Morgunblaðið - 02.03.1994, Síða 41

Morgunblaðið - 02.03.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 41 , ,ísland, sækjum það heim“ Frá írísi Ingvarsdóttur: Að opna augun, horfa og skoða, finna ilm, hlusta, snerta, taka þátt í vinnu eða leikjum, að ferðast. Hvernig getur þú komið upplifun þinni í myndverk? Hvemig getur þú sýnt landið þitt í mynd? Uppá- haldsstaðinn á ógleymanlegri stundu, minningu úr ferðalagi fjöl- skyldunnar í grenjandi rigningu á Dyrhólaey, þrumandi stuð á Þjóð- hátíð í Vestmannaeyjum eða næt- urvöku lengsta sólarganginn í Grímsey. Hvemig er hægt að myndgera ýmsa þekkta staði á landinu á hugmyndaríkan hátt, eða að lýsa jeppaferð á jökul, hestaferð um hálendið, veiði í ám og vötnum. Eða geturðu sýnt fólkið við vinnu sína, að byggja hús; hreinsun bæj- anna um sumarið og fólk að vinna fiskinn. Eða hvaða myndefni er hægt að finna í íslandssögunni, þjóðsögum og ljóðum? Ýmsir listamenn hafa gert landið og fólkið að viðfangsefni sínu og fengið aðra til að taka eftir um- hverfi sínu á nýjan hátt. Nú er farið af stað eitt stærsta myndlistarverkefni bama og ungl- inga í gmnn- og framhaldsskólum landsins. Tilefnið er að samgöngu- ráðuneytið er að undirbúa átak í ferðamálum á Íslandi sem ber heit- ið „íslandsferð Qölskyldunnar", undir slagorðunum „ísland, sækj- um það heim“ og er markmiðið að auka ferðalög íslendinga um eigið land. Áhersla er lögð á alla þá §öl- breyttu möguleika, sem bjóðast til skemmtilegrar dægradvalar á ís- landi; að kenna íslendingum enn frekar að ferðast um landið, njóta þess og hvetja fjölskyldur til að kynna sér sögu og menningu þjóð- arinnar. Tilefni átaksins er 50 ára lýðveldisafmæli þjóðarinnar og al- þjóðlegt „ár fjölskyldunnar“. Starfshópur á vegum samgöngu- ráðuneytisins óskað eftir samstarfi við FÍMK, Félag íslenskra myndlist- arkennara, um að fá börn og ungl- inga á aldrinum 6 ára til 20 ára til að taka þátt í verkefninu og er því ætlað að endurspegla þá fjöl- breytni sem Isiand býður upp á sem ferðamannaland. Hvernig sjá og tjá böm og unglingar náttúrana, at- burði og atvinnulíf þjóðarinnar? Hvemig tengja þau það sögu okkar og menningararfí? Verkefnið er viðamikið og verður úrval myndverka sent frá hverjum skóla. Verkin verða lögð fyrir dóm- nefnd skipaða fulltrúum frá Félagi íslenskra myndlistarkennara, Sam- bandi íslenskra myndlistarmanna og frá samgönguráðuneytinu. Verkin verða að hafa borist dóm- nefndinni fyrir 15. apríl nk. Öll verk verða send aftur til eig- enda sinna. Valdar verða 122 myndir á far- andsýningu sem opnuð verður í Ráðhúsi Reykjavíkur á listahátíð 27. maí 1994. Vemdári sýningarinnar er Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, og er það mikill heiður fyrir alla þá sem starfa að verkefninu. Þessi sýning verður síðan á ferð um landið í sumar. Vonast er til að önnur myndverk verði til sýnis í hveiju bæjar- og sveitarfélagi. Allir þátttakendur fá viðurkenn- ingarskjöl. Þeir sem fá myndverk sín valin á farandsýninguna fá sér- stök verðlaun. Þátttakendum er skipt í fjóra aldursflokka og verða veitt þijú aðalverðlaun í hveijum flokki. Ifyrstu verðlaun verða Mac- intosh-tölvur af nýjustu gerð frá Apple-umboðinu, önnur verðlaun verða íjallareiðhjól frá Eminum og þriðju verðlaun verða mýndlistar- vömr frá Pennanum. Auk þess verða veitt ýmis aukaverðlaun. Einnig munu verk verða valin til prentunar á póstkort, veggspjöld, boli og til greina kemur að gefin verði út frímerki með myndum af sýningunni ef þær henta til slíkrar útgáfu. Vonast er til að sem flest börn og unglingar á aldrinum 6-20 ára taki þáttí verkefninu, einnig þau sem njóta ekki myndlistarkennslu en hafa áhuga á að vera með. Þau ættu að geta komið verkum sínum á framfæri í gegnum skólana. Til mikils er að vinna fyrir alla hlutaðeigandi svo afraksturinn verði hugmyndarík, Qölbreytt og metnaðarfull sýning. ÍRIS INGVARSDÓTTIR myndlistarkennari. Pennavinir SLÓVAKI, 21 árs árs háskólastúd- ent, með áhuga á íþróttum, ferða- lögum og tungumálum: Mirek Kotek, Raby 94, 53352 St. Hradiste, Slovakia. SAUTJÁN ára finnsk stúlka með áhuga á ferðalögum, íþróttum, tón- list og safnar frímerkjum og póst- kortum: Hanna Granqvist, Box 7-3, 68550 Oja, Finland. TÓLF ára japönsk stúlka með áhuga á bréfaskriftum, kvikmynd- um o.fl.: Akiko Fujimoto, 6-6-1 Yoshimi, Moriyama Shiga, 524 Japan. LEIÐRÉTTINGAR Rangt föðumafn í grein um keppni í fijálsum dansi í blaðinu í gær misritaðist nafn stúlkunnar sem Ienti í 2. sæti í ein- staklingskeppninni. Hún heitir Mar- ía Þórðardóttir, ekki Torfadóttir. Er hún beðin velvirðingar á þessum mistökum. Místök í dag- skrárkynningu Vegna dagskrárkynningar fyrir Dagsljós síðastliðinn mánudag skal tekið fram að Guðni Gunnarsson, líkamsræktarþjálfari í Los Angeles, var á sínum tíma starfsmaður æf- ingastöðvarinnar World Class en rak ekki fyrirtækið eins og sagt var. Er beðist velvirðingar á þessm mistökum. Gunnur ekki Gunnar { blaðinu í gær var birtur framboðs- listi Alþýðubandalagsins í Hafnar- firði fyrir bæjarstjórnarkosningam- ar í vor. Þau leiðu mistök urðu að einn frambjóðendanna Gunnur Baldursdóttir, kennari var nefnd Gunnar Baldursson. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistök- um. VELVAKANDI SÖMU MISTÖKIN ENDURTAKA SIG Örlygur Pétursson hringdi og sagði að fyrir mánuði hafi hann verið að gæta barns sem veikzt hafi og hafi hann þá hringt í Læknavaktina. Barnið hafi verið með heiftarlega barkarbólgu og hafi hann orðið hræddur og því hringt í vaktina. Þar fékk hann þau svör að hann skyldi fara með bamið út á svalir. Ekki hafi þeim, er svaraði fundist ástæða til að læknir liti á bamið, þótt hann hafi óskað eftir því. Örlygur sagði að saga sín væri nánast samhljóða sögu konunnar, sem birtist í fóstudagsblaði Morg- unblaðsins á bls. 4. Hann undrað- ist að sömu mistökin skyldu henda Læknavaktina aftur í tilfelli móðurinnar, sem getið var í blað- inu á föstudag. Hann kvaðst ekki geta sætt sig við að svörin frá Læknavaktinni féllu undir „mann- leg mistök", þegar fólk fengi svo til sömu móttökumar í svipuðum tilfellum með nokkurra vikna millibili. Menn hlytu að freista þess að koma í veg fyrir mistök, sem einu sinni hefðu hent og kæmu sams konar mistök fyrir aftur, væri eitthvað meira að. TAPAÐ/FUNDIÐ Myndavél tapaðist Sl. laugardagskvöld 26. tapaðist fyrir utan Kaplaskjólsveg 29 kl. 23.30 Olympus-myndavél með átekinni filmu. Finnahdi er vin- samlega beðinn að skila að minnsta kosti filmunni sem á em dýrmætar minningar. Síminn er 24293 eftir kl. fjögur. Fundarlaun í boði. Lyklakippur töpuðust UM SEX lyklar á óvenjustómm lyklakippuhring töpuðust í Hafnarfirði fyrir u.þ.b. mánuði. Um helgina tapaði sami aðili Llo- yd’s skó-lyklakippu með þremur lyklum í Reykjavík. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 650813. Skíðapoki tapaðist SVARTUR og appelsínulitur Kástle-skíðapoki var tekinn í mis- gripum fyrir annan úr rútu við Melaskóla sl. öskudag. í pokanum vom vönduð skíði og stafir, en í pokanum sem vantar em stutt Rossignol skíði og stafir. Eigandi hinna skíðanna er vinsamlega beð- inn að hafa samband í síma 14887. Skotthúfa tapaðist SKRAUTLEG skotthúfa tapaðist við Heilsugæslustöð Efra-Breið- holts í Hraunbergi mánudaginn 21. febrúar sl. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 74076. Gleraugn töpuðust GLERAUGU í brúnni umgjörð í bláu gúmmí/tauhulstri töpuðust á leiðinni frá Suðurhólum að Hraun- bergi fyrir rúmri viku. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 73748. Húfa tapaðist SVÖRT lopahúfa með orðinu „Pervert" framan á tapaðist við Pizzahúsið á Grensásvegi eða við leigubílastöðina Hreyfil þar í ná- grenninu. Skilvís finnandi vinsam- lega hringi í síma 651065. Fund- arlaun. Plastpoki fannst LÍTILL blár plastpoki merktur Margaret Astor með mynd af loft- belg framan á var skilinn eftir i verslun Hans Petersen, Banka- stræti fyrir jólin. í pokanum var slæða. Eigandinn getur vitjað pok- ans í versluninni. GÆLUDÝR Lína er týnd SMÁVAXIN, kolsvört sjö mánaða læða, hvarf frá heimili sínu í Breið- holti 17. febrúar sl. Hún er með lítinn hvitan blett undir bring- unni. Hún er ómerkt. Hafi einhver orðið hennar var er hann vinsam- lega beðinn að hringja í síma 77552 eða 74239. Viðtalstími minn verður framvegis á þriðjudögum á göngudeild St. Jósefsspítalans í Hafnarfirði. Tímapantanir í síma 53888. Ámi Bjömsson Sérgr. skurð- og lýtalækningar. r I, ÁRANGUR OG AFLEIHNGAR í kvöld, miðvikudaginn 2. mars kl. 20.30, verður hald- inn umræðufundur um einkavæðinguna, árangur og afleiðingar á Kornhlöðuloftinu, Bankastræti 2. Frummælendur: Friðrik Sóphusson, fjármálaráðherra. Ogmundur Jónasson, formaður BSRB. Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður. Steingrímur Sigfússon, alþingismaður. Fundarstjóri: Óli Björn Kárason, hagfræðingur. Fundurinn er öllum opinn. Landsmálafélagið Vörður. Samband ungra sjálfstæðismanna. SPARAÐU kr. 35.000 á ári! Ef þú bakar eitt brauð á dag í sjálfvirku EL-GENNEL brauðvélinni, sparar þú allt að 35.000 krónum á ári og átt að auki alltaf nýbakað, ilmandi og hollt brauð! Þú setur vatn, olíu, mjöl og ger I vélina, þrýstir á takka og hún blandar, hnoðar, lyftir og bakar. Elnfaldara getur það ekki veriðl Ný sending komin. Verð aðeins kr. 27.900 eða kr. 26.505 stgr. Þú og þínir eiga aðeins það besta skilið. Sameinaðu sparnað og hollustu - bakaðu öll brauð í El-Gennel brauðvélinni! Einar Farestveit&Cohf. Borgartúni 28 “S 622901 og 622900 1 n*«i puM *fctí> Metsölutíad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.