholtsskóla. F.v. Hildur
Jónsdóttir, Sunna Simonardótdr, Páll Steinarsson og Dagný Jóhann-
esdóttir.
SKOLASTARF
Mánaðarlegar veisl-
ur í Reykholtsskóla
IFramhaldsskóIanum í Reykholti
eru haldnar veislur einu sinni
i mánuði, þar sem nemendur flytja
skemmtiatriði og eru með uppá-
komur, auk þess sem mikið er
borðað af veislumat eins og vera
ber. í febrúar sl. var hins vegar
brugðið út af venjunni og kennarar
sáu um skemmtiatriðin. Bar þar
hæst glíma Grettis og Gláms, þar
sem leikhljóðin vöktu hvað mesta
athygli og skemmtan.
í Reykholtsskóla eru starf-
ræktir fyrstu tveir bekkirnir á
framhaldsskólastigi. Gefst nem-
endum kostur á margs konar
námsbrautum, m.a. fjölmiðla-
braut með fullkomnu myndbands-
veri. Til viðbótar er verið að koma
á lítilli innanhússhljóðvarpsstöð,
þar sem komandi ljósvakavíking-
ar geta stigið sín fyrstu skref.
Long Island ágóðanum af sölu
lagsins. Byssumaðurinn skaut
óforvarandis á samferðamenn
sína, en þrír viðstaddra brugðust
hart við og yfirbuguðu manninn.
Mariah sagðist tileinka lagið þess-
um þremur hetjum, en eins og
áður sagði rennur ágóðinn af sölu
lagins, sem verður vísast veruleg-
ur, til fíölskyldna þeirra sem féllu
í valinn.
Mariah
Carey